Morgunblaðið - 09.05.2002, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 09.05.2002, Qupperneq 51
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 51 KLOFNINGI skákheimsins í tvær aðskildar fylkingar lauk á sunnudaginn með sögulegu sam- komulagi. Það felur í sér að fram- vegis verður einn heimsmeistari í skák, en ekki tveir eins og nú er. Þannig hefur ástandið verið frá því Kasparov klauf sig frá FIDE, al- þjóðlegu skáksamtökunum, og efndi til sinnar eigin heimsmeistara- keppni. Í samkomulaginu er tekið fram að FIDE verður umsjónaraðili og eigandi heimsmeistaratitilsins í skák. Samkvæmt Prag-samkomulaginu hefst hin sameiginlega heimsmeist- arakeppni með Sparkassen-skák- mótinu sem haldið verður í Dort- mund í Þýskalandi 6.-21. júlí næstkomandi. Upphaflega var þetta mót reyndar hugsað sem fyrsta skrefið í heimsmeistarakeppni Ein- stein Group (London) sem tók við af Brain Games fyrirtækinu í London sem skipuleggjandi heimsmeistara- keppni Kasparovs. Þátttakendur í Dortmund verða 7 af 12 stigahæstu skákmönnum heims: 1. Veselin Topalov (Búlgaría, 2.745) 2. Michael Adams (Bretland, 2.744) 3. Evgeny Bareev (Rússl., 2.724) 4. A. Morozevich (Rússland, 2.718) 5. Boris Gelfand (Ísrael, 2.710) 6. Peter Leko (Ungvl., 2.707) 7. Alexei Shirov (Spánn, 2.704) Það stendur á stöku þar sem Garry Kasparov neitaði boði um að taka þátt í mótinu og þar með heims- meistarakeppninni sem kennd hefur verið við hann. Skipuleggjendur mótsins áskilja sér rétt til að velja heimamann í stað Kasparov og útlit er fyrir að stigahæsti skákmaður Þjóðverja, Christopher Lutz (2.644), verði fyrir valinu. Samhliða þessu móti verður hald- ið opið skákmót og ljóst er að ís- lenskir skákmenn verða þar á meðal þátttakenda. Fjölmiðlar hafa sýnt þessu móti mikinn áhuga og verður umfjöllun m.a. á sjónvarpsstöðvun- um WDR (6-8 klst.), ZDF og svo auðvitað á Einstein TV sem hægt er að ná í gegnum Eurobird gervi- hnöttinn. Þrátt fyrir aukna umfjöll- un um skák á Netinu og víðar virðast skákmenn þó enn hafa mikinn áhuga á að fylgjast með skákum á mótsstað eins og sást þegar allir 10.000 mið- arnir á Eurotel-skákmótið seldust upp á svipstundu. Að loknu mótinu í Dortmund fara fram undanúrslit heimsmeistara- keppninnar. Sigurvegarinn í Dort- mund mun tefla einvígi við „Kasp- arov“-heimsmeistarann Vladimir Kramnik. Þá mun Kasparov, stiga- hæsti skákmaður heims, tefla einvígi við FIDE-heimsmeistarann Ruslan Ponomariov. Sigurvegarar þessara einvígja tefla síðan einvígi um heimsmeistaratitilinn í október-nóv- ember 2003. Þar með verður aftur einn óumdeildur heimsmeistari í skák. Samkomulagið var undirritað af þeim Kirsan Ilyumzhinov, forseta FIDE, Bessel Kok, Garry Kasparov, Vladimir Kramnik, Yasser Seirawan og Alexey Orlov, forseta World Chess Foundation. Það er ýmislegt sem hefur vakið athygli í sambandi við væntanlega heimsmeistarakeppni og þá ekki síst, að hvorki Anand né Ivanchuk taka þátt í henni. Stefán Kristjánsson, yngsti lands- liðsmaður Íslands, sigraði á VN- meistaramótinu sem lauk sl. helgi. Hann lagði Arnar Gunnarsson í