Morgunblaðið - 23.05.2002, Síða 31

Morgunblaðið - 23.05.2002, Síða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 31 Ótrúlegt tilboð Heimsferða til Dóminíska lýðveldisins þann 14. nóvember í sérflugi Heimsferða til þessarar paradísar í Karíbahafinu. Önnur stærsta eyja Karíbahafsins býður uppá stórkostlegar aðstæður fyrir ferðamanninn, fagrar strendur, einstaka tónlistarmenningu og glæsileg hótel, þar sem þú getur valið um hvaða afþreyingu, íþróttir eða skemmtun sem hægt er að hugsa sér. Heimsferðir bjóða nú í fyrsta sinn ferð til hinnar fögru Juan Dolio strandar, sem er í aðeins 35 kílómetra frá höfuðborginni Santo Domingo, sem er ein fegursta borg Karíbahafsins og hér er einstakt tækifæri til að upplifa stórkostlegar strendur og mannlífið í höfuðborginni. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 79.950 M.v. MasterCardávísun að upphæð kr. 5.000. Almennt verð án ávísunar kr. 84.950. M.v. 2 í herbergi með morgunmat. Flug, gisting, skattar. Hotel Barceló Colonia **** Falleg 4 stjörnu hótel við ströndina með frábærum aðbúnaði. Dóminíska lýðveldið 14.–20. nóvember frá 79.950 kr. ÞEGAR músíkin er góð, flutning- ur frábær og hljómburður sömuleið- is, neyðast menn stundum til að leita með nærri því smásjá að einhverju öðru að pota í, ef ekki á allt að verða amen og halelúja. Sem betur fór reyndist verðugt skotmark auðfund- ið á hádegistónleikum Listahátíðar í Hafnarhúsi s.l. föstudag undir rað- heitinu Fyrir augu og eyru – tón- leikar á listasöfnum og renndi enn stoðum undir oft heyrða fullyrðingu um að upp sé runnin „öld augans“ á kostnað eyrans. Því Listahátíð, sem veltir tugmilljónum, taldi greinilega eftir sér að prenta tónleikaskrá með viðunandi lágmarksupplýsingum. Áheyrendur fengu aðeins í hendur – að vísu litprúðan – samvafinn papp- írssnepil er veitti stytzta mögulega yfirlit yfir tónleikaröðina með heit- um verka, höfunda og flytjenda. Búið. Ekki stafur um tilefni, inni- hald og tímasetningu verka, feril höfunda og flytjenda eða annað hlustendum viðkomandi. Né heldur um ástæður fyrir breyttri dagskrá (frá því sem stendur í aðalskrá Listahátíðar bls. 20). Hvað þá um hljóðfærakostinn, þar sem meiri- partur hinnar stóru klarínettfjöl- skyldu blasti við. Fyrir hendingu eina komst undirr. að því, að Chalumeaux-meðlimurinn Kjartan Óskarsson hefði umritað píanópart Flóarinnar eftir Modest Muss- orgskíj fyrir klarínetttríó, og hefði vel mátt geta þess, enda ekki á allra færi. Fleira mætti telja. En kannski réðst hugsunin að baki umrædds annmarka á hádegisröð Listahátíðar bara af streittum erli nútímans, þar sem enginn má vera að því að staldra við, hvað þá hugsa. Þar sem það að njóta listar verður eins og hver annar skyndibiti í dagsins önn sem gleypa ber í hvelli. Köld hrað- sturta fyrir andann í Culturotron, líkt og með líkamsþarfirnar í „Orgasmotron“-klefa Woody Allens. Að frátöldu þessu litla en talandi tímanna tákni var ómenguð ánægja út í gegn af téðum tónleikum, sem lyftu hátt fornu gæðamerki dívert- erandi skemmtitónlistar eins og hún bezt gat látið í vínarklassíkinni, þrátt fyrir allt annað stílyfirbragð. Hið nýja Trio trionfante Páls Pamp- ichlers var stutt en bráðvel skrifað; sprúðlandi spræk tónsmíð sem hleypti dansandi ljósi og dillandi lit- um í fangelsislegt