Morgunblaðið - 09.05.2002, Side 48
MINNINGAR
48 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Friðrik var einn
fjögurra bræðra sem
ólust upp á Ásvalla-
götu 65 í Verka-
mannabústöðunum hjá
ömmu okkar og afa, Sólveigu og
Guðmundi. Það er naumast hægt að
ímynda sér að þessir bræður Jó-
hannes Óskar, Friðrik Jens, Guð-
mundur Jóhann faðir okkar og Jó-
hann hafi verið foreldrum sínum
auðveldir viðureignar jafnfyrirferð-
armiklir og þeir voru. Guðmundur
afi var oftast á sjó, harður tog-
arasjómaður úr Arnarfirði, en
amma Sólveig sem var úr grösugum
sveitum Borgarfjarðar gætti bús og
barna. Það má segja að í þessum
bræðrum hafi mæst einkenni þess-
ara tveggja héraða, fálát harka
Vestfjarðanna og mild náttúra
Borgarfjarðar. Persónueinkenni afa
og ömmu, afa sem las Íslendinga-
sögur og kosningaræður foringja
sjálfstæðismanna og kunni hvort
tveggja utan að og ömmu sem las
Laxness og önnur alþýðuskáld og
vildi jöfnuð og mildi eins og Guðs-
sonurinn frá Nasaret kenndi, mót-
uðu þessa menn þegar þeir voru að
alast upp á krepputímum, þegar
bæði þurfti að sýna hörku og sam-
kennd.
Virðing fyrir borgaralegum gild-
um var í hófi hjá þeim bræðrum og
Skarphéðinn Njálsson í meiri met-
um en flestir aðrir nema ef vera
skyldi faðir hans. Orð eins og fág-
aður eða „penn“ notuðu þeir um
menn í vorkunnartón. Úr þessum
jarðvegi spratt Friðrik frændi okk-
ar, sem var þeirra næstelstur og
FRIÐRIK JENS
GUÐMUNDSSON
✝ Friðrik JensGuðmundsson
fæddist í Reykjavík
9. nóvember 1925.
Hann andaðist á
Landspítalanum við
Hringbraut 16. apríl
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Fossvogskirkju 26.
apríl.
mesti íþróttamaður
þeirra bræðra. Frábær
glímumaður og seinna
firnasterkur kringlu-
kastari og kúluvarpari
og keppti fyrir KR og
Ísland fram á fullorð-
insár.
Friðrik útskrifaðist
úr Samvinnuskólanum
og lagði fyrir sig bók-
hald og fjárreiður og
starfaði við það að að-
alstarfi, síðustu ára-
tugina á Skattstofunni
í Reykjavík. Í reynd
starfaði hann við hvað-
eina sem til féll til að framfleyta
fjölskyldu sinni og taldi aldrei neitt
eftir sér. Friðrik var í okkar huga
maður sem aldrei tók sér frí. Þegar
framtalsfrestur var að renna út og
annir hjá honum voru slíkar að
hann varla svaf, birtist hann allt í
einu og spurði hvort maður hefði
nokkuð hugað að því að telja fram.
Venjulega svöruðum við neitandi
enda lítið peningalega þenkjandi.
Þetta vissi Friðrik og taldi ekki eftir
sér að koma reiðu á skattaskilin hjá
okkur sem ekki var alltaf auðvelt
verk, en það vafðist ekki fyrir hon-
um.
Maður skynjaði bókmenntirnar í
honum þegar kom að athugasemd-
um og skýringum, maðurinn var
skáld. Hann skildi manna best að
lífið verður ekki tilgreint á
skýrslum, en þó ber að gjalda keis-
aranum það sem hans er.
Það hvarflaði svo að manni seinna
að hann hefði lítið hugsað um sjálf-
an sig og laun og að fjölskylda hans
hefði gjarnan viljað hafa hann
heima í stað þess að hann væri að
ala upp frændur sína og frænkur í
reiðusemi. En svona var Friðrik
frændrækinn og hjálpsamur.
