Morgunblaðið - 09.05.2002, Blaðsíða 24
ERLENT
24 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FÆREYSKA stjórnin ætlar að sitja
áfram þótt hún hafi ekki lengur
meirihluta á Lögþinginu, að sögn
Anfinns Kallsbergs lögmanns, for-
sætisráðherra Færeyja. Stjórnar-
flokkarnir fengu alls 16 af 32 sætum
á þingi í kosningunum í liðinni viku
og þurfa því stuðning a.m.k. eins
þingmanns úr andstöðunni til að ná
fram málum sínum. Kallsberg bend-
ir á að hefðir séu fyrir minnihluta-
stjórnum á Norðurlöndum þótt þær
hafi ekki tíðkast í Færeyjum.
Talsmenn stjórnarandstöðunnar
gagnrýndu Kallsberg hart í gær og
sögðu hann vera að fara á svig við
lýðræðið. Auk Þjóðarflokks Kalls-
bergs eiga Sjálfstjórnarflokkurinn
og Þjóðveldisflokkurinn aðild að
stjórninni. Kallsberg tilkynnti
ákvörðun sína um að stjórnin sæti
áfram á þriðjudagskvöld en þá hafði
hann reynt árangurslaust að fá flokk
jafnaðarmanna, sem eru andvígir
hugmyndum stjórnarflokkanna um
aukna sjálfstjórn Færeyja, til að
mynda nýja stjórn á breiðari grund-
velli með þátttöku flokksins. Kalls-
berg skýrði einnig frá því að Þjóð-
arflokkurinn og Sjálfstjórnarflokk-
urinn hefðu gert með sér samning
um að ef annar flokkurinn tæki þátt í
samsteypustjórn myndi hinn einnig
vera með.
Vísar til nýrra laga
Stjórnarandstaðan krefst þess að
Kallsberg víki og síðan verði samið
um nýtt stjórnarsamstarf en ekki
reynt að lagfæra það sem er nú við
lýði. Talsmenn stjórnarandstöðunn-
ar vilja að Kallsberg segi af sér svo
að leiðtogar flokkanna á þingi geti
farið á fund þingforseta og tilnefnt
þann sem þeir vilja að stjórni samn-
ingaviðræðum um nýja stjórn.
Jafnaðarmenn eru í stjórnarand-
stöðu ásamt Sambandsflokknum og
Miðflokknum en hinn síðasttaldi er
með einn þingmann, Jenis av Rana.
Hann segir það vera óhugnanlega
þróun ef lögmaðurinn hyggist sitja
áfram næsta kjörtímabil.
„Við í stjórnarandstöðunni biðjum
aðeins um að þingræðið sé haft í
heiðri. Og þingræðið gerir lögmann-
inum skylt að víkja eftir kosningar
svo að svonefndar formannaviðræð-
ur geti hafist. Við skiljum ekki þá
ákvörðun samsteypustjórnarinnar
að ætla að láta karla og konur sem
valin voru fyrir fjórum árum stjórna
Færeyjum,“ segir hann.
Jenis bendir á að stjórnarsáttmál-
inn hafi verið samþykktur 1998 og
átt að gilda í fjögur ár.
Kallsberg bendir á að Færeyjar
hafi fengið ný heimastjórnarlög árið
1995 og þar sé rætt um möguleikann
á að minnihlutastjórn sé við völd.
Hann viðurkennir að það geti orðið
erfitt að stjórna án meirihluta en
segir að með ákvörðuninni geti skap-
ast ný hefð í Færeyjum í takti við
þróun mála annars staðar á Norð-
urlöndum. Minnihlutastjórn hefur
mjög lengi nánast verið regla í Dan-
mörku. Kallsberg kveðst hafa rætt
við jafnaðarmenn í fyrradag án fyr-
irfram skilyrða, hann hafi boðað við-
ræður milli fjögurra flokka en ekki
jafnaðarmanna og stjórnarinnar.