umhverfi fyrrum tollvörugeymslu Hafnarhússins. Næst komu tvö stutt söngverk eftir Igor Stravinskíj, bæði fyrir klarínetttríó í meðleiksáhöfn. Fyrst var Elegy (Harmljóð) um JFK frá 1964, þar sem hljómmikil dimman úr safaríkri barýtonrödd Ólafs Kjartans Sigurðarsonar, enn frekar undirstrikuð af dökkri tregahlið klarínettanna, tjáði eftirminnilega hryggð tónskáldsins við sviplegt frá- fall Bandaríkjaforseta. Léttara var yfir fjórum örsöngvum rússneska meistarans frá Parísarútlegð hans í fyrri heimsstyrjöld, Berceuses du chat (Vöggusöngvum kisu), sem sungnir voru á frönsku frummáli. Þar mátti víða kenna áhrif frá cantilenu-stíl og fauxbourdon-rit- hætti síðmiðalda í nýrri umgjörð, og túlkun Ólafs við teygjulipran undir- leik tríósins var skemmtilega fjöl- breytt, ýmist ljúfkímin, nærgætin eða súðvæð, en ávallt barnslega inn- lifuð við hæfi. Ólafur kastaði loks kómískum tólfum sínum í Flónni eftir Mussorgskíj í sérdeilis vel upp- lögðum og kraftmiklum flutningi allra, sem óhjákvæmilega hlaut að uppskera mikinn fögnuð hjá áheyr- endum. Tónleikunum lauk með liðlega 16 mín. löngu kammerverki Tryggva M. Baldvinssonar fyrir þrjá spilara og (alls) fjórar meginstærðir af þessari makalausu og líklega full- komnustu fjölskyldu allra sinfón- ískra tréblásara, klarínettfjölskyld- unni, sem í innbyrðis samleik nálgast yfirburði strengjakvartetts- ins að tjáningarbreidd. Velkist ein- hver í vafa um réttmæti jafnstórrar fullyrðingar, lægi beinast við að vísa á bráðskemmtilegt 11 ára gamalt verk Tryggva, en því miður, og af torséðum ástæðum, mun það enn ófáanlegt á hljómdiski. Bak við hið hlutlausa heiti „Tríó“ leyndist því- líkt hlustunarlegt ríkidæmi að tæki allt of mikið pláss bara að tæpa á helztu stöðum. Nægja verður að segja að undirritaður mundi ekki eftir kammerhljóðfæraverki á vett- vangi íslenzkrar listmúsíkur síðustu ára, ef ekki áratuga, sem honum fannst girnilegra til frekari kynna. Ekki aðeins vegna bullandi kontra- punktískra tilþrifa – þó að áhöfnin bjóði vissulega upp á þessa kjarn- músíklegu meðferð sem flestum nú- tímatónskáldum þykir annars vitaúrelt og lúðaleg – heldur einnig vegna óvenjulíflegrar púlshrynj- andi, laglínugnóttar og ómældrar litadýrðar á öllu sviði tónfangs og styrkleika. Í svellandi glæsiflutningi Chal- umeaux-tríósins, sem óhætt má kalla minnst þekktu „súper-grúppu“ landsins, fór hér að mínu viti einn hlustvænasti – en líklega jafnframt leyndasti – tónlistarhápunktur yfir- standandi Listahátíðar. TÓNLIST Listahátíð Hafnarhús Páll P. Pálsson: Trio trionfante (frumfl.). Stravinskíj: Harmljóð um JFK; Berceuses du chat. Mussorgsskíj: Flóin. Tryggvi M. Baldvinsson: Tríó. Ólafur Kjartan Sigurð- arson barýton; Chalumeaux-tríó: Kjartan Óskarsson, Óskar Ingólfsson & Sigurður Ingvi Snorrason, klarínett. Föstudaginn 17. maí kl. 12:30. KAMMERTÓNLEIKAR Ólafur Kjartan Sigurðarson Ríkarður Ö. Pálsson Tóndjásn án tilstands LÍKLEGA eru fá verk jafn fræg og píanóverkið Myndir á sýningu eft- ir Mussorgsky og hafa margir leitað skýringar á þessu og komast flestir að þeirri niðurstöðu, sem út af fyrir sig er ekki merkileg, að því valdi ein- staklega frumlegar tónhugmyndir og sérstæður umbúnaður, þ.e. útsetn- ing. Þessir þættir, hugmynd og út- setning, eru með einhverjum galdri svo samofnir, að ekki verður greint á milli hugmyndar og útsetningar eða útfærslu, sem er oft ekki síður sér- kennileg en sjálfar tónhugmyndirn- ar. Undir yfiskriftinni „Fyrir augu og eyru“ eru á vegum Listahátíðar haldnir hádegistónleikar á ýmsum myndlistarsýningum Listahátíðar 2002 og sl. miðvikudag, á rússnesku myndlistarsýningunni í Listasafni Ís- lands, lék Miklos Dalmay píanóverk- ið Myndir á sýningu eftir Muss- orgsky. Verkið skiptist í sextán þætti, lýsingar á tíu myndum og sex útfærslur á göngustefinu, sem verkið hefst á, hátíðlegt stef og sérlega rúss- neskt, sem Miklos lék mjög ákveðið, en upphafsgerð þess er nær tvöföldu „forte“ en einföldu. Fyrsta myndin er af skakkfætta dvergnum Gnomus. Hún byggist á þremur hugmyndum, sem bæði eru lýsingar á sköpulagi og göngulagi dvergsins (1. stef), skjálgu og undirhyggjulegu tilliti hans (2. stef), sem birtist í tveimur út- færslum, og tilraun dvergsins til að koma þægilega fyrir (3. stef), en kafl- inn endar á því að dvergurinn hleyp- ur í burtu með miklu írafári. Þessi kafli var í heild var mjög vel leikinn. Sama má segja um fjórðu myndina, Bydlo, þá sjöttu, Samuel Goldenberg og Smúli, og einnig þá ní- undu, Kofi Baba-Yaga, en þetta eru sérkennilegustu þættirnir í þessu sérstæða tónverki. Uxakerran (Bydlo) er í sumum útgáfum (Peters) látin hefjast veikt, með vaxandi styrk upp í tvöfalt forte og síðan deyja út, og þannig útfærði Ravel einnig þenn- an sérstæða kafla. Dalmay hóf kafl- ann mjög sterkt og lék hann þannig út að niðurlaginu, sem smám saman fjaraði út. Þessi styrkleikaleikur, veikt – vaxandi styrkur og síðan veikt niðurlag, á að vera táknrænn fyrir ferð kerrunnar, sem birtist í fjarska, nálgast og hverfur síðan á bak við hæðirnar. Þrátt fyrir ágætan og kraftmikinn leik fórst ferðalag þessa einkennilega farartækis fyrir. Kafl- inn um Samúel og Smúla er eins kon- ar samtal. Upphafið lýsir þóttafullri framkomu ríka mannsins og í níunda takti hefst smjaðrandi tal hins fátæka og í fimmtánda takti hefjast samræð- ur þeirra, sem nánast eru eins og þeir séu að deila. Samúel er túlkaður í bassanum en flaðrandi og sníkjulegt smjaðrið í hægri hendi er táknrænt fyrir Smúla. Samtali þeirra lýkur skyndilega og eftir situr Smúli (con dolore) en niðurlagið má túlka sem heiftúðugar heitingar af hálfu Smúla. Í heild lék Miklos Dalmay verkið mjög vel og ef velja má einhvern sér- stakan kafla var sá nr. þrjú, Börn og fóstrur að leik í Tuileries-garðinum í París, einstaklega fallega leikinn. Í nr. fimm, ballett hænuunganna, nr. 7, Á markaðstorginu, og ekki síst í ní- unda og lengsta þætti verksins, Kofa Baba-Yaga, var leikur Miklos Dalmay einstaklega glæsilegur en þar naut sín tónskörp tækni hans, eða eins og sagt er; þá hefur hann á valdi sínu „kikkið“, þetta eitthvað, sem tekur í og allir hlustendur skynja. Það eina sem undirritaður vill finna að er styrkleikavalið. Dalmay hættir til að vera of fljótt farinn að leika í fullum styrk, t.d. í tíundu myndinni, Stóru borgarhliðin í Kænugarði. Fullur styrkur á að koma þegar stóru klukkunum er hringt, þá ys og þys borgarbúa linnir og eftir kvöldbænir, að hliðunum er lokað við hinn þunga og dimma hljóm stóru borgarklukkn- anna. Þetta er túlkunaratriði en að öðru leyti var leikur Dalmay glæsi- legur og á sprettum hrein