Morgunblaðið - 09.05.2002, Qupperneq 16
AKUREYRI
16 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
við göngugötuna
á Akureyri
Upplýsingar í síma 860 8832.
Til leigu 84 fm
verslunarhúsnæði
Blaðbera
vantar
• Skerjafjörður
Upplýsingar fást í síma
569 1122
Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á
höfuðborgarsvæðinu
ⓦ
vantar
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig.
Morgunblaðið,
Kaupvangsstræti 1, Akureyri,
sími 461 1600.
í Innbæinn
TIL SÖLU
Húseign - Hótel - Akureyri
Einstakt tækifæri
Húseign þessi við miðbæ Akureyrar er nú til sölu.
Húsið stendur við Hafnarstræti nr. 67 og er alls um
538 fm. Mjög fallegt útsýni er yfir pollinn og er
ástand hússins mjög gott. Húsið er innréttað sem
19 herbergja hótel. Í öllum herbergjum er bað, sjón-
varp, mini-bar og peningaskápur. Allur búnaður til
hótelreksturs fylgir.
Allar nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni
Eignakjör ehf., Akureyri, sími 462 6441.
STEFNUMÁL Sjálfstæðisflokks-
ins fyrir bæjarstjórnarkosningarn-
ar á Akureyri voru kynnt í gær, en
flokkurinn gengur til kosninga
undir kjörorðinu „Farsæl forysta“.
Með því er vísað til verka hans og
forystuhlutverks á því kjörtímabili
sem senn lýkur.
Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri gerði grein fyrir markmið-
um, forgangsverkefnum og fram-
tíðarsýn listans þar sem m.a. kom
fram að flokkurinn vill að Akureyri
eflist sem framsækið bæjarfélag í
fremstu röð og það sé tilbúið að
takast á við ný verkefni til hags-
bóta fyrir alla bæjarbúa. Einnig að
það taki virkan þátt í breytingum á
skipulagi sveitarstjórnarmála á Ís-
landi, m.a. með því að hvetja til
sameiningar sveitarfélaga á Eyja-
fjarðarsvæðinu. Meðal markmiða
má nefna að íbúar verði 17 þúsund
árið 2006 og að rekstur bæjar-
félagsins verði jákvæður allt kjör-
tímabilið. Áætlanir geri ráð fyrir
framkvæmdum upp á 4,3 milljarða
króna á kjörtímabilinu og að lang-
tímaskuldir muni aukast um 230
milljónir króna. Þá munu skatta-
álögur ekki verða auknar.
Jóna Jónsdóttir, 8. sæti, kynnti
áherslur í atvinnumálum, en þar
kom m.a. fram að á komandi kjör-
tímabili verði 400 milljónum króna
varið til að efla atvinnulíf í bænum.
Núverandi skipulag varðandi þátt-
töku bæjarins í atvinnumálum
verður tekið til endurskoðunar, en
áherslum verður breytt í þá veru
að hlutverk bæjarfélagsins í at-
vinnu-, markaðs- og kynningarmál-
um verður samræmt. Þá mun
flokkurinn knýja á um að stofn-
unum sem þjóna öllu landinu verði
valinn staður á Akureyri og tíma-
bært sé að setja fram hugmyndir
um að a.m.k. eitt ráðuneyti stjórn-
sýslunnar verði á Akureyri.
Mötuneyti í alla grunn-
skóla árið 2005
Sjálfstæðisflokkurinn hefur sett
fram ítarlega stefnuskrá í skóla- og
menntamálum og kynnti Laufey
Petrea Magnúsdóttir, 6. sæti, þau
helstu. Þar má nefna að nýbygging
verður tekin í notkun við Brekku-
skóla haustið 2005, framkvæmd-
um við Síðuskóla verður lokið
haustið 2004, tillögur verða gerðar
um íþróttaaðstöðu við Giljaskóla
og að mötuneytisaðstaða verður
komin í alla grunnskóla bæjarins
árið 2005. Þá mun flokkurinn
einnig leggja áherslu á að skóla-
hverfi verði opnuð og foreldrum
gefinn kostur á að velja grunn-
skóla fyrir börn sín. Loks má
nefna að flokkurinn vill selja hús-
næði Tónlistarskólans og flytja
starfsemina annað, en fyrsti val-
kostur er í húsnæði Húsmæðra-
skólans við Þórunnarstræti.
Tómstundasetur
verði stofnað
Þórarinn B. Jónsson, 3. sæti,
gerði grein fyrir áherslumálum
hvað varðar íþrótta- og tómstunda-
mál, en þar verður stefnt að því að
koma á laggirnar Tómstundasetri
þar sem bæði Menntasmiðjan og
Punkturinn verði til húsa auk þess
sem renna á stoðum undir Mennta-
smiðju unga fólksins. Eins mun
flokkurinn einbeita sér að því að
halda áfram öflugri uppbyggingu
vetraríþrótta í bænum.
Sigrún Jakobsdóttir, 4. sæti,
greindi frá áherslu í umhverfis-,
skipulags- og byggingarmálum
sem og í ferðaþjónustu, en nefna
má þar að miðbærinn verði mið-
stöð opinberrar þjónustu, lista,
menningar, verslunar og skemmt-
unar og að lokið verði við endur-
uppbyggingu vistgötu í Hafnar-
stræti fyrir árslok 2004, sem og
vinnu við skipulag á frágangi
Skátagils og framkvæmdir verði
hafnar.
FSA verði
háskólasjúkrahús
Í máli Þóru Ákadóttur, 2. sæti,
kom fram að bærinn ætti skilyrð-
islaust að styðja og þrýsta á að
FSA verði háskólasjúkrahús, búið
sambærilegum tækjum til rann-
sókna og lækninga og Landspítali
– háskólasjúkrahús. Bjarni Jóns-
son, 7. sæti, nefndi að bærinn
myndi gera meiri kröfu um aukna
hlutdeild í fjárveitingum ríkissjóðs
til menningarmála í landinu.
