Morgunblaðið - 01.05.2002, Síða 63
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 63
Laugarneskirkja. Morgunbænir í kirkjunni
kl. 6.45–7.05 alla virka daga.
Langholtskirkja. Opið hús og samvera
eldri borgara fellur niður í dag.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljós-
broti Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á
fimmtudögum kl. 10–12. Opið hús fyrir
eldri borgara í dag kl. 13:00. Helgistund,
spil og kaffiveitingar
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Fyrirbænasamvera
á morgun, fimmtudag, kl. 19. Fyrirbæna-
efnum er hægt að koma áleiðis að morgni
fimmtudagsins milli kl. 10 og 12 í síma
421-5013. Sóknarprestur. Spilakvöld
aldraðra fimmtudag kl. 20. Sóknarprest-
ur.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15
tónleikar Litlu lærisveinanna í 1. maí-
kaffinu í Alþýðuhúsinu. Kl. 20 opið hús í
KFUM&K-húsinu fyrir unglinga í 8.–10.
bekk.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar
í dag kl. 10–12.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í
síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Orð guðs rætt og mikil lofgjörð.
Allt ungt fólk velkomið.
Fíladelfía. Súpa og brauð fellur niður í
dag.
Krossinn – kökubasar. Hondúrashópur-
inn í Krossinum verður með kökubasar og
vöfflusölu í Krossinum í Hlíðarsmára í
Kópavogi í dag, 1. maí, frá kl. 13–15.
Hondúrashópurinn er að afla fjár fyrir
byggingu sjúkrahúss í Hondúras sem nú
er á lokastigi.
Safnaðarstarf
KIRKJUSTARF
Bossakremið
frá Weleda – þú færð ekkert betra
Fæst í: Þumalínu, Heilsuhúsinu,
Lyfju, Lyf og heilsu og Apótekinu
STANDARD +
STANDARD+ bílskúrshurðin frá Garaga eru
framleiddar undir ströngu eftirliti í mörgum
stærðum og litum og passa í næstum hvaða
hurðarop sem er. Þessar hurðir eru framleiddar
með varanleika og fallega hönnun í huga.
Við bjóðum 15% afslátt af öllum
pöntunum í maí.
Sími 525 3000 • www.husa.is
Bílskúrshurðir
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkv. 15. gr. samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega fram borin.
Reikningar félagsins og tillaga stjórnar til fundarins
munu ásamt fylgigögnum liggja frammi til kynningar
fyrir hluthafa á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfund.
Eyrarbakka, 30. apríl 2002.
Stjórn Alpan hf.
www.lookcookware.is - info@lookcookware.is
Alpan hf., Búðarstíg 22, 820 Eyrarbakka
Aðalfundur Alpan hf.
Boðað er til aðalfundar Alpan hf.
miðvikudaginn 15. maí 2002 kl. 16.00
í samkomuhúsinu Stað, Eyrarbakka.
Opið hús í leikskólum
OPIÐ hús verður í fjölda leikskóla
í Reykjavík næstkomandi laugar-
dag. Leikskólarnir eru Austurborg
við Háaleitisbraut, Álftaborg að
Safamýri 32, Ásborg að Dyngju-
vegi 18, Brákarborg við Brákar-
sund, Garðaborg að Bústaðavegi
81, Holtaborg að Sólheimum 21,
Jörfi við Hæðargarð, Kvistaborg
að Kvistalandi 26, Laugaborg og
Lækjarborg við Leirulæk, Múla-
borg að Ármúla 8a, Skógarborg við
Áland, Steinahlíð við Suðurlands-
braut og loks Sunnuborg að Sól-
heimum 19. Verður opið í þessum
leikskólum milli klukkan 11 og 13.
Þá verður opið hús í fimm leik-
skólum í Seljahverfi þennan dag.
Það eru leikskólarnir Seljaborg við
Tungusel þar sem verður opið milli
klukkan 10 og 12, Hálsakoti við
Hálsasel milli klukkan 10:30 og
12:30, Seljakoti við Rangársel milli
klukkan 10:30 og 12:30, Jöklaborg
við Jöklasel milli klukkan 11 og 13
og loks Hálsaborg við Hálsasel
milli klukkan 11:30 og 13:30.
Sömuleiðis verður opið hús í
leikskólum í Hlíðahverfi á laugar-
dag. Það eru leikskólarnir Hlíð-
arborg, Hamraborg, Sólborg og
Sólhlíð sem hafa opið milli klukkan
11 og 13.
Geta gestir og gangandi kynnt
sér uppeldisstarf þessara leikskóla,
vinnu barnanna á yfirstandandi
leikskólaári og skoðað húsnæði og
leiksvæði leikskólanna.
Stöndum
vörð um
Hafnarfjörð
SAMFYLKINGIN í Hafnarfirði
mun á fimmtudagskvöldið 2. maí
kynna stefnuskrá jafnaðarmanna
vegna bæjarstjórnarkosninganna nú
í vor, í Hásölum, safnaðarheimili
Hafnarfjarðarkirkju kl. 20. Ein-
kunnarorð kosningabaráttunnar eru
„Stöndum vörð um Hafnarfjörð“.
