Vísir - 07.07.1980, Blaðsíða 1
Samninganefnd BSRB hafnar tillögu um veruiegar tiisiakanir:
„Þýöir að samið verður
einhverntlma í haust”
Ungur vestmanna-
eyingur lét lífið
á laugardaginn
Banaslys varö I Vestmanna-
eyjum á laugardag þegar 22 ára
gamall Vestmannaeyingur,
Rúnar Bjarnason, hrapaði er
svifdreki, sem hann flaug, brotn-
aði i sundur.
Slysiö átti sér stað um klukkan
18 á laugardaginn er verið var að
draga svifdrekann á loft með bif-
reið af flugvellinum I Eyjum. Er
drekinn var kominn i 30-40 metra
hæð brast stoð I honum og féll
Rúnar heitinn niöur meö fyrr-
greindum afleiðingum.
Rúnar var þaulvanur svif-
drekaflugmaöur og hafði farið
eina ferö rétt áður en slysið varð.
Þetta er fyrsta dauðaslys sem
veröur vegna svifdrekaflugs hér
á landi. —SvG.
Tillögur þær sem Visir greindi
frá fyrir helgi um „tiltekin
meginatriði” af hálfu BSRB f
samningaviðræðum við rikið,
fengu ekki hljómgrunn i
samninganefnd BSRB. t þeim
var gert ráð fyrir samningslok-
um i þessari viku. Tillaga
Kristjáns Thorlacius formanns
BSRB um að halda samninga-
viðræðum óslitið áfram var
samþykkt með þeirri viðbót að
gagntilboð yrði samið á grund-
velli kröfugeröar BSRB og
áhersla lögð á ákveöin atriöi
hennar.
Þessi niöurstaöa þýðir að
sögn heimildarmanna Visis að
framundan eru langar og
strangar samningaviðræður og
engir samningar fyrr en „ein-
hverntlma I haust,” eins og einn
orðaði það. Sagði hann að um
þetta atriði hefði máliö raun-
verulega snúist, þ.e. hvort
ganga ætti til samninga strax
eða biða haustsins.
Sjö-mannanefndin, sem sett
var á laggirnar i siöustu viku,
hefur starfað um helgina við
samningu gagntilboðsins og
mun nefndin leggja það fyrir
aðalsamninganefndina i dag
klukkan fjögur. í þessu nýja
gagntilboði BSRB mun vera að
finna öll helstu atriði úr upp-
runalegu kröfugerð BSRB með
„tilslökunum hér og þar” eins
og einn heimildarmaður okkar
nefndi þaö. Þær tilslakanir eru
þó ekkert i likingu við tillög-
urnar, sem gerðu ráö fyrir
samningslokum. Hækkun á
lægstu laun mun vera á bilinu 50
Vinníngshaiar i
sumargetrauninni
Dregið hefur veriö I sumarget-
raun VIsis er birtist 20. júni s.l.
Vinningshafar eru:
Rafn Pálsson, Heiöarvegi 20,
Vestmannaeyjum.
Atli Sigurðsson, Dyngjuvegi 17,
Reykjavlk.
Vinningur dagsins eru tvö
Braun leifturljós frá Hans Peter-
sen að verðmæti alls kr. 103.200.
til 60 þúsund, en hin tillagan
gerði ráö fyrir 12 þúsund kr.
hækkun.
Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra boðaði Kristján
Thorlacius á sinn fund I gær
vegna samningamálanna.
Kristján vildi i morgun ekki tjá
sig um þær viðræður.
Fyrsta bana-
siysið í svif-
drekaflugi
Franski miöillinn Madiana Lamouret er hér i flugvél ómars Eagnarssonar yfir Báröarkistu. Meö henni I vélinni var kvikmyndaframleiö-
andinn Roland Lethem auk ómars.
Belgiskur miDili ð flugi yfir Snæfellsjökli:
Segist hafa oröið vör við
Bárð Snæfellsás og vernei
„Viö fundum það sem við leit-
uðum að og raunar miklu
meira”, sagði Roland Letham,
kvikmyndaframleiðandi, eftir
að ómar Ragnarsson hafði flog-
ið með franska miöilinn Maid-
ana Lamouret yfir Snæfellsjök-
ul til þess að finna þar upphaf
leiðar Jules Verne til miðju
jarðar. Og miöillinn sjálfur
sagöi, að maöur, sem birst heföi
sér I Frakklandi fyrir skömmu
og boðiö sér til íslands, hefði
staðið á jöklinum þegar hún
flaug yfir hann og boðið hana
aftur velkomna, og hafði þetta
veriö enginn annar en Bárður
Snæfellsáss!
Aður en miðillinn flaug I flug-
vél Ómars Ragnarssonar yfir
Snæfellsjökul á föstudaginn
hafði hún, ásamt fylgdarliði,
heimsótt Vegamannahelli, og
kvaðst Madiana þar hafa kom-
ist I snertingu við Jules Verne!
Nánar segir frá þessari heim-
sókn franska miöilsins á bls. 6.