Morgunblaðið - 09.05.2002, Síða 26

Morgunblaðið - 09.05.2002, Síða 26
ERLENT 26 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ RIGNING og þoka hömluðu í gær rannsókn á flaki þotu Egypt Air sem brotlenti á hæð skammt frá flugvellinum við Túnisborg í Tún- is í fyrradag. Að minnsta kosti fimmtán manns fórust, en 62 voru um borð. Vélin var að koma frá Kaíró. Tugir slösuðust, en yfirvöld á flugvellinum við Túnisborg sögðu í gær að nokkrir hefðu sloppið al- gerlega ómeiddir úr slysinu. Túnísk kona, Narjess Hadada, sagði frá því að flugvélin hefði lent í ókyrrð í aðflugi að vell- inum. „Við fundum fyrir höggum, en áhöfnin fullvissaði okkur um að þetta væri bara vegna skýjanna. Allt í einu sáum við eldglæring- ar og svo rakst vélin í jörðina.“ Hadada greip börnin sín tvö og hljóp út um stórt gat sem mynd- aðist hafði á vélina er hún brot- lenti. „Mér finnst eins og ég sé endurborin,“ sagði Hadada. Aðrir farþegar sögðu að flug- mennirnir hefðu losað eldsneyti úr tönkum vélarinnar skömmu áður en hún brotlenti, og kann það að hafa komið í veg fyrir að eldur kviknaði í henni við lend- inguna, en búast má við að þá hefðu mun fleiri farist. Þoka og rigning var er slysið varð og samband við vélina hafði rofnað nokkrum sekúndum áður en hún fórst, rétt eftir að áhöfnin sendi út neyðarkall. Skyggnið var svo enn verra vegna sandroks frá Sahara- eyðimörkinni. Mohamed Amine, yfirflugþjónn um borð, tjáði AP að hann teldi að slæmt veður og slæmt skyggni væru helstu orsakir slyssins. Amine hlaut minniháttar meiðsl í slysinu.Reuters Slæmt veður talið líklegasta orsökin BOGIN í baki tekur YangHuanyi á móti gestum áheimili sínu í Kína, gest-um sem koma hvaðanæva úr heiminum til að hitta þessa 95 ára konu. Í knýttum höndum heldur hún á jaskaðri minnisbók. Þar er að finna ástæðu þess að svo margir út- lendingar leggja leið sína í þessa sveit í Suður-Kína að hitta Yang. Á síður minnisbókarinnar hefur Yang skrifað dapurlega sögu um stúlku sem er föst í óhamingjusömu hjónabandi, sem eru algeng örlög stúlkna í dreifbýlinu í Kína. En þessi saga er ekki það sem vekur athygli. Það sem máli skiptir er hvernig Yang skráði hana: Á einstöku rit- máli sem búið var til og hefur gengið kynslóð fram af kynslóð meðal kvennanna í Jiangyong-sýslu – og verið haldið frá feðrum þeirra, eig- inmönnum og sonum. Löngu áður en vestrænir popp- sálfræðingar fengu þá hugmynd að kynin töluðu sitthvort tungumálið voru konurnar í Jiangyong farnar að tala eigið mál daglega. Með sínum sérstöku samskiptaháttum – er nefnast „nushu“ á kínversku, eða „kvennarit“ – hefur þeim tekist að hasla sínu eigin tungumáli völl í heimi, þar sem karlmenn hafa tögl og hagldir. Þetta er fágæt samstaða meðal kvenna í einhverjum elsta menning- arheimi veraldar, og var henni hald- ið leyndri þar til fyrir tuttugu árum. Tungumálið er oftast ritað, en stundum talað og sungið, og með því hafa konur getað skipst á skoðunum, sagt kjaftasögur og deilt reynslu sinni á meðan flestar kynsystur þeirra í Kína hafa verið ólæsar og oftast verið taldar heyra undir eig- inmenn sína. Saumað í vasaklúta Konurnar í Jiangyong voru bundnar við heimilið, en notuðu venjulega hluti sem vopn í sjálfstæð- isbaráttu sinni. Þannig skrifuðu þær upp sögur í bækur, saumuðu þær í vasaklúta og máluðu þær á