Morgunblaðið - 09.05.2002, Qupperneq 22
RAFMAGNSÖRYGGISDEILD
Löggildingarstofu barst ábending
þess efnis nýlega að hér á landi hefði
orðið það óhapp, að handfang gler-
könnu sem fylgir Philips kaffivél
losnaði svo af hlaust brunasár og
skemmdir urðu á innanstokksmun-
um.
Um er að ræða kaffivél af gerðinni
Philips Essence HD 7603 þar sem
handfangið er fest við könnuna með
lími á tveimur stöðum, samkvæmt
upplýsingum frá Löggildingarstofu.
Leyndur galli í límingu
„Vegna slyssins lét rafmagnsör-
yggisdeild Löggildingarstofu skoða
kaffivélar af umræddri gerð. Sú
skoðun leiddi ekki í ljós að festingum
handfangsins væri ábótavant en þó
kom á daginn að á nýrri gerðum
hafði festingum þess verið breytt.
Auk límsins sem hafði verið var kom-
in málmklemma við efri brún könn-
unnar til frekari styrkingar á festing
u handfangsins.Við nánari eftir-
grennslan hjá Philips í Hollandi kom
fram að þar höfðu menn vitneskju
um að galli gæti leynst í límingu
handfanga á könnum sem framleidd-
ar voru á ákveðnu tímabili. Sam-
kvæmt upplýsingum þeirra höfðu
farið fram rannsóknir og áhættu-
greining á umræddum galla en málið
ekki talið það alvarlegt að ástæða
væri til að innkalla könnurnar.
Af þessu tilefni hefur gæðadeild
Philips í Hollandi óskað eftir að eft-
irfarandi komi fram:
„Philips hefur komist að raun um
að á mjög takmörkuðum fjölda kaffi-
véla af gerðunum HD 7603, HD
7605, HD 7607 og HD 7609 getur
handfangið losnað af könnunni. Los-
unin á sér stað smám saman og verð-
ur greinileg áður en handfangið losn-
ar alveg. Strax og þetta varð ljóst
var samsetningu breytt þannig að
festing handfangsins var styrkt til að
koma í veg fyrir að þetta endurtæki
sig.“
Löggildingarstofa hvetur eigend-
ur kaffivéla af umræddri gerð til
þess að vera á varðbergi og skipta
þegar í stað um könnu verði þeir var-
ir við los á handfanginu. Fólki er
bent á að snúa sér til viðkomandi
söluaðila í því sambandi,“ segir loks í
frétt frá Löggildingarstofu.
Laus handföng á könn-
um kaffivéla frá Philips
Kaffikanna sem gæti valdið
slysi, ef ekki er vel að gætt.
Rafmagnsöryggisdeild Löggildingarstofu hvetur
eigendur tiltekinna kaffivéla til að vera á varðbergi
NEYTENDUR
22 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www.sagamedica.com
eykur orku, þrek og
vellíðan
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
N
M
0
6
1
3
4
/s
ia
.i
s
Angelica
Angelica fæst í apótekum,
heilsuvörubúðum
og heilsuhornum matvöruverslana.
Jón Gíslason, Borgarfirði:
„Ég hef átt við veikindi að stríða. Mér
hefur aukist kraftur eftir að ég fór að
taka Angelicu. Nú er ég hressari, mér
líður mun betur og er miklu meira á
ferðinni en áður.“
BÓNUS
Gildir 9.–12. maí nú kr. áður kr. mælie.
Íslenskar agúrkur ................................... 79,- 79,- 79 kg.
Prins póló 30 st..................................... 999,- 1395,- 33 st.
Maryland kex, 33% extra, 200 g ............. 99,- Nýtt 495 kg
Kaffi 500g ............................................ 179,- Nýtt 358 kg
Goða pylsur .......................................... 559,- 799,- 559 kg
Smjörvi 300 gr. ..................................... 129,- 154,- 258 kg
ESSÓ-stöðvarnar
Gildir til 31. maí nú kr. áður kr. mælie.
Góu Lindubuff, 50 g............................... 49 60 980 kg
Góu æðibitar stórir, 220 g ...................... 219 249 995 kg
Hersheys Almond Joy, 49 g..................... 99 120 2.020 kg
Hersheys Reese Stick, 42 g .................... 99 125 2.357 kg
11-11-búðirnar og KJARVAL
Gildir 9.–15. maí nú kr. áður kr. mælie.
Iceberg ................................................. 299 398 299 kg
Kea nautahakk UN-1, pakkað................. 783 979 783 kg
Viennetta Vanilla ................................... 468 669 780 ltr
Viennetta chocolate ............................... 468 669 780 ltr
Kexsm. Kanilsnúðar ............................... 239 299 597 kg
Kexsm. Kanilsnúðar m/súkkul. ............... 247 309 617 kg
Kexsm. Sælusnúðar............................... 239 299 597 kg
HAGKAUP
Gildir 8.–12. maí nú kr. áður kr. mælie.
SS VSOP helgarsteik.............................. 999 1.328 999 kg
KS læri 1/1 frosið.................................. 799 1.088 799 kg
Ferskar kjötv. Óðals UN hakk 600g.......... 699 999 699 kg
Hatting minibrauð 600g......................... 219 289 360 kg
Pringles karrý 200g ............................... 189 219 945 kg
Ágætis rauðar kartöflur 2 kg ................... 199 259 100 kg
Ágætis gullauga kartöflur 2 kg ................ 199 259 100 kg
Ágætis premier kartöflur 2 kg.................. 199 259 100 kg
FJARÐARKAUP
Gildir 8.–11. maí nú kr. áður kr. mælie.
Grill svínakótilettur................................. 898 1.495 898 kg
Grill lamba frampartsneiðar .................... 599 883 599 kg
Kjarnafæðis grillsósur 3 teg .................... 99 170 495 kg
Hunangsmarineraðar svínakótilettur ........ 998 1237 998 kg
Blómkál................................................ 249 349 249 kg
MS kókómjólk 6x250ml ......................... 298 324 199 ltr
KRÓNAN
Gildir 9.–15. maí nú kr. áður kr. mælie.
Frosin ýsuflök........................................ 599 749 599 kg
SS Rauðvínslegið lambalæri ................... 996 1.328 996 kg
Svali Appelsínu 3x1/4 ........................... 99 108 132 ltr
Rófur .................................................... 99 135 99 kg
Hvítkál.................................................. 99 109 99 kg
Heimaís 2 ltr vanilla og súkkulaði............ 399 529 199 ltr
SAMKAUP/ÚRVAL
Gildir 9.–15. maí nú kr. áður kr. mælie.
Vex Uppþv.lög. Skógar.500ml ................. 159 149 298 kg
Vex Uppþv.lög. Sótthr.500 ml ................. 159 149 298 kg
Vex Uppþv.lög. Sítr.500ml ...................... 149 139 278 kg
Vex Uppþv. töflur 30 st. .......................... 560 449 15 st.
Vex Uppþv.véladuft 1.5kg ....................... 449 399 599 kg
Mjöll mýkir m/vorilmi 2 ltr ...................... 369 299 150 kg
Mjöll mýkir m/sumarilmi 2 ltr ................. 369 299 150 kg
Nýr Geisli Fylling 525ml ......................... 204 169 322 kg
Nýr Geisli m/Dælu 525ml ...................... 249 229 436 kg
SELECT-verslanir
Gildir 25. apríl–29. maí nú kr. áður mælie.
Freyju rís stórt ....................................... 85 110
Nóa kropp, 150 g.................................. 179 235 1.190 kg
BKI kaffi, 500 g ..................................... 339 387 678 kg
Lorenz kartöfluflögur, 25 g...................... 79 99 3.160 kg
Lorenz kartöfluflögur í stauk, 100 g ......... 199 240 1.990 kg
McVites Caramel kex, 300 g ................... 236 276 790 kg
Drykkjarjógúrt 2 teg., 250 ml .................. 69 89 276 ltr
Pantene Cls sjampó, 200 ml .................. 379 309 1.900 ltr
Pantene Cls hárnæring, 200 ml .............. 379 309 1.900 ltr
SPARVERSLUN, Bæjarlind
Gildir til 12. maí nú kr. áður mælie.
Jarðarber 200g box ............................... 79 239 395 kg
Camembert 150g.................................. 229 247 1.526 kg
WC 12 rúllur Nobless ferskju .................. 699 869 58 st.
Filippo Olífuolía 750ml .......................... 449 499 598 ltr
Filippo Ólífuolía extra 750ml .................. 498 571 664 ltr
UPPGRIP-verslanir OLÍS
Maí tilboð nú kr áður kr. mælie.
Freyju lakkrísdraumur stór ...................... 89 110
Rolo kex ............................................... 199 nýtt
Toffy Crisp ............................................. 85 99
Fresca ½ ltr plast .................................. 109 140
ÞÍN VERSLUN
Gildir 9.–15. maí nú kr. áður kr. mælie
Bacon hleifur 20% afsl........................... 532 665 532 kg
Pepperoni hleifur 20 % afsl. ................... 532 665 532 kg
BKI Classic 500 g.................................. 299 388 598 kg
Brownie Cookies 200 g .......................... 159 189 795 kg
Freyju Hrís Flóð 200 g ............................ 269 298 1.345 kg
Nóa súkkulaði rúsínur 200 g................... 139 168 695 kg
Helgartilboð
Verðupplýsingar sendar frá verslunum
Kartöflur og jarðarber á tilboðsverði
Hvaða plastumbúðum tekur Sorpa
við til endurvinnslu? Er í lagi að fara
með sjampóbrúsa og umbúðir utan af
lgg, svo dæmi sé tekið?
Gyða S. Björnsdóttir, fræðslu- og
kynningarfulltrúi Sorpu, segir að fyr-
irtækið taki við skilagjaldsskyldum
áldósum, plastflöskum og glerflösk-
um og eru 8 krónur greiddar fyrir
hverja einingu. „Einnota drykkjar-
umbúðum er hægt að skila á allar
endurvinnslustöðvar Sorpu og tekið
við 1.000 einingum að hámarki. Sé um
að ræða meira magn þarf að fara með
það til Endurvinnslunnar hf. Endur-
vinnslan tekur við umbúðum sem ber-
ast til Sorpu, pressar þær í bagga og
flytur út til endurvinnslu erlendis.
