Morgunblaðið - 23.05.2002, Page 28

Morgunblaðið - 23.05.2002, Page 28
ERLENT 28 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ meistar inn. is GULL ER GJÖFIN JAPANIR hótuðu í gær að hindra endurnýjun hvalveiðikvóta frum- byggja í Alaska og norðausturhluta Rússlands á ársfundi Alþjóðahval- veiðiráðsins, IWC. Elliot Morley, sjávarútvegsráðherra Bretlands, lýsti þessari hótun sem „móðgun“ við Bandaríkin og Rússland og sagði hana geta leitt til „kreppu“ í Alþjóðahvalveiðiráðinu. Japanir vilja að hvalveiðiráðið heimili sjómönnum í japönskum fiskveiðibæjum, sem urðu illa úti vegna hvalveiðibannsins, að veiða 50 hrefnur, en tillagan var felld með 21 atkvæði gegn 20. Hún þurfti að fá tvo þriðju atkvæðanna. Japanir sögðu eftir atkvæða- greiðsluna að þeir myndu ekki sam- þykkja endurnýjun hvalveiðikvóta frumbyggjanna. Þessi afstaða Jap- ana kann að verða til þess að hval- veiðiráðið geti ekki heimilað frum- byggjum í Alaska og norðausturhluta Rússlands að veiða 280 norðhvali á fimm árum og aðrir hvalveiðikvótar frumbyggja geta einnig verið í hættu. Hvalveiðiráðið sakað um tvískinnung „Við höfum sagt í tíu eða fimmtán ár að samþykkja þurfi beiðni okkar verði tillagan um hvalveiðikvóta frumbyggja samþykkt,“ sagði Tak- anori Ohashi, embættismaður í sjávarútvegsráðuneyti Japans. „Við erum mjög hliðholl hvalveiðum frumbyggjanna. Við viljum hins vegar benda á tvískinnung hval- veiðiráðsins.“ „Þetta er ekki aðeins móðgun við Rússland og Bandaríkin, heldur veldur þetta kreppu í hvalveiði- ráðinu,“ sagði breski sjávarútvegs- ráðherrann og lýsti hótun Japana sem stríðsyfirlýsingu. Masayuki Komatsu, sem á sæti í sendinefnd Japans á ársfundi hval- veiðiráðsins, sakaði fulltrúa Mexíkó, Andres Rozental, um að hafa logið þegar hann lýsti því yfir á fundinum að Japanir væru eina þjóðin sem legðist gegn endurnýjun hvalveiði- kvóta frumbyggjanna. Rozental kvaðst standa við yfirlýsinguna og ætla að berjast gegn beiðni Japana um að fá að veiða 50 hrefnur. Náist ekki samkomulag um end- urnýjun kvóta frumbyggjanna þarf að bera hana undir atkvæði og hún þarf þá að fá tvo þriðju at- kvæðanna. Elliot Morley sagði að Japanir kynnu að fá ríki í Karíbahafi, Afríku og Asíu, sem hafa fengið efnahags- legan stuðning frá Japan, til að greiða atkvæði gegn endurnýjun kvóta frumbyggja. Það gæti síðan orðið til þess að Bandaríkin höfnuðu tillögu um að heimila takmarkaðar hvalveiðar á eyjum í Karíbahafi. Veiðikvóti frumbyggja ekki endurnýjaður? Shimonoseki. AFP. Viðbúnaður vegna komu Bush STJÓRNVÖLD í Rússlandi hafa ákveðið að efla mjög ör- yggisráðstafanir í lýðveldinu Tsjetsjníu á meðan á heimsókn George W. Bush Bandaríkja- forseta til Rússlands stendur. Óttast þau að skæru- liðar í Tsjetsjníu, sem berjast fyrir sjálfstæði landsins og sem sagðir eru hafa tengsl við al- Qaeda hryðjuverkasamtökin, hyggist láta til skarar skríða á meðan Bush er í Rússlandi. Hafa yfirvöld látið handtaka meira en níutíu manns á und- anförnum