Morgunblaðið - 09.05.2002, Síða 56

Morgunblaðið - 09.05.2002, Síða 56
56 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ                         !  "   #    $ %  $!     ! %        !  BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÞÚ SEM kominn ert á efri ár og berð reynslu ævinnar á bakinu. Láttu engan líta smáum augum á elli þína. Þú sem einn býrð að þinni reynslu. Þú sem einn getur miðlað henni til komandi kyn- slóða. Þú hefur svo óendanlega mikið að gefa, segja frá og miðla. Þú einn kannt svo margar sögur af liðn- um atburðum. Þú einn hefur það sjónarhorn á atburði liðins tíma sem enginn annar kann að hafa eða hefur upplifað á sama hátt og þú. Þú sem einn getur á þinn sérstaka hátt miðlað af reynslu þinni, sagt þínar sérstöku sögur, sýnt þína mikilvægu umhyggju, kærleika og ást. Allt á þinn einstaka hátt. Á þann hátt sem þér einum/ einni er gefið. Það kemur enginn í þinn stað. Hinir yngri þurfa á þér að halda. Lát engan, aldrei nokkurn tíma, líta smáum augum á elli þína, ævi og reynslu. Því þú ert sérstakur. Einstakt eintak. Hefur svo miklu að miðla og mikið að gefa. Þú ert ekki úreltur og láttu ekki telja þér trú um að svo sé. Þú ert einstakt eintak Veröldin væri ekki söm ef þú hefð- ir ekki verið. Hún væri svo miklu fá- tækari án þinnar dýrmætu og ein- stæðu reynslu, án þinna upplifanna, sem þú þarft að miðla hinum ungu. Þú sem hefur unnið og stritað í áratugi. Þú sem hefur byggt upp þetta þjóðfélag og greitt þína skatta og skyldur. Þú sem hefur byggt upp hverfin í borginni, alið upp börnin og líklega gætt barnabarna og jafnvel barnabarna- barna. Hvar væri þjóðfélag okkar hefði þinna dýrmætu krafta og þjónustu ekki notið við? Miðlaðu komandi kynslóðum af reynslu þinni. Segðu sögurnar þínar og kenndu bæn- irnar sem þér voru kenndar á þínum ungu dögum og hafa fylgt þér. Líttu upp, vertu hughraustur Lát engan líta smáum augum á elli þína. Líttu upp, vertu hughraustur og glaður. Þú ert skapaður og elskaður af Guði og þín bíða laun. Líf um eilífð vegna Jesú, sem sætt hefur heiminn við Guð og frelsað þig frá synd og dauða. Leyfðu honum að leiða þig inn til lífs- ins eilífa sem hann hefur fyrirbúið þér vegna fórnar sinnar, fyrir þig af elsku til þín. Hann tekur á móti þér. Þú getur treyst honum. Þú getur öruggur hvílt í hans blessaða náð- arfaðmi. Vegna hans átt þú átt lífið framundan. Lífið eilífa, sem hann vill gefa þér. SIGURBJÖRN ÞORKELSSON, rithöfundur og áhugamaður um lífið. Lát engan líta smáum augum á elli þína Frá Sigurbirni Þorkelssyni: ÉG HEF lengi verið á leiðinni að sjá leiksýningu Þjóðleikhússins; Með fulla vasa af grjóti. Ég drattaðist loks af stað að kvöldi 1. maí með karlinum mínum. Við fengum sæti uppi á svölunum. Ég mæli ekki sér- staklega með því fyrir lofthrædda þótt vel hafi sést á sviðið. Sýningin var ein sú besta sem ég hef séð; svo fyndin að mig verkjar enn í magann núna daginn eftir. Þeir Hilmir Snær Guðnason og Stefán Karl Stefánsson fara svo sannarlega á kostum í öllum hlutverkum sínum og var hrein unun að sjá hve greinilegt var þegar þeir skiptu um persónu. Ég hreinlega stóð á öndinni yfir hæfileikunum. Þetta er ekki á allra færi. Fyrir sýningu pöntuðum við hjón- in okkur kaffi og meðlæti sem við fengum afgreitt hnökralaust í hléi niðri í Þjóðleikhúskjallaranum við kertaljós. Þetta var hápunkturinn á góðri kvöldstund. Ég mæli sérstak- lega með þessari sýningu fyrir þá sem fara sjaldan í leikhús en vilja vera vissir um að „sjá eitthvað gott“. Þið verðið ekki fyrir vonbrigðum. Hafið þúsund þakkir fyrir frábæra sýningu! FRIÐRIKA KRISTÍN STEFÁNSDÓTTIR, Hagamel 32, Reykjavík. Með fulla vasa af grjóti Frá Friðriku Kristínu Stefánsdóttur:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.