Við sáum stundum ekki mikið til
Friðriks frænda okkar þegar allt
lék í lyndi hjá okkur en ef erfiðleik-
ar steðjuðu að þá var hann alltaf
mættur og sum okkar eiga honum
mikið að þakka. Hann stóð með
manni eins og klettur þegar á þurfti
að halda. Aldrei heyrðum við hann
minnast á eigin erfiðleika.
Friðrik var einn af þessum mönn-
um sem alltaf eru á þönum og því
fannst manni eðlilegt að hann æki
um á jeppa til að komast hindr-
unarlaust leiðar sinnar. Svo var
hann líka forfallinn veiðimaður og
stundum voru veiðistangir í bílnum
en byssurnar lágu ekki á glámbekk
þótt hann væri stundum með skot í
vasanum. Maður vissi aldrei hvort
hann var að koma eða fara, hann
var bara mættur til að hjálpa
manni, segja sögur eða spyrja hvort
maður vildi ekki fá dálítið af kjöti og
svo var hann rokinn út í jeppann,
Overland, Wagoneer eða venjulegan
Willys, enga slyddujeppa fyrir
hann. Hvort þessi farartæki hans
voru með pelastikk á annarri fram-
fjöðrinni eða dálítið skálduð skipti
ekki svo miklu máli ef þau voru
ekta. Okkur bræðrunum gaf hann
veiðistangir þegar við fermdumst og
kenndi okkur ýmislegt í stangveiði
og um íslenska náttúru heima í
stofu eða á árbökkum. En fyrst og
fremst var Friðrik afspyrnu
skemmtilegur og kraftmikill maður
sem ekki mátti neitt aumt sjá án
þess að bjóða fram aðstoð sína.
Pabbi og Friðrik voru miklir vinir
og áttu að mörgu leyti skap saman,
þeir voru stríðnari en góðu hófi
gegndi og gátu sjaldan stillt sig um
að espa menn upp ef þeir sáu sér
leik á borði en það var frekar rík
kímnigáfa en illkvittni sem réð ferð-
inni og oft voru þeir óborganlegir
saman. Einu barna okkar varð að
orði í huggunarskyni þegar séð varð
að hverju færi, að afi yrði glaður að
sjá hann, sem lýsir Friðriki og vin-
áttu þeirra vel.
Friðrik var heilsulaus síðustu ár-
in og hefur það ekki verið auðvelt
fyrir slíkan mann, en hann tók því
eins og það karlmenni sem hann
var. Þetta hafa líka verið erfiðir
tímar fyrir Sigríði konu hans og
fjölskyldu og við vottum þeim inni-
lega samúð okkar um leið og við
kveðjum okkar uppáhaldsfrænda
með söknuði.
Gunnar Örn Guðmundsson,
Sólveig Guðmundsdóttir,
Guðmundur H. Guðmundsson,
Elín Helena Guðmundsdóttir.
Á þessum tímamót-
um er svo margt sem
kemur upp í hugann.
Við áttum svo margar
góðar stundir saman.
Ég var ekki hár í loftinu þegar ég
fylgdist með því hvernig þú drakkst
morgunkaffið þitt, hvernig þú pírðir
saman augun þegar þú saupst á
heitu kaffinu. Svo tókstu með þér
nesti, ég man alltaf eftir því að það
var ávallt það sama; ein appelsína,
SÍMON
GUÐJÓNSSON
✝ Símon Guðjóns-son fæddist í
Voðmúlastaðahjá-
leigu í Austur-Land-
eyjum 9. september
1918. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Víðinesi 26. apríl síð-
astliðinn og var útför
hans gerð frá Ás-
kirkju 6. maí.
skyrdolla og rúnn-
stykki með osti. Á þess-
um tíma varstu með
sjoppu vestur í bæ. Ég
man hvað það var alltaf
mikið að gera hjá þér,
sérstaklega fyrir jólin.
