Morgunblaðið - 09.05.2002, Page 20
mundur Þorsteinsson, Efri-Hreppi,
Bjarni Vilmundarson, Mófells-
stöðum, Ágúst Árnason, Felli
Stóru-Drageyri og Guðrún Eiríks-
dóttir, Mófellsstaðakoti.
Á AÐALFUNDI Búnaðarfélagsins
sem haldinn var 17. apríl sl. var
þess minnst að 19. apríl voru liðin
120 ár frá stofnun félagsins, en
Búnaðarfélagið var stofnað 19. apr-
íl 1882.
Aðalhvatamaðurinn að stofnun
þess og fyrsti formaður var Guð-
mundur Ólafsson, bóndi og alþing-
ismaður á Fitjum í Skorradal,
fæddur 1825 og dáinn 1889.
Guðmundur nam búfræði í Dan-
mörku á árunum 1847–1851 og var
talinn best menntaði búfræðingur
hér á landi á þeim tíma. Á stofn-
fundinum gengu 14 bændur í félag-
ið.
Í dag eru félagsmenn 16. Núver-
andi stjórn skipa: Þorvaldur Jóns-
son, Innri-Skeljabrekku, formaður,
Pétur Davíðsson, Grund, gjaldkeri
og Jón Eiríkur Einarsson, Mófells-
staðakoti, ritari.
Í tilefni þessara tímamóta voru
fjórir félagar gerðir að heið-
ursfélögum, en þeir eru: Guð-
120 ára afmæli Búnaðar-
félags Skorradalshrepps
Morgunblaðið/Pétur Davíðsson
Skýrsla um Búnaðarfélagið í
Skorradalshrepp fardagaárið 1882.
Skorradalur
LANDIÐ
20 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FUNDUR um sameiningarmál með
íbúum Kirkjubólshrepps á Strönd-
um var haldinn nýlega. Á fundinn
sem haldinn var í félagsheimilinu
Sævangi mætti félagsmálaráðherra,
Páll Pétursson.
„Ég ákvað að funda með íbúunum
og fara yfir stöðuna. Um var að ræða
tvo kosti, annars vegar að ganga frá
sameiningarmálum nú þegar eða
fresta því til áramóta. Mér var ekki
stætt á því og hjó því á hnútinn og
íbúar Kirkjubólshrepps sameinast
því Hólmavík fyrir kosningar í vor
því frestun á sameiningu er slæmur
kostur,“ sagði Páll.
Mjög skiptar skoðanir hafa verið
meðal íbúanna um sameininguna og
varð sá ágreiningur til þess að starf-
andi oddviti þetta kjörtímabil, Matt-
hías Lýðsson í Húsavík, sagði af sér
og við oddvitastarfinu tók Guðjón
Sigurgeirsson á Heydalsá.
Félagsmálaráðherra sagði sam-
einingu vera óumflýjanlega þar sem
íbúatalan hafi verið undir lágmarki í
rúm fjögur ár.
Í október síðastliðnum fór af stað
vinnuferli til að ganga frá málinu og
voru tveir fulltrúar Kirkjubóls-
hrepps núverandi og fyrrverandi
oddviti í nefndinni ásamt manni frá
ráðuneytinu og fleiri aðilum.
Eins og áður hefur komið fram í
fréttum var Háskólinn á Akureyri
fenginn til að vinna að viðhorfskönn-
un meðal íbúa Kirkjubólshrepps um
hvoru sveitarfélaginu íbúarnir vildu
sameinast, þ.e. Broddaneshreppi eða
Hólmavík. Niðurstaðan varð sú að
tveir þriðju völdu að sameinast
Hólmavík. „Frá mínu sjónarmiði er
eðlilegt að Broddaneshreppur sé að-
ili að þessu sameiningarferli ef þar
væri vilji til staðar,“ sagði félags-
málaráðherra. Páll sagði samein-
inguna góðan kost fyrir hreppana
tvo. „Skólamálin eru sameiginleg og
samvinna er um fleiri mál og fjár-
hagsstaða beggja sveitarfélaganna
er góð.“
Leituðu eftir fresti
til sameiningar
Á fundinum var lögð fram tillaga
þess efnis að ekki komi til samein-
ingar Kirkjubóls- og Hólmavíkur-
hrepps næstu tvö árin en á þeim tíma
verði unnið að vegabótum innan sýsl-
unnar. Tillagan var samþykkt með
fjórtán atkvæðum gegn fjórum og
undirrituð af starfandi oddvita
Kirkjubólshrepps.
