Morgunblaðið - 04.06.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SJÓMANNADAGURINN var hald-
inn hátíðlegur um land allt á sunnu-
daginn. Í Reykjavík hófust hátíða-
höld á athöfn við Minningaröldur
sjómannadagsins við Fossvogskap-
ellu í Fossvogskirkjugarði, en fyrr
um morguninn hafði hátíðarfánum
verið flaggað á skipum í höfninni.
Minningarguðþjónusta sjómanna
var síðan haldin í Dómkirkjunni og
var blómsveigur lagður á leiði
óþekkta sjómannsins í Fossvogs-
kirkjugarði, líkt og venja er á þess-
um degi.
Eftir hádegi hófust hátíðahöld á
miðbakka og var fjöldi fólks þar
samankominn í blíðskaparveðri.
Guðmundur Hallvarðsson, formaður
sjómannadagsráðs, setti hátíðina.
Árni Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra var meðal þeirra sem
ávörpuðu samkomuna og í ræðu
sinni kom hann víða við. Hann ræddi
meðal annars um reynsluþekkingu
og nauðsyn þess að tvinna hana sam-
an við vísindin. Árni talaði einnig um
niðurstöður Hafrannsóknastofnunar
varðandi stöðu fiskstofna og taldi að
í heild væru þetta mun hagfelldari
niðurstöður en fyrir ári.
Ýmis skemmtiatriði voru á mið-
bakka. Lið hraustra kappa tókust á í
kappróðri á innri höfninni og í rá-
arslag, en þá slást keppendur um
hvor fellur af ránni í sjóinn. Þá var
hópsigling björgunarbáta af höf-
uðborgarsvæðinu, auk þess sem nýr
björgunarbátur var vígður og gefið
nafnið Ásgrímur S. Björnsson. Þyrla
Landhelgisgæslunnar sýndi björgun
úr bát á innri höfninni. Hátíðahöld-
unum lauk síðan með bryggjuballi á
miðbakka, þar sem hljómsveitin
Roðlaust og beinlaust lék fyrir
dansi.
Morgunblaðið/Þorkell
Séra Þórir Stephensen vígði nýjan björgunarbát, Ásgrím S. Björnsson.
Árni Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra kom víða við í ræðu
sinni á miðbakka í fyrradag.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sýnir björgun úr bát á innri höfn.
Hátíðahöld á
sjómannadaginn
SJÓMANNADAGSRÁÐ Pat-
reksfjarðar heiðraði á sjómanna-
daginn Elínu Pálmadóttur fyrir
skrif hennar um sjómannastétt-
ina og fiskveiðar við Íslands-
strendur, að sögn þeirra Árna
Magnússonar, formanns sjó-
mannadagsráðs, og Halldórs
Árnasonar skipstjóra, sem af-
hentu heiðursmerkið eftir sjó-
mannadagsmessu í Patreksfjarð-
arkirkju.
„Á hennar langa blaðamanns-
ferli hefur hún skrásett frásagnir
fjölmargra útgerðar- og sjó-
manna erlendra og innlendra, svo
að sómi er að og hafa margir les-
ið bókina hennar Fransí biskví.“
Ráðið heiðraði einnig Íslands-
vininn Jean-Pol Dumont le Dou-
arec, helsta hvatamann að minn-
isvarða Bretóna á Patreksfirði:
„Hann hefur verið óþreytandi
þegar um er að ræða samskipti
Frakka og Íslendinga á öldum
áður. Jean-Pol hefur ritað bók
um útgerðarsögu ættar sinnar á
Íslandsmiðum og í heimabæ hans
Binic blaktir íslenski fáninn við
hún allt sumarið.“
Halldór Árnason og Árni Magnússon frá sjómannadagsráði Patreksfjarðar, Jean-Pol Dumont le Douarec,
Elín Pálmadóttir og sóknarpresturinn, séra Leifur Ragnar Jónsson.
Heiðruð af sjómanna-
dagsráði Patreksfjarðar
ÞAÐ þykir ganga krafta-
verki næst að flugmaður á
sjötugsaldri skyldi sleppa
ómeiddur eftir að hafa flog-
ið fjögurra sæta flugvél,
TF-POU, á rafmagnslínur í
aðflugi að Forsætisflugvelli
í Villingaholtshreppi á
laugardagskvöld. Öll hjól
vélarinnar brotnuðu þegar
hún lenti í kartöflugarði við
enda flugbrautarinnar.
Ólafur Sigurjónsson í
Forsæti fylgdist með að-
fluginu frá hlaðinu. Hann
veitti því strax athygli að flugvélin
kom alltof lágt inn til lendingar og í
lokastefnu var hún nánast í sömu hæð
og raflínurnar. „Þetta var ein skelfi-
legasta stund lífs míns, í þónokkuð
margar sekúndur veit ég að vélin
muni lenda á línunni en ég veit að ég
get ekkert að gert,“ sagði hann í sam-
tali við Morgunblaðið. Aðflugið var
svo lágt að Ólafur vonaðist helst til
þess að hún slyppi undir línurnar.
Honum sýndist sem fyrri línan hefði
lent á nefhjólsleggnum, rétt fyrir neð-
an mótorinn, og sleit hún rafmagns-
línurnar í einu vetfangi. Við það
missti hún talsvert mikla ferð en hélt
stefnu sinni. Hún kom síðan niður í
gömlum kartöflugarði, rann stuttan
spöl og staðnæmdist um 100 metrum
frá enda flugbrautarinnar. Öll hjól
vélarinnar brotnuðu af og skrúfublöð-
in beygluðust. Flugmaðurinn, sem
var einn í vélinni, slasaðist ekki og var
kominn út þegar Ólafur kom að. Eftir
að rannsóknarnefnd flugslysa hafði
rætt við flugmanninn flaug Ólafur
með hann til Vestmannaeyja þar sem
hann býr.
Lengi haft áhyggjur af raf-
magnslínunum
Rafmagnslínurnar eru um 200
metra frá brautarenda og í um sex
metra hæð. Ólafur segist lengi hafa
haft áhyggjur af línunum og rætt við
Rafmagnsveitur ríkisins og Flug-
málastjórn um öryggisráðstafanir.
Flugmálastjórn hefur tekið út völlinn
og er hann í handbókum flugmanna.
Ólafur vill að varúðarmerki verði sett
á línurnar, annaðhvort flögg eða belg-
ir. Sívaxandi umferð er um Forsæt-
isflugvöll og er algengt að flugnemar
nýti sér völlinn til æfinga.
Var í línuhæð
á lokastefnu
Morgunblaðið/Valdimar Guðjónsson
Öll hjól vélarinnar brotnuðu undan og hafn-
aði vélin á maganum í kartöflugarðinum.