Morgunblaðið - 23.05.2002, Qupperneq 63

Morgunblaðið - 23.05.2002, Qupperneq 63
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 63 HIN árlega álfasala SÁÁ verður um næstu helgi, kosningahelgina. Sölufólk frá SÁÁ mun jafnt ganga í hús og selja álfinn á fjöl- förnum stöðum. Allur ágóði af álfasölunni mun renna til styrkt- ar meðferðar- og félagsstarfi unglingadeildar SÁÁ. „Á síðasta ári komu tæplega 300 ungmenni á aldrinum 14-19 ára í meðferð hjá SÁÁ. Sérstök unglingadeild hefur verið rekin á Vogi frá því í ársbyrjun 2000. Að auki býður SÁÁ unga fólkinu upp á félagslega samveru að lokinni meðferð, í þeim tilgangi að auka batalíkurnar. Verulegur hluti af þessari aðstoð við unga fólkið er fjármagnaður með sjálfsaflafé samtakanna og er álfasalan einn stærsti þátturinn í þeirri fjár- öflun,“ segir í frétt frá SÁÁ. SÁÁ-álfurinn á þessu ári held- ur á spjaldi þar sem getið er þeirra tímamóta að síðar á þessu ári verða liðin 25 ár frá stofnun SÁÁ, segir einnig í fréttatilkynn- ingu. SÁÁ með álfasölu um helgina GUÐMUNDUR Örn Arnarson, BS matvælafræðingur ver meistara- verkefni sitt Örhúðun með gelatíni úr fiskroði við Háskóla Íslands í föstudaginn 24. maí kl. 15, í stofu 157 í VR-II. við Hjarðarhaga. Leiðbein- endur eru dr. Magnús Guðmunds- son, matvælaverkfræðingur, Mat- vælarannsóknum Keldnaholti og dr. Magnús Már Kristjánsson, dósent við matvælafræðiskor Háskóla Ís- lands. Örhúðun (microencapsulation) er aðferð sem hefur verið notuð til þess að breyta eiginleikum efna. Hún felst í því að búin eru til örlítil hylki sem innihalda t.d. næringarefni, lit- arefni eða bragðefni. Þannig verður til duft sem nota má sem íblöndunar- efni í matvæli. Örhúðun hefur verið notuð til þess að stjórna losun efna í matvælum, hylja bragðvond efni, breyta olíu í duft, og auka geymslu- þol viðkvæmra efna. Gelatín er al- gengt húðunarefni, en það er oftast unnið úr húðum og beinum slátur- dýra, s.s. nautgripum og svínum. Vegna kúariðufársins í Evrópu hefur gelatín úr nautgripum verið litið hornauga upp á síðkastið. Því er gel- atín úr fiskroði áhugaverður valkost- ur, einnig fyrir þá sem ekki neyta svínaafurða af trúarástæðum. Í þessu verkefni voru rannsakaðir eiginleikar gelatíns úr fiskroði til húðunar á olíu. Tilraunir voru gerðar með húðun á lýsi með fiskgelatíni, en örhúðun á lýsi gæti auðveldað íblöndun þess í matvæli með því að fela bragðið af því. Tvær mismun- andi aðferðir við húðunina voru próf- aðar og reyndist fiskgelatínið jafnvel og sambærilegt gelatín úr nautgrip- um. Enn þarf þó að yfirvinna stutt geymsluþol örhúðaðs lýsis, eins og það var framleitt í verkefninu. Meistaraprófsverkefni í matvælafræði við HÍ GARÐYRKJUSKÓLI ríkisins, Reykjum í Ölfusi, stendur fyrir nám- skeiðinu „Sumarbústaðurinn – gróð- ur og garðyrkja“ laugardaginn 8. júní kl. 10-17 í húsakynnum skólans. Leiðbeinendurnir verða allt sér- fræðingar frá skólanum. Á nám- skeiðinu verður m.a. fjallað um skipulag við sumarbústaðinn, skjól- girðingar, trépalla, hellulagnir, stíga, meindýr og sjúkdóma í gróðri og matjurtaræktun svo eitthvað sé nefnt. Farið verður í vettvangsferð um útisvistarsvæði skólans þar sem mismunandi trjátegundir verða skoðaðar. Skráning og nánari upplýsingar um námskeiðið fást á skrifstofu skól- ans eða á heimasíðu hans, www.