úr- slitaeinvígi, og er þetta annað árið í röð sem Arnar tapar í úrslitum. Í fyrra beið hann lægri hlut fyrir Jóni Viktori Gunnarssyni, en Jón Viktor gat ekki freistað þess að verja tit- ilinn nú, vegna taflmennsku á Kúbu. Flest úrslit eftir bókinni Sextán skákmenn unnu sér rétt til að tefla í úrslitum VN-meistara- mótsins, þar sem tefld voru fjögurra skáka einvígi með útsláttarsniði. Úr- slitin í 16 manna úrslitum urðu þessi: Arnar Gunnarss. – Einar Valdimarss. 3-0 Stefán Kristjánss. – Jóhann Ingvarss. 3-0 Þorvarður Ólafss. – Davíð Kjartanss. ½-2½ Pétur Láruss. – Sigurður P. Steindórss. 3-1 Guðm. Sigurjónss. – Róbert Harðars. 0-3 Páll Gunnarss. – Björn Þorfinns. 1½-2½ Ingólfur Gíslas. – Bragi Þorfinnss. ½-2½ Atli Hilmarss. – Páll Þórarinss. 0-3 Hér urðu flest úrslit eftir bókinni, en öruggur sigur Péturs Atla á Sig- urði kom talsvert á óvart. Pétur Atli hefur þó margsýnt að hann er öfl- ugur skákmaður, þótt hann sé tals- vert stigalægri en Sigurður. Þá náði Páll Gunnarsson góðum árangri gegn Birni Þorfinnssyni, en Páll komst nýverið á stigalista FIDE og hefur einatt veitt stigahærri skák- mönnum skráveifu. Þröstur Þórhallsson stórmeistari sá um að draga í átta manna úrslit- um og þar urðu úrslit þessi: Róbert Harðarson – Páll Þórarinsson 1-3 Davíð Kjartans. – Stefán Kristjánsson 1-3 Bragi Þorfinns. – Björn Þorfinns. 1½-2½ Arnar Gunnars. – Pétur Atli Lárusson 3-0 Bræðurnir Björn og Bragi börð- ust af mikilli hörku og hafði Björn, sem er tveimur árum eldri og ögn stigalægri, betur í taugatrekkjandi viðureign. Arnar batt enda á sigur- göngu Péturs Atla, Páll sigraði Ró- bert í spennandi einvígi og Stefán lagði Davíð af einurð og festu. Skákdrottningin Harpa Ingólfs- dóttir tók að sér að draga í undan- úrslitum, og þar fóru leikar svona: Björn Þorfinnsson – Stefán Kristjánsson 1-3 Páll Þórarinsson – Arnar Gunnarsson 0-3 Þar með hafði Arnar sigrað 3-0 í öllum einvígjunum fram að úrslita- viðureigninni, en sama afrek vann hann einmitt á VN-mótinu í fyrra. Stefán náði undirtökum þegar í byrj- un í glímunni gegn Birni, sem náði ekki að jafna metin í síðustu skák- inni þrátt fyrir mikla flugeldasýn- ingu. Úrslitaeinvígið í VN-mótinu var því milli Stefáns og Arnars. Fyrstu skákinni lauk með jafntefli eftir sviptingar, en Arnar sigraði í ann- arri skákinni eftir grófan afleik Stef- áns. Í þriðju skákinni hafði Stefán svart og lagði allt í sölurnar fyrir sig- ur og fórnaði drottningu fyrir tvo létta menn og hættulega sókn. Nokkrum leikjum síðar féll drottn- ing Arnars eftir baneitrað umsátur svörtu mannanna og Stefán innbyrti vinninginn af miklu öryggi. Þar með voru þeir jafnir fyrir síðustu skák- ina, en hana tefldi Stefán af mikilli dirfsku og knúði fram sigur eftir harða baráttu. Fyrir sigurinn hlaut Stefán 70 þúsund króna inneign hjá Viðskipta- netinu, en 20 þúsund komu í hlut Arnars. Þá voru dregin út nöfn tveggja keppenda til viðbótar sem hlutu 15 þúsund skiptikrónur hvor. Þessi veglegu aukaverðlaun komu í hlut Ingólfs Gíslasonar og Páls Þór- arinssonar. VN-meistaramótið var haldið af Skákfélaginu