„Og það er slæmt að stjórnarand-
staðan skuli nú hafa komið í veg fyrir
myndun stjórnar á breiðum grund-
velli. Sjálfur ætla ég ekki að segja af
mér fyrr en meirhluti Lögþingsins
óskar þess,“ sagði Kallsberg.
Kallsberg situr þótt hann
hafi ekki meirihluta
Þórshöfn. Morgunblaðið.
Vísar til norrænna hefða
fyrir minnihlutastjórnum
FJÖLDI fólks reyndi í gær að kom-
ast inn í ræðismannsskrifstofur
Bandaríkjanna og Japans í Shen-
yang í norðausturhluta Kína í von
um að fá hæli í löndunum. Að sögn
fulltrúa s-kóreskra hjálparsamtaka
var um að ræða flóttafólk frá N-
Kóreu. Tveir komust alla leið inn í
bandarísku skrifstofuna en hinir
munu hafa verið handteknir. Shen-
yang er um 200 km frá landamær-
um Kína og N-Kóreu. Á myndinni
sést kínverskur lögreglumaður
grípa í mann við anddyri japönsku
skrifstofunnar. Stjórnvöld í Kína
hafa aukið gæslu við erlendar ræð-
ismannsskrifstofur til að reyna að
hindra flóttamenn í að komast inn.
AP
Norður-Kóreumenn vilja hæli
PERVEZ Musharraf, forseti Pak-
istans, sagði í gær að alþjóðlegir
hryðjuverkamenn beindu nú sjón-
um sínum að Pakistan með skipu-
legum hætti en fjórtán manns féllu í
sjálfsmorðsárás í borginni Karachi í
fyrrinótt að íslenskum tíma. „Við
teljum að svara þurfi þessum
hryðjuverkaárásum af fullri hörku.
Ríkisstjórn mín hefur allan hug á
að gera það,“ sagði Musharraf.
Ellefu Frakkar voru meðal
þeirra sem biðu bana í sjálfsmorðs-
árásinni í Karachi, auk þriggja
heimamanna. Atburðurinn átti sér
stað kl. 2 í fyrrinótt að ísl. tíma, en
þá var klukkan átta að morgni í
Pakistan. Ók ódæðismaðurinn, sem
talið er að hafi verið Pakistani, bif-
reið sinni, en hún var full af
sprengiefni, inn í farartæki Frakk-
anna fyrir utan Sheraton-hótelið í
Karachi.
Mennirnir frönsku störfuðu allir
hjá frönsku ríkisfyrirtæki sem und-
anfarið hefur veitt pakistanska sjó-
hernum tæknilega aðstoð við bygg-
ingu kafbáta í Karachi, sem er
hafnarborg.
Auka viðbúnað á landamær-
unum að Afganistan
Ekki er vitað hverjir bera ábyrgð
á ódæðinu en Musharraf sagði að
það hefðu drýgt „einhverjir sem
vilja valda óróa í innanríkismálum
Pakistan“. Áður hafði verið haft eft-
ir forsetanum að hann teldi að
sprengjutilræðið væri hefnd vegna
þeirrar samvinnu sem pakistönsk
stjórnvöld hafa átt við Bandaríkja-
menn í hernaðaraðgerðum þeirra í
Ellefu Frakkar og þrír Pakistanar féllu í hryðjuverkaárás í Karachi í Pakistan
Reuters
Lögreglumaður stendur við brak ökutækis sem sprengjumaður ók á í Karachi með þeim afleiðingum að 14 dóu.
nágrannaríkinu Afganistan. Gat
Jean-Pierre Kelche, yfirmaður
franska heraflans, sér þess jafnvel
til að um hefði verið að ræða liðs-
menn al-Qaeda samtaka Sádí-Arab-
ans Osama bins Ladens.
Musharraf sagði að eitt af mark-
miðum tilræðisins hefði án efa verið
að reyna að skaða samskipti Pakist-
ans og Frakklands en að ódæðis-
mönnunum yrði ekki kápan úr því
klæðinu.