Sjálfstæðisflokkurinn kynnir stefnumál sín
Framsækið bæjarfélag tilbú-
ið að takast á við ný verkefni
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri í ræðustól á kynningarfundi Sjálf-
stæðisflokksins.
Laufey Petrea Magnúsdóttir, Sigrún Jakobsdóttir og Þórarinn B. Jóns-
son voru á meðal frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins sem kynntu stefnu
flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar síðar í mánuðinum.
STEFÁN Boulter opnar sýningu á
verkum sínum í Ketilhúsinu á Ak-
ureyri í dag, uppstigningardag, kl.
14. Stefán nam í Flórens á Ítalíu og
hjá norska kitsch-málaranum Odd
Nerdrum. Síðasta einkasýning hans
var í San Francisco.
Í hugum listfræðinga er kitsch öf-
ugþróun eða í besta falli til marks
um lélegan smekk. Kitsch-málari
leggur ríka áherslu á handverkið,
sækir í fjársjóð fortíðar og fjallar um
hið eilífa.
Sýningin er aðeins opin í fjóra
daga og lýkur henni sunnudaginn 12.
maí. Opið er daglega frá kl. 14–18.
Sýning
í Ketilhúsi
VINSTRI grænir bjóða konum á
Akureyri til samverustundar í kosn-
ingamiðstöð sinni við göngugötuna í
Hafnarstræti í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 9. maí og hefst það kl. 20.30. Í
frétt frá framboðinu segir að þetta sé
hressandi, notaleg og skapandi
kvöldstund í Græna húsinu og að
boðið verði upp á söng, spjall og veit-
ingar, osta, brauð og ávexti.
Kvennakvöld
hjá VG
SAMFYLKINGIN á Akureyri boð-
ar til fundar undir yfirskriftinni
„Borgarsamfélag á Akureyri –
draumsýn eða raunhæft markmið?“.
Fundurinn verður haldinn í kosn-
ingamiðstöðinni við Ráðhústorg
laugardaginn 11. maí kl. 11.
Frummælendur eru Hermann
Tómasson framhaldsskólakennari
og Stefán Jón Hafstein útgáfustjóri.
Fundurinn er öllum opinn á með-
an húsrúm leyfir.
Borgara-
samfélag
Samfylkingin
ÁRLEG fuglaskoðunarferð Ferða-
félags Akureyrar verður farin á
laugardag, 11. maí. Fararstjóri verð-
ur Jón Magnússon. Farið verður frá
húsakynnum félagsins við Strand-
götu 23 og hefst ferðin kl. 16.
Fólk er hvatt til að mæta með
sjónauka, hentugan skófatnað, skjól-
fatnað og góða skapið. Skrifstofan
verður opin á föstudaginn milli kl
17:30 og 19:00.
Fuglaskoð-
unarferð
FYRSTU þorskseiðin voru flutt frá
Grindavík norður í seiðaeldisstöð
Útgerðarfélags Akureyringa á
Hauganesi fyrr á þessu ári. Hafa
þau þyngst um 70% eða um 1% á
dag. Þetta kemur fram á heimasíðu
ÚA og þar segir Óttar Már Ingva-
son verkefnisstjóri fiskeldis hjá fé-
laginu, að þessi vöxtur sé í takt við
það sem búist var við.
Nú eru í seiðastöðinni á Hauga-
nesi um sex þúsund fiskar og er
stefnt að því að þeir verði settir út í
sjókvíar síðla sumars. Þorskseiðin á
Hauganesi hafa fengið fóður með
mismunandi fituinnihaldi og er til-
gangur rannsóknarinnar að rann-
saka áhrif mismunandi fóðursam-
setningu kynþroska fisksins. Óttar
Már segir að þess sé ekki að vænta
að fram komi marktækar niður-
stöður fyrr en á síðari stigum eld-
isins.
Þorskur eldistegund fram-
tíðarinnar á norðurslóð
Óttar Már var á dögunum á fisk-
eldissýningu í Skotlandi og kynnti
sér það nýjasta í þessari atvinnu-
grein. Í tengslum við sýninguna
voru haldnir nokkrir fyrirlestrar og
segir Óttar Már greinilegt að mikl-
ar væntingar séu um að þorskur
eigi eftir að verða eldistegund
framtíðarinnar á norðurslóð. Enn
sem komið er eru Norðmenn þeir
einu sem hafa tekið stóra skrefið í
þorskeldinu og hafa byrjað upp-
byggingu á alvöru klak- og seiða-
stöðvum. Skotar, Íslendingar og
Kanadamenn virðast hins vegar
vera á svipuðu róli í þorskeldi um
þessar mundir. Þessar þjóðir hafa
allar ákveðnar væntingar til þorsk-
eldis, en hafa enn ekki tekið stóra
skrefið, sem felst í ákvörðun um
uppbyggingu á stórfelldri seiða-
framleiðslu og kynbótum. Nú þegar
eru á bilinu 20–25 seiðastöðvar í
Noregi, sem annað hvort eru komn-
ar í rekstur eða eru í uppbyggingu.
Líklegt er að samanlögð fram-
leiðslugeta þessara stöðva verði
nægjanleg til að framleiða seiði í
250–300.000 tonna matfiskeldi inn-
an fárra ára. Óttar Már segir ljóst
að áform Norðmanna í þessum efn-
um séu bæði áræðin og stórtæk.
Þorskseiðin þyngst
um 1% á dag
Seiðaeldisstöð ÚA á Hauganesi