- reykir.is, segir í frétt frá Garðyrkju- skólanum. Námskeið um sumarbústaðinn og garðyrkju LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir vitnum að ákeyrslum á kyrr- stæðar bifreiðir hinn 20. maí sl. Í öðru tilvikinu, milli kl. 15.15 og 23.30, var ekið á bifreiðina ME-776, sem er grá Toyota RAV4, þar sem hún stóð kyrr og mann- laus á bifreiðastæði við Landspít- alann í Fossvogi. Í seinna tilvikinu, milli kl. 17 og 19, var ekið á bifreiðina SG-681, sem er grá Toyota Corolla-fólks- bifreið, þar sem hún stóð kyrr og mannlaus í Tryggvagötu gegnt Tollstöðinni. Í báðum þessum tilfellum fóru tjónvaldar af vettvangi án þess að tilkynna tjónið til hlutaðeiganda eða lögreglu. Því eru þeir eða aðr- ir, sem geta gefið frekari upplýs- ingar, beðnir að snúa sér til um- ferðardeildar lögreglunnar í Reykjavík. Lýst eftir vitnum Á AÐALFUNDI UNIFEM á Ís- landi 29. apríl sl. var kjörin ný stjórn félagsins. Stjórnina skipa: Sigríður Margrét Guðmundsdóttir formaður, Kristín Jónsdóttir varaformaður, Sigríður Guðmundsdóttir gjaldkeri, Þórgunnur Skúladóttir ritari og Hildur Helga Gísladóttir, Ása Kolka Haraldsdóttir, Herdís Friðriksdóttir meðstjórnendur. Starfsmaður á skrifstofu er Rún Ingvarsdóttir, seg- ir í fréttatilkynningu. Ný stjórn UNIFEM JEAN Pol Dumont Le Douarrec er afkomandi franskra sjómanna sem veiddu við strendur Íslands og höfundur bókar um þá. Hann ætlar að fjalla um samskipti Frakka og Íslendinga sem tengj- ast sjónum og kynna rannsóknir Frakka á högum forfeðra þeirra hér við land í dag, fimmtudaginn 23. maí, kl. 20.30 í húsakynnum Alliance française, Hringbraut 121. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Petrina Rós Karlsdóttir mun þýða fyrirlesturinn á ís- lensku. Jean Pol Dumont Le Douarrec er forseti Samtaka hvítu skonn- ortnanna og dvelur hér á Íslandi 22. maí til 6. júní ásamt sendinefnd sem komin er til að minnast frönsku sjómannanna 4.000 sem veiddu við strendur Íslands árið 1900. Á sjómannadaginn, sunnu- daginn 2. júní, verður vígður minn- isvarði á Patreksfirði til heiðurs frönskum sjómönnum og hinum 200.000 mönnum sem veiddu við strendur Íslands. Minnisvarðann gerði myndhöggvarinn Patrick Stein, segir í fréttatilkynningu. Fyrirlestur um frönsku sjómennina Kosningahátí› á kosningaskrifstofum D-listans í kvöld. Björn Bjarnason fer á milli og heilsar upp á stu›ningsmenn. Kosningahátí› Gísli Marteinn Baldursson og fiorbjörg Helga Vigfúsdóttir Kosningami›stö›in Skaftahlí› 24, Sjálfstæ›isfélög Hlí›a- og Holtahverfis, og Háaleitishverfis. Ó›inn, Hvöt og Heimdallur Sími: 553 9634 Rúnar Freyr Gíslason og Alda Sigur›ardóttir Kosningaskrifstofan Hraunbæ 102 b, Sjálfstæ›isfélag Árbæjar-, Seláss- og Ártúnsholts Sími: 567 4011 Gu›laugur fiór fiór›arson og Tinna Traustadóttir Kosningaskrifstofan Hverafold 1-3, Sjálfstæ›isfélag Grafarvogs Sími: 557 7682 Benedikt Geirsson og Margrét Einarsdóttir Kosningaskrifstofan Glæsibæ, Sjálfstæ›isfélög Langholtshverfis og Smáíbú›a-, Fossvogs- og Bústa›ahverfis Sími: 553 9653 Kristján Gu›mundsson og Jórunn Frímannsdóttir Kosningaskrifstofan Laugalæk 4, Sjálfstæ›isfélag Laugarneshverfis Sími: 553 9670 Vilhjálmur fi. Vilhjálmsson og Gu›rún Ebba Ólafsdóttir Kosningaskrifstofan Álfabakka 14 a, Sjálfstæ›isfélög Hóla- og Fellahverfis, Skóga- og Seljahverfis, Bakka- og Stekkjahverfis Sími: 557 7694 Kjartan Magnússon og Hanna Birna Kristjánsdóttir Kosningaskrifstofan Laugavegi 70, Sjálfstæ›isfélög Vestur- og Mi›bæjarhverfis, Austurbæjar- og Nor›urm‡rar Sími: 552 9183 Inga Jóna fiór›ardóttir og Marta Gu›jónsdóttir Kosningaskrifstofan Hjar›arhaga 47, Sjálfstæ›isfélag Nes- og Melahverfis Sími: 552 9187 Haf›u samband vi› hverfaskrifstofuna flína. Mundu a› öflugt starf á kosningaskrifstofunum er lykilatri›i í baráttu fyrir sigri Sjálfstæ›ismanna 25. maí. Viltu leggja baráttunni li›? D - listans í kvöld frá 21 - 23 Frambjó›endur ver›a á öllum kosningaskrifstofum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.