blæ- vængi. Konur hvarvetna bera kennsl á þessar sögur. Tregablandin nushu-kvæði tjá söknuð vegna fjar- staddra vina, í sendibréfum er kvartað yfir illgjörnum eig- inmönnum og enn illskeyttari tengdamæðrum, sögur tjá af- brýðisemi í garð óvina og keppi- nauta. Konurnar dreifðu ritunum meðal náinna vina sinna, „eiðsvarinna systra“ sem mynduðu lítil kvenfélög er gegndu lykilhlutverki í samstöðu kvennanna andspænis valdi karl- mannanna. „Með brunn sér við hlið verður maður ekki þyrstur, með systur sér við hlið örvæntir maður ekki,“ segir útbreiddur nushu- málsháttur. Fræðimenn telja að Yang sé síðasta konan á lífi sem ólst upp við nushu sem lifandi þátt í til- verunni, eina konan sem þekkir hefð er mun deyja þegar Yang deyr. Hendur hennar eru farnar að skjálfa of mikið til að hún geti skrif- að að ráði. Sálufélagar hennar, sem fyrrum lásu skrif hennar, hlógu að bröndurum hennar og grétu yfir sorgum hennar, eru horfnir. Og yngri kynslóðin, barnabörn Yangs og barnabarnabörn, hefur enga þörf fyrir nushu. „Nú lærir þetta eng- inn,“ segir Yang. „Þær fara allar út á vinnumarkaðinn.“ Laðar að ferðamenn Nokkrir kínverskir og vestrænir fræðimenn eru að reyna að varð- veita ritmálið, og nokkrar konur og embættismenn í Jiangyong eru líka að reyna að halda í það í þeirri von að geta notað það til að laða að ferðamenn. En líkt og latína er nushu ekki lengur lifandi tungumál, og hefur orðið að lúta í lægra haldi fyrir útbreiðslu mandarín-kínversku og opinberri menntun fyrir stúlkur sem sjá enga þörf fyrir leynilegan samskiptamáta líkt og mæður þeirra höfðu fyrrum. „Þetta er ekki lengur mikilvægur þáttur í lífi neinna,“ segir Cathy L. Silber, sérfræðingur í nushu- rannsóknum og kennari við Will- iams College í Massachusetts í Bandaríkjunum. Kynslóð eftir kyn- slóð kenndu mæður dætrum sínum nushu. Ömmur kenndu dætrum barna sinna þegar þær voru heima að spinna, sauma, elda og syngja, einangraðar frá karlmönnunum. „Við bjuggum uppi og fórum aldrei niður, því síður út að vinna,“ sagði Yang. Yang nam ásamt stúlku í ná- grenninu, Gao Yinxian, sem varð á endanum afkastamikill nushu- höfundur. „Ég var um tíu ára göm- ul,“ sagði Yang. „Mér fannst svo gaman að læra að syngja söngvana og síðan að skrifa.“ Aðskilnaður kynjanna þýddi að karlmennirnir veittu nushu litla athygli. Hefðu þeir lagt við hlustir hefðu þeir ef til vill getað skilið talmálið, sem er ekki ólíkt málinu sem talað er í Jian- gyong-sýslu, þar sem um 240 þús- und manns búa. En nushu er fyrst og fremst rit- mál. Samsetning fylgdi ákveðnum venjum. Yfirleitt var ritað í bundnu máli, oftast sjö tákn í línu, svipað þeim mynstrum sem er að finna í munnlegum kínverskum sagna- hefðum á borð við óperu. „Vitlausar reglur“ Margir þeirra nushu-texta er varðveist hafa og eru nú í höndum fræðimanna eru svonefndir „sancha- oshu“. Það eru ofnir bæklingar sem brúður fékk að gjöf frá konunum í fjölskyldu sinni. Innan í er að finna söngva og kvæði sem endurspegla dapurleika vegna aðskilnaðarins og reiði út í hefðina sem neyddi giftar konur til að yfirgefa æskuheimili sitt og flytjast á heimili eiginmanns síns. „Keisarinn hefur sett vitlausar regl- ur,“ sagði í mörgum þessara brúð- arbóka. Með bréfum bárust lausafregnir og kjaftasögur gátu breiðst út. Í einu bréfi segir af örvilnaðri brúður sem