tveimur dögum, og eru þeir grunaðir um tengsl við hryðjuverkamenn. Líkams- leifar Levy fundnar? LÖGREGLAN í Washington sagði í gær að líkamsleifar sem fundust í skemmtigarði væru ef til vill af ungri konu, Chandra Levy, sem var nemi hjá fyrrverandi þingmanni frá Kaliforníu, Gary Condit. Lík- ið fannst skammt frá húsinu þar sem Levy bjó. Condit, sem er kvæntur, viðurkenndi á sínum tíma að hafa átt í ást- arsambandi við Levy en sagð- ist ekki vita hvað orðið hefði um hana. Ekkert hefur spurst til hennar frá 30. apríl 2001. Malta vill í ESB EDWARD Fenech Adami, forsætisráðherra Möltu, sagði í gær að hann teldi Möltu reiðubúna fyrir inngöngu í Evrópusambandið og bætti hann því við að hann teldi að meirihluti Möltubúa myndi samþykkja aðild í þjóðarat- kvæðagreiðslu. Malta er eitt tíu ríkja, sem sótt hafa um aðild að ESB, en stjórnarandstaðan í landinu hefur beitt sér gegn aðild, og segir að með aðild muni Möl- tubúar afsala sér hluta full- veldis síns til Brussel. Íbúar á eynni Möltu eru um 400 þús- und en hún er á Miðjarðar- hafi, suðaustan við Ítalíu. Tíbetar fái ekki aðgang KÍNVERSK stjórnvöld fóru í gær fram á það við Samein- uðu þjóðirnar að Samtökum um mannréttindi og lýðræði í Tíbet, sem hlynnt eru sjálf- stæði Tíbets, yrði meinaður aðgangur að ráðstefnu SÞ um sjálfbæra þróun sem fyrir- huguð er í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í ágúst. Sagði í bréfi Kínverja að Tíb- et væri óaðskiljanlegur hluti Kína og að málflutningur samtakanna, sem um ræddi, væri móðgun við fullveldi Kína. Stjórn Kína hefur stöð- ugt neitað að ræða um mála- miðlun í deilunni við útlægan leiðtoga Tíbeta, Dalai Lama, sem myndi sætta sig við auk- ið sjálfræði Tíbeta. STUTT George W. Bush Fram kemur í frétt The Irish Tim- es að halli á rekstri RTÉ á síðasta ári hafi numið 71 milljón evra, eða um sex milljörðum ísl. króna. Segir Wright að engu að síður hefðu yf- irmenn ríkisútvarpsins gert allt sem í þeirra valdi stóð til að rétta rekst- urinn af, eftir að stjórnvöld sam- þykktu að hækka afnotagjöldin úr 89 evrum í 107 í júlí á síðasta ári. Yf- irmenn stofnunarinnar höfðu þá strax farið fram á að afnotagjöldin yrðu hækkuð í 152 evrur. Wright sagði að hækkunin í fyrra hefði engan veginn dugað til. Hvatti hann stjórnvöld til að hækka afnota- gjöldin hið fyrsta og þá stakk hann upp á því að þau yrðu framvegis tengd verðbólguþróun. „Ef afnotagjöldin verða ekki hækkuð þýðir það dauðadóm yfir RTÉ. Við munum lognast út af og dauðastríðið verður afar sársauka- STJÓRNARFORMAÐUR írska ríkisútvarpsins, RTÉ, vill að ársaf- notagjöld á hvert heimili verði hækk- uð um 45 evrur, um 4.000 ísl. krónur, fari úr 107 evrum í 152. Segir stjórn- arformaðurinn, Paddy Wright, að ef stuðningur ríkisins verði ekki aukinn verulega muni RTÉ „verða útdautt“ innan fárra ára. fullt,“ sagði Wright. „Við munum annaðhvort loka stofnuninni eða hætta að starfa í núverandi mynd. Ég held að það RTÉ sem við þekkj- um nú muni lognast út af á næstu tveimur árum. Þess vegna er bráð- nauðsynlegt á þessari stundu að stjórnvöld komi til hjálpar.