„Við höfum leitað eftir heitu vatni í
hreppnum síðan 1997 og erum einnig
að vinna að aðalskipulagi fyrir sveit-
arfélagið og óskuðum eftir frestun á
sameiningu til að ljúka þessum verk-
efnum,“ sagði Björn Karlsson, vara-
oddviti og bóndi á Smáhömrum. „Ég
lít svo á að við séum lögformlegt
stjórnvald eins og hreppsnefnd
Hólmavíkurhrepps og við höfum enn
fullt forræði yfir fjármálum og eign-
um hreppsins. Mér finnst það frem-
ur lítilmannlegt þegar látið er að því
liggja að við séum á gráu svæði og
séum að gera eitthvað sem okkur sé
ekki heimilt,“ sagði Björn.
Kirkjubólshreppur
sameinast Hólmavík
Morgunblaðið/Arnheiður
F.v. Björn Karlsson, Smáhömrum, Guðjón Sigurgeirsson, Heydalsá, og
Kristján Sæmundsson, jarðfræðingur á Orkustofnun, við borholuna.
Strandir
SJÓSTANGAVEIÐIFÉLAG
Reykjavíkur stóð fyrir tveggja
daga móti í Grundarfirði nýver-
ið. Mótið var hið fyrsta í stiga-
móti til Íslandsmeistaratitils en
mót þessi eru haldin víða um
land á sumri hverju. Að þessu
sinni ákvað stórn Sjóstanga-
veiðifélagsins að halda mótið í
Grundarfirði og komu kepp-
endur úr hinum ýmsu sjóstanga-
veiðifélögum víða að af landinu.
Gistu keppendur á Hótel Fram-
nesi og í lok móts á laugardags-
kvöld var hátíð í samkomuhúsi
Grundarfjarðar. Mjög vel aflað-
ist fyrri daginn en stíf norðanátt
á laugardag gerði keppendum
erfitt fyrir. Fjórtán bátar voru
notaðir við veiðarnar og voru
keppendur 62. Fyrri daginn
veiddust alls tæp 19 tonn en
seinni daginn tæp þrjú tonn en
heildarafli báða dagana var 21
tonn. Aflinn var síðan seldur á
Fiskmarkaði Íslands fyrir rúmar
2,6 milljónir króna. Sá er mestan
afla dró í karlaflokki var Helgi
Bergsson, Sjóstangaveiðifélagi
Snæfellsbæjar, en afli hans vó
646 kg samtals. Hjá konum var
það Hafdís Gísladóttir, sama fé-
lagi, sem náði mestum afla eða
samtals 510 kg. Þyngsta fiskinn
dró Pétur Sigurðsson, Sjóstanga-
veiðifélagi Akrueyrar, það var
þorskur sem vó 13,820 kg.
Mokfisk-
irí á sjó-
stöng á
Grund-
arfirði
Grundarfjörður
UNDANFARNA þrjá mánuði hefur
verið í gangi heilsu- og sjálfstyrk-
ingarátak 62 kvenna á Skagaströnd.
Átakinu er að ljúka um þessar mund-
ir en lýkur þó ekki formlega fyrr en
um miðjan maí með óvissuferð.
Hópurinn sem að átakinu stendur
var nú nýverið með menntasmiðju
fyrir konurnar í Fellsborg. Þar var
kynning á ýmsum möguleikum í sam-
bandi við fjarnám og aðra menntun.
