Vísir - 07.07.1980, Page 1

Vísir - 07.07.1980, Page 1
Samninganefnd BSRB hafnar tillögu um veruiegar tiisiakanir: „Þýöir að samið verður einhverntlma í haust” Ungur vestmanna- eyingur lét lífið á laugardaginn Banaslys varö I Vestmanna- eyjum á laugardag þegar 22 ára gamall Vestmannaeyingur, Rúnar Bjarnason, hrapaði er svifdreki, sem hann flaug, brotn- aði i sundur. Slysiö átti sér stað um klukkan 18 á laugardaginn er verið var að draga svifdrekann á loft með bif- reið af flugvellinum I Eyjum. Er drekinn var kominn i 30-40 metra hæð brast stoð I honum og féll Rúnar heitinn niöur meö fyrr- greindum afleiðingum. Rúnar var þaulvanur svif- drekaflugmaöur og hafði farið eina ferö rétt áður en slysið varð. Þetta er fyrsta dauðaslys sem veröur vegna svifdrekaflugs hér á landi. —SvG. Tillögur þær sem Visir greindi frá fyrir helgi um „tiltekin meginatriði” af hálfu BSRB f samningaviðræðum við rikið, fengu ekki hljómgrunn i samninganefnd BSRB. t þeim var gert ráð fyrir samningslok- um i þessari viku. Tillaga Kristjáns Thorlacius formanns BSRB um að halda samninga- viðræðum óslitið áfram var samþykkt með þeirri viðbót að gagntilboð yrði samið á grund- velli kröfugeröar BSRB og áhersla lögð á ákveöin atriöi hennar. Þessi niöurstaöa þýðir að sögn heimildarmanna Visis að framundan eru langar og strangar samningaviðræður og engir samningar fyrr en „ein- hverntlma I haust,” eins og einn orðaði það. Sagði hann að um þetta atriði hefði máliö raun- verulega snúist, þ.e. hvort ganga ætti til samninga strax eða biða haustsins. Sjö-mannanefndin, sem sett var á laggirnar i siöustu viku, hefur starfað um helgina við samningu gagntilboðsins og mun nefndin leggja það fyrir aðalsamninganefndina i dag klukkan fjögur. í þessu nýja gagntilboði BSRB mun vera að finna öll helstu atriði úr upp- runalegu kröfugerð BSRB með „tilslökunum hér og þar” eins og einn heimildarmaður okkar nefndi þaö. Þær tilslakanir eru þó ekkert i likingu við tillög- urnar, sem gerðu ráö fyrir samningslokum. Hækkun á lægstu laun mun vera á bilinu 50 Vinníngshaiar i sumargetrauninni Dregið hefur veriö I sumarget- raun VIsis er birtist 20. júni s.l. Vinningshafar eru: Rafn Pálsson, Heiöarvegi 20, Vestmannaeyjum. Atli Sigurðsson, Dyngjuvegi 17, Reykjavlk. Vinningur dagsins eru tvö Braun leifturljós frá Hans Peter- sen að verðmæti alls kr. 103.200. til 60 þúsund, en hin tillagan gerði ráö fyrir 12 þúsund kr. hækkun. Gunnar Thoroddsen forsætis- ráðherra boðaði Kristján Thorlacius á sinn fund I gær vegna samningamálanna. Kristján vildi i morgun ekki tjá sig um þær viðræður. Fyrsta bana- siysið í svif- drekaflugi Franski miöillinn Madiana Lamouret er hér i flugvél ómars Eagnarssonar yfir Báröarkistu. Meö henni I vélinni var kvikmyndaframleiö- andinn Roland Lethem auk ómars. Belgiskur miDili ð flugi yfir Snæfellsjökli: Segist hafa oröið vör við Bárð Snæfellsás og vernei „Viö fundum það sem við leit- uðum að og raunar miklu meira”, sagði Roland Letham, kvikmyndaframleiðandi, eftir að ómar Ragnarsson hafði flog- ið með franska miöilinn Maid- ana Lamouret yfir Snæfellsjök- ul til þess að finna þar upphaf leiðar Jules Verne til miðju jarðar. Og miöillinn sjálfur sagöi, að maöur, sem birst heföi sér I Frakklandi fyrir skömmu og boðiö sér til íslands, hefði staðið á jöklinum þegar hún flaug yfir hann og boðið hana aftur velkomna, og hafði þetta veriö enginn annar en Bárður Snæfellsáss! Aður en miðillinn flaug I flug- vél Ómars Ragnarssonar yfir Snæfellsjökul á föstudaginn hafði hún, ásamt fylgdarliði, heimsótt Vegamannahelli, og kvaðst Madiana þar hafa kom- ist I snertingu við Jules Verne! Nánar segir frá þessari heim- sókn franska miöilsins á bls. 6.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.