Morgunblaðið - 09.05.2002, Page 46

Morgunblaðið - 09.05.2002, Page 46
MINNINGAR 46 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Oddný Þórðar-dóttir fæddist 14. ágúst 1904 á Hall- anda í Hraungerðis- hreppi í Flóa. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Eiri aðfara- nótt 21. apríl sl. á 98. aldursári. Foreldrar hennar voru Þórður Helgason, f. 17.6. 1870, d. 11.4. 1951, og Gróa Erlendsdóttir, f. 4.6. 1877, d. 28.2. 1960. Systkini hennar voru alls tólf, en eftir lifa Jórunn, f. 16.6. 1912, Elín, f. 18.12. 1914, og Erlendur, f. 29.4. 1922. Einkadóttir Oddnýjar og Þóris Guðmundssonar, kennara á Hvanneyri, f. 4.6. 1896, d. 20.6. 1937, er Sigurlaug, bókavörður, f. 12.12. 1932. Maður hennar er Sveinn Jónsson, prentari og leigu- bílstjóri, f. 24.8. 1931, og eiga þau þrjá syni. Þeir eru: 1) Þóroddur, náttúrufræðingur og tilrauna- stjóri á Möðruvöllum í Hörgárdal, f. 1.8. 1956. Kona hans er Jónína B. Grétarsdóttir, tækni- teiknari, f. 11.8. 1957. Synir þeirra eru Gunn- ar, f. 2.8. 1982, og Snorri Sveinn, f. 29.6. 1989. 2) Jón Garðar, netagerðarmeistari á Skagaströnd, f. 24.7. 1957. Sambýliskona hans er Íris Björg Fjól- mundsdóttir, f. 15.12. 1968. Dætur þeirra eru Lena Rut, f. 17.7. 1990, og Heba Líf, f. 13.6. 1996. Dóttir Jóns úr fyrri sambúð er Oddný, f. 19.3. 1985. 3) Þórður, prentari í Reykjavík, f. 29.9. 1966. Dætur hans eru Ágústa Dóra, f. 21.8. 1988, Alexandra Lind, f. 15.5. 1990, og Lovísa Rós, f. 14.3. 1993. Oddný lærði karlmannafata- saum og starfaði við það lengst af, fyrst á Akureyri og síðar í Reykja- vík. Oddný rak flatkökugerð í Reykjavík um tíma en síðustu starfsárin sá hún um köku- og brauðbakstur á Vífilsstaðaspítala. Útför Oddnýjar fór fram í kyrr- þey. Við minnumst með trega daganna sem við áttum í bernsku með ömmu á Vífilsstöðum. Við áttum heima í Goð- heimum, sem í þá daga var hálfklárað úthverfi í Reykjavík. Þar var vítt til allra átta og sannkallaður ævintýra- heimur fyrir ofvirka stráka og sem Einar Már Guðmundsson lýsir svo eftirminnilega í Riddurum hringstig- ans. Aðalfararskjótinn okkar var reið- hjólið, okkur voru allir vegir færir og ekkert stóðst okkur snúning. Það sagði amma okkar að minnsta kosti og hún hafði alltaf rétt fyrir sér. Við notuðum hvert tækifæri sem gafst til að hjóla upp Breiðholtið, vestur yfir Vatnsendahæðina og niður að Vífils- staðaspítala þar sem amma vann. Á bögglaberanum höfðum við gúmmí- bát, árar og veiðistangir, en nesti þurftum við ekki. Því á Vífilsstöðum beið amma okkar með heitt súkkulaði og nýbakað rjúkandi bakkelsi. Hún var líka ávallt búin að útvega okkur veiðileyfi í Vífilsstaðavatni. Þar veidd- um við stórsilunga sem fóru létt með að draga gúmmíbátinn okkar þangað sem þeim sýndist. Á bryggjuræfli, sem skagaði út í vatnið, fylgdist Oddný amma með okkur úr fjarska, með sólina á vesturhimni í bakið og eldhússvuntuna blaktandi undan vindinum sem kom alla leið norðan úr Faxaflóa. Þarna komumst við bræð- urnir, Þóroddur og Jón Garðar, í fyrsta sinn í kynni við dásemdir sil- ungsveiða, dásemda sem við erum enn að njóta að fullu. Það eigum við Oddnýju ömmu að þakka. Við minnumst með trega allra sunnudaganna heima í stofunni hjá mömmu og þar sem Oddný amma stjórnaði bridsi. Brids var hennar ástríða og það var enginn maður með mönnum nema hann kynni Vínarkerf- ið. Við lærðum því á unga aldri að spila og á meðal okkar eru enn ákafir bridspilarar, þökk sé ömmu. Amma reyndi sem lengst að spila, síðast með eldri borgurum. Fyrst kvartaði hún reyndar yfir því hvað þeir voru upp til hópa lélegir spilarar, en seinna fór hún að njóta þess jafn mikið og forðum daga. Við minnumst með trega heitu um- ræðanna um pólítík og trúmál sem amma var ósjaldan dugleg að koma af stað. Amma var mjög pólitísk. Hún var ákafur kvenréttinda- og verka- lýðssinni. Samt kaus hún alltaf Fram- sóknarflokkinn. Hún hafði mikla trú á leiðtogum flokksins, Ólafi Jóhannessyni, Stein- grími