hafði verið látin giftast til- teknum manni og komst svo að því að hann var líkamlega fatlaður. Í öðru segir frá árás tígrisdýrs á ökr- unum. Fáein nushu-bréf eru full af illkvittni og háði, sagði Silber. Ein sérstaklega meinyrt kona skrifaði annarri: „Hjá dýrunum kviknar þó eðlunarfýsn á fengitímanum, en þú ... “ Af bréfinu er ekki ljóst hvað hafði vakið þessa illsku, þótt geta megi sér til um ástæðuna. Í öðrum bréfum er minnst á stjórnmál, að minnsta kosti að því marki sem þau hafa áhrif á heim- ilislífið. Í söngtexta frá fyrri hluta tuttugustu aldar eru kínversk stjórnvöld gagnrýnd fyrir að kalla of marga drengi í herinn. Í öðru er lýst hvernig japanskar sprengjuárásir neyddu fólk til að flýja til fjallanna umhverfis Jiangyong og leita þar skjóls í hellum. Sjálfstæði í hugsun Þótt textarnir sýni fram á óvænt sjálfstæði í hugsun varar Silber við því að þeir séu túlkaðir sem niðurrif. Rétt sé það, að konurnar hafi kvart- að yfir reglunum sem keisarinn setti um hjónabandið „sem er í sjálfu sér pólitísk afstaða,“ segir Silber. „En það er ekki verið að segja: Steypum keisaranum af stóli.“ Kynslóð eftir kynslóð skrifuðu konurnar í Jiangyong bréf sín, sömdu ljóð og höfðu samskipti sín í milli án mikilla utanaðkomandi af- skipta. Karlarnir í kringum þær skildu hvorki upp né niður í skrif- unum. Ein saga segir frá konu sem var handtekin í nærliggjandi sýslu og talin vera njósnari, eftir að lög- regla fann nushu-texta í fórum hennar, sem lögreglumennirnir skildu ekkert í. Í menningarbyltingunni 1966–76 var nushu gagnrýnt sem leifar af lénsskipulaginu. „Konurnar sem kunnu nushu og komu saman til að syngja nushu-söngva voru hand- teknar og sættu gagnrýni,“ sagði Zhou Shuoyi. „Og það sem þær höfðu í fórum sínum var gert upp- tækt og brennt.“ Zhou er fyrrver- andi embættismaður á menningar- málaskrifstofu Jiangyong-sýslu og er af mörgum talinn hafa mikinn áhuga á nushu-fræðum. Þegar hann var barn rakst hann á tilvísun til málsins, og á sjötta áratugnum ving- aðist hann við konur sem kunnu það til hlítar. 1958 var hann fordæmdur sem „hægrimaður“, í og með vegna fræðastarfa sinna varðandi nushu og sendur í nauðungarvinnu. Tuttugu árum síðar hlaut hann uppreisn æru og fór þá að gera umheiminum kunnugt um nushu. Þá voru margar kvennanna sem kunnað höfðu málið látnar; aðrar voru í fyrstu hræddar um að verða sóttar til saka og vildu því ekkert eiga við skriftir. Ráðamenn í sýslunni líta fyrst og fremst á nushu sem fyrirbæri sem geti laðað að ferðamenn. Í einu þorpi var settur upp skóli þar sem málið var kennt, í og með til að draga að ferðafólk, en hætti rekstr- inum vegna fjárskorts. Kennarinn, Hu Meiyue, er barnabarn Gao Yinxian, nushu-rithöfundarins, og hefur reynt að kenna öðrum það sem hún kann, en jafnvel dóttir hennar hefur engan áhuga. Einkamál kvennanna í Jiangyong Jiangyong í Kína. Los Angeles Times. Kynslóð fram af kynslóð lærðu konurnar í þessari sýslu í Suður-Kína tungumál sem karlmenn í sveit- inni höfðu engan aðgang að og þannig gátu kon- urnar í Jiangyong deilt reynslu sinni, skipst á skoð- unum og jafnvel gagnrýnt keisarann. Los Angeles Times/James Bear Yang Huanyi heldur á nushu-skrifum í knýttum höndum sínum. ’ Keisarinn hefursett vitlausar reglur ‘

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.