Hróknum og tókst vel í alla staði, og er vonandi að þessi skemmtilegu mót verði fastur liður í íslensku skáklífi á komandi árum. Skákheimurinn sameinast á nýjan leik undir merkjum FIDE Garry Kasparov, Kirsan Ilyumzhinov, forseti FIDE, og Vladimir Kramnik undirrita samkomulagið í Prag. SKÁK Prag, Tékklandi PRAG-SAMKOMULAGIÐ 6. maí 2002 Daði Örn Jónsson NÝ vefsíða Landhelgisgæslunnar hefur verið opnuð. Vefsíðan er byggð á forritinu Vefþór frá Hugviti sem er þannig úr garði gert að vefstjóri get- ur með auðveldari hætti en áður sett inn á hana tilkynningar, fréttir og annað efni. Fréttir verða settar á upphafssíðu jafnóðum og fréttatil- kynningar eru sendar til fjölmiðla. Slóðin er http://www.lhg.is. Upplýsingar um hlutverk og starf- semi Landhelgisgæslunnar er að finna á heimasíðunni. Þar er einnig fræðsluefni varðandi leit og björgun, móttöku þyrlu og sprengjur sem Landhelgisgæslan sér um að fjar- lægja og eyða. Á heimasíðunni er einnig að finna umfjöllun um Sjómælingar Íslands, sem eru deild innan Landhelgis- gæslunnar, en hún gefur reglulega út tilkynningar til sjófarenda sem eru aðgengilegar þar. Þar er einnig að finna myndir af skipakosti og loft- förum Landhelgisgæslunnar. Ný vefsíða Land- helgisgæslunnar NÚ í byrjun maí opnaði ljósmynda- félagið Fókus ljósmyndasýningu, „LÍFIÐ Í FÓKUS“, í Listamiðstöð- inni Straumi við Straumsvík, sunnan Hafnarfjarðar. Þar sýna 24 fé- lagsmenn um 200 ljósmyndir af ýms- um toga tengdar áhugasviði hvers og eins í ljósmyndun. Hér er því um mjög viðamikla og fjölbreytta sýn- ingu að ræða sem áhugavert er að skoða. Pálmi Guðmundson formaður Fókuss segir félagið vera rúmlega þriggja ára gamalt ljósmyndafélag á höfuðborgarsvæðinu, opið öllum áhugamönnum um ljósmyndun og eru félagsmenn nú um 35. Pálmi segir starf félagsins helst felast í að efla ljósmyndun sem áhugamál hjá fólki. Farið er í ljósmyndaferðir, haldnar ljósmyndakeppnir, fagmenn halda fyrirlestra á fundum félagsins, haldnar eru kynningar o.fl. Sýningin verður opin til sunnudagsins 26. maí og er opnunartími á virkum dögum kl. 17-21 og á frídögum kl. 13-21. Sýningin er sölusýning. Lífið í Fókus Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Ragnar Jespersen, Arnar Már Hall Guðmundsson og Baldur Birgisson Fókusfélagar setja upp myndir Arnars á sýningunni. Straumi. Morgunblaðið. Ljósmyndasýning opnuð í Straumi Í DAG, 9. maí, uppstigningardag, verður Hörpuhátíð barnanna í Ás- landsskóla í Hafnarfirði og hefst hún kl. 13.30. Þar verður brugðið upp svipmynd af hópverkefni sem börnin hafa verið að vinna að síðustu daga. Það fjallar um börn í öðrum löndum víða í heiminum, lífskjör þeirra og lifnaðarhætti. Börnin völdu sér löndin sjálf í samvinnu við kennara. Foreldrum, ömmum og öfum er boðið á hátíðina og eru flutt atriði á sal í um það bil 1½ klukkustund. Fyrst eru sex ára börn í Töfra- heimum (heimarnir eru sama og bekkir) sem völdu sér Spán. Þá kemur Kína sem 6 og 7 ára börn völdu sér í Vinaheimum. Síðan koma Snjallheimar, 7 og 8 ára börn, þau völdu sér Mið- og Suð- ur- Ameríku. Þá eru Undraheimar, sem