Hermannssyni og Halldóri Ás- grímssyni. Hún átti þó alltaf erfitt með að þola daður flokksins við Sjálf- stæðisflokkinn og þá sérstaklega þeg- ar Halldór og Davíð fóru í stjórnar- myndunarviðræður 1991 þó að möguleikar væru einnig á vinstri stjórn þá. Ömmu var heitt í hamsi og hringdi því beint í Halldór og hótaði honum því, að ef hann gengi í sæng með Davíð myndi hún aldrei kjósa flokkinn framar. Þegar hún sagði okkur þessa sögu bætti hún glottandi við: „Ég var ekkert að segja honum hvað ég væri gömul (87 ára) því ég verð örugglega dauð þegar kemur að næstu alþingiskosningum“. Amma varð ekki sannspá því að í næstu kosningum, 1995, var hún enn sprell- lifandi og að sjálfsögðu kaus hún Framsóknarflokkinn. Já, amma var alla tíð höfðingjadjörf og var ófeimin að segja meiningu sína. Hún hafði dá- læti á Ingibjörgu Sólrúnu borgar- stjóra. Þess vegna hringdi hún í borg- arstjórann þegar hún vildi fá setta upp heppilega rólu fyrir gamla fólkið í Hlíðunum þar sem það gæti rólað og hvílt sig á milli spássitúra. Og Ingi- björg var ekki lengi að kippa því í lið- inn fyrir hana. Amma var alla tíð áskrifandi að málgagni flokksins, Tímanum. Betra blað fannst ekki í veröldinni. Þegar Tíminn var einungis orðinn fjórblöð- ungur var samt alltaf svo mikið og gott efni í blaðinu og miklu meira les- efni heldur en í sunnudagsblaði Moggans. Þegar við dvöldum erlendis og pabbi sendi okkur íslensku blöðin út sá amma alltaf til þess að lauma málgagninu með í pakkann, svo að staðreyndir mála færu örugglega ekki fram hjá okkur. Amma var hagsýn kona og ekki vildi hún láta flokkinn eyða nokkru í sig. Þess vegna hringdi hún alltaf í kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokks- ins til biðja þá um að keyra sig á kjör- stað. Það er því ekki ólíklegt að Odd- nýju sé að finna í skrám Sjálfstæðisflokksins yfir dygga stuðningsmenn. Við minnumst þess þegar amma fór að missa kraftinn, hætti að geta hreyft sig, lesið og spilað eins mikið og hún vildi. Þegar líkaminn fylgir ekki viljanum. Það var erfitt fyrir konu eins og Oddnýju ömmu að þurfa aðstoð. En þegar hún var búin að venja sig við nýjar aðstæður tók hún gleði sína á ný og kvartaði aldrei framar yfir örlögum sínum. Það er ekki síst að þakka frábæru starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Eir sem sá um að ömmu liði vel síðustu æviárin. Þeg- ar við heimsóttum hana á Eir minn- umst við fölskvalausu gleðinnar sem skein úr augum hennar þegar hún sá okkur. Síðustu mánuðina var minnið nánast horfið og af svip hennar mátti lesa að hún skammaðist sín hálfpart- inn að þekkja ekki þetta fólk sem tal- aði við hana, snerti og kyssti. Engu að síður voru þessar heimsóknir ómet- anlegar fyrir okkur öll og alltaf kvaddi hún okkur með … „mikið var gaman að fá ykkur í heimsókn … þakka ykkur kærlega fyrir komuna“. Með þessum fátæklegu orðum vilj- um við minnast ömmu okkar sem hef- ur verið svo stór partur af lífi okkar. Ömmu sem lifði fyrir okkur af því að við vorum af hennar meiði. Ömmu sem gerði engar kröfur og elskaði okkur skilyrðislaust. Þóroddur, Jón Garðar og Þórður Dauði, ég óttast eigi afl þitt né valdið gilt, í Kristí krafti ég segi: Kom þú sæll, þá þú vilt. (Hallgrímur Pétursson.) Þessar línur Hallgríms lýsa afstöðu Oddnýjar til dauðans. Nú er komið að kveðjustund. Oddný var tilbúin fyrir töluverðum tíma síðan að yfirgefa þennan heim. Hún var hvergi bangin því hún vissi það vel að hennar biði eitt og annað spennandi. Hún sagði við mig ekki alls fyrir löngu að hún hefði alltaf verið hrifin af því að ferðast og nú væri hún tilbúin að fara að komast í enn eitt ferðalagið, hún hlakkaði til. Það var alltaf gaman að ræða þessa hluti við Oddnýju vegna þess að við vorum alltaf á sama máli og stóðum fastar á því að þessi tilvera okkar hér á jarðríkinu væri bara brot af því sem sálir okkar hefðu komist í kynni við og að framhald yrði á þroskaferli þeirra. Það voru nú