Morgunblaðið - 09.05.2002, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 09.05.2002, Qupperneq 41
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 41 Sveitarfélögin eru það stjórnvald sem stendur almenningi næst. Þau fara með verkefni sem hafa mikil áhrif á daglegt líf íbúa þeirra. Með lögum eru sveitarstjórnum falin verkefni og heimildir til tekjuöflunar sem þau hafa töluvert svigrúm til þess að útfæra og nýta eftir þeirri stefnu sem rekin er hverju sinni af kjörnum fulltrú- um. Hugmyndafræði skiptir því miklu máli á vettvangi sveitar- stjórna. Hugmyndir sjálfstæðismanna um framtak ein- staklinga, hófsama skattheimtu og ábyrgð í rekstri eiga því afar brýnt erindi á þessu sviði. Á grundvelli þessa hefur Seltjarnarnes skipað sér í forystusveit bæjarfélaga. Ungt fólk vill lægri skatta Allt frá stofnun bæjarfélagsins hef- ur Seltjarnarnes verið undir ábyrgri stjórn sjálfstæðismanna. Í dag er Sel- tjarnarnes í hópi eftirsóknarverðustu sveitarfélaga landsins þar sem opin- ber gjöld eru í lágmarki og skuldir sveitarfélagsins með því lægsta sem gerist. Þetta skiptir miklu máli vegna þess að eftir því sem skuldir eru lægri gefst meira svigrúm til að gera góðan bæ enn betri. Þegar fram í sækir blasa við lægri skattar. Ungt fólk vill lægri skatta. Unga fólkið sem hefur alist upp á Nesinu þekkir bæinn vel. Hér eru framúrskarandi skólar með öflugu skólastarfi. Vel er staðið að íþrótta- og tómstundamálum. Náttúrugæði eru hér með eindæmum góð og skyn- samlega staðið að skipulagsmálum þar sem ákvarðanir eru teknar að vel ígrunduðu máli í sátt við bæjarbúa. Lífsgæði og heill fjöl- skyldunnar eru leiðar- ljós okkar sjálfstæðis- manna á Seltjarnarnesi. Ungt fólk sækist eftir slíku umhverfi. Þeir sem eru nú að kjósa í fyrsta skipti verða að velta vandlega fyrir sér þeim kostum sem standa til boða. Í raun er valið sáraeinfalt þar sem N-lisinn er ekki kostur. Hann er ókost- ur. Í bæjarstjórnarkosningunum býð- ur einn flokkur fram, Sjálfstæðis- flokkur, og sundurleit fylking manna með mismunandi hugsjónir, N-listi. Valkosturinn fyrir kjósendur er því afar skýr. Áframhaldandi forysta Sel- tjarnarnesbæjar undir stjórn sjálf- stæðismanna eða varasöm vinstri beygja. Við sjálfstæðismenn heitum því að fylgja hugsjónum okkar. Áherslur okkar eru skýrar. Áfram vel rekið bæjarfélag, fjölskyldan í fyrir- rúmi, efling íþrótta og heilsu, mark- viss menntun fyrir börn og unglinga, umhverfi sem við getum verið stolt af og virðing fyrir hagsmunum einstak- lingsins. Varðveitum stöðugleikann Eitt mikilvægasta verkefni nýrrar bæjarstjórnar er að varðveita þann stöðugleika og ráðdeild sem einkennt hefur Seltjarnarnesbæ. Sú bæjar- stjórn má alls ekki hafa meirihluta N- lista, sundurleitrar fylkingar sem hef- ur það eitt sameiginlegt að vera á móti sjálfstæðisfólki. Kosningabar- átta N-listans gengur nefnilega út á það að sverta verk sjálfstæðismanna, nánar tiltekið þeirra sem bæjarbúar hafa treyst í 10 kjörtímabil í röð til þess að gegna trúnaðarstörfum fyrir sig. Slíkt ber vott um tortryggni gagnvart Seltirningum. En ekki eru heilindi N-listans gagnvart bæjarbú- um meiri en svo að eitt helsta bitbein þeirra í ómálefnalegri baráttu við að koma sjálfstæðismönnum frá er að hvetja til þess að tilhæfulausri skaða- bótakröfu gagnvart bænum, og þar með bæjarbúum öllum, sé fylgt dyggilega eftir. Já, tilgangurinn helg- ar meðalið. Virðing fyrir verðmætum Sjálfstæðismenn bera virðingu fyr- ir hvers konar verðmætum, hvort sem það eru mannleg verðmæti, um- hverfi eða fjármunir. Um þetta verð- ur fyrst og fremst kosið 25. maí. Kjós- um Sjálfstæðisflokkinn og tryggjum að Seltjarnarnes verði áfram öðrum sveitarfélögum fyrirmynd. Tryggjum stöðugleika en jafnframt áframhald- andi framfarir og umbætur í þágu allra bæjarbúa Seltjarnarness. X-D. Áframhaldandi forysta Magnús Örn Guðmundsson Seltjarnarnes Kosningabarátta N- listans, segir Magnús Örn Guðmundsson, ber vott um tortryggni gagnvart Seltirningum. Höfundur skipar 10. sæti á lista sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi. TILKOMA fjórða framboðslistans til sveitarstjórnarkosning- anna í Hveragerði sýnir að unga fólkið í bænum vill hafa meiri áhrif á gang mála. Einnig bendir tilkoma fram- boðsins til þess að ekki hafi verið leitað nægjan- lega til ungmenna af nú- verandi bæjarstjórn í vinnu við stefnumótun. Þrátt fyrir að jákvætt sé að ungir Hvergerðingar láti til sín taka í pólitík, með sérstöku framboði, getur það þó haft eitt neikvætt í för með sér, þ.e.a.s. að sjálfstæðismenn haldi áfram hreinum meirihluta og áherslur Samfylkingarinnar og óháðra nái ekki fram að ganga eftir kosningar. En þær miðast m.a. að því að auka áhrif unga fólksins í stjórnun bæjarins. Tilkoma háhraðanets um allan bæ ætti til dæmis að auðvelda ungu fólki, sem vill nýta sér nútíma samskiptatækni, að setjast að í Hveragerði. Nú í byrjun 21. aldar á slíkt háhraða- net að vera jafn sjálfsagt og vatn, hiti og rafmagn. Núverandi ráðamenn hafa þó ekki sýnt neinn skilning á því, en þau bæjarfélög sem hafa stigið markviss skref í þessa átt hafa þegar náð ákveðnu forskoti í sam- keppni um íbúa og fyr- irtæki, sem gera sjálf- sagðar kröfur í samfélagi upplýsinga, tækni og þekkingar. Ef frambjóðendur Sam- fylkingarinnar og óháðra komast til valda og áhrifa í Hveragerði eftir kosningar verður m.a. leitað til unga fólksins á íbúaþingum. Jafnframt þyrfti að stofna sérstakt ungmennar- áð er hefði verulegt áhrifavald sem gæti skilað miklu inn í stefnumótun til framtíðar í Hveragerði. Þar þarf m.a. að taka mið af þörfum unga fólksins og annarra íbúa sem vilja nýta á skil- virkan hátt alla möguleika Netsins og fjölbreytilegrar samskiptatækni til afþreyingar, atvinnuþátttöku, náms og stjórnmálaþátttöku. Við viljum vinna með unga fólkinu í Hveragerði og öðrum íbúum bæjarins. Það sam- starf getur skipað Hveragerði í fremstu röð bæjarfélaga sem hefur þá alla burði til að keppa við önnur sveitarfélög hér á landi. Meira vald til unga fólksins í Hvergerði Þorsteinn Hjartarson Höfundur skipar 1. sæti á lista Samfylkingarinnar og óháðra í Hveragerði. Hveragerði Við viljum vinna með unga fólkinu í Hvera- gerði, segir Þorsteinn Hjartarson, og öðrum íbúum bæjarins. MÉR líður seint úr minni fundur á aðal- ráðstefnu UNESCO í París í fyrrahaust sem eg átti þess kost að sækja. Þar ræddu vís- indaráðherrar frá öll- um þjóðum heims í fyrsta sinn hin flóknu og umdeildu málefni siðfræði erfðarann- sókna. Menntamála- ráðherra Íslendinga var falin fundarstjórn á lokafundi hring- borðsumræðna þar sem ályktun fundarins var borin upp. Óhætt er að segja að skoðanir hafi verið skiptar, enda vart við öðru að búast á þingi þar sem saman koma fulltrúar ólíkra aðstæðna, trúarbragða og stjórnmálaskoðana. Björn Bjarnason stjórnaði fundin- um af festu og skörungsskap. Hann átti ekki lítinn þátt í því að fulltrúar hinna ólíku þjóða sem þarna sátu komu sér saman um fyrstu ályktun Sameinuðu þjóðanna í viðkvæmasta deilumáli nútímans; þeir mæltu gegn klónun mannvera. Björn Bjarnason lyfti grettistaki í embætti menntamálaráðherra. Undir stjórn hans var gengið skipu- lega til verks í menntamálum, skóla- stigin tekin fyrir eitt af öðru og þau bætt. Þegar upp var staðið lá varla nokkur steinn óhreyfður. Með þessu var grunnur lagður að enn frekari framförum í skólakerfinu enda verk- efnin ærin og óþrjótandi eðli máls- ins samkvæmt. Um breytingarnar ríkti sátt og því fóru þær tiltölulega hljótt eins og títt er þegar vel er gert. Björn var sem ráðherra í miðjum klíðum í stór- tækum skipulagsbreyt- ingum á málefnum vís- indarannsókna þegar hann söðlaði um til að leiða Sjálfstæðisflokk- inn til sigurs í borgar- stjórn Reykjavíkur. Þau mál eru í góðum höndum, en frumvörp um rannsóknir og þró- un bíða haustþings til samþykktar. Eg veit að djarfar hugmyndir Björns Bjarnasonar munu setja svip sinn á málefni rannsókna, þróunar og mikilvægi þeirra fyrir atvinnu- og menningarlíf þjóðarinnar um langa framtíð. Í starfi mínu í Rannsóknarráði Ís- lands fann eg vel einlægan áhuga Björns Bjarnasonar á vísindum og rannsóknum og vilja hans til að vinna þeim málum brautargengi eins og öðrum málum sem honum er trúað fyrir. Eg sá hann setja sig inn í flóknustu mál, móta skoðanir sínar í samráði við fjölda manns og fylgja þeim síðan af öryggi og ótrúlegum dugnaði. Enda kemur ekki á óvart að störf Björns á vettvangi mennta og menningar nutu iðulega víðtæks fylgis óháð flokkslínum. Það fann eg sjálfur bæði í hópi samstarfsmanna í Háskólanum og Rannsóknarráði og víðar þar sem málin bar á góma. Við Reykvíkingar eigum þess nú kost að kjósa Björn Bjarnason og vaskan hóp samhentra frambjóð- enda D-listans til forystu í borgar- stjórn. Við getum kosið borgar- stjóra sem við treystum fyrir uppbyggingu og þróun höfuðborg- arinnar, treystum til að festa hana í sessi sem borg menningar og mennta, treystum til að efla borgina sem miðstöð þekkingariðnaðar á heimsmælikvarða, treystum til að láta áætlanir um framkvæmdir og fjármögnun standast. Við treystum Birni Bjarnasyni vegna þess að verk hans tala. Djörfung og festa Hafliði Pétur Gíslason Höfundur er prófessor í eðlisfræði. Reykjavík Við treystum Birni Bjarnasyni, segir Hafliði Pétur Gíslason, vegna þess að verk hans tala.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.