Morgunblaðið - 23.05.2002, Qupperneq 29
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 29
VIKTOR Orban, fráfarandi forsætis-
ráðherra Ungverjalands, hvatti í gær
til þess, að dauðarefsing yrði tekin
aftur upp í landinu. Er tilefnið það, að
nýlega voru átta manns skotnir til
bana er tveir menn reyndu að ræna
banka.
„Vegna þessa hryllilega glæps eig-
um við að skipa okkur í flokk með
þeim Evrópuríkjum, sem vilja taka
upp dauðarefsingu,“ sagði Orban en
fyrir hálfum mánuði létu tveir bank-
aræningjar vélbyssuskothríð dynja á
saklausu fólki í banka í bænum Mor.
Hafa þeir ekki fundist enn þrátt fyrir
eina umfangsmestu leit í sögu lands-
ins.
„Ég var andvígur dauðarefsingum
en eftir að hafa rætt við aðstandendur
þeirra, sem létust, skipti ég um skoð-
un,“ sagði Orban í útvarpsviðtali en
hann er að láta af starfi sem forsætis-
ráðherra. Við af honum tekur Peter
Medgyessy, leiðtogi Sósíalistaflokks-
ins, sem bar sigur úr býtum í þing-
kosningunum í síðasta mánuði.
Orban nefndi raunar, að Ungverjar
gætu ekki orðið aðilar að Evrópusam-
bandinu, tækju þeir upp dauðarefs-
ingu en hélt því fram, að mikil gerjun
væri í þessum efnum í Evrópu.
Ungverska lögreglan birti í gær
nýjar myndir af ræningjunum en þær
eru gerðar eftir lýsingu vitna. Í dag
munu fulltrúar hennar eiga fund með
lögreglumönnum í nágrannaríkjun-
um auk þess sem leitað verður eftir
aðstoð við leitina annars staðar frá.
Vill dauðarefsingu
Búdapest. AFP.
Viktor Orban
ASKAR Akayev, forseti Kírg-
ístans, skipaði í gær allri rík-
isstjórninni að segja af sér og
axla með því ábyrgð á dauða
fimm manna, mótmælenda,
sem féllu í átökum við lögregl-
una í mars síðastliðnum. Síðan
hefur verið mjög óróasamt í
landinu og mikið um mótmæli.
Hafa þau beinst gegn forsetan-
um og frammistöðu hans í
mannréttindamálum og þá ekki
síður gegn þeirri ákvörðun
hans að láta Kína eftir stórt og
umdeilt landsvæði. Alþjóðleg
mannréttindasamtök segja, að
almenn réttindi séu lítils metin
í landinu og oft miklu ofbeldi
beitt gegn þeim, sem mótmæla
framferði stjórnvalda.
Eitraðir
þörungar
valda usla
MIKILL fugla- og sjávarspen-
dýradauði hefur verið við
strönd Kaliforníu síðustu tvo
mánuði og er það rakið til eitr-
aðra þörunga. Safnast eitrið í
þeim fyrst saman í smáfiski
ýmsum, krabba og skelfiski,
sem fugl og sjávarspendýr, sel-
ir, sæljón og smáhvalir, lifa á.
Þörungablómi á þessum slóð-
um er engin nýlunda en ekki er
vitað til, að hann hafi fyrr orðið
þessum skepnum jafnskeinu-
hættur og nú. Eitrið í þeim
finnst oft í kræklingi og má það
ekki vera meira en 20 hlutar af
milljón. Nú mælist það 380.
Enginn maður hefur enn veikst
en varað er við skelfiski.
Booker-verð-
laun fyrir
Bandaríkja-
menn
HUGMYNDIR þeirra, sem
standa að Booker-verðlaunun-
um, helstu bókmenntaverð-
launum í Bretlandi, um að opna
þau fyrir bandarískum rithöf-
undum hafa verið harðlega
gagnrýndar í breskum blöðum.
Nú taka þau aðeins til rithöf-
unda í Bretlandi og samveldis-
löndunum. Er hugmyndin kom-
in frá nýjum kostunaraðila
verðlaunanna, Man-samsteyp-
unni, en næstu fimm árin verða
þau kölluð Man Booker-verð-
launin. Óttast margir, að nú
stefni í, að menningarlegt inni-
hald verðlaunanna verði látið
víkja fyrir fjármununum.
Gamall
næturgali
NÆTURGALI nokkur hóf nú í
apríl hreiðurgerð í borginni
Frankfurt-an-der-Oder í aust-
anverðu Þýskalandi og ekki í
frásögur færandi nema fyrir
það, að þangað er hann kominn
frá Afríku 10. árið í röð. Telja
fuglafræðingar, að hann sé
hugsanlega elsti fuglinn af
þessari söngelsku tegund í
Evrópu. „Ég veit ekki um ann-
an fugl eldri af þessari tegund,“
sagði Torsten Langgemach, yf-
irmaður fuglarannsóknastofn-
unar, og bætti við, að ekki hefði
verið vitað, að næturgalar gætu
orðið þetta gamlir.
STUTT
Kírgíst-
ansstjórn
neydd til
afsagnar