Morgunblaðið - 09.05.2002, Page 44

Morgunblaðið - 09.05.2002, Page 44
UMRÆÐAN 44 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ VIÐ frambjóðendur D-listans fögnum því, hve mikill áhugi er á stefnu okkar, en hana höfum við kynnt undir kjörorðinu: Reykjavík í fyrsta sæti. Þá er einn- ig ljóst af viðbrögðum kjósenda, að þeir kunna vel að meta ákvörðun okkar um að leggja áherslu á for- gangsmál í stefnunni með því að bjóða kjós- endum að gera við okk- ur samning. Honum hefur verið dreift til allra Reykvíkinga og þeir geta skuldbundið okkur til að framkvæma samninginn með at- kvæði sínu. Fundir, umræðuþættir og blaða- greinar snúast um stefnu okkar. Menn velta fyrir sér einstökum at- riðum í henni, vega og meta kostn- aðarþætti og spyrja, hvernig við ætl- um að framkvæma það, sem vekur sérstakan áhuga hjá hverjum og ein- um. Verða oft skemmtilegar og líf- legar umræður um málin, þegar við förum á vinnustaði eða hittum borg- arbúa á öðrum vettvangi. Margnota loforð Það er áberandi, að stefnuskrá R- listans hefur ekki vakið neinn sam- bærilegan áhuga. Afstaða fjölmiðla gagnvart R-lista stefnunni byggist á því, að fjölmiðlamenn áttuðu sig strax á því, að þarna er um marg- nota loforð að ræða – ekkert nýtt kemur fram. Við kynningu á stefnu sinni sum- ardaginn fyrsta lét R-listinn eins og hann hefði lagt hana fram með ein- hverju sérstöku kostnaðarmati. Virtust einhverjir trúa þessu, áður en þeir lásu stefnuna og sáu, að hvergi er þar neina kostnaðartölu að sjá. Í DV hinn 6. maí kemur síðan fram í viðtali við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, að R-listinn hafi alls ekki slegið neinni tölu á heildar- kostnaðinn af stefnuskrá sinni – hins vegar þykjast frambjóðendur listans geta sagt kjósendum, hvað stefnu- skrá okkar sjálfstæðismanna kostar! Að sjálfsögðu er R-listinn ekki að leita að því, sem sannara reynist, þegar hann leggur kostnaðarmat á stefnu D-listans. Frambjóðendur R- listans búa einfaldlega til tölur, enda sveiflast þær á milli milljarðatug- anna. Ósannindi Alfreðs Það er ekki nóg með, að R-listinn sjái það sér helst til framdráttar að setja fram tilbúnar tölur vegna kostnaðar við stefnu okkar sjálf- stæðismanna heldur leggja tals- menn listans sig einnig fram um að fara með ósannindi, þegar þeir ræða um það, hvernig eigi að fjármagna stefnuna. Nýjasta dæmið um það er grein Alfreðs Þorsteinssonar hér í Morg- unblaðinu í gær, þar sem hann held- ur því blákalt fram, að það sé stefna okkar sjálfstæðismanna að selja Orkuveituna. Þess sést hvergi stað í stefnuskrá okkar. Við ætlum að selja gælufyrirtæki Alfreðs Línu.net og segjum það skýrum stöfum. Við höfum engin slík áform uppi um Orkuveituna. Hvað gengur þeim mönnum til, sem þurfa að reka kosn- ingabaráttu sína á lygum um and- stæðinga sína? Marklaus málflutningur Í sjálfu sér á ekki að koma á óvart, að Alfreð Þorsteinsson seilist lengra en góðu hófi gegnir í óvönd- uðum málflutningi. Hitt hefur komið mér meira á óvart, hve oft Ingibjörg Sólrún Gísladóttir umgengst sann- leikann frjálslega, þegar við hitt- umst til sjónvarpsumræðna. Ætla ég að nefna nokkur dæmi máli mínu til stuðnings. Í þættinum Silfri Egils 28. apríl leitaðist hún við að réttlæta hina vitlausu R-lista- hugmynd um eina flug- braut á Reykjavíkur- flugvelli frá 2016 til 2024 með því, að flogið hefði verið á eina braut á vellinum í eitt ár á meðan hann var endur- byggður á árunum 2000 og 2001 og það hefði bara gengið vel. Staðreyndin er hins vegar sú, að það var aðeins í 53 daga frá maí fram í ágúst 2000, sem flogið var á eina braut og er að sjálfsögðu ekki unnt að draga þá ályktun af því, að ein braut í átta ár dugi til áætl- unarflugs – enda telur Flugráð það fráleitt. Á borgarafundi Ríkisútvarpsins 5. maí hélt hún því fram, að R-listinn hefði hreinsað strandlengjuna, en áður hefði klóakið runnið hér í fjör- urnar. Hefur það farið fram hjá Ingibjörgu Sólrúnu, sem Grafar- vogsbúar segja réttilega, að hjá þeim sé hreinsun strandlengjunnar alls ekki lokið, þar rennur klóakið enn í fjörurnar? Útlistun Ingibjargar Sólrúnar á skuldastöðu Reykjavíkurborgar verður í raun einkennilegri eftir því sem umræður um það mál og 40% frávik frá áætlun ársins 2001 verða meiri. Þegar hún tekur Landsvirkj- un sem dæmi er hún í raun að bera saman ólíka hluti. Um 82% af skatt- tekjum Reykjavíkur fara í rekstur og á undanförnum árum hafa 17 þúsund milljónir verið teknar úr Orkuveitu Reykjavíkur til að bæta stöðu borgarsjóðs, sem stendur und- ir þessum rekstri. Ingibjörg Sólrún ætti að vita, að kostnaður Lands- virkjunar er að langstærstum hluta fjármagnskostnaður vegna lang- tímalána, sem tekin eru vegna fjár- festinga með endingu um 100 ár og afskriftartíma upp á um 40 ár. Rekstrarkostnaður Landsvirkjunar er tiltölulega lítill. Ef það er ekki fá- viska, sem ræður þessum saman- burði Ingibjargar Sólrúnar við stöðu Landsvirkjunar, er um rangfærslu gegn betri vitund að ræða. Hið sama verður uppi á teningn- um, þegar hún segir stefnu okkar á D-listanum um að stöðva skulda- söfnun jafngilda því til dæmis, að ekki megi taka lán úr Íbúðalána- sjóði. Skyldu menn alltaf auka skuldir með því að taka fé að láni? Óverðskuldað stolt Það hefur verið rauður þráður í málflutningi Ingibjargar Sólrúnar og kom enn fram í viðtalsþættinum Ísland í dag á Stöð 2 7. maí, að hún sé stolt af skuldunum sínum, af því að þær hafi runnið til að reisa skóla en Sjálfstæðisflokkurinn hafi safnað skuldum til að reisa Perluna og Ráð- húsið. Af þessu tilefni skora ég á Ingi- björgu Sólrúnu að svara þessu: Var ekki málum háttað þannig í árslok 1991, að þá var engin nettó peninga- leg skuld hjá borginni? Á þeim tíma var byggingu Perlunnar lokið og að- eins eftir innri frágangur í Ráðhús- inu. Enn spyr ég Ingibjörgu Sól- rúnu: Skapaðist skuldin árin 1991 FLEIPUR Í STAÐ STEFNU Björn Bjarnason Í kosningabaráttunni hafa talsmenn R-listans lagt áherslu á fleipur, segir Björn Bjarnason, en ekki skýra stefnu. SKOÐUN FLESTUM Kópa- vogsbúum ætti að vera ljóst að í dag er höfn í bænum. Reyndar hefur höfnin verið til staðar í nokkra áratugi og hafnarsvæðið verið leiksvæði margra barna og unglinga í vesturbæ Kópavogs. Lengi vel var höfnin eingöngu bryggjustu- bbur og sjóvarnargarð- ur ásamt fiskvinnslum og lönduðu nokkrir trillukarlar afla sínum þar. Á síðustu árum hefur mikil uppbygg- ing átt sér stað á hafnarsvæðinu og jafnframt hafa skuldir hafnarinnar (hafnarsjóðs) aukist mikið. Búið er að byggja viðlegukant fyrir stærri skip og hefur landfylling aukist þannig að myndast hefur stórt svæði fyrir hafnsækinn iðnað. Margir spyrja hvort þörf sé á slíkri höfn og hvort Kópavogsbær eigi að standa í rekstri stórskipahafnar og sýnist sitt hverjum. Staðreyndin er hins vegar sú, að í tíð núverandi meirihluta var tekin sú ákvörðun að fara í uppbygg- ingu hafnarinnar og þá ákvörðun og þær framkvæmdir er ekki hægt að taka til baka. Kópavogsbúar eiga í dag höfn sem getur tekið á móti stærstu togurum og flutningaskip- um en