Morgunblaðið - 09.05.2002, Síða 38

Morgunblaðið - 09.05.2002, Síða 38
UMRÆÐAN 38 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ É g las aftur Hringa- dróttinssögu Tolk- iens í kjölfar fyrsta hluta kvikmyndar- innar, vildi vera reiðubúinn fyrir næstu tvo hluta. Í lestrinum tók ég sérstaklega eftir voninni, en þessi tilfinning gefur þar kraftinn. Máttur vonarinnar opinberaðist aftur fyrir mér núna í vikunni eða þegar Aung San Suu Kyi, táknmynd vonarinnar, var sleppt úr stofufangelsi í Búrma. Tolkien segir ávallt frá því hvort vonin sé með í föruneyti hringsins eða ekki. Eftir að Gandalfur hverf- ur segir Aragon að þeir verði að halda áfram án vonarinnar, en ferð án von- ar er svo erfið og sporin svo þung. Um- svifalaust og vonin vaknar hjá föruneytinu aftur verða sporin léttari, og viljinn sterkari. Vonin í Hringadróttinssögu er engin venjuleg von, heldur von um að ekkert sé ómögulegt. Það er sama þótt myrkrið grúfi yfir deg- inum, og sólin hörfi, enn er von, og enn er þraukað en ekki látið und- an. Hún lifir jafnvel þótt allir ráð- gjafar vari við henni, og þótt sam- félagið allt útiloki möguleikann. Einstaklingurinn þarf ekki nauð- synlega að missa von sína, sama þótt allir aðrir hæðist að honum. Sá sem missir vonina er búinn að vera, nema einhverjum öðrum takist að vekja hana aftur með honum. Vonin lætur lítið yfir sér og stundum tekur enginn eftir henni, en hún hefur undramátt, því hún er driffjöður verka. Þrauka má jafnvel án ástar og gleði, en ef vonin slokknar líka vill- ast menn. Vonin lengir lífið, en sjúklingur sem missir vonina deyr. Brýni hann aftur á móti von sína, lifir hann ótrúlegustu raunir og sigrar dauðann í nokkrum orust- um (þótt allir tapi stríðinu). Vonin í Hringadróttinssögu er von um hið ógerlega; að koma í veg fyrir sigur hins illa, hún er veik vegna þess að föruneytið er fámennt og hringberinn er hobbit- inn Fróði. En föruneytið berst vegna þess að það missir ekki von- ina um að koma megi í veg fyrir ill endalok, og það heitir sér að gef- ast ekki upp fyrr en það hefur leit- að af sér vonina. „Von, er sést er ekki von, því að hver vonar það, sem hann sér? En ef vér vonum það, sem vér sjáum ekki, þá bíðum vér þess með þolinmæði.“ (Róm. 8, 24–25). Von er byggð á einhverju, vonin í Hringadróttinssögu er byggð á hringnum. Von einstaklings er oft byggð á honum sjálfum, öðru fólki og stundum á guði. Von byggð á öðrum er tvísýn, vegna þess að annað fólk getur brugðist. Það er jafnvel skynsamlegt að gera ráð fyrir vonbrigðum ef vonin er reist á öðrum. Hringberinn í sögunni gat brugðist og menn voru ekki á einu máli um hvort hann væri traustsins verður. Von manna er milli vonar og ótta. Hringberinn þurfti aftur á móti að binda vonir sínar við eigin sálargáfur; hæfi- leika, dugnað, staðfestu, vilja og áhuga. Honum var trúað fyrir miklu og hann gat ekki vitað fyr- irfram hvort hann stæðist raunina til enda. Von er byggð á grun um hvern- ig hlutirnir gætu eða ættu að vera. Vonin miðar á framtíðina, því eng- inn ber nokkra von í brjósti um að fortíðin breytist til betri vegar. Vonin snýst um hið nýja, og sterk von dregur jafnan kraft sinn frá einhverju sem getur hugsanlega orðið að veruleika. „Von er vak- andi manns draumur,“ segir máls- hátturinn. Og draumarnir eru næsti veruleiki. Vonin er það sem gefur vilja mannsins mátt, eða hversu oft hneig hringberinn nið- ur, og hversu oft gaf vonin honum nýjan kraft til að rísa upp? Von er vænting, hún er tilgáta hugans um betri tíð. Hvaðeina fölnar við hlið hennar, eða hver myndi vilja selja von sína? Hinn vonglaði getur lyft grettistaki, en hinn vonlausi vinnur engin afrek. Hvað sem á dynur, og hversu mik- ið sem mannsekjan missir, þá má hún aldrei missa vonina. Svo lengi sem endirinn hikaði, svo lengi átti hringberinn einhverja von í brjósti sínu, og hélt áfram ferðinni, og jafnvel þegar aðeins skuggi henn- ar var eftir, birtist hún í Sóma, vini hringberans. Vinurinn vissi nefni- lega að vonstola maður er sigraður maður, en ósigraður maður svo lengi sem síðasti vonarneistinn kulnar ekki. Von í brjósti, jafnvel leynd von, er sterkasta vopnið gegn kúg- unarvaldi. Barátta á nefnilega rætur sínar að rekja til von- arinnar. Það vissi og veit Aung San Suu Kyi, en það vissi herfor- ingjastjórnin í Búrma ekki. Fjór- tán ára markvisst starf við að buga Suu Kyi var til einskis, hún vissi að hún var vonarberi þjóðar sinnar. Hin langa barátta við herfor- ingjana hefur gert hana að „tákn- mynd lýðræðisbaráttu í heiminum og haldið lífi í vonarglætunni í heimalandi hennar“. (Mbl. 7/5). Von Suu Kyi er engin venjuleg von, og hún hefur ekki enn lokið verkefni sínu. Ferð hennar er ekki lokið, hún þarf áfram að bera von þjóðar sinnar og það er ekki létt byrði. Heldur jafnþung og byrði hringberans. Von er ósk, þrá og bæn. Hún er bjartsýni og hughreysti, en sá sem missir hana kemst á vonarvöl. Von er bæn hjartans, þrá sálarinnar og ósk hugans sem getur ræst. Sér- hver einstaklingur þarf að þekkja von sína, hvert hún beinist; hver er vonarkrafturinn? Sá sem vill þekkja sjálfan sig, þarf að þekkja von sína, því vonin færir nýjan kraft og gefur viljanum vængi, jafnvel til að fljúga þangað sem all- ir telja fjarstæðukennt. Hún ljær lífsbaráttunni þindarleysi og göngunni þrótt. Margir þurfa að bera von fyrir aðra, og sumir fyrir heilt samfélag eins og Fróði í Hringadróttinssögu og Suu Kyi í Búrma. Þau eru fuglarnir sem syngja í dimmunni fyrir dögun (Hope is the bird that sings, while the dawn is still dark). Vakandi draumur Markvisst starf við að buga Suu Kyi var til einskis, hún vissi að hún var vonarberi þjóðar sinnar. Hún er táknmynd lýðræðisbaráttu í heiminum og hefur haldið lífi í vonarglætunni í heimalandi sínu. VIÐHORF Eftir Gunnar Hersvein guhe@mbl.is HEIMAÞJÓNUSTA ljósmæðra er þjónusta sem veitt er vegna fæð- inga og umönnunar sængurkvenna og barna þeirra í heima- húsum. Er þetta til að þjónusta einstaklinga í barneignarferlinu. Barneignarferlið er líf- eðlislegt ferli en ekki sjúkdómur. Það nær til meðgöngu, fæðingar og sængurlegu. Auk lífeðl- islegra þátta mótast það af tilfinningalegum og félagslegum þáttum. Verðandi foreldrar eiga rétt á bestu barn- eignarþjónustu sem völ er á hverju sinni þar sem öryggi móður og barns er haft að leiðarljósi. Valmöguleikar Verðandi foreldrar þurfa að vita hvaða valmöguleikar eru í boði varð- andi þjónustu hvort sem er í með- göngu, fæðingu eða sængurlegu. Þegar vitað er að barn er í vændum má yfirleitt fá upplýsingar á heilsu- gæslustöðvum hjá ljósmóður eða lækni, um valmöguleikana varðandi þjónustu um eftirlit í meðgöngu, fæð- ingu og sængurlegu. Heimaþjónusta ljósmæðra er boð- in þeim sængurkonum sem óska þess og gengið hafa í gegn um eðlilega meðgöngu og eðlilega fæðingu. Þá er miðað við að sængurkonan og nýfædda barnið hennar útskrifist af fæðingarstofnuninni innan 36 klst. frá fæðingunni. Sængurkonur sem hafa möguleika á að fá heimaþjónustu ljósmæðra eru: 1. Sængurkonur sem hafa verið í mæðraskoðun hjá ljósmæðrum í MFS einingum (Meðganga – Fæðing – Sængurlega) MFS einingarnar eru starfræktar frá Landspítala – há- skólasjúkrahúsi, Hringbraut, Reykjavík. Þjónusta í MFS er fólgin í því að sama ljós- móðirin sinnir verðandi móður/föður í með- göngunni, fæðingunni og sængurlegunni. Yf- irleitt er það einnig sama ljósmóðirin sem tekur á móti barninu og sinnir móður/föður og barni þeirra í sængur- legunni á sjúkrahúsinu og heima fyrir. Gert er ráð fyrir því að sæng- urkonan og nýfætt barn hennar útskrifist af sjúkrahúsinu innan 36 tíma frá fæðingunni. 2. Sængurkonur sem fæða á sjúkrahúsi eða öðrum fæðing- arstofnunum og hafa verið í mæðra- skoðun á heilsugæslustöðvum í sínu hverfi eða sínu byggðarlagi, eða í mæðraskoðun á Miðstöð mæðra- verndar við Barónsstíg í Reykjavík. Mjög oft eru verðandi foreldrar búnir að ganga frá því við sína ljósmóður sem þau eru hjá í mæðraskoðun að fá heimaþjónustu ljósmæðra frá henni eða einhverri annarri ljósmóður. 3. Einnig er valmöguleiki á að fæða í heimahúsi. Nokkrar ljósmæður taka að sér heimafæðingar. Þær sinna verðandi foreldrum í fæðingunni og í sængurlegunni heima fyrir. Ef verð- andi foreldrar óska eftir því að fæða í heimahúsi geta ljósmæður sem við- komandi kona er hjá í mæðraskoðun komið henni/þeim í samband við þær ljósmæður sem sinna heimafæðing- um. Samningur Heimaþjónusta ljósmæðra er sjálf- stætt rekin af ljósmæðrum. Ég tel mjög mikilvægt að þessi þjónusta verði áfram til staðar því komið hefur í ljós í rannsóknum að heilbrigðar konur geta jafn örugglega fætt heima hjá sér og á sjúkrastofnun. Er því mikilvægt að við ljósmæður sjáum til þess að sængurkonur hafi áfram möguleika á þessari ljósmæðraþjón- ustu í framtíðinni. Nýlega var gerður samningur á milli Ljósmæðrafélags Íslands og Tryggingastofnunar ríkisins varð- andi heimafæðingar og heimaþjón- ustu ljósmæðra. Samningurinn var samþykktur á félagsfundi Ljós- mæðrafélags Íslands þann 22. apríl sl. Þar með féll úr gildi samningur sem gerður var 27. apríl 1999. Samningur þessi gerir ráð fyrir því að veita sængurkonum sem fara heim af fæðingarstofnun innan 36 klst. frá fæðingu allt að 8 heimaþjónustuvitj- anir, og skulu þær vera veittar innan 10 daga frá fæðingu. Ef sængurkonur hafa fætt barn sitt í heimahúsi er gert ráð fyrir allt að 11 vitjunum til þeirra, og skal þeim vera sinnt innan 10 daga frá fæðingu. Einnig er gert ráð fyrir 3 vitjunum fyrir fæðinguna til þeirra kvenna sem fæða heima. Ekki er gert ráð fyrir því að ljós- móðirin sem sér um heimaþjónustu sé á bakvakt en gert er ráð fyrir því í þessum samningi að mögulegt sé að veita bráðaútkall til sængurkvenna sem hafa fengið heimaþjónustu ljós- mæðra. Ljósmæður sem sinna heimaþjón- ustunni gæta þess að foreldrar séu vel upplýstir hvert á að leita ef eitt- hvað bjátar á hjá móður eða barni og ekki næst í ljósmóðurina. Heimaþjónusta ljósmæðra Halla Halldórsdóttir Fæðingar