Morgunblaðið - 09.05.2002, Qupperneq 1
107. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 9. MAÍ 2002
STJÓRNVÖLD í Ísrael bjuggu sig í
gær undir að hefna hryðjuverksins í
einu úthverfa Tel Aviv í fyrrakvöld
en það varð 16 manns að bana auk
árásarmannsins. Getgátur voru um,
að gripið yrði til meiriháttar hernað-
araðgerða, hugsanlega á Gaza, og
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, þvingaður í útlegð. Arafat
fordæmdi hryðjuverkið í gær en Ar-
iel Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
sagði hann bera ábyrgð á því og hót-
aði hefndum.
Sharon batt enda á heimsókn sína í
Washington er fréttir bárust af
hryðjuverkinu og skipaði ríkisstjórn
sinni að koma saman til fundar er
hann kæmi til Ísraels, seint í gær-
kvöld eða í nótt.
Palestínska heimastjórnin, sem
óttast grimmilegar hefndir Ísraela,
yfirgaf höfuðstöðvar sínar í Ramallah
í gær og Arafat skoraði á George W.
Bush Bandaríkjaforseta að senda al-
þjóðlegt gæslulið á vettvang. Sagði
hann, að Ísraelar væru búnir að eyði-
leggja alla innviðu heimastjórnarinn-
ar á Vesturbakkanum og þar með ör-
yggissveitir Palestínumanna. Heima-
stjórnin væri því ófær um að koma í
veg fyrir sjálfsmorðsárásir. Aldrei
þessu vant taka sumir Ísraelar undir
það með honum.
Arafat kom fram í palestínska
sjónvarpinu í gær og skipaði mönn-
um sínum að beita öllum ráðum til að
koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir í
Ísrael. Nokkru síðar tilkynnti hann,
að 14 menn hefðu verið handteknir í
Gaza, grunaðir um að tengjast
hryðjuverkinu í Tel Aviv.
Evrópusambandið, Rússland og
Mannréttindastofnun SÞ fordæmdu í
gær hryðjuverkið í Ísrael en Hamas-
samtökin hafa lýst því á hendur sér.
Ágreiningur við
Bandaríkjamenn
Sharon er sagður hafa sett það
sem skilyrði fyrir friðarviðræðum við
Palestínumenn, að heimastjórnin
verði stokkuð upp, og ísraelskur
embættismaður sagði í gær, að
Bandaríkjastjórn væri sama sinnis.
Það virðist þó ofmælt því að Colin
Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, sagði í gær, að umbætur á
heimastjórninni væru nauðsynlegar
en væru ekkert skilyrði fyrir viðræð-
um.
Umsátur Ísraela um Fæðingar-
kirkjuna í Betlehem hélt áfram í gær
þrátt fyrir samninga um, að því lyki
með því, að 13 palestínskir byssu-
menn yrðu sendir úr landi. Hafði ver-
ið samið um það að Ítölum forspurð-
um, að þeir tækju við þeim, en þeir
neita því. Líkur þóttu á nýju sam-
komulagi í gær um að allir fengju að
fara úr kirkjunni nema mennirnir 13,
sem yrðu þar áfram þar til eitthvert
ríki vildi taka við þeim.
Reuters
Ísraelskt vélmenni dregur burt særðan palestínskan ungling en sprengja, sem hann bar innanklæða, sprakk fyrr en hann ætlaði. Átti þetta sér stað rétt
við borgina Haifa í Ísrael í gærmorgun en í fyrrakvöld varð annar Palestínumaður 16 Ísraelum og sjálfum sér að bana með sprengingu í Tel Aviv.
Palestínumenn óttast
hefndarárásir Ísraela
Arafat lætur handtaka menn
tengda hryðjuverkinu
Jerúsalem. AP, AFP.
„Ný skilyrði“/35
ÍRANSKUR þingmaður staðfesti í
gær, að írönsk stjórnvöld hefðu ný-
lega átt leynilegar viðræður við
sjálfa erkifjendurna, Bandaríkja-
menn, þótt því hafi verið neitað op-
inberlega.
„Öfugt við það, sem utanríkisráð-
herrann hefur sagt, þá hafa átt sér
stað leynilegar viðræður við Banda-
ríkjamenn,“ sagði Mohsen Mirdami,
formaður utanríkismálanefndar ír-
anska þingsins og kunnur umbóta-
sinni.
„Þetta er hálfvandræðalegt og ég
tel, að þessar viðræður eigi að fara
fram fyrir opnum tjöldum.“
Írönsk dagblöð hafa haldið því
fram, að þessar viðræður hafi átt sér
stað, annaðhvort á Kýpur eða í Ank-
ara í Tyrklandi. Íran og Bandaríkin
hafa ekki haft með sér stjórnmála-
samband í 22 ár og opinber stefna í
Íran er að hafa ekkert samband við
Bandaríkin nema um málefni Afgan-
istans. Fyrr á árinu sagði George W.
Bush Bandaríkjaforseti, að Íran
væri eitt af ríkjunum í „hinum illa
öxli“ ásamt Írak og Norður-Kóreu.
Segir viðræðu-
bannið út í hött
Mirdami lýsti þeirri skoðun fyrir
nokkrum vikum, að rétt væri að
ræða við þá bandaríska þingmenn,
sem ekki væru „fjandsamlegir“ Ír-
an, og annar umbótasinni, Mohamm-
ad Naimipour, sagði fyrir skömmu,
að bannið við viðræðum við Banda-
ríkjastjórn væri út í hött. Ali
Khamenei, hinn andlegi leiðtogi
landsins, er aftur á móti andvígur
öllum viðræðum.
Leyni-
legar við-
ræður
við Írana
Teheran. AFP.
UM 240 manns, lögreglumenn, her-
menn og skæruliðar maóista féllu í
gær í hörðum bardögum í Nepal. Að
sögn embættismanna hafa 600
skæruliðar verið felldir á sex dögum
og hermenn hafa umkringt aðra
500.
Til að hefna harðra árása hersins
gerðu maóískir uppreisnarmenn í
Nepal árásir á tvennum vígstöðvum
í gær og felldu að minnsta kosti 140
her- og lögreglumenn og misstu
sjálfir 14 menn, að sögn hersins.
Rúmlega hundrað her- og lögreglu-
menn féllu í bænum Gama í vest-
urhluta landsins, þar sem um 500
uppreisnarmenn umkringdu sam-
eiginlega bækistöð hers og lögreglu.
Gama er höfuðvígi maóista, sem
hafa barist gegn konungsveldinu í
Nepal síðan 1996. Umsátrið um
bækistöðina þar hófst á þriðjudags-
kvöld, og herinn notaði þyrlur til að
flytja liðsauka til mannanna í bæki-
stöðinni, en vegna veðurs var ekki
hægt að lenda þyrlunum. Allir sem
voru í bækistöðinni voru felldir.
Bandarísk hernaðaraðstoð
Á meðan bardagarnir stóðu í
Gama náði herinn aftur á sitt vald
búðum lögreglu í bænum Chainpur,
sem er um 400 km austur af höf-
uðborginni Katmandu. Fjórir lög-
reglumenn féllu þar, og hermenn
fundu lík 14 uppreisnarmanna.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti hefur beðið þingið að sam-
þykkja tæplega tveggja milljarða
króna hernaðarstyrk við Nepal og
þar eru nú á milli 10 og 20 banda-
rískir hernaðarsérfræðingar.
Grimmileg átök milli skæruliða og stjórnarhersins í fjallaríkinu Nepal
Hundruð manna
liggja í valnum
Katmandu. AP, AFP.