einnig skuldir upp á rúmlega 200 milljónir króna. Tekjur hafnar- innar hafa verið mjög litlar og ekki staðið undir rekstri, hvað þá afborg- unum af skuldum. Hvað er til ráða? Meirihlutinn kvartar sáran yfir því að ekkert hafi fengist úr ríkis- sjóði eða Hafnarbótasjóði við gerð hafnarinnar og ekki virðist 2. þing- maður sjálfstæðis- manna í Reykjanesi hafa unnið mikið í mál- inu. Sá grunur vaknar að farið hafi verið út í miklar framkvæmdir og skuldsetningu án þess að tekjumöguleik- ar hafnarinnar hafi ver- ið kannaðir til hlítar. Annar vandi sem há- ir rekstri hafnarinnar er takmörkuð flutn- ingsgeta frá höfninni. Mikil íbúðarbyggð er á Kársnesinu og eru allir sammála um að umferð vöru- og gámaflutingabifreiða í gegnum íbúðarhverfi sé ótæk. Eins og staðan er í dag er í raun einungis ein leið frá höfninni inn á stofnæða- kerfi höfuðborgarsvæðisins, eftir Vesturvör, Kársnesbraut og Ný- býlavegi. Þessi leið er þó ekki góð því margt fólk býr við þessar götur og þurfa börn og unglingar að fara þar yfir til að komast í t.a.m. skóla og sundlaug. Vandinn er einnig sá, að þessar götur voru ekki gerðar fyrir þungaflutninga og nóg er umferðin á Nýbýlavegi svo ekki sé bætt á hana gámaflutningabílum. Ef tekjur hafn- arinnar eiga að aukast er ljóst að umferð flutningabíla um Kársnesið mun einnig aukast. Tryggja þarf að framtíðarstarfsemi hafnarinnar taki mið af íbúðarbyggðinni á Kársnesinu og að öryggi barna og annarra veg- farenda sé í fyrirrúmi. Höfnin sem hluti af útivistarsvæði Af þessu er ljóst að höfnin er kom- in til að vera og snýst þá spurningin um hvernig hún nýtist bæjarbúum sem best? Í höfninni er aðstaða fyrir smábáta. Hún er hluti af útivistar- svæði Kópavogsbúa og liggur göngustígurinn um Kársnesið um hafnarsvæðið. Þangað getur fólk komið og siglt bátum sínum og veitt fram af bryggjunum. Strandlengja Kársnessins er vinsæl hjá skokkur- um og göngufólki og má hugsa sér veitingastað við höfnina sem gæti verið þægilegur áningarstaður fyrir útivistarfólk. Mikil og fjölbreytt at- vinnustarfsemi er við höfnina. Höfn- ina má nota til fræðslu fyrir nem- endur grunn- og framhaldsskóla Kópavogs því þar má komast í kynni við grunnatvinnuvegi þjóðarinnar, sem eru fiskveiðar og fiskvinnsla, ásamt því að kynnast annars konar starfsemi. Til að Kópavogshöfn nýtist sem best þarf að huga vel að umhverfi hennar og þeirri starfsemi sem þar þróast. Mikilvægt er að ganga sem allra fyrst frá lóðasvæði hafnarinnar þannig að höfnin verði ekki eingöngu fyrir athafnafólk heldur einnig til yndisauka fyrir Kópavogsbúa. Framtíð Kópavogshafnar Þór Ásgeirsson Höfundur er í hafnarstjórn í Kópa- vogi og skipar 7. sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi. Kópavogur Til þess að Kópavogs- höfn nýtist sem best, segir Þór Ásgeirsson, þarf að huga vel að um- hverfi hennar og þeirri starfsemi sem þar þróast. FORSETI bæjar- stjórnar Garðabæjar, Laufey Jóhannsdóttir, skrifar grein í Mbl. 1. maí sl. um málefni aldr- aðra í Garðabæ. Yfir- skrift greinarinnar er „Málefni eldri borgara sett í forgang“. Þar reynir hún að gera mik- ið úr afrekum Sjálf- stæðisflokksins á yfir- standandi kjörtímabili. Ætla mætti að allt sem gert hefur verið í þeim málum síðustu árin í Garðabæ væri Lauf- eyju og hennar flokki að þakka. Greinin minnir helst á hið fornkveðna: „Betra er að veifa röngu tré en öngu.“ Það er af og frá að Sjálfstæðisflokkurinn hafi haft frumkvæðið í þessum málaflokki. Fimm skrautfjaðrir Laufey setur fram fimm áherslu- atriði í grein sinni. Við þau er ástæða til að gera athugasemdir. 