Morgunblaðið - 04.06.2002, Síða 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Mercedes Benz Sprinter 412D,
f.skr.d. 05.12. 1997, ek. 65 þ. km,
2 d., bsk., lyfta 750 kg, burðarg.
1.720 kg, 2900 dísel 122 hö.
Verð 2.790.000.-
Nánari upplýsingar
hjá Bílaþingi.
Opnunartímar: Mánud.-föstud.
kl. 10-18 og laugard. kl. 12-16.
Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is
Netfang: bilathing@hekla.is
DEILUR Ísraela og Palestínu-
manna settu svip sinn á tveggja
daga heimsókn Halldórs Ásgríms-
sonar utanríkisráðherra til Jórdan-
íu en heimsókninni lauk í gær.
Strax eftir komuna til Amman fóru
Halldór og föruneyti hans í forsæt-
isráðuneytið þar sem þeir hittu
Shaher Bak, aðstoðarutanríkisráð-
herra Jórdaníu, en þaðan var síðan
haldið til fundar við Abdullah II
konung.
Meginefni viðræðnanna voru
skoðanaskipti um stjórnmála-
ástandið í Mið-Austurlöndum, átök
Ísraela og Palestínumanna, friðar-
ferlið og friðarviðræður svo og
framtíðarhorfur í málefnum land-
anna fyrir botni Miðjarðarhafs.
Leiðtogarnir voru sammála um að
áframhaldandi ofbeldi á svæðinu
væri ólíðandi og mikilvægt að kalla
saman friðarráðstefnu eins fljótt og
mögulegt væri á grundvelli fjóreyk-
isins, þ.e. Bandaríkjanna, Rúss-
lands, Sameinuðu þjóðanna og Evr-
ópusambandsins. Sjálfstætt ríki
Palestínumanna ásamt rétti Ísr-
aelsmanna til að lifa í friði og ör-
yggi innan alþjóðlega viðurkenndra
landamæra væri forsenda friðar í
Mið-Austurlöndum.
Halldór segir fund sinn með kon-
ungi að mestu hafa snúist um mál-
efni Ísraela og Palestínumanna
enda hafi þau mikil áhrif í Jórdaníu
þar sem efnahagur svæðisins sé
samofinn og tveir þriðju hlutar
Jórdana séu af palestínsku bergi
brotnir. „Hann hafði svipaða sýn á
ástandið og ég hef,“ sagði Halldór
eftir fundinn. „Ástandið er greini-
lega mjög slæmt og það eru allir að
tapa.
Við teljum báðir að það sé mjög
nauðsynlegt að hreyfa hlutina
áfram og hann er bjartsýnn á að
það sé hægt. Þá telur hann að
Bandaríkjamenn séu í lykilhlutverki
í þessari stöðu og að það þurfi bæði
að þrýsta á þá og Ísraela og Palest-
ínumenn að ganga til samninga
enda muni það leiða til mikillar
eymdar á þessu svæði haldi málin
áfram að þróast með sama hætti og
hingað til.“
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Stefán Skjaldarson, skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins, brugðu sér á hestbak í Petra, þegar skammt var eftir hinni opinberu heimsókn ráðherrans.
Morgunblaðið/Sigrún Birna
Helgi Ágústsson, sendiherra Íslands í Ísrael, mátar jórdanska slæðu,
„hadda“, í Petra. Sjálfsagt veitir slíkt höfuðfat góða vörn í hitanum.
Deilur settu svip
sinn á heimsóknina
Jórdaníu. Morgunblaðið.
málið mjög alvarlega enda teldi hún
manninn hafa verið að sinna störfum
sem hann hefði fullt leyfi til.
Helgi náði fjót-
lega tali af Hrafn-
keli auk þess sem
hann kom á fram-
færi mótmælum
við lögreglumann-
inn sem hafði
hann í haldi, og við
ísraelska sendi-
ráðið í Noregi.