Hefur þegar verið ákveðið að efla
öryggisráðstafanir við landamæri
Afganistans til muna í því skyni að
koma í veg fyrir að liðsmenn al-
Qaeda geti komist yfir landamæri
ríkjanna og til Pakistans.
Gruna al-
Qaeda-liða
um ódæðið
Islamabad. AFP.
TUTTUGU og eins árs háskóla-
nemi í Bandaríkjunum hefur verið
handtekinn og ákærður í tengslum
við fjölda rörsprengjutilræða. Hinn
meinti tilræðismaður, Luke J.
Helder, var handsamaður eftir elt-
ingaleik á hraðbraut um 80 km
austur af Reno í Nevadaríki á
þriðjudagskvöldið. Umkringdur af
þjóðvegalögreglumönnum henti
Helder byssu út um gluggann á bíl
sínum, en að minnsta kosti ein önn-
ur byssa fannst við leit í bílnum,
auk tóla til sprengjugerðar.
Helder er grunaður um að hafa
komið rörsprengjum fyrir í fjölda
póstkassa í miðríkjum Bandaríkj-
anna frá því sl. föstudag. Sex
sprengjanna sprungu og særðust
sex manns. Líta yfirvöld á
sprengjutilræðin sem hryðjuverk.
Helder á yfir höfði sér 30 ára til
lífstíðarfangelsi, verði hann fundinn
sekur.
Lýsing á bifreið Helders og skrá-
setningarnúmer hennar hafði verið
tilkynnt í fjölmiðlum um öll Banda-
ríkin og á þriðjudaginn tilkynnti
vegfarandi á þjóðvegi 80 um ferðir
bifreiðarinnar á vesturleið. Eftir að
hafa elt hann um 65 km leið, oft á
ofsahraða, náði lögreglan honum og
þá gafst hann upp án mótþróa.
Hann var handtekinn átta
klukkustundum eftir að alríkislög-
reglan hafði lýst eftir honum, og
faðir hans kom fram í fjölmiðlum og
bað hann þess lengstra orða að
„meiða ekki fleiri. Þú ert búinn að
fá athyglina sem þú vildir fá“.
Flestum sprengjunum fylgdu bréf
þar sem bandarísk stjórnvöld voru
gagnrýnd og varað við því að búast
mætti við fleiri tilræðum.
Ákærður vegna fjölda
rörsprengjutilræða
AP
Helder færður í varðhald í Reno.
Las Vegas, Reno. AFP, AP.
ALGERT aflahrun hefur orðið í
smokkfiskveiðum við Falklandseyjar
á þessu ári, en veiðarnar hafa verið
helsta tekjulind eyjaskeggja undan-
farin ár. Þetta eru niðurstöður
breskra vísindamanna, sem gerðar
verða opinberar í dag.
Smokkfisksaflinn í ár nemur minna
en tíu þúsund tonnum og áætlað er að
hann verði ekki meiri en sem sam-
svarar 73 þúsund tonnum á fiskveiði-
árinu öllu. Það er ekki nema þriðj-
ungur þess sem venjulega veiðist og
þegar vel hefur árað hefur tekist að
landa um 250 þúsund tonnum.
Þykir því ljóst að veiðarnar í ár
verða þær minnstu frá því að farið var
að veiða smokkfisk við Falklandseyj-
ar fyrir fimmtán árum. Í niðurstöðum
vísindamannanna, sem birtar verða í
ritinu Science, kemur fram að afla-
bresturinn skýrist líklega af hærra
hitastigi sjávar á hrygningarslóðum
smokkfisksins á liðnu ári, sem veldur
því að stór hluti ungviðisins drepst.
Smokkfiskur lifir aðeins eitt ár og
því getur verið afar sveiflukennt ár
frá ári hversu stór stofninn er.
Áfall fyrir
efnahag
Falklandseyja
París. AFP.