Þá þurfti pabbi alltaf að
fara og hjálpa þér að
loka og fólk streymdi
að, því alltaf gleymdist
eitthvað í öllum látun-
um. Síðan kom að því
að þú hættir þeim
rekstri. Eitthvað af
gotteríinu fylgdi þér þó
heim til þín og mér er
minnisstætt að í neðsta skápnum var
stór kassi af Hrauni. Á þennan skáp
mændi ég oft og mikil hátíð var það
að fá eitt stykki. Þetta var á þeim
tíma þegar eins lítra kók dugði vel
fyrir fimm manna fjölskyldu og það
bara á sunnudögum.
Þú plantaðir í mig miklum áhuga á
sögu og ferðalögum. Ég man þegar
þú og amma komuð frá Grikklandi.
Þá fékk ég hellenska riddara stand-
andi í hestvögnum með spjót og
sverð. Við töluðum ósjaldan um at-
burði mannkynssögunnar og það
gerðum við fram á síðustu stundu.
Þú varst alltaf að stúdera þessi
fræði. Þó að þú hafir ferðast mikið
langaði þig að gera miklu meira af
því. Við ræddum oft um þá staði sem
þig langaði að sjá.
Það var ótrúlegt að heyra lýsingar
þínar á því sem á daga þína hafði
drifið. Maður getur ekki annað en
verið þakklátur fyrir það sem maður
hefur sjálfur eftir að hafa heyrt sum-
ar af þeim lýsingum.
Oft vorum við saman uppi í sum-
arbústað að planta trjám og dytta að
ýmsu. Þar kynntist ég hinni miklu
vandvirkni og nægjusemi sem ein-
kenndi þig, svo ekki sé talað um
sérviskuna. Okkur kom ávallt vel
saman þó að oft ættum við fjörugar
rökræður og værum ekki alltaf sam-
mála.
Síðustu tvö ár eru mér ofarlega í
huga. Sá tími með þér var mjög
dýrmætur, þú bjóst þá í Rauðagerði
70 á neðri hæð en foreldrar mínir á
þeirri efri. Ég hitti þig nánast á
hverjum degi og átti við þig smá-
spjall. Ég hafði mikla ánægju af því
að fylgja þér í meðferðina sem átti að
reyna að kveða niður sjúkdóminn
sem grasseraði í þér. Það að geta
veitt þér styrk og verið með þér var
mér mikilvægt. Ég lét oftar en ekki
jákvæðnisgusurnar ganga á þér og
ég hugsa að það hafi gert sitt gagn,
þér hætti nefnilega stundum til þess
að halda það versta því að þá yrði
maður ekki fyrir vonbrigðum. Það
var þó alltaf stutt í húmorinn og kát-
ínuna hjá þér. Ég mun sakna þín
nafni.
Símon A. Haraldsson.
=
/ /
3A3
, % BC
2 $3
<
!
,
-
#$
! #3 $$
: & > !
-!
*3
&'
>
&'
$%60! & !
5> @
& !
67 '
# #% '# # #% +
9
"/ -
../
6 7, E
@
&
,
8,
#$
! #3 $$
; ,
*
//
/
&! 322'333
& -!F -!'
2$!6 0! & 0! & ' -!/ G7 !
%6 #$% 0! & ! GA GA '
&: & 0! & ! " ! "6 '
-!:-! !
-!"2 ' " 6 !
'# # #% +
"
G>
..
*#'
%
<
##
! #% $$
-!:
$ ' 0! -! !
$ !
$ '
$ ! " & &( '
*3
$ ' 2! &#$ !
&
$ '
57 !
H
$ ' "!(6 & 3& !
# #% # # #%
'# # # #% +
"
/
/,"0
.
2$ #5&B
"
@
##
! #% $$
-!:
+
2 ! +/( '
5$! !
2 '
-!: & 5 ! +
=
!
, //../
6 7 &%& ( &
, % IJ
63
,
6
,
+
!
"
:
,!
##
! # $$
0'
(
( !
3 -!'
/#$% ( !
$
(
# #% '# # #% +
-/")
3# &
!
!
,
,
/
#+
! # $$
A
$ ! >
$
$ ! 0! & 6'
&(
$ '
+-! !
!3
$ !
"!( (
$ ' &@ A
& !
'# #% +