ekki allir á sama máli, og hver hefur rétt á sinni meiningu. Oddný sagði við mig eitt sinn fyrir löngu, að þegar hún væri búin að yfirgefa þennan heim ætlaði hún með einhverjum brögðum að láta mig vita að kenning okkar væri rétt. Vonandi líður ekki á löngu þar til ég verð móttækileg, hvort sem það verður í svefni eða vöku. Oddný var kona með skoðanir á mönnum og málefnum og pólítísk fram í fingur- góma. Hún var fróð um þau málefnu sem vöktu áhuga hennar og varð henni oft heitt í hamsi við eldhúsborð- ið þegar þau mál bar á góma. Það var einmitt í forsetakosningunum hér um árið og við vorum búsett í Kaup- mannahöfn þegar Oddný kannaði það hvort við ætluðum ekki örugglega að nýta okkur kosningaréttinn. Við höfð- um ekkert fylgst með þessum kosn- ingum að ráði og hefðum örugglega gleymt því að kjósa ef hún hefði ekki minnt okkur á það og sagði okkur auðvitað í leiðinni hver ætti að verða fyrir valinu. Auðvitað gerðum við þetta fyrir hana. Oddný var alveg yndisleg kona og hafði hugmyndaflug í lagi, hver önnur en hún hefði fengið rólu í hverfið sitt til að halda sér í formi. Hún gerði sér lítið fyrir og hringdi í Ingibjörgu Sól- rúnu og bað um rólu á tiltekinn stað. Það tókst, en það versta var að upp var sett einhver gamlingjaróla sem var í raun bekkur til að hvíla sig á. Oddný vildi bara venjulega rólu, helst með gryfju til að geta notið hreyfing- arinnar og rólað sér hressilega. Hún hugsaði vel um heilsuna og sjálfa sig. Morgunmaturinn hennar var sam- blanda af alls konar trefjum og vítamínum sem hún blandaði og bjó til sjálf og það sem hún borðaði almennt var hollt og gott. Hún hreyfði sig og gekk eins mikið og hún hafði tök á, enda varð hún langlíf þegar upp var staðið. Þegar hún var níræð hafði hún nægan þrótt til að fara með fjölskyld- unni í bústað yfir helgi og lengi vel eftir það var hún nokkuð hress. Oddný var ákaflega góð og traust sínum nánustu. Hún stóð þétt við bak drengjanna sinna (barnabarna) þegar þeir voru í ströngu námi eða að hefja búskap. Við eigum henni öll mikið að þakka, ekki síst fyrir umhyggju henn- ar, tryggð og áþreifanlega væntum- þykju. Við vissum það öll að þessi stund væri óumflýjanleg en þrátt fyr- ir vissu manns er kveðjustundin erfið og góðar minningar það sem verður að duga. Lovísa Rós biður góðan Guð að taka vel á móti yndislegri langömmu sinni og þakkar henni fyrir allar góðu stundirnar. Hún þakkar fyrir öll ljúfu jólin sem þær áttu saman og vonar að þau verði líka góð hjá Guði, nú getur langamma spilað á ný. Elsku Sigurlaug, Sveinn, Tóti, Jón, Þóroddur og fjölskyldur þeirra. Við sendum okkar innilegustu samúðar- kveðjur á þessari stund. Ingibjörg Reynisdóttir, Lovísa Rós Þórðardóttir. Hún Oddný Þórðardóttir lang- amma mín var jarðsett 29. apríl. Hún fékk að lifa langa ævi en ég veit að hún var orðin þreytt í lokin og þess vegna óska ég einlægt að henni líði vel í dag og ég mun rifja upp allar góðu minningarnar sem ég á um hana frá því ég var lítil. Lát opnast augu mín, minn ástvin himnum á, ODDNÝ ÞÓRÐARDÓTTIR                              ! "            #$  ! #%    !    "#$%  !   &  &$!' ()  &  !     (' ' &  * +         , - ../ 0# 1  2 $3  &  '  ! (      )! 4! 0' (!&'  & 5  67 !  " %0' (!& !   2 0' (!&' 0' #$%   !  ) 89 4!  !  3&.:'  &(  ' ! $%  4!  !    2'   2 ! +     !      *           /) ; / ../ *  ( !93'#  <=      +  ! ,     -     #$  !  # $ .       ,    &      &    ,    / 0    !  ! 1*     ++ # 2$$23$ %'$3$+4$ $% >#$% ' 0!   & !   2 "+ *(  ' -! 6 !  -!:    '   & !  >#$%  $% ' $!-!:  !  0!  -!: '  &>#$% '  #$%  %3 ! +         * /?  -. ../ "' ' 6 &      +2  5! ,    6  /     ##  ! #% $$  $!/( '  &@  $! !  $ (   $!'  & 5  $! !  "2 -% ' /  A  $! !  / 2 >5' @ 2   $! !  ) 3(  !  $ ( 7" ('   $ ( '   A $ (  ! +         "  /- ../ "6  *<  2  &: ( 7:$5  : (     +3  5! "       !*&*      7  :  !   + ''    : ' " % &   !       '# #% +

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.