“ Gífurleg umskipti Starfsemi írska ríkisútvarpsins er fjármögnuð á sama hátt og þess ís- lenska, þ.e. með afnotagjöldum og auglýsingatekjum í bland. Auglýs- ingatekjur hafa undanfarin ár fengið vaxandi þýðingu fyrir fjáröflun stofnunarinnar og voru á árinu 2000 um 60% af heildartekjum. Þá er það verkefni RTÉ, eins og Ríkisútvarpsins íslenska, að sinna innlendri menningu og málefnum. Bob Collins útvarpsstjóri, sem heimsótti Ísland í hitteðfyrra í boði Ríkisútvarpsins, sagði auglýsinga- tekjur RTÉ hafa minnkað verulega á síðasta ári. Staðan hefði stöðugt versnað. Nam halli á rekstrinum í fyrra sem fyrr segir 71 milljón evra, en var rúmlega 14 milljón evrur árið 2000. Auglýsingatekjur lækkuðu í fyrra um 9% á meðan rekstrarkostnaður jókst um 7%. Wright sagði engin teikn á lofti um að auglýsingatekjur myndu aukast á þessu ári. Hann tók undir, að stjórn- skipulag stofnunarinnar hefði verið gamaldags, en sagði að á þeim mál- um hefði verið tekið. Endurskipu- lagning dygði einfaldlega ekki til. „Umfang rekstrarhallans, og sú þró- un sem verið hefur, sýnir berlega að við svo búið má ekki standa. Vandi RTÉ er slíkur að hann hlaut að kalla á tafarlaus viðbrögð af okkar hálfu,“ sagði Wright. Kröfur um að árleg afnotagjöld RTÉ verði hækkuð um 4.000 kr. á hvert heimili Talsmenn írska ríkisútvarps- ins segja stofnunina í lífshættu PALESTÍNUMAÐUR sprengdi sig í borginni Rishon Letzion, skammt frá Tel Aviv í Ísrael, síð- degis í gær og tók að minnsta kosti tvo vegfarendur með sér í dauðann. Tugir manna slösuðust, þar af tveir alvarlega. Nokkrum klukkustund- um fyrr hafði Ísraelsher skotið til bana þrjá Palestínumenn á Vest- urbakkanum. Sögðu talsmenn hersins mennina, Mahmoud Titi, Imad Khatib og Iyad Abu Hmeyd- an, hafa skipulagt fjölda árása á ísraelska borgara og hermenn. Samtökin Hamas og Alþýðufylk- ingin til frelsunar Palestínu, PLFP, lýstu bæði á hendur sér til- ræði á sunnudag í borginni Net- anya er tveir Ísraelar féllu auk til- ræðismannsins og samtökin al-Aqsa, sem tengjast Fatah-sam- tökum Yassers Arafats Palestínu- leiðtoga, sögðust bera ábyrgð á ódæðinu í gær. Arafat fordæmdi hins vegar tilræðið en ísraelskir embættismenn sögðu að hvað sem liði yfirlýsingum hans bæri leiðtog- inn ábyrgð á árásum sjálfsvígs- manna. Ísraelska sjónvarpið sagði að maðurinn hefði komist inn í fjölfar- inn stórmarkað og sprengt þar sprengihleðslu sem hann hefði bor- ið á sér. Sjálfs- morðsárás í Ísrael Rishon Letzion. AFP, AP. BANDARÍSKI sjónhverfingamaðurinn David Blaine hafði um miðjan dag í gær staðið í 23 klukkustundir á nærri 30 metra hárri súlu í Bryant-garði í New York. Ætlaði hann að reyna að halda það út í 35 tíma og stinga sér síðan niður og láta aðeins pappakassa- hrúgu taka af sér fallið. Reuters Þolraun á súlu í New York

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.