1) Laufey talar um að auka þurfi hjúkrunarrými í Garðabæ og bjóða upp á dagvistun og hvíldarinnlagn- ir. Henni virðist sem sé ekki kunn- ugt um að nú þegar er boðið upp á hvíldarinnlagnir í Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Holtsbúð. Um dagvistunina er það að segja að sjálfstæðismenn hafa ekki barist af krafti fyrir því að fá leyfi fyrir hana. Heilbrigðisráðuneytið synj- aði bænum um leyfi til rekstrar dagvistarrýma. Þegar undirrituð lagði fram tillögu í bæjarstjórn í byrjun ársins 2001 um að bæjar- stjórn Garðabæjar léti í ljós óánægju sína með synjun ráðu- neytisins hlaut tillagan ekki stuðn- ing fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Henni var vísað til bæjarráðs. Áhuginn var nú ekki meiri! 2) Laufey talar um að auka áherslu á fjöl- breytileika framboðs á íbúðum í Garðabæ. Sumir vakna upp við vondan draum rétt fyrir kosningar! Nú á allt í einu að grípa í taumana og gera eitt- hvað! Í mörg ár hafa sjálfstæðismenn ekki þóst sjá að fólk, ekki síst fólk á eftirlauna- aldri, væri að flytja úr bænum til annarra sveitarfélaga vegna lítils framboðs á minni íbúðum. 3) Laufey segir að flokkur sinn vilji endurskoða afslátt af fasteigna- gjöldum til eldri borgara svo hægt verði að veita sanngjarnan afslátt. Gott ef satt væri! Í byrjun þessa árs lagði minnihlutinn í bæjar- stjórn Garðabæjar fram tillögu um að álagningarprósenta fasteigna- skatts á íbúðarhúsnæði yrði lækk- uð, úr 0,385% í 0,375%. Sú lækkun átti að vera framlag Garðabæjar til baráttunnar gegn hækkandi verð- lagi. Það tók fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins í bæjarstjórn þrjár vikur að manna sig upp í að fella tillög- una. Minnt skal á í þessu samhengi að það er viðtekin venja sjálfstæð- ismanna að fella tillögur minnihlut- ans og gera þær síðar að sínum. 4) Laufey talar einnig um að auka framboð til tómstundastarfs aldr- aðra, svo sem í Garðabergi. Árið 1998 lagði undirrituð fram tillögu um að veita fé til eflingar starfi Fé- lags eldri borgara. Tilgangurinn var að stuðla að auknu frumkvæði þeirra til að hafa meiri áhrif á ákvarðanir sem bæjarstjórn tekur um kjör og hag þeirra í bæjarfélag- inu. Tillagan fékk lítinn stuðning hjá sjálfstæðismönnum. 5) Loks segir Laufey það eitt af áhersluatriðum sjálfstæðismanna að gert verði ráð fyrir tíma fyrir eldri borgara í fyrirhugaðri inni- sundlaug í íþróttahúsinu í Hofs- staðamýri. Gott er að heyra. Um langt árabil hefur verið mikil þörf á innisundlaug í Garðabæ. Sjálfstæð- ismenn höfðu engan áhuga á því að sundlaugin yrði byggð. Meira að segja fulltrúar flokksins í íþrótta- og tómstundaráði höfnuðu því að mæla með gerð hennar. Væntanleg innisundlaug er því ekki verk sjálf- stæðismanna, alls ekki. Það var fyrir tilstilli okkar í minnihlutanum í bæjarstjórn og kröftugs þrýst- ings frá foreldrafélagi Hofsstaða- skóla að laugin fékkst loks sam- þykkt. Frumkvæðið Að framansögðu er ljóst að frum- kvæðið í þessum málum er hjá Garða- bæjarlistanum. Með því að kjósa hann geta bæjarbúar tryggt meiri framsýni og skilvirkari vinnubrögð í málefnum aldraðra í Garðabæ. Fjaðrafok íhaldsins Lovísa Einarsdóttir Garðabær Með því að kjósa Garða- bæjarlistann, segir Lovísa Einarsdóttir, geta bæjarbúar tryggt meiri framsýni og skil- virkari vinnubrögð í málefnum aldraðra. Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 2. sæti Garðabæjarlistans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.