Morgunblaðið - 09.05.2002, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 09.05.2002, Qupperneq 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 47 svo ástarundur þín mér auðnist skýrt að sjá: hið fríða foldarskraut hinn fagra stjarnaher á loftsins ljómabraut og ljóssins dýrð hjá þér. (V. Briem.) Guð blessi þig og varðveiti, þitt langömmubarn Oddný Jónsdóttir. Jæja Oddný mín, þá ertu lögð af stað í þitt síðasta ferðalag, sem þú varst búin að bíða svo lengi eftir og hlakkaðir mikið til. Alltaf varstu á ferðinni, fórst í langa göngutúra oft á dag meðan heilsan leyfði og sagðir að þú gæfir upp öndina um leið og þú hættir að ganga. Síðustu árin á Eir fórstu um í göngugrind til að komast í göngutúrana þína. En svo fór að halla undan fæti og í lokin varstu keyrð um í hjólastól. Þú hafðir alltaf gaman af ferðalög- um og fórst í síðustu utanlandsferðina til Júgóslavíu árið 1980 en það ár kynntist ég þér, þá 76 ára gamalli, en eldhressri. Eftir það lá leiðin í sum- arfrí í Hveragerði ár hvert. Þangað komum við svo til þín í heimsókn um helgar, þá var gjarnan farið í smábíl- túr um sveitirnar fyrir austan fjall og á kaffihús á eftir, oftast í Eden. Þegar við Þóroddur eignuðumst Gunnar ár- ið 1982, þitt fyrsta barnabarnabarn, vildirðu honum allt það besta. Hann var litli sólargeislinn þinn, alltaf átt- irðu „hollt gott“ handa honum, vel þroskaðar perur, súkkulaði rúsínur og ís. Svo þegar við fórum til Ameríku sendir þú okkur reglulega bréf með því helsta sem var að ske í pólitíkinni heima á Íslandi, en þú fylgdist alltaf vel með stjórnmálum og reyndir að hafa áhrif á okkur í þeim efnum. Þá fylgdu alltaf smáráðleggingar til okk- ar í leiðinni. Þú hafðir ekki mikið á milli hand- anna um ævina en oft gastu laumað að okkur „smáaur“ eins og þú kallaðir það, þegar við keyptum fyrstu íbúðina o.fl. en eins var gert við alla og barna- barnabörnin fóru ekki varhluta í þeim efnum heldur. Þér fannst börnin hafa allt of mikið af leikföngum og öðru dóti, svo þegar þau áttu afmæli fengu þau pening sem átti að nota þegar þau færu í framhaldsnám, en henni var mikið í mun að unga fólkið menntaði sig. Svo komu langömmubörnin eitt af öðru og eru nú orðin 8. Við Þóroddur eignumst svo Snorra Svein 1989, svo þeir bræður kynntust langömmu sinni vel og eiga um hana góðar minn- ingar. Hún reyndi að vekja áhuga þeirra á náttúrufegurð Íslands, með því að segja þeim frá ferðalögum sín- um um landið og gefa þeim steina sem hún hafði safnað á ferðum sínum um landið. Í steinunum sá hún ýmsar kynjaverur sem hún benti strákunum á. Hollt mataræði var þér alltaf ofar- lega í huga. Alla morgna byrjaðir þú á að taka lýsi á fastandi maga, svo fórstu í sturtu áður en þú fékkst aðal- máltíð dagsins. Frekar ólystugt gums að okkar mati en örugglega mjög hollt. Þetta var ystuð súrmjólk með hrísgrjónum, kotasælu, uppbleyttum ávöxtum ásamt safanum, bönunum, rjóma o.fl. Þetta dugði fram yfir há- degi en þá var það gróft brauðmeti ásamt kaffisopa. Kvöldmaturinn var yfirleitt soðinn fiskur og kartöflur. En á kvöldin oftast ávöxtur eða ís, sem var í miklu uppáhaldi og aldrei var eldað meira en akkúrat í matinn svo enginn borðaði yfir sig, það var ekki hollt. Við fluttum svo norður í land 1991, en þú komst og heimsóttir okk- ur það ár á Akureyri og svo einu sinni í Möðruvelli. En á Möðruvöllum fannst þér gott að vera í svo mikilli nálægð við náttúruna. Heyra