Morgunblaðið - 09.05.2002, Page 45
–94 ekki vegna þess að útgjöld til
svokallaðra málaflokka (allt utan
fjárfestinga og vaxta) jukust um
30% að raunvirði á sama tíma og
tekjur drógust saman vegna afnáms
aðstöðugjaldanna? Sjálfstæðismenn
sögðu þá, að þeir vildu verja fjár-
munum borgarsjóðs til að halda uppi
atvinnu í borginni, en á þessum tíma
var mikið atvinnuleysi í landinu, en
minnst í Reykjavík, að öllum líkind-
um vegna stefnu borgarinnar. Er
enn í minnum haft, að Ingibjörg Sól-
rún hafi sagt eitt sinn á borgar-
stjórnarfundi, að þessi stefna hefði
verið óþörf, þar sem atvinnu-
ástandið hefði verið gott í Reykjavík
Hún lét þess auðvitað ógetið hvers
vegna atvinnuástandið var gott.
Um leið og Ingibjörg Sólrún hefur
talið það sér til sérstakrar virðingar,
að hafa reist hér grunnskóla og leik-
skóla, eins og gert hefur verið í öll-
um sveitarfélögum landsins undan-
farin átta ár, gefur hún til kynna, að
engar áætlanir hafi legið fyrir um
heilsdagsskóla og einsetningu
grunnskóla, þegar hún varð borg-
arstjóri 1994. Þetta eru rangar full-
yrðingar, áætlun um einsetningu
grunnskólans og kostnað við hana lá
fyrir í ársbyrjun 1994 og var hún
unnin undir forystu Árna Sigfússon-
ar, sem þá var formaður fræðslu-
ráðs. Síðustu fjögur árin sem sjálf-
stæðismenn fóru með stjórn
Reykjavíkur fyrir 1994 var til dæmis
sömu fjárhæð á sambærilegu verð-
gildi varið til þess að byggja leik-
skóla í Reykjavík og R-listinn hefur
varið til þessa málaflokks frá 1998
eða um 1.300 milljónum króna.
Á veikum grunni
Í kosningabaráttunni hafa tals-
menn R-listans lagt áherslu á fleipur
en ekki skýra stefnu. Dæmin um
ámælisverðan málflutning forystu-
manns R-listans síðustu daga eru
fleiri, en ég læt hér staðar numið að
sinni. Þegar stefna í kosningum er
byggð á jafnveikum grunni og hér er
lýst, er ekki von, að henni sé fylgt
fram af mikilli sannfæringu og
þrótti. Einmitt þess vegna hefur
stefnuskrá R-listans allt í einu hætt
að skipta máli rúmum tveimur vik-
um fyrir kosningar.
Um leið og ég ítreka ákvæði
samningsins, sem við á D-listanum
höfum lagt fyrir kjósendur, vil ég
hvetja þá til að átta sig á þeim hola
hljómi, sem er í málflutningi and-
stæðinga okkar. Þeir eru í raun
ótrúverðugir og ósamstæðir um allt
nema að halda í völdin og þar helgar
tilgangurinn meðalið eins og óvand-
aður málflutningur þeirra sýnir.
Höfundur skipar 1. sæti á borg-
arstjórnarlista Sjálfstæðisflokksins.
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 45
I3
63
5
· O
D
D
I H
F
FERÐAMÁLASKÓLINN Í KÓPAVOGI
..
.
fjá
rf
es
tin
g
fy
rir
fr
am
sý
nt
fó
lk
Ferðamálaskólinn í Kópavogi - Menntaskólinn í Kópavogi v. Diganesveg • 200 Kópavogur • Sími 594-4020 • Fax: 594 4001 • netfang: fsk@ismennt.is • Heimasíða: mk.ismennt.is
Ferðamálaskólinn í Kópavogi býður upp á hagnýtt nám í ferðaþjónustu.
Námið er sniðið að störfum í ferðaþjónustufyrirtækjum á breiðum grunni.
Upphaf kennslu:
Kennsla hefst í byrjun september 2002
Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða annað
sambærilegt nám og góð tungumálakunnátta.
Umsóknir um skólavist:
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu skólans
og eru einnig á heimasíðu Menntaskólans í Kópavogi
Slóð: mk.ismennt.is undir ferðamálaskóli
Umsóknarfrestur er til 17. maí.
Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum og mynd.
Ferðafræðinám tvær brautir
Ferðafræðisvið: Áhersla er lögð á uppbyggingu og starfsemi ferðaþjónustu á Íslandi, skipulagningu
ferða og móttöku erlendra ferðamanna.
Hótelsvið: Áhersla lögð á þjónustusamskipti, tungumál, hótel og veitingarekstur, ráðstefnu og
fundaskipulagningu og fleira.
Námið er tvær til þrjár bóklegar annir og starfsþjálfun í þrjá mánuði. Boðið er upp á fjarnám í
mörgum áföngum ef næg þátttaka fæst. Kennt er frá 17.30-21.50 mánudaga til fimmtudaga.
IATA UFTAA Farseðlaútgáfa og farbókunarkerfi
Alþjóðlegt nám sem veitir réttindi til starfa á ferðaskrifstofum og hjá flugfélögum.
Tvær bóklegar annir og lokapróf í mars 2003
Flugþjónustubraut - Ný braut
Námið er undirbúningur fyrir starf í farþegarými flugvéla (flugfreyja/ flugþjónn).
Tilgangur námsins er að auka hæfni nemenda og að auka líkur á ráðningu til starfa
í atvinnugreininni.
Helstu námsgreinar: Ábyrgð, reglur og skyldur áhafnar í farþegarými, ferðalandafræði,
flugeðlis-og veðurfræði, flugsaga, lög og reglugerðir, þjónustusamskipti,öryggismál.
ÖFLUGT NÁM Í FERÐAÞJÓNUSTU
Teppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060
PRENTARAR
Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699
Plastkorta
Vefsíða: www.oba.is