Heimaþjónusta ljós- mæðra, segir Halla Halldórsdóttir, er sjálf- stætt rekin af þeim. Höfundur er ljósmóðir. VELFERÐ fjöl- skyldunnar, menntun barna okkar, heil- brigði, félagslegt ör- yggi, jafnræði og virk- ur réttur til að hafa áhrif á okkar nánasta umhverfi og samfélag, eru atriði sem skipta miklu í okkar lífi. Við berum öll ábyrgð og höfum ríkar skyldur. Á sama hátt er skylda þeirra mikil, sem falið er að stýra okkar sameiginlega heimili. Við gerum kröfur um ábyrgð og trúnað og ekki síður kröfur um samstarf og samvinnu um upp- byggingu og rekstur bæjarfélags- ins okkar. Samfylkingin í Hafnarfirði hefur lagt fram með skýrum og afdrátt- arlausum hætti stefnumál sín og áherslur við stjórn Hafnarfjarðar- bæjar á komandi kjörtímabili. Stefnuskráin var formlega kynnt á fjölmennum og glæsilegum fundi í Hásölum í síðustu viku og á næstu dögum munu frambjóðendur Sam- fylkingarinnar ganga í öll hús í Hafnarfirði og afhenda bæjarbúum stefnuskrá okkar jafnaðarmanna. Höfuðáherslur okkar eru að:  Standa vörð um það samfélag sem við höfum byggt upp saman.  Standa vörð um menntun og uppeldi barna okkar.  Standa vörð um lýðræðislegan rétt til áhrifa.  Standa vörð um ábyrgan rekstur bæjarins okkar. Aukin áhrif og bætt þjónusta Við ætlum að auka áhrif bæjarbúa með því að leggja stærri mál í dóm kjósenda og tryggja samráð á íbúaþingum. Við ætl- um að skera niður í yfirstjórn bæjarins, einfalda stjórnsýsluna og hætta að sóa fjár- munum bæjarins í einkaframkvæmdir þar sem bærinn eign- ast aldrei neitt. Við ætlum að endurgreiða hækkun fasteignagjalda til bæjar- búa í samræmi við tillögur okkar í bæjarstjórn á nýliðnum vetri. Við ætlum að skipuleggja Norðurbakk- ann í sátt við bæjarbúa og með til- liti til umhverfisins. Við ætlum að byggja upp nýtt miðbæjartorg á Thorsplani, efla mannlíf og menn- ingu og bæta ásýnd og útlit bæj- arins. Við ætlum að stórauka mark- visst forvarnarstarf, m.a. með því að greiða þátttökugjöld allra barna 10 ára og yngri í íþrótta- og æsku- lýðsstarfi og koma upp kaffi- og menningarhúsi fyrir ungt fólk í miðbænum. Við ætlum að ljúka strax við uppbyggingu Suðurhafnar og efla með markvissum hætti atvinnulíf í bænum. Hefja strax endurbætur á Víðistaðaskóla og leysa einsetn- ingu Setbergsskóla innan hverfis- ins. Við ætlum að bjóða uppá hollan og næringarríkan mat fyrir grunn- skólanemendur, stytta biðlista eft- ir leikskólaplássi og tryggja jöfnuð við nágrannasveitarfélögin vegna daggæslugjalda hjá dagforeldrum. Efla þjónustu við eldri borgara og tryggja gott framboð af lóðum og íbúðum sem henta þeirra þörfum. Við eigum sameiginlegt markmið Kosningarnar í Hafnarfirði hinn 25. maí nk. snúast um grundvall- aratriði. Þær snúast um það hvort haldið verður áfram á braut einka- væðingar og óstjórnar í fjármálum eða hvort ábyrgð og jöfnuður eiga að ráða ferðinni. Við hvetjum alla Hafnfirðinga til að kynna sér stefnumið og áherslur okkar jafnaðarmanna. Við treystum á stuðning ykkar og lið- sinni, því við eigum það markmið sameiginlegt að vilja standa vörð um Hafnarfjörð. Stöndum vörð um Hafnarfjörð Lúðvík Geirsson Hafnarfjörður Frambjóðendur okkar munu ganga í öll hús í Hafnarfirði, segir Lúðvík Geirsson, og afhenda bæjarbúum stefnuskrá Samfylk- ingarinnar. Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.