Á kynninguna mættu fulltrúar frá
fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki,
Farskóla Norðurlands vestra og
Svæðisvinnumiðluninni á Blönduósi.
Sögðu fulltrúarnir frá hvað þeirra
stofnanir hafa upp á að bjóða fyrir
konur. Einnig voru kynntar ýmsar
aðrar námsleiðir í framhaldsskólum
og skólum á háskólastigi. Þá gátu
konurnar farið í áhugasviðspróf til að
gera sér betur grein fyrir hvert hug-
ur þeirra stefndi í sambandi við nám
og störf í framtíðinni.
Á kynningunni voru líka nokkrar
listakonur sem kynntu sínar list- og
verkgreinar. Þar gátu konurnar
fengið að prófa að framleiða ýmsa
smáhluti úr gleri, leir, pappamassa
og leðri auk þess að fást við myndlist
til að átta sig á hvort það væri eitt-
hvað sem þær langaði til að gera
meira af.
Í þessu þriggja mánaða átaki hafa
konurnar gert margt skemmtilegt
auk þess að stunda líkamsrækt af
kappi. Þannig hafa þær sótt sjálf-
styrkingarnámskeið, haldið frábært
skemmtikvöld þar sem allar konurn-
ar tróðu upp með einhver atriði, feng-
ið fræðslu um hirðingu húðar og hárs,
og mætt á fyrirlestur um næringar-
fræði.
Konurnar sem þátt tóku í átakinu
eiga vart orð til að lýsa ánægju sinni
með hvernig til tókst eða svo vitnað
sé í eina konuna: „Þetta er búið að
vera frábærlega skemmtilegt. Ég
held samt að stærsti plúsinn við þetta
allt saman sé að þetta er ómetanlegt
félagslega. Maður hefur kynnst fullt
af konum sem maður bauð varla góð-
an daginn fyrir átakið. Svo hefur
þetta líka sýnt manni fram á hve mik-
il forréttindi það eru að búa úti á
landi.“
Menntasmiðja kvenna vel sótt
Skagaströnd
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Í félagsheimilinu Fellsborg var eitthvað um að vera í hverju horni og
konurnar á sjálfstyrkingarnámskeiðinu niðursokknar í áhugamál sín.
STJÓRN Kaupfélags Eyfirðinga svf.
samþykkti á fundi í sl. viku að kaupa
stóran hlut í MT-bílum í Ólafsfirði,
en fyrirtækið framleiðir slökkvibíla.
KEA kaupir 17 milljóna króna
hlut af 25 milljóna króna hlutafjár-
aukningu í fyrirtækinu. Eftir hluta-
fjáraukninguna á Nýsköpunarsjóður
31,08% hlut í fyrirtækinu, Sigurjón
Magnússon, stofnandi og fram-
kvæmdastjóri MT-bíla, 27,69%,
KEA svf. 20,92% og Tækifæri hf.
20,31%.
Nýverið samþykkti bæjarstjórn
Ólafsfjarðar að kaupa 3 milljóna hlut
í fyrirtækinu og koma þeir fjármunir
inn í fyrirtækið á næstu þremur ár-
um.
Verkefnastaða MT-bíla er mjög
góð um þessar mundir. Á næstu dög-
um mun fyrirtækið afhenda Slökkvi-
liði höfuðborgarsvæðisins nýja
Scania slökkvibifreið, þá fullkomn-
ustu sem MT-bílar hafa smíðað til
þessa. Nú eru í smíðum þrjár
slökkvibifreiðar, ein fer til Tálkna-
fjarðar, önnur til Færeyja og samn-
ingar eru á lokastigi um þá þriðju. Á
næsta ári liggur fyrir að afhenda
tvær slökkvibifreiðar, önnur er fyrir
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og
hin fer til Bolungarvíkur.
KEA kaupir stóran hlut
í MT-bílum í Ólafsfirði
Ólafsfjörður