Lúðvík Geirsson, oddviti framboðs-
listans mun fylgja stefnuskránni úr
hlaði með ávarpi til Hafnfirðinga. Þá
munu ungir listamenn flytja lista- og
menningardagskrá, en auk þess
munu frambjóðendur Samfylkingar-
innar fjalla um stefnu flokksins í
bæjarmálum, segir í fréttatilkynn-
ingu. Allir velkomnir. Boðið verður
upp á kaffiveitingar að kynningu og
listviðburðum loknum, segir þar
ennfremur.
Ungir sjálfstæðismenn
Standa við yfirlýs-
ingar um skuldir
UNGIR sjálfstæðismenn segjast
standa við fyrri yfirlýsingar um
skuldaaukningu Reykjavíkurborgar
í tíð R-listans. Í Morgunblaðinu í
gær er haft eftir Degi B. Eggerts-
syni borgarfulltrúa að skuldaaukn-
ingin sé 6,7 milljónir á dag, en sjálf-
stæðismenn segja aukninguna rúm-
lega 11 milljónir á dag.
Ungir sjálfstæðismenn vísa í upp-
lýsingar frá fjármáladeild Reykja-
víkurborgar og fjárhagsáætlun
meirihlutans fyrir árið 2002.
„Þar sjáum við að heildarskuldir
Reykjavíkurborgar í árslok eru
áætlaðar 44,8 milljarðar í árslok án
lífeyrisskuldbindinga. Samkvæmt
skilgreiningu á hreinum skuldum í
almennum reikningsskilum þá er
rétt að draga frá þessari tölu hand-
bært fé, veltufjármuni og langtíma-
kröfur alls að upphæð 11,6 milljarða
samkvæmt sömu áætlun. Þessi frá-
dráttur gefur hreina skuldastöðu
Reykjavíkurborgar upp á 33,2 millj-
arða í árslok 2002.
Samkvæmt upplýsingum frá fjár-
máladeild Reykjavíkurborgar um
áætlaðan efnahag borgarinnar í árs-
lok 2001 er þessi sama tala 29 millj-
arðar í árslok 2001. Áætluð aukning
hreinna skulda á árinu 2002 er því
um það bil: 33,2 - 29 = 4,2 milljarðar,
sem gefur hækkun upp á ríflega 11
milljónir króna á dag,“ segir í yfir-
lýsingu SUS.
LEIÐRÉTT
Rangar tölur
Í þriðjudagsblaði Morgunblaðsins
voru rangar tölur gefnar upp um
fjölda þeirra sem leitað hafa eftir
mataraðstoð hjá Hjálparstarfi kirkj-
unnar. Hið rétta er að 1.454 leituðu
aðstoðar á tímabilinu 1. október til 1.
apríl síðastliðinn og 1.230 á sama
tíma veturinn áður. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
Kosning á þing
Sjálfsbjargar
KOSNING á þing Sjálfsbjargar,
landsambands fatlaðra, sem haldið
verður dagana 7. til 9. júní 2002 í
Reykjavík, verður í félagsheimili
Sjálfsbjargar félags fatlaðra á höf-
uðborgarsvæðinu, Hátúni 12 (Fé-
lagsheimilinu) fimmtudaginn 2. maí
kl. 20, segir í fréttatilkynningu.
NÝ heimasíða Heilbrigðiseftirlits-
ins í Bessastaðahreppi, Garðabæ,
Hafnarfirði og Kópavogi var opnuð
í gær. Með síðunni er fyrirhugað að
bæta upplýsingamiðlun um starf-
semina.
Meðal annars verða fundargerðir
heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar-
og Kópavogssvæðis birtar jafn-
óðum á heimasíðunni auk frétta af
Opnuðu nýja heimasíðu
því sem á döfinni er í heilbrigðis-
málum í sveitarfélögunum. Á mynd-
inni má sjá Gunnar Val Gíslason,
sveitarstjóra í Bessastaðahreppi,
Sigurð Geirdal, bæjarstjóra Kópa-
vogs, Magnús Gunnarsson, bæj-
arstjóra í Hafnarfirði og Ásdísi
Höllu Bragadóttur, bæjarstjóra í
Garðabæ, opna síðuna í gær en slóð-
in þangað er heilbrigdiseftirlit.is.
KOSNINGASKRIFSTOFA B-list-
ans, listi óháðra og Framsóknar-
flokks í Garðabæ verður opnuð í
dag, miðvikudaginn 1. maí kl. 16 á
Lyngási 17 (Video-Gallerý, efri
hæð). Léttar veitingar verða á
boðstólnum og eru allir þeir sem
leggja vilja framboðinu lið vel-
komnir.
Sérstakur gestur verður Siv
Friðleifsdóttir umhverfisráðherra,
segir í fréttatilkynningu.
Opna kosningaskrifstofu
Óháðir og Framsóknarflokkurinn í Garðabæ