Morgunblaðið - 23.05.2002, Side 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
UNDIRBÚNINGUR er hafinn af
fullum krafti í Laugardalshöll fyrir
tónleika Sigur Rósar, Hilmars Arn-
ar Hilmarssonar, Steindórs And-
ersens, strengjasveitar og kórs á
Listahátíð í Reykjavík annað kvöld.
Flutt verður fornkvæðið Hrafna-
galdur Óðins.
Þarna kemur einnig við sögu
steinharpa úr íslensku grjóti eftir
Pál frá Húsafelli en verið var að
setja hana upp þegar ljósmyndara
Morgunblaðsins bar að garði í gær.
Sigur Rósar-menn og Hilmar Örn
voru þá að prófa gripinn og stilla.
Verkið var samið sérstaklega
fyrir Listahátíð og hefur nú þegar
vakið athygli en hluti þess var flutt-
ur í Barbican Center í Lundúnum
fyrir um mánuði.
Morgunblaðið/Golli
Steinharpa Páls á Húsafelli stillt
BO Fernholm, formaður Alþjóða-
hvalveiðiráðsins, segir að aðild Ís-
lands að hvalveiðiráðinu hafi verið
hafnað vegna þess að Ísland hafi
sett fyrirvara við samþykktir ráðs-
ins. Nýtt aðildarskjal hafi engu
breytt vegna þess að það hafi efn-
islega falið í sér sömu fyrirvara og
áður. Hann vísar því á bug að hafa
brotið reglur ráðsins eða fundar-
sköp.
„Ástæðan fyrir því að hvalveiði-
ráðið hafnaði aðild Íslands að
ráðinu er sú að Ísland setti fyr-
irvara við aðild sinni. Það voru
nokkrir nýir meðlimir samþykktir
og þær þjóðir voru boðnar vel-
komnar í ráðið á fundinum. Aðeins
Ísland reyndi að fá aðild að hval-
veiðiráðinu með því að setja fyr-
irvara við samþykktir ráðsins.“
Staðan alveg sú sama
í ár og í fyrra
„Aðild á þessum grundvelli var
ekki samþykkt á síðasta ári og var
ekki heldur samþykkt í ár,“ sagði
Fernholm í samtali við Morgun-
blaðið. Hann sagði að það nýja að-
ildarskjal sem Ísland hefði lagt
fram fyrir nokkrum dögum hefði
innihaldið alveg sömu fyrirvarana
og settir voru fram á síðasta ári.
Þess vegna væri staðan alveg sú
sama í ár og í fyrra. Orðalagið væri
það sama og eina breytingin væri
sú að í nýja skjalinu væri bætt við
nokkrum línum þar sem segði að
Ísland mundi sjálft taka ákvörðun
um hvenær þessir fyrirvarar tækju
gildi.
„Meginatriðið er að Ísland vill
setja einhliða fyrirvara við aðild og
fyrirvarinn er sá sami og áður,“
sagði Fernholm.
Hann hvetur Íslendinga til að
gerast aðilar án fyrirvara. Ísland
yrði boðið velkomið í ráðið á þeim
forsendum.
Formaður Alþjóðahvalveiðiráðsins segir nýtt aðildarskjal engu hafa breytt
Sömu einhliða fyrirvar-
arnir við aðild og áður
Nýtt aðildarskjal/39
Veiðikvóti/28
VERIÐ er að ganga frá samkomulagi
um að bandarísk alþjóðasveit á sviði
rústabjörgunar frá Fairfax í Virginíu
aðstoði Íslendinga á hættutímum.
Viðbragðstími hennar yrði rétt um
hálfur sólarhringur. Sveitin er stödd
hér á landi um þessar mundir við að
kenna íslenskum slökkviliðs- og
björgunarsveitarmönnum undir-
stöðuatriði rústabjörgunar en með-
limir hennar hafa meðal annars unnið
við björgun úr rústunum í Pentagon
og World Trade Center.
Að sögn Sólveigar Þorvaldsdóttur,
framkvæmdastjóra Almannavarna
ríkisins, er samstarfið byggt á grund-
velli varnarsamnings Bandaríkjanna
og Íslands og hefur undirbúningur
staðið yfir í nokkur ár. Hún segir að
verið sé að ganga frá samkomulagi við
bandarísku sveitina um að hún komi
að aðstoð við rústabjörgun hér á landi
ef þörf krefur, einkum með tilliti til
jarðskjálftahættu.
Aðstoða
Íslendinga
á hættu-
tímum
Rústir vegna/38
FANGAVERÐIR í fangelsinu á
Litla-Hrauni lögðu nýlega hald á
talsvert magn af óútfylltum kvitt-
unum fyrir tannlæknaþjónustu
sem bárust með sendingu til eins
refsifangans.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafði fanginn sett sig í
samband við prentsmiðju sem
prentar kvittanir fyrir tannlækna
og óskað eftir kvittunum.
Varð prentsmiðjan við þeirri ósk
og mun hafa sent þær til sam-
verkamanns fangans sem var utan
fangelsismúranna. Hann sendi
kvittanirnar síðan áfram á Litla-
Hraun. Ekkert liggur fyrir um
hvað fanginn hugðist gera við
kvittanirnar en Tryggingastofnun
mun greiða út hlut sjúklinga í
tannlæknaþjónustu á grundvelli
slíkra kvittana.
Fanginn sem um ræðir afplánar
nú 16 ára fangelsisdóm fyrir
manndráp en hann hafði áður hlot-
ið dóma fyrir fjársvik, skjalafals
og skattsvik.
Fékk óútfylltar tann-
læknakvittanir í fangelsið
GENGI íslensku krónunnar veiktist
um 1,3% í gær og endaði gengisvísi-
talan í 131,7 stigum í lok dags. Er
þetta hæsta gengisvísitala um mán-
aðartíma. Viðskipti voru talsverð á
millibankamarkaði, námu rúmum 6
milljörðum króna.
Í hálffimmfréttum Búnaðarbank-
ans Verðbréfa sagði að krónan hefði
verið að veikjast undanfarna daga,
allt frá því að Seðlabanki Íslands til-
kynnti um 0,5% vaxtalækkun. Sterk-
ust hefði krónan orðið í 127 til 128
stigum dagana þar á undan. Búnað-
arbankinn spáir því að jafnvægi ná-
ist í 130 til 135 vísitölustigum.
Krónan
veiktist um
1,3% í gær
♦ ♦ ♦
SLÖKKVILIÐ var kallað að ný-
byggingu á horni Sólvallagötu og
Vatnsnesvegar í Keflavík um níu-
leytið í gærkvöldi. Logaði eldur í ein-
angrunarplasti og mótatimbri þegar
slökkvilið og lögregla kom á vett-
vang. Greiðlega gekk að ráða niður-
lögum eldsins, en mikinn reyk lagði
yfir bæinn. Talið er líklegt að kveikt
hafi verið í plastinu.
Eldur í ný-
byggingu í
Keflavík
♦ ♦ ♦