Málið setti svo
svip sinn á kvöld-
verðarboð á heimili Stefaníu Rein-
hardsdóttur Khalifeh, aðalræðis-
manns Íslands í Jórdaníu, þar sem
íslenska sendinefndin gerði Wijdan
Ali prinsessu, Ali Bin Nayef prins og
sendiherrum Norðurlandanna í Jórd-
aníu grein fyrir málinu.
Hrafnkell og félagar voru á leið í
heimagistingu þegar þeir mættu her-
flokki sem stöðvaði hópinn og vildi
flytja hann í burtu. Á það féllust sjálf-
boðaliðarnir ekki og viðurkenndu
ekki lögsögu hersins yfir sér í flótta-
mannabúðunum. Þá voru þeir teknir
með valdi og fluttir í herstöð en síðan í
fangelsi skömmu eftir miðnætti. Á
sunnudag var hópurinn svo fluttur í
annað fangelsi í Ramli skammt frá
Ben Gurion-flugvellinum í Tel Aviv.
Sveinn Rúnar segir að halda megi
hópnum í fangelsinu í þrjá sólar-
hringa án þess að kalla hann fyrir
dómara.
Í gærkvöldi var talið líklegt að má
Hranfkels yrði tekið fyrir hjá dómara
fyrir miðjan dag í dag.
HRAFNKELL Brynjarsson hefur
verið í haldi Ísraelshers síðan á laug-
ardag vegna meints mótþróa við her-
inn í flóttamannabúðum Palestínu-
manna, en hann var í hópi átta
erlendra sjálfboðaliða sem voru hand-
teknir. Utanríkisráðuneytið er að
vinna í málinu en ekki liggur enn fyrir
niðurstaða.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra segir að ræðismaður Íslands
hafi fengið að heimsækja Hrafnkel að
kröfu utanríkisráðuneytisins í gær og
ekkert ami að pilti. Hann hafi verið að
velta því fyrir sér hvað best væri að
gera í stöðunni og jafnvel hugleitt að
yfirgefa landið af fúsum og frjálsum
vilja. Ísraelsmenn hafi m.a. sagt að
þessum sjálfboðaliðum yrði vísað úr
landi vegna þess að þeir hafi verið á
svæði sem þeir máttu ekki vera á og
sýnt mótþróa, en sjálfboðaliðarnir
viðurkenni þetta ekki. Ljóst sé að
þetta fólk hafi verið að sinna hjálp-
arstarfi í flóttamannabúðum en Ísr-
aelsmenn hafi sagt að þessar búðir
væru bannsvæði. Starf alþjóðlegra
starfsmanna væri mjög erfitt fyrir
vikið og þetta væri mikið áhyggjuefni
hjá Sameinuðu þjóðunum. „Ég er
þeirrar skoðunar að það sé eðlileg
krafa að Ísraelsmenn greiði fyrir
starfsemi hjálparstofnana vegna þess
að það er gríðarleg þörf fyrir þá hjálp
á þessum tímum því ástand mannúð-
armála er mjög slæmt,“ segir Hall-
dór.
Hrafnkell fór til Palestínu um miðj-
an maí sem sjálfboðaliði á vegum Fé-
lagsins Ísland – Palestína og hefur
starfað með sjálfboðaliðum frá öðrum
löndum á vegum læknishjálparnefnd-
arinnar UPMRC, fyrst í Ramallah og
svo í Balata-flóttamannabúðunum við
bæinn Nablus. Sveinn Rúnar Hauks-
son, formaður Félagsins Ísland – Pal-
estína, segir að þar hafi hann aðstoð-
að íbúana og hjálpað til við að koma
fólki undir læknishendur, reynt að
tala um fyrir hermönnum og fá þá til
þess að hleypa sjúkrabílum í gegn.
