Morgunblaðið - 09.05.2002, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 09.05.2002, Qupperneq 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ MARKMIÐ átaks í öldrunarþjónustu er að vekja athygli ungs fólks á at- vinnutækifærum í þágu aldraðra, stuðla að viðhorfsbreytingu til starfa í öldrunarþjónustu og bæta ímynd aldraðra í þjóðfélaginu, að því er fram kom á kynningarfundi í Gerðubergi í gær. Þar var veftorgið ellismellur.is opnað formlega, en þar er að finna margvíslegar upplýsingar sem tengj- ast öldrunarþjónustu, auk þess sem hægt er að sækja um vinnu við öldr- unarþjónustu þar. Anna Birna Jensdóttir, hjúkrunar- forstjóri í Sóltúni, sem er formaður átakshópsins, sagði á fundinum að það væri sérstakt verkefni stjórn- valda að koma til móts við aukna þörf eldri borgara fyrir hvers konar þjón- ustu, tryggja hana í sessi og búa í hag- inn fyrir vaxandi eftirspurn á kom- andi árum. Markmið átaksins væri að vekja athygli ungs fólks á atvinnu- tækifærum í þágu aldraðra, stuðla að viðhorfsbreytingu til starfa í öldrun- arþjónustu og bæta ímynd aldraðra í þjóðfélaginu. Þá kynnti hún veftorgið ellismell- ur.is, en þar koma saman aðilar sem starfa við öldrunarþjónustu. Miðlað er upplýsingum um atvinnutækifæri, menntunarmöguleika og annað, svo sem reynslusögur úr starfi. Jafnframt verða þarna upplýsingar um kaup og kjör og þar er að finna hlekki inn á aðra tengda vefi. Þar verður einnig hægt að sækja um störf hjá mismun- andi atvinnurekendum í öldrunar- þjónustu. Fylgst með daglegu lífi eldri borgara Anna Birna sagði einnig að á mánu- daginn kemur myndi sjónvarpið frumsýna myndina „Lífið heldur áfram“ þar sem fylgst væri með dag- legu lífi eldri borgara sem lagt hafa þessu átaki lið, en þar er brugðið upp svipmyndum úr leik og starfi. Fram kom að átakinu er ætlað að styrkja stöðu þeirra fjölbreytilegu starfa sem unnin eru í öldrunarþjón- ustu. Opna augu og skerpa vitund um kosti þess að starfa með eldri borg- urum, jafnframt því sem þeirri spurn- ingu sé velt upp hvort verið geti að eldri borgarar séu vanmetinn mann- auður og hvernig nýta megi reynslu þeirra og starfskrafta í þágu sam- félagsins og ekki síst jafnaldra sinna. Anna Birna sagði einnig að aðrir aldurshópar sem stæðu á tímamótum ættu að beina sjónum að öldrunar- þjónustunni og nefndi nýja vinnu- markaðskönnun Hagstofunnar í því sambandi, en þar kæmi fram að fimm þúsund manns hefðu verið atvinnu- lausir á landinu í apríl. Nóg af störfum væru fyrir hendi í öldrunarþjónust- unni og það væri mjög ánægjulegt ef þessir einstaklingar gæfu sjálfum sér það tækifæri að mæta til starfa í gjöf- ulu og mannbætandi umhverfi. Þá kom fram að menntunarkostir á þessu sviði væru fjölbreytilegir. Á framhaldsskólastigi væri kostur á nýju námi, félagsliðanámi, en einnig væri um að ræða sjúkraliðanám, mat- artækni, hárgreiðslu- og snyrtinám, fótaaðgerðarfræði, nuddnám, skrif- stofunám og iðnnám, en þessar náms- leiðir væri hægt að velja með eða án stúdentsprófs. Hvað háskólanám varðaði mætti nefna hjúkrunarfræði, læknisfræði, sjúkraþjálfun, iðjuþjálf- un, djáknanám, guðfræði, matarfræði og næringarfræði, tannlæknisfræði, þroskaþjálfun, talmeinafræði, nýjar greinar eins og listmeðferðarfræði og tónlistarmeðferðarfræði, sálfræði, fé- lagsráðgjöf, stjórnunar- og viðskipta- fræði, mannfræði og upplýsingatækni hvers konar og þannig mætti áfram telja, en allt væru þetta námsleiðir sem þörf