eru 8 og 9 ára börn með Ástralíu. Á eftir þeim koma Stjörnuheimar, sem eru líka 8 og 9 ára börn og eru þau með Egyptaland. Hetjuheimar, 9 og 10 ára nemend- ur, völdu sér Afríku og að lokum koma 11 og 12 ára nemendur í Sig- urheimum, en þeir hafa verið að vinna með hin ýmsu lönd Evrópu og munu gefa innsýn í vinnu sína með aðstoð tækninnar. Að lokinni dagskrá á sal er for- eldrum og börnum boðið upp á smá veitingar og síðan geta þeir gengið um skólann og skoðað vinnu barna sinna, bæði í sérstökum básum og annars staðar. Hörpuhátíð í Áslandsskóla VINSTRIHREYFINGIN – grænt framboð Kópavogi býður í ókeypis rútuferð um Kársnes og Vatns- enda laugardaginn 11. maí. Allir eru velkomnir, fullorðnir jafnt sem börn. Farið verður af stað kl. 10 að morgni frá kosningaskrifstofu VG að Hamraborg 11. Skoðaðar verða náttúruperlur Kópavogs í fylgd þeirra Tryggva Þórðarsonar, vatnavistfræðings, Colettu Burling leiðsögumanns og Þorleifs Frið- rikssonar sagnfræðings. Kaffi og pönnukökur verða í boði framboðs- ins á Vatnsenda. Ferðin er ókeypis og öllum opin en vinsamlega til- kynnið þátttöku fyrirfram. Rútuferð um Kópavog Lögreglustjóri ákveður hraðatakmörk Ónákvæmni gætti í frásögn blaðs- ins í gær af breyttum hraðatakmörk- um í Reykjavík en af fréttinni mátti skilja að endanleg ákvörðun um þau væri í höndum borgarráðs. Hið rétta er að lögreglustjóri tekur endanlega ákvörðun um hraðatakmörk sam- kvæmt tillögum sveitarstjórna. Um- ræddar breytingar hafa því ekki tekið gildi og munu ekki gera fyrr en lög- reglustjóri hefur tekið afstöðu til þeirra. Er beðist velvirðingar á þessu. Margæsir ekki helsingjar Þau leiðu mistök urðu hér í Morg- unblaðinu í gær að margæsirnar á bls. 4 voru sagðar vera helsingjar. Biðst Morgunblaðið velvirðingar á mistök- unum. LEIÐRÉTT ÞÓRÐUR Snæbjörnsson, umboðs- maður VÍS í Hveragerði í tæp 20 ár, lét af störfum 1. maí sl. vegna aldurs. Hann hóf störf hjá Bruna- bótafélagi Íslands haustið 1982 en árið 1989 var Brunabótafélagið sameinað Samvinnutryggingum og úr varð VÍS, Vátryggingafélag Ís- lands. Það vantar því einungis 5 mánuði upp á að Þórður hafi sinnt starfi sínu sem umboðsmaður í 20 ár. Hinn 13. apríl 1984 flutti félag- ið starfsemi sína í núverandi hús- næði í Reykjamörk 1. Það var því sannarlega tilefni til að þakka Þórði vel unnin störf fyrir félagið þegar hann hætti nú um mánaða- mótin. Þegar Þórður var inntur eftir því hvað hann hygðist gera nú við starfslok svaraði hann að bragði. „Ég ætla að fara að slæp- ast.“ Við starfi Þórðar tekur Kristinn Kristjánsson sem unnið hefur á bæjarskrifstofum Hveragerðisbæj- ar sl. 14 ár. Hann mun einnig sinna sölu fasteigna hjá Fasteigna- sölunni Gimli, sem hefur verið hans aukavinna í 16 ár, í húsnæði VÍS. Aðspurður sagði Kristinn að nýja starfið legðist vel í sig og hann hefði fengið hlýjar móttökur hjá starfsfólki VÍS. Umboðs- mannaskipti hjá VÍS Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir Kristinn Kristjánsson (t.v.) og Þórður Snæbjörnsson. Hveragerði. Morgunblaðið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.