Hrafnkell var handtekinn í Nablus
nokkrum klukkutímum eftir að Hall-
dóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra
var meinaður aðgangur að borginni á
laugardag, en Halldór og ferðafélag-
ar hans urðu þá vitni að því er skrið-
drekar fóru inn í borgina og fangar
voru fluttir þaðan í rútum. Síðdegis á
sunnudag bárust íslensku sendi-
nefndinni síðan fréttir af máli Hrafn-
kels. Helgi Ágústsson, sendiherra Ís-
lands gagnvart Ísrael, sem var í för
með Halldóri, sagði fréttamanni
Morgunblaðsins að sendinefndin tæki
Íslendingur-
inn fyrir
dómara í dag
Jórdaníu. Morgunblaðið.
Hrafnkell
Brynjarsson
BJÖRGUNARSVEITIR Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar frá
Vík, Kirkjubæjarklaustri, Álftaveri
og Skaftártungu leituðu manns sem
saknað var í gærmorgun á Álfta-
versafrétti í Skaftafellssýslu. Maður-
inn fannst síðdegis, heill á húfi.
Bíll mannsins fannst austan Atl-
eyjar um hádegisbil í gær. Auk áð-
urnefndra björgunarsveita voru leit-
arhundar og sporhundar kallaðir til
leitar og eins tók þyrla Landhelgis-
gæslunnar þátt í leitinni. Beiðni kom
frá lögreglunni í Vík í Mýrdal um kl.
10 í gærmorgun og hófu björgunar-
sveitir þá eftirgrennslan. Veðurskil-
yrði voru góð á leitarsvæðinu.
Leitað að
manni
♦ ♦ ♦
EMBÆTTI landlæknis lítur það
mjög alvarlegum augum að lyfjalisti,
sem óskað hafði verið eftir frá Lyfja-
stofnun, hafi verið sendur á símbréfi
frá einu apóteka Lyfju og fyrir mis-
tök starfsmanns hafi listinn ekki far-
ið til Lyfjastofnunar heldur ónefnds
fyrirtækis „úti í bæ“. Listinn innihélt
skrá um lyf sem einn læknir, sem
embættið hefur verið með í sérstöku
eftirliti, hefur ávísað á sjúklinga.
Haukur Valdimarsson aðstoðar-
landlæknir sagðist í samtali við
Morgunblaðið hafa óskað eftir þess-
um upplýsingum frá Lyfjastofnun.
Samkvæmt lyfjalögum væri land-
lækni einnig heimilt að kalla eftir
upplýsingum frá Lyfjastofnun.
„Það er auðvitað slæmt þegar
svona lagað gerist. Ef einhverjum er
um að kenna þá er það starfsmaður
apóteksins sem sendir upplýsingarn-
ar með röngum hætti og til viðbótar
á rangan stað. Þetta eru að sjálf-
sögðu ekki góð vinnubrögð. Að vera
að faxa svona lista er auðvitað út í
hött, þeir eiga að vera sendir í
ábyrgðarpósti líkt og til dæmis lyf-
seðlar eftirritunarskyldra lyfja,“
sagði Haukur.
Hann sagði að embætti landlækn-
is, sem eftirlitsaðili með heilbrigðis-
stéttum, myndi óska eftir skýringum
frá umræddu apóteki. Þar hefði ekki
verið farið með trúnaðarupplýsingar
á réttan hátt. Einnig reiknaði hann
með að Lyfjastofnun myndi fara yfir
sínar verklagsreglur.
Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri
Lyfjastofnunar, sagði við Morgun-
blaðið að í þessu máli hefðu átt sér
stað mistök. Stofnunin hefði kallað
eftir ákveðnum upplýsingum og mis-
skilningur hefði orðið á milli starfs-
manns Lyfjastofnunar og starfs-
manns Lyfju um að senda þær með
símbréfi en ekki í ábyrgðarpósti eins
og verklagsreglurnar segðu til um.
„Þetta eru leiðinleg mistök sem
tekið verður á, bæði gagnvart okkar
starfsmönnum og eins gagnvart
lyfjafyrirtækjunum. Svona upplýs-
ingar eiga að fara í pósti og þá sem
trúnaðarmál,“ sagði Rannveig.
Lyfjalisti á símbréfi til fyrirtækis en ekki til Lyfjastofnunar
Embætti landlæknis lítur
málið alvarlegum augum