væri á í öldrunarþjónustu og veittu fjölbreytt tækifæri. Einnig kom fram að í öldrunar- þjónustu væri stór hópur starfs- manna með mjög fjölbreyttan bak- grunn og vinna þyrfti að starfstengdu námi sem leiddi til starfsréttinda svo sem félagsliða eða sjúkraliða. Þá þyrfti starfsfólk af erlendu bergi brot- ið að eiga kost á starfstengdu ís- lenskunámi. Loks kom fram að vekja þyrfti at- hygli á bættum launakjörum og bættri vinnuaðstöðu á þessu sviði. Ný hjúkrunarheimili búin bestu mögu- legri aðstöðu fyrir íbúa og starfsmenn væri að finna á Íslandi og eldri hjúkr- unarheimili ynnu markvisst að end- urbótum sinna húsakynna. Upplýs- ingatækni væri notuð í vaxandi mæli sem og hvers kyns hjálpartæki sem efldu sjálfsbjörg og léttu störfin. Þannig hefði gríðarleg breyting og þróun átt sér stað á þessu sviði, sem styrkti stöðu þeirra sem störfuðu við þetta og gerði störfin ánægjulegri og léttari. Hlutfall aldraðra mun aukast á næstu árum Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra sagði að starfshópur um bætta ímynd öldrunarþjónustu hefði verið skipaður á sínum tíma af heilbrigð- isrráðherra, en markmið hópsins væri fyrst og fremst að vekja athygli ungs fólks á atvinnutækifærum á þessu sviði, stuðla að viðhorfsbreyt- ingu til starfa í öldrunarþjónustu og bæta ímynd öldrunar í þjóðfélaginu. Hópurinn hefði að mörgu leyti farið óhefðbundnar leiðir sem hann vonaði að myndi skila árangri. Jón sagði að hlutfall aldraðra af íbúafjölda íslensku þjóðarinnar myndi aukast á næstu árum. Öldrun- arþjónusta væri ört vaxandi þjón- ustugrein, ekki aðeins fyrir þá sem þyrftu á umönnun að halda heldur einnig í tengslum við ýmsa aðra þjón- ustu og tómstundir sem eldri borg- arar nýttu sér. Með betri lífskjörum, þekkingu, heilsugæslu, lyfjum og þjónustu væri ljóst að bæta mætti heilsu og lífsgæði aldraðra. Jón benti á að að eldri borgarar væru nú um 32 þúsund talsins og þyrftu þrjú þúsund þeirra á sérstakri umönnun að halda. Flestir þeirra, eða rúmlega 60%, byggju á höfuðborgar- svæðinu og um 10% á Norðurlandi eystra.Hann bætti því við að þessi málaflokkur yrði mjög mikilvægur í framtíðinni. „Það er einlæg von mín að þetta átak sem nú er ýtt úr vör muni skila sér þannig að augu manna opnist fyrir því hversu gjöfult það er að starfa í öldrunarþjónustu,“ sagði Jón ennfremur. Átakshópurinn er skipaður ýmsum forvígismönnum á sviði öldrunarþjón- ustu, en bakhjarlar átaksins eru heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneytið, landlæknisembættið, Reykjavíkur- borg, Garðabær, Kópavogur, Hafnar- fjörður, Mosfellsbær, Landssamband lífeyrissjóða, Efling – stéttarfélag, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félag stjórnenda í öldrunarþjónustu, Öldrunarráð Íslands, Vísindasjóður Öldrunarfræðafélags Íslands og Gerðuberg, félagsstarf eldri borgara. Átakshópur um breytta ímynd öldrunarþjónustu á vegum heilbrigðisráðherra og sveitarfélaga Þörf fyrir aukna þjónustu mætt Átaki um breytta ímynd öldrunarþjón- ustu var ýtt úr vör í gær, en að undanförnu hefur átakshópur á vegum heilbrigðis- ráðherra og nokkurra sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu unnið að því að finna úr- lausnir vegna vaxandi eftirspurnar eftir starfsfólki í öldr- unarþjónustu. Morgunblaðið/RAX Frá kynningarfundinum í Gerðubergi í gær. Anna Birna Jensdóttir, for- maður átakshópsins, og Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra. RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI krefst sakfellingar yfir þremur mönnum, sem ákærðir eru fyrir bensín- sprengjuárás á aðsetur bandaríska sendiráðsins og sendiherrans við Laufásveg hinn 21. apríl 2001. Við árásina blossaði upp eldur á fram- hlið hússins en skamma stund tók að slökkva hann með handslökkvi- tæki. Einn sakborninganna hefur geng- ist við því að hafa útbúið sprengjuna og játar að hafa borið eld að kveiki- þræði og kastað sprengjunni í sendiráðið. Hann kallaði verknaðinn heimskupör við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og bar við ölvun. Annar meðákærðu sagði að aldrei hefði verið ætlunin að kasta bensín- sprengjunni á sendiráðið og þriðji meðákærði sagðist ekki hafa tekið þátt í að búa til sprengjuna. Hefði hann ekki áttað sig á hvað gerst hefði enda ofurölvi. Báðir með- ákærðu fylgdu hins vegar þeim sem bjó til sprengjuna að sendiráðinu og stöðvuðu hann ekki við árásina og telur saksóknari það m.a. vera til marks um hlutdeild þeirra í brotinu. Krefst hann sakfellingar og telur saksóknari að meðákærðu hefðu getað tekið í taumana en ekki gert það og telur að sekta eigi þá um 100–150 þúsund krónur. Verjendur ákærðu krefjast sýknu. Dómur verður kveðinn upp 28. maí. Bensínsprengjuárás á bandaríska sendiráðið Krafist sak- fellingar og allt að 150 þús. króna sektar ORKUSTOFNUN fékk í gær við- urkenningu fyrir að vera ríkis- stofnun sem hefur skarað fram úr og verið til fyrirmyndar í starfi sínu. Geir H. Haarde fjármálaráð- herra afhenti Þorkatli Helgasyni orkumálastjóra verðlaunin, verð- launagripinn Vegvísi sem Jón Snorri Sigurðsson gullsmiður hann- aði og smíðaði. Þrjár stofnanir fengu viðurkenn- ingu fyrir góðan árangur í rekstri, Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, Fiskistofa og Ríkiskaup. Fimm manna nefnd hafði það hlutverk að velja það ríkisfyrirtæki sem þótti skara fram úr. Óskað var eftir tilnefningum frá ráðuneytum og ríkisstofnunum. Almenningur gat einnig tilnefnt fyrirmynd- arstofnun á vef stjórnarráðsins og á vef Morgunblaðsins, www.mbl.is. Nefndin ákvað að afla frekari upplýsinga frá 20 stofnunum. Segir í fréttatilkynningu að valið hafi ver- ið erfitt, enda séu aðstæður þeirra á margan hátt ólíkar. Öruggt sé að í hópi þeirra stofnana sem ekki hlutu viðurkenningu að þessu sinni séu margar af fyrirmyndarstofnunum framtíðarinnar. Í niðurstöðu nefndarinnar segir m.a. að Orkustofnun sé jarð- hitarannsóknarstofnun á heims- mælikvarða. Á síðustu árum hafi verið unnið markvisst að ýmsum umbótum í rekstrinum. Orkustofn- un hafi fyrir nokkru aðgreint stjórnsýsluhlutverk sitt frá rann- sóknarhlutanum, til að tryggja bet- ur faglegt sjálfstæði þeirra sem við rannsóknir starfa og fjárhagslega aðgreiningu samkeppnisrekstrar. Fjármálastjórnun hafi verið styrk og stofnunin haldi sig ávallt innan fjárlaga. Starfsfólk hafi einnig ver- ið jákvætt gagnvart breytingum og þróunarstarfi og hafi tekið þátt í að breyta hlutverki og verkefnum stofnunarinnar á síðustu árum. Þetta er í fjórða sinn sem verðlaun- in eru veitt, Landgræðsla ríkisins hlaut verðlaunin árið 2000, Svæð- isskrifstofa um málefni fatlaðra á Reykjanesi árið 1998 og Kvenna- skólinn í Reykjavík árið 1996. Orkustofnun til fyrirmyndar Morgunblaðið/RAX Þorkell Helgason orkumálastjóri og Geir H. Haarde fjármálaráðherra með verðlaunagripinn Vegvísi sem veittur var í fjórða sinn í gær.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.