Morgunblaðið - 04.06.2002, Page 9

Morgunblaðið - 04.06.2002, Page 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 9 Í þriðja lagi var fengin vinnu- stöð sem notuð verður til nánari myndvinnslu á röntgendeildinni; einnig keypt hjá Heklu hf. Vinnu- stöðin kostaði 9 milljónir króna. RÖNTGENDEILD Landspítala háskóla- