Morgunblaðið - 09.05.2002, Page 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 23
Söluaðilar Navision Attain á Íslandi eru: Element HSC Landsteinar Ísland Maritech Strengur Tölvuþjónustan á Akranesi
Einfalt að innleiða, auðvelt að aðlaga og öruggt í notkun. Á veginum til vaxtar verður þú að geta
brugðist við breytingum, nýtt þér styrkleika þína og gripið sóknartækifærin þegar þau gefast.
Sjáðu hvernig Navision getur hjálpað þér að fullnýta tækifærin á www.navision.is
Navision Attain er ný kynslóð viðskiptahugbúnaðar frá Navision, byggð á hinu vinsæla kerfi Navision Financials
HOLLUSTUVERND ríkisins hefur
nú sérstakt eftirlit með öllum inn-
flutningi á stjörnuanís (star anise)
frá ríkjum utan evrópska efnahags-
svæðisins og er innflutningur aðeins
heimilaður að uppfylltum skilyrðum,
samkvæmt upplýsingum frá Holl-
ustuvernd ríkisins.
„Stjörnuanís er þurrkaður ávöxt-
ur eða fræbelgur af plöntunni illic-
ium verum, sem er lágt tré og vex í
Kína. Hann er notaður sem krydd í
austurlenskri matargerð og sem
bragðefni í suma áfenga drykki.
Stjörnuanís er hægt að kaupa einan
og sér eða blandaðan saman við önn-
ur krydd og hann er jafnframt mik-
ilvægur hluti af kínversku fimm-
kryddablöndunni.
Japanskur stjörnuanís er fenginn
úr skyldu afbrigði, illicium anisatum.
Hann er mjög svipaður og kínverska
afbrigðið nema að hann inniheldur
eitruð efnasambönd og er því ekki
hæfur til manneldis,“ segir Hollustu-
vernd.
Verða innflytjendur stjörnuaníss
því að framvísa heilbrigðisvottorði
sem sýnir að tekið hafi verið sýni af
umræddri jurt og að hún innihaldi
ekki japanskan stjörnuanís. Þarf
vottorðið að vera þannig útbúið að
hægt sé að rekja það til viðkomandi
sendingar.
„Sé ofangreint skilyrði ekki upp-
fyllt er farið fram á sýnatöku og
rannsókn á kostnað innflytjenda,“
segir Hollustuvernd ríkisins.
Bresk yfirvöld segja á heimasíð-
unni www.food.gov.uk að hættuna á
að fólk rugli saman kínverskum og
japönskum stjörnuanís vel þekkta og
ekki sé vitað til þess að japanskur
stjörnuanís finnist í breskum mat-
vælum. „Við mælum ekki með því að
fólk hætti að nota stjörnuanís við
matseld eða forðist matvæli bragð-
bætt með honum,“ svo dæmi séu tek-
in.
Anís er notaður við meltingar-
truflunum, gigt og krampa í melting-
arfærum í austurlenskri læknisfræði
og einnig er talið að hann hafi góð
áhrif á lungnakvef og hósta með því
að losa slím, segir að síðustu um
stjörnuanís á health.yahoo.com.
Þurrkaðir stjörnuanísávextir.
Eftirlit
með inn-
flutningi á
stjörnuanís