Morgunblaðið - 09.05.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Það þarf að vera með réttu græjurnar þegar skóflustungan
„Reykjavík fyrir Reykvíkinga“ verður tekin.
Friðarstyrkur Rótarý
Stuðlar að
eflingu friðar
ALÞJÓÐASAMTÖKRótarý hafa hleyptaf stokkunum nýj-
um styrktarsjóði sem ber
heitið Friðarstyrkur Rót-
arýsjóðsins. 70 einstakling-
ar munu á ári hverju hljóta
styrk úr sjóði þessum og
nú hefur það gerst á árdög-
um þessa sjóðs, að ung ís-
lensk kona hefur hlotið
styrk úr honum. Það er
Helga Bára Bragadóttir,
menntaskólakennari á Ísa-
firði, og hún svaraði nokkr-
um spurningum um styrk-
veitinguna og fleira henni
tengt.
Segðu okkur fyrst eitt-
hvað um þennan nýja styrk
Rótarýhreyfingarinnar,
hver er tilgangurinn með
honum og tilurð hans?
„Rótarýsjóðurinn stendur fyrir
umfangsmiklu mannúðar- og
menningarstarfi um allan heim.
Sem hluta af því starfi veitir hann
námsstyrki. Friðarstyrkur Rót-
arýsjóðsins er nýr námsstyrkur
sem í fyrsta skipti er veittur í ár.
Friðarstyrkurinn er handa þeim
sem læra um og rannsaka mis-
munandi hliðar á stríði og friði.
Með því að veita hann vill Rótarý-
sjóðurinn auðvelda fólki að fara í
slíkt nám og þannig stuðla enn
frekar að eflingu friðar í heimin-
um. Á hverju ári munu 70 einstak-
lingar fá Friðarstyrkinn til að
stunda tveggja ára meistaranám í
friðarfræðum. Komið hefur verið á
samstarfi við sjö virta háskóla í
Frakklandi, Japan, Argentínu,
Bandaríkjunum, Ástralíu og Bret-
landi og styrkþegarnir munu
stunda nám í þeim skólum. Styrk-
irnir eiga að standa undir öllum
náms- og dvalarkostnaði.“
Hvernig atvikaðist það að þú
fékkst styrkinn?
„Styrkurinn er alþjóðlegur sam-
keppnisstyrkur, þ.e.a.s. hvert
hinna 530 umdæma Alþjóða Rót-
arýhreyfingarinnar mega senda
eina umsókn og í framhaldi af því
eru styrkþegarnir 70 valdir. Rót-
arýklúbburinn á Akranesi benti
mér á styrkinn sem ég vissi annars
ekki af, enda í fyrsta skipti sem
hann var í boði. Ég sótti um hann
og var valin sem fulltrúi Rótarý-
umdæmisins á Íslandi.“
Sem styrkþegi, til hvers er ætl-
ast af þér?
„Styrkþegum er auðvitað ætlað
að standa sig vel í náminu og ljúka
því á tilætluðum tíma. Þeir taka
líka þátt í árlegum friðarmálþing-
um sem Rótarý í samstarfi við há-
skólana sjö mun standa fyrir.
Einnig er ætlast til þess að styrk-
þegarnir séu í sambandi við Rót-
arý á meðan á námi stendur og eft-
ir það og miðli þannig reynslu
sinni og þekkingu inn í hreyf-
inguna. Auk þess skuldbinda
styrkþegarnir sig til að koma fram
í fjölmiðlum og þar með kynna
styrkinn og námið.“
Styrkurinn er kostun á tveggja
ára háskólanámi, í hvaða nám ætl-
arðu, hvers vegna og
hvar?
„Einn af skólunum
sjö er University of
Bradford í Englandi.
Námið í Bradford er
frábrugðið náminu í hinum skól-
unum að því leyti að það er rann-
sóknartengdara. Ég hef setið
mörg ár á skólabekk og numið
fróðleik upp úr bókum og frá
kennurum. Ég tel vera kominn
tíma til að ég fari sjálf að skapa
þekkingu og því valdi ég þennan
skóla. Eftir að hafa lokið ýmsum
námskeiðum og unnið stutt rann-
sóknarverkefni lýkur fyrsta árinu
með hefðbundinni M.A. gráðu. Á
seinna árinu vinnur hver og einn
nemandi að sínu rannsóknarverk-
efni sem svo lýkur með MPhil-
gráðu. það sem ég ætla að leggja
áherslu á í náminu eru frjáls fé-
lagasamtök. Annars vegar þeirra
hlutverk í uppbyggingu samfélaga
eftir átök eða miklar samfélags-
legar breytingar og hins vegar
þátt þeirra í að viðhalda friðsam-
legum samskiptum í fjölmenning-
arlegum samfélögum.“
Er þetta spennandi og mikil
upphefð, eitthvað sem kom þér á
óvart?
„Það er vissulega mikil upphefð
í því að vera Friðarstyrkþegi Rót-
arýhreyfingarinnar. Bæði vegna
þess hve styrkurinn er einstaklega
veglegur og líka vegna þess gíf-
urlega fjölda sem sækir um hann.