fuglasönginn og svo bara þessa miklu ró í sveitinni. En þú treystir þér ekki í svona langt ferða- lag aftur. Síðast þegar við hittumst á Eir var minni þínu farið að hraka og það tók smátíma fyrir þig að muna hver við vorum, en minningin um þig mun lifa með okkur og margt það sem þú hafðir til málanna að leggja. Ég vona að þetta síðasta ferðalag verði eins og þú vonaðist eftir og hlakkaðir til eftir langa ævi. Þakkir fyrir allt, Jónína. Pabbi minn var besti pabbinn í öllum heila heiminum. Hann kenndi mér að fíla góða tónlist. Ég man þegar hann tók mig með sér á æfingar á RENT og þá tók ég þá ákvörðun að verða söngkona og leikkona. Hann leyfði mér líka að koma með á æfingar á öðrum leik- ritum sem hann vann í. Það var skemmtilegt. Ég man vel eftir sumr- inu þegar hann var svo mikið með okkur Halldóri, þá gerðum við ým- islegt saman. Ég man þegar við pabbi og mamma vorum í tívolíinu í Hels- inki, þá var pabbi miklu meiri krakki heldur en ég. Honum fannst það æð- islegt. Pabbi var einstök persóna og gítarhetja. Pabbi var stofnandi með okkur Halldóri í hljómsveit. Nú er- um við bara tvö í henni. Ég þakka fyrir að hann hafi verið pabbi minn þó að ég hafi ekki fengið að njóta hans lengi. Þegar pabbi var veikur lofaði hann mér að hann ætlaði að vaka yfir mér sem engill. Það er gott að vita af því. Hvíl þú í friði elsku pabbi minn. Unnur Sara Eldjárn. Ég kveð vin minn Kristján Eldjárn með miklum trega og djúpri sorg. Við mættumst fyrst í Menntaskól- anum við Hamrahlíð. Hann gaf sig strax fram með fyndni og gleði. Þessi drengur var ólíkur öllum, svo greind- ur og vel máli farinn og svo var hann gítarmaður. Það var einhvern veginn alveg sjálfsagt að hann væri með gít- ar. Hann spilaði á hann í eina skiptið sem ég söng. Gítarmaðurinn var líka í öndvegi þegar ég hitti hann í síðasta sinn. Hann spilaði Abbalög í barrokk- útsetningu eins og ekkert væri sjálf- sagðara. Það undarlega og ómögu- lega var á hans valdi og hug- myndaauðgi hans voru engin takmörk sett. Hann gladdi mann með tilveru sinni. Ég bið almættið að leiða fólkið hans í gegnum sorgina stóru. Ég mun heiðra minningu Krist- jáns Eldjárns alla mína ævidaga. Eva María Jónsdóttir. Það er þungt að horfa á eftir ung- um fjölskylduföður og hæfileika- manni kveðja þetta jarðlíf þegar allar dyr voru að opnast fyrir honum. Þegar við rifjum upp góðar stundir með Kristjáni Eldjárn verður okkur ljóst hversu mikilvægt er að njóta hvers augnabliks í lífinu því ekki líður á löngu þar til þessi augnablik eru lið- in. Stundirnar sem við fáum að njóta með þessum kæra vini verða ekki fleiri, en minningarnar lifa. Söknuð- urinn er óbærilegur en þegar sorgin virðist ætla að buga mann er gott að eiga hlýjar og góðar minningar til að styðjast við. Eldjárn gaf okkur svo margt. Hann gaf okkur sögurnar, brandar- ana, hin ógleymanlegu Giuliani- kvöld, tónlistina, lífsbaráttuna og ómetanlegan stuðning. Það má líka segja að hann hafi leitt okkur hjónin saman fyrir rúmum sjö árum síðan. Við erum þakklát fyrir að hafa átt svona góðan vin og fengið að njóta kímnigáfu hans og lífsgleði. Elsku Eyrún, Unnur Sara, Þórar- inn, Unnur, Úlfur, Ari og Halldór, megi Guð og allar góðar vættir vaka yfir ykkur og styðja í þessari miklu sorg. Blessuð sé minning Kristjáns Eldjárns. Einar Kristján Einarsson og Anna Ellen Douglas. KRISTJÁN ELDJÁRN ✝ Kristján EldjárnÞórarinsson Eld- járn gítarleikari fæddist í Reykjavík 16. júní 1972. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi aðfaranótt 22. apríl síðastliðins og var útför hans gerð frá Dómkirkj- unni í Reykjavík 30. apríl. Mig langar að minn- ast Kristjáns Eldjárns gítarleikara í fáeinum orðum fyrir hönd fjöl- skyldu minnar. Leiðirn- ar lágu saman á Ás- vallagötunni sem nágrannar og var ánægjulegt að fá að fylgjast með þegar hann óx úr grasi og var að byrja að læra á gít- arinn. Síðan átti Krist- ján eftir að spila marg- ar kvöldstundirnar fyrir gesti veitinga- hússins okkar og eru þær stundir ógleymanlegar. Hugsum okkur laugardagskvöld á veitingastað niðri í miðbæ og gestir staðarins að borða. Hurðin opnast og inn kemur látlaus ungur maður og heldur á gítartösku, kemur sér fyrir við hornið á barnum, tekur gítarinn úr töskunni og sest við að spila. Allt fumlaust og ljúfir gítartónar taka að líða um salinn og gítarleikarinn verð- ur strax hluti af heildinni. Allt í einu hættir fólk að borða, lítur upp og leggur við hlustirnar, nú hefur tón- listarmaðurinn náð fullri athygli gesta og hann leikur af hjartans lyst og maturinn verður kaldur á diskun- um. Klapp, fagnaðarlæti og allir ánægðir, gítarleikarinn og veitinga- maðurinn horfast snöggt í augu og vita að tónlistin hefur fangað augna- blikið. Þannig munum við fjölskyldan mest eftir Kristjáni Eldjárn gítar- leikara, þeim prúða pilti, sem nú spil- ar fyrir aðra gesti á æðri stöðum. Það er sárt að sjá á eftir þessum hæfileikaríka dreng og sendum við Eyrúnu, Unni Söru, Þórarni, Unni, Úlfi, Ara og Halldóri okkar innileg- ustu samúðarkveðjur vegna fráfalls hans. Jakob H. Magnússon og fjölskylda. Strákurinn í næsta húsi var besti vinur minn. Við urðum vinir í Haga- skóla og gengum saman til prests ár- ið sem við fermdumst. Okkur var skylt að mæta í messu á sunnudags- morgni þetta ár. Þegar maður er þrettán ára eru slík stefnumót ekki efst á óskalistanum. Kristján leysti þetta vandamál fyrir okkur báða. Við mættum í messuna og sátum aftast með gamla fólkinu og deildum með okkur vasadiskói sem hann faldi í jakkavasanum. Þannig gátum við notað tímann til andlegrar vakningar jafnt á trúar- og tónlistarsviðinu. Þegar maður er þrettán ára getur maður sofið endalaust. Sérstaklega á sunnudagsmorgnum. Til þess að svipta okkur ekki svefninum fundum við upp kerfi sem gerði okkur kleift að sofa undir messunni. Annar okkar hallaði sér í smástund á meðan hinn stóð vaktina. Hlutverk vaktmannsins var að vekja þann sem svaf ef prest- inn fór að gruna eitthvað misjafnt. Nú er strákurinn í næsta húsi sofn- aður í síðasta sinn. En í huga mér vakir hann enn. Vertu sæll, gamli vin- ur. Jón Atli Jónasson.             >? .0  %  3 &$!  "7 3 BC  2 $3         +7  5! ,     8,    #$  ! # $  &  -!:  !  0'  &#  '  &      &   $7 &#  ' ! 2  $   # #% '# # #% + 9   0 ./  6 7" & '% = "   ,   :  1  ,   ##  ! #% $$ ;  ,    / 8 /  ,  < /#$%  &(   !  0'   ' "$% 5  !     !  '# 53  !  3D 2 589 ' 2  " >0'   !      7 & '  0'   !  5 0!  $ '  2 0'  ' -!    ! + =        0 ./ 0 ./     ! &  '  ! (    ,  )!  &  8 0'  ' # 7 0'   !  : /!6 !  -! 3"( ' '# #% + 8    / -+"/  6 7"  3 7 $7  !> ?,!: &   $  5!        ' "    '+ < /            ,     *     #  ! # $ ;    ,       /   8    *          9    -"    $ :3' "3'3  7& #! &      &  '  ! >5' >-! ! + Sími 562 0200 Erfisdrykkjur við Nýbýlaveg, Kópavogi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.