Umbúðir sem bera skilagjald sam-
kvæmt reglugerð eru drykkjarum-
búðir úr plasti, gleri, áli og stáli undan
öli, gosdrykkjum, ávaxtasafa og orku-
drykkjum. Athygli er vakin á því að
umbúðir undan drykkjum frá Mjólk-
ursamsölunni bera ekki skilagjald,“
segir á heimasíðu Sorpu.
Gyða segir að plastumbúðir sem
ekki falla undir fyrrgreinda skilgrein-
ingu eigi að fara með öðru óflokkuðu
heimilisrusli. „Margar af þessum um-
búðum er erfitt að endurvinna. Sumar
mjólkurvöruumbúðir eru til dæmis
gerðar úr þremur ólíkum tegundum
af plasti. Lokið getur verið af einni
gerð, dollan af annarri og skeiðin af
þeirri þriðju, svo dæmi séu tekin, og
slíkar umbúðir er erfitt að endur-
vinna. Aðrar eru hreinlega óendur-
vinnanlegar,“ segir hún.
175% aukning á
skilum á fernum
Gyða segir að margföld aukning
hafi orðið í skilum á fernum til endur-
vinnslu fyrstu þrjá mánuði ársins frá
sama tíma í fyrra. „Fyrstu þrjá mán-
uði ársins komu 37.160 kíló af fernum
til endurvinnslu. Á sama tímabili í
fyrra höfðu borist 13.430 kíló. Það er
því óhætt að segja að íbúar á suðvest-
urhorninu hafi tekið vel við sér,“ segir
hún. Umrædd aukning er 175% milli
ára og segir Gyða hugsanlega mega
skýra þessa þróun með kerfi sem tek-
ið var upp síðastliðið sumar þar sem
gámum var fjölgað og ýmist voru
settir upp tveir grenndargámar víðs
vegar um höfuðborgina, annar fyrir
fernur og hinn fyrir dagblöð, eða einn
tvískiptur gámur, þar sem fernur eru
öðrum megin og blöð hinum megin.
Áður voru blöð og fernur í sama gámi
og ætlast til þess að fernurnar væru
settar í plastpoka áður en þeim var
skilað, að hennar sögn. „Farið var út í
kynningarátak þegar fyrirkomulag-
inu var breytt, sem líklega hefur haft
sín áhrif og einnig er líklegt að verk-
efni eins og Vistvernd í verki, sem
unnið er hjá Landvernd, hafi haft sitt
að segja,“ segir hún.
Gyða bendir á að enn sé nokkuð um
að fólk skili fernum í plastpokum og
vill vekja athygli á því að það eigi ekki
lengur við. „Það er mjög mikilvægt að
halda fernum og plastpokum aðskild-
um og að engir aðskotahlutir fylgi.
Hreint hráefni er ein forsenda endur-
vinnslu,“ segir Gyða S. Björnsdóttir
að endingu.
Plastumbúðir án
skilagjalds í ruslið
SPURT OG SVARAÐ UM NEYTENDAMÁL
SMYRJA er létt og mjúkt jurta-
olíuviðbit með smjörbragði og
inniheldur helming af þeirri fitu
sem er í hefðbundnu fullfeitu
viðbiti, segir í tilkynningu frá
Kjarnavörum hf. Helstu kostir
hennar eru lágt fituinnihald,
hátt hlutfall fjölómettaðra fitu-
sýra, gott smjörbragð og lítið af
transfitusýrum og kólesteróli,
segir ennfremur.
Hún inniheldur hátt hlutfall
fjölómettaðra fitusýra og er
sögð henta vel fyrir þá sem vilja
minnka fitu í fæðinu og halda
kólesteróli í skefjum. „Smyrja
hentar sem viðbit á brauð og
hana má einnig nota sem bráð á
grænmeti, pasta og í bakaðar
kartöflur. Smyrja inniheldur
vatn, fljótandi og hertar jurta-
olíur (þ. á m. sojaolíu), bindiefni
(gelatín, lesitín, ein- og tvíglýs-
eríð fitusýra), nýmjólkurduft,
salt, rotvarnarefni (kalíum sorb-
at), sýru (sítrónusýru) og litar-
efni (beta karótín).
Smyrja er ætluð fyrir stóreld-
hús og mötuneyti fyrst um sinn,
segir loks í tilkynningu frá
Kjarnavörum.
Jurtaolíuvið-
bit með
smjörbragði
Endingargóð
skyndirakvél
B. MAGNÚSSON hf. hefur hafið
innflutning á AVID 4 Shaving
System, samanbrotinni skyndirak-
vél úr plasti sem hægt er að nota
40 sinnum, að því er fram kemur í
tilkynningu frá fyrirtækinu.
Rakvélin hefur verið verðlaun-
uð fyrir að sameina þægindi og
gæði, segir ennfremur, en með
henni fylgja fjórir tveggja blaða
rakvélarhausar.
NÝTT