Það er mjög spennandi að fá að
vera hluti af þessu stóra átaki Rót-
arý. Ég hlakka mjög til að takast á
við námið og vinna með og kynnast
öðru fólki sem hefur líka áhuga á
friðar- og mannúðarmálum. Það
kom mér í sjálfu sér ekki á óvart
að fá styrkinn enda hafði Rótarý-
umdæmið á Íslandi með því að til-
nefna mig lýst yfir að ég væri fylli-
lega frambærilegur umsækjandi.“
Nú hefurðu verið valin til að tala
á allsherjarþingi Rótarý í Katalón-
íu í sumar, hvers vegna þú og hvað
ætlarðu að segja?
„Já, við erum tvö úr hópi Frið-
arstyrkþeganna sem höfum verið
valin til að taka þátt í þinginu í
Barcelona. Við erum valin vegna
þess að við þykjum hafa
sérstakan bakgrunn og
áhugaverðar hugmynd-
ir um rannsóknarverk-
efni. Við munum taka
þátt í málstofu um frið-
arstarf Rótarý og segjum þar frá
þessum hlutum.“
Eitthvað að lokum?
„Jú, það má kannski nefna það
hér að Rótarý hefur nú þegar aug-
lýst eftir umsóknum um Friðar-
styrkinn fyrir skólaárin 2003–
2005. Nánari upplýsingar má fá á
skrifstofu Rótarýumdæmisins á
Íslandi og á slóðinni www.rotary.-
org
Helga Bára Bragadóttir
Helga Bára Bragadóttir er
fædd á Akranesi 1974. Stúdent
frá Fjölbr. Vesturlands. Hefur
kennsluréttindi og BA próf í
mannfræði frá HÍ. Hefur lengi
verið sjálfboðaliði á vegum
Rauða krossins og situr nú í
stjórn þar. Verið langdvölum er-
lendis við nám og störf, m.a. við
þróunaraðstoð í Mosambík,
skiptinemi í Bólivíu, v/ jarð-
arberjatínslu í Skotlandi og
kennslu í Danmörku. Síðustu tvö
ár hefur hún verið mennta-
skólakennari á Ísafirði.
Talar á alls-
herjarþingi í
Katalóníu
SAMKEPPNISRÁÐ telur tilefni
ekki vera til íhlutunar í þremur
málum sem nýlega voru tekin fyrir.
Um var að ræða kvartanir frá
Shellnesti á Húsavík, Dýralækna-
þjónustu Suðurlands og Sveini
Skúlasyni héraðsdómslögmanni. Þá
beinir ráðið í áliti sínu tilmælum til
fjármálaráðherra um ákveðið jafn-
ræði við greiðslu virðisaukaskatts.
Shellnesti á Húsavík kvartaði yfir
synjun Íslenskrar getspár um að
setja upp lottóspilakassa í verslun-
inni. Synjunin var talin takmarka
möguleika verslunarinnar gagnvart
keppinautum á Húsavík. Íslensk
getspá taldi ekki kostnaðarlegar
forsendur fyrir því að setja upp
annan lottókassa á staðnum og
fellst samkeppnisráð á þau rök.
Segir ráðið Íslenska getspá hafa
málefnalegar og hlutlægar ástæður
fyrir synjuninni og því er ekki talin
ástæða til afskipta ráðsins.
Dýralæknaþjónusta Suðurlands
lagði inn kvörtun vegna meintra
samkeppnishindrana með starfs-
skipan eftirlitsdýralækna á Suður-
landi. Taldi fyrirtækið eftirlitsstörf
dýralækna skarast við almenna
dýralæknaþjónustu. Í ákvörðun
sinni bendir samkeppnisráð á að
eftirlitsdýralæknar starfi aðeins við
eftirlit í sláturhúsum og stríði það
ekki gegn samkeppnislögum.
Skipan í prófnefnd Hæsta-
réttar getur skapað tortryggni
Héraðsdómslögmaður kvartaði til
samkeppnisráðs vegna gildandi fyr-
irkomulags við öflun málflutnings-
réttinda fyrir Hæstarétti. Taldi
hann m.a. að skipan prófnefndar
fyrir Hæstarétti hamlaði sam-
keppni á milli lögmanna. Sam-
keppnisráð bendir á að seta starf-
andi hæstaréttarlögmanns í
prófnefnd geti, að teknu tilliti til
samkeppnissjónarmiða, skapað tor-
tryggni. Þrátt fyrir það telur sam-
keppnisráð ekki tilefni vera til að
aðhafast frekar.
Samkeppnisráð hefur að auki
skilað einu áliti vegna kvörtunar yf-
ir túlkun ríkisskattstjóra á ákvæði í
lögum um virðisaukaskatt sem mis-
munar aðilum sem selja aðgöngu-
miða að leik- eða söngsýningum og
kvöldverð í tengslum við sýningarn-
ar. Þeim tilmælum er beint til fjár-
málaráðherra að beita sér fyrir því
að samkeppnislegu jafnræði við
greiðslu virðisaukaskatts við um-
ræddar aðstæður verði komið á.
Ákvarðanir, álit og tilmæli Samkeppnisráðs
Ekki tilefni til íhlut-
unar í þremur málum