snilld. Myndir á sýningu TÓNLIST Listasafn Íslands Miklos Dalmay flutti Myndir á sýningu eftir Modest Mussorgsky. Miðvikudaginn 15. maí. PÍANÓEINLEIKUR Jón Ásgeirsson Leikur Miklos Dalmay var glæsilegur og á sprettum hrein snilld. LAGAVALIÐ á tónleikum Kórs Hjallakirkju sl. fimmtudag var að öllu leyti hið frambærilegasta en varla að sama skapi nýstárlegt, ef taka mætti Kom þú, ó Kristur (Jónas Tómasson (yngri)), Fyrirlátið mér (Jón Ásgeirsson) og Stóðum tvö í túni (Hjálmar H. Ragnarsson) sem e.t.v. minnst þekktu dæmin af 17 á prent- aðri dagskrá. Öll hin voru það gamlir eða a.m.k. það vinsælir kunningjar sæmilega þroskuðum tónleikagest- um að þyrfti ekki einu sinni að geta höfunda þeirra til að flestir myndu strax kannast við þau: Ísland far- sælda frón, Sofðu unga ástin mín, Tíminn líður trúðu mér, Heyr himna smiður, Kvæðið um fuglana, Smávin- ir fagrir, Fuglinn í fjörunni, Hvert ör- stutt spor, Hjá lygnri móðu, Íslenzkt vögguljóð á Hörpu, Bátsöngurinn úr Ævintýrum Hoffmanns og dúettinn Varir þegja úr Kátu ekkjunni – auk Í fjarlægð og Vín, borg minna drauma, sem einsöngvararnir Gunnar Jóns- son bassi og Gréta Þ. Jónsdóttir sópran sungu hvort fyrir sig. Kórinn bar þess merki, eins og langflestir blandaðir kórar á seinni árum hérlendis, hvað framboð í karlaraddir virðist af æ skornari skammti, eins og glöggt mátti sjá af raddhlutföllum: 13 í sópran og 12 í alt, en aðeins 6 í tenór og 5 í bassa. Liggur við að mætti óska þess að senn yrði settur „kvóti“ á aðsókn í karlakórana ef tryggja mætti þannig meiri jöfnuð, þótt ekki dugi lengur aðferð kórstjóra fyrr á öldum sem hreinlega rændu efnilegustu kórpilt- unum hver frá öðrum. Það kom því á óvart hvað heyrðist samt mikið úr tenór- og bassadeildinni, og það m.a.s. án heyranlegs belgings. Einn- ig var eftirtektarvert hvað kórinn hélt lengi hreinni tónstöðu fyrir hlé, þar sem aðeins tvö af þremur síðustu númerum („fuglalögin“) voru með pí- anóundirleik, enda þótt færi að votta fyrir smá þreytusigi í 5. lagi sem hvarf ekki alveg upp frá því, þrátt fyrir píanóstuðning í öllum lögum eft- ir hlé. Burtséð frá nokkrum einkenni- lega löngum fermötudvölum í Sofðu unga og Hjá lygnri móðu var mótun kórstjórans í heild mjúk og sannfær- andi – og alveg sérstaklega í aukalög- unum tveim í lokin, Abba labba lá og Ríðum ríðum, sem voru afburðavel og persónulega formuð. Einsöngvararnir úr röðum kór- félaga skörtuðu bæði hljómmiklum röddum, þótt nokkuð skorti upp á tjáningartækni og reynslu. Gilti það einkum um veikustu nótur Gunnars í lagi hans, Í fjarlægð. Raddbeiting Grétu var jafnari eftir öllu tónsvið- inu, en túlkunin á hinn bóginn hlut- fallslega tilþrifaminni. Dúett þeirra á móti kórnum í lokaatriðinu, Varir þegja, tókst þó bezt og var honum fagnað að vonum. Píanóleikur Lenku Mátéová var framan af kannski held- ur hlédrægur, enda gáfust fá tæki- færi til stórræða meðal viðfangsefna kvöldsins (að frátöldum „storm“- kaflanum örstutta í saknaðarsöng Karls O. Runólfssonar), en lyfti ein- att vel og samtaka undir með kór og einsöngvurum. Að sækja á kunnustu miðin TÓNLIST Hjallakirkja Vortónleikar Kórs Hjallakirkju. Lenka Mátéová, píanó. Stjórnandi: Jón Ólafur Sigurðsson. Fimmtudaginn 16. maí kl. 20.30. KÓRTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.