Morgunblaðið - 23.05.2002, Síða 36

Morgunblaðið - 23.05.2002, Síða 36
UMRÆÐAN 36 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Kosningabaráttan undanfarnar vikur hefur sýnt, að á D-lista Sjálfstæðisflokksins er samhentur hópur fólks, sem tekur mál- efnalega afstöðu til úr- lausnarefna í Reykja- vík og kynnir hana með skýra kosti hætti. Auglýsingar í þessari baráttu hafa einnig leitt í ljós, að við á D- listanum höfum haft frumkvæði í umræðum um stefnumál og R- listinn hefur verið í vörn og á undanhaldi. Þetta á ekki síst við í umræðum um fjármál Reykjavíkur, hina erfiðu skuldastöðu borgarinn- ar, málefni Línu.nets, Orkuveitu Reykjavíkur, umhverfis- og skipu- lagsslysið í Geldinganesi og að- gerðaleysi R-listans í málefnum aldraðra. Þegar við lögðum fram stefnu okkar miðvikudag fyrir páska, sagði ég jafnframt, að við myndum bjóða Reykvíkingum að gera við okkur samning um framkvæmd sérgreindra áherslumála á næstu fjórum árum. Þennan samning höf- um við sent inn á öll heimili í borg- inni. Í fyrstu reyndu andstæðingar okkar að gera hann tor- tryggilegan með rang- færslum um kostnað við að framkvæma samninginn. Þeir gáf- ust fljótt upp á því, enda hefur öllum spurningum um það efni verið svarað með skýrum rökum. Nú í dag birtum við auglýsingu hér í Morgunblaðinu um það, hvernig við höfum tímasett ákvarðanir okkar á næstu 48 mán- uðum við framkvæmd samningsins og stefnu okkar í heild. Mér finnst mjög ólíklegt, að andstæðingar okkar á R-listanum sigli í kjölfarið og birti sambærilega aðgerðaáætlun, því að þeir hafa enga burði til að koma sér saman um að standa að málefnum Reykja- víkurborgar með þeim skipulega hætti, sem hér er kynntur. Þegar kjósendur ganga að kjör- borðinu næsta laugardag, eiga þeir ekki aðeins kost á því að velja á milli frambjóðenda og stefnumála, þeir geta einnig kosið á milli vinnu- bragða við stjórn borgarinnar. Þeir geta valið samhentan hóp, sem hef- ur á heiðarlegan og jákvæðan hátt lagt stefnu sína og tímasetta verk- áætlun fyrir kjósendur. Við höfum hvorki dustað rykið af margnota kosningaloforðum né stundað þann ljóta leik að reyna að plata gamla fólkið í borginni með innantómum fyrirheitum, eftir að hafa látið reka á reiðanum í málefnum þeirra í átta ár. Ég skora á lesendur Morgun- blaðsins að kynna sér, hvernig við sjálfstæðismenn ætlum að vinna að framgangi stefnu okkar fyrstu 48 stundirnar eftir að okkur er trúað fyrir stjórn borgarinnar, 48 dagana, 48 vikurnar og 48 mánuðina. Kost- irnir eru skýrir og valið auðvelt. Auðvelt val um skýra kosti Björn Bjarnason Reykjavík Við höfum lagt okkur fram, segir Björn Bjarnason, við að boða skýra kosti með jákvæðum hætti. Höfundur skipar 1. sæti á borgar- stjórnarlista Sjálfstæðisflokksins. ÞAÐ hefur verið bæði ánægjulegt og hvetjandi að leiða öfl- ugt framboð Samfylk- ingarinnar í Hafnar- firði í þeirri kosningabaráttu sem nú er senn á enda. Hafnfirðingar hafa tek- ið okkur frambjóðend- um S-listans í Hafnar- firði og stefnumálum okkar á afar jákvæðan hátt og hvatt okkur til dáða. Bæjarbúar hafa látið það í ljós með skýrum hætti að það er sterkur samhljómur í málflutningi okkar og þeim áherslum sem Hafnfirðingar vilja að ráði við stjórn bæjarins. Breyttar áherslur og vinnubrögð Samfylkingin hefur lagt fram skýra stefnu í öllum málaflokkum og frambjóðendur hafa afhent stefnu- skrá S-listans með persónulegum hætti inn á hvert heimili í bænum. Þessi vinnubrögð kunna bæjarbúar að meta. Þeir vilja eiga bein og milli- liðalaus samskipti við þá fulltrúa sem sitja í bæjarstjórn og þá frambjóð- endur sem leita eftir umboði bæjar- búa til að stjórna bæjarfélaginu. Þeir vilja frá tækifæri til að ræða þau mál sem eru efst á baugi og hafa áhrif á gang mála. Bæjarbúar vilja taka virkan þátt í stjórn bæjarmála og þeir fagna þeim breyttu áherslum og vinnubrögðum sem Samfylkingin ekki aðeins boðar, heldur sýnir í verki. Kosningarnar á laugardaginn eru afar mikilvægar fyrir framtíð Hafn- arfjarðar. Niðurstaða þeirra mun ráða því hvort haldið verður áfram á braut einkavæðingar og einkafram- kvæmda undir forystu Sjálfstæðis- flokksins eða hvort Samfylkingin fær umboð bæjarbúa til að standa vörð um Hafnarfjörð í sátt og sam- starfi við Hafnfirðinga. Standa vörð um grunnþjónustu og sameiginlegar eigur okkar. Standa vörð um fjárhagslega stöðu, um- hverfi og sérkenni okk- ar bæjarfélags. Nú stöndum við saman Nú stöndum við jafn- aðar- og félagshyggju- fólk í Hafnarfirði sam- an og sýnum styrk okkar og vilja í verki. Við setjum hagsmuni bæjarins okkar í for- gang og tryggjum sókn og sigur með því að setja x við S á laugardaginn. Ég vil fá að þakka Hafnfirðingum fyrir þann mikla stuðning og traust sem þeir hafa sýnt okkur, frambjóð- endum Samfylkingarinnar. Ég er sannfærður um að sá mikli stuðning- ur mun sýna sig með skýrum hætti í kosningunum á laugardaginn. Við erum tilbúin að axla ábyrgð og tak- ast á við þau brýnu verkefni sem bíða úrlausnar í Hafnarfirði. Þau verk munum við vinna í samstarfi og samráði við ykkur, ágætu Hafnfirð- ingar. Stöndum saman og sigrum saman á laugardaginn. Stöndum saman og sigrum saman Lúðvík Geirsson Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Hafnarfjörður Við erum tilbúin að axla ábyrgð, segir Lúðvík Geirsson, og takast á við þau brýnu verkefni sem bíða úrlausnar í Hafnarfirði. ÁRNI Þór Sigurðsson, borgar- fulltrúi og formaður skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur, fer með ósannindi í grein sinni í Morg- unblaðinu í gær þar sem hann segir að ég „hafi lagt kapp á að ljúka skipulagi Landsímalóðarinnar í Grafarvogi sem fyrst og með sem allra mestu byggingarmagni“. Ég hef einu sinni rætt þetta mál í stuttu persónulegu spjalli við Árna Þór vegna kvartana um ótrúlega mikinn seinagang í meðferð málsins, bæði eigendum lóðarinnar og íbúum til mikilla óþæginda. Ég hvatti hann eindregið til þess að beita sér fyrir framlagningu til- lögu, sem væri til þess fallin að leysa málið í sátt við íbúa í hverfinu. Fullyrðingar Árna Þórs Sigurðs- sonar eru hrein ósannindi og honum til lítils sóma. Ósannindi Árna Þórs Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Reykjavík Fullyrðingar Árna Þórs Sigurðssonar, segir Vil- hjálmur Þ. Vilhjálms- son, eru hrein ósannindi og honum til lítils sóma. Höfundur er borgarfulltrúi. Í AUGLÝSINGU í dagblöðum í gær full- yrðir Sjálfstæðis- flokkurinn að fjárfest- ingar Reykjavíkur- borgar í þágu aldraðra í borgar- stjóratíð minni hafi verið miklu minni en í valdatíð Sjálfstæðis- flokksins í borginni, 1987–2002. Auglýsing- in lýsir því einkum að sjálfstæðismenn sjá áfram ofsjónum yfir viljayfirlýsingunni sem Reykjavíkurborg og heilbrigðisráðherra stóðu að á dögunum um stórfjölgun hjúkrunarrýma fyrir aldraða hér í borginni. Ekki aðeins hafa þeir kosið að kalla heil- brigðisráðherra ómerking af þessu tilefni, heldur hafa þeir sagt vilja- yfirlýsinguna marklaust plagg og „kosningabombu“ hjá heilbrigðis- ráðherra og Reykjavíkurlistanum. Ég bjóst satt að segja frekar við því að hinir ábyrgari stjórnmála- menn meðal borgarfulltrúa Sjálf- stæðisfloksins myndu fagna af ein- lægni þeirri uppbyggingu sem nú hafa verið gefin fyrirheit um og hefur verið baráttumál okkar Reykvíkinga um langt skeið. Reykjavíkurlistinn hefur síðustu tvö kjörtímabil lagt áherslu á að bæta hag borgarbúa með ýmsu móti. Á þetta við um yngstu borg- arbúana í leikskólum og grunn- skólum borgarinnar, unglingana sem taka þátt í þróttmiklu æsku- lýðs- og tómstundastarfi og eldri borgara, bæði þá sem búa í eigin húsnæði við góða heilsu og þá sem þurfa á þjónustu og hjúkrun að halda. Sérstök áhersla hefur verið lögð á þjónustuþáttinn á síðustu árum og að bæta aðstæður aldr- aðra til að búa heima eins lengi og kostur er. Einmitt þess vegna kjósa sjálfstæðismenn að hagræða sannleik- anum eða segja aðeins hálfan sannleikann í auglýsingum sínum. Því miður hafa þeir kosið að beita þeirri aðferðafræði í allri kosningabaráttunni en ég er sannfærð um að Reykvíkingar sjái í gegnum hana og beiti eigin skynsemi þegar þeir gera upp hug sinn á kjördag. Á tólf ára tímabili, frá 1982–1994, risu tvö ný hjúkrunar- heimili fyrir aldraða í Reykjavík. Þetta voru Skjól við Kleppsveg og Eir að Hlíðarhúsum í Grafarvogi, með samtals 204 hjúkrunarrýmum. Á síðustu átta árum hafa þrjú ný hjúkrunarheimili risið, Skógarbær, Víðines og Sóltúnsheimilið, með alls 209 hjúkrunarrýmum. Sjö milljarðar – ekki nokkrar milljónir Í auglýsingum sjálfstæðismanna er aðeins greint frá fjárfestingum til málefna aldraðra á átta ára tímabili, frá 1986–1994. Reykjavík- urlistinn hefur ekki einblínt á fjár- Vinnum með öldruðum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Reykjavík Um sjö milljörðum króna hefur verið varið, segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, til þjónustu og framkvæmda fyrir aldraða í tíð Reykja- víkurlistans. Í STEFNUSKRÁ Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fyrir næstu fjögur ár má sjá að hann mun áfram leggja mikla áherslu á leik- skólamál og að mark- visst verði unnið að því að styrkja leikskólana sem fyrsta skólastigið. Sjálfstæðisflokkurinn telur því mikilvægt að styðja við símenntun og fjarnám starfsfólks leikskólanna. Samhliða þarf að efla sérkennslu í leikskólunum til að koma til móts við sér- þarfi einstaklinganna. Margir foreldrar óska eftir því að börn þeirra fái notið leikskóladvalar áður en þau verða tveggja ára. Því hefur Sjálfstæðisflokkurinn ákveðið að bjóða börnum frá 18 mánaða aldri leikskóladvöl á kjörtímabilinu. Miklar kröfur eru gerðar til leik- skólakennara og annarra uppeldis- menntaðra starfsmanna, bæði varð- andi uppfræðslu barna og félagslegan þroska. Í Kópavogi hefur verið unnin viða- mikil áætlun er um fræðslu leik- skólakennara og annars starfsfólks sem m.a. er gerð í samvinnu við ná- grannasveitarfélög. Til að efla fræðslu og símenntun starfsfólks leikskólanna fær nú hver leikskóli, annað árið í röð, ákveðna fjármuni sem þeir verja til slíkra verkefna en þeir geta einnig nýtt þá til þróun- arverkefna. Það hefur sýnt sig að þessi fjármunir hafa nýst skólunum og starfsfólkinu mjög vel. Menntun leikskólakennara er nú öll á háskólastigi og meðal þeirra ríkir mik- ill metnaður til að gera góða leikskóla enn betri. Hið sama á við um aðra starfsmenn leikskólanna. Nokkrir starfsmenn leikskóla Kópavogs eru nú í fjar- námi í leikskólafræðum og þrátt fyrir að þeir séu í starfi með náminu hefur þeim gengið mjög vel í náminu. Við sjáflstæðismenn viljum efla enn frekar sí- menntun starfsfólks leikskólanna og styðja enn frekar við bakið á fjarnáminu. Í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu kosningar var sett fram það markmið að árið 2002 ættu öll 2 ára börn og eldri kost á leikskóla- dvöl. Þrátt fyrir mikla fjölgun barna í Kópavogi á þessum aldri og lengri dvarlartíma barna á leikskólum hef- ur okkur tekist að uppfylla þetta markmið. En á undanförnum árum hefur stöðugt aukist að foreldrar sæki um heilsdagsdvöl eða átta tíma vistun á leikskóla fyrir börn sín. Er það mikil breyting frá því sem áður var þegar flestir sóttu um fjögurra tíma dvöl fyrir börn sín. Til að geta sinnt þessum óskum foreldra hefur þurft að fjölga leikskólarýmum mun meira en ef leikskólarnir væru enn tvísetnir. Kópavogur hefur því ekki aðeins þurft að fjölga leikskólarým- um vegna fólksfjölgunar í bænum heldur einnig vegna lengri dvalar- tíma hjá hverju barni. Nú þegar Eflum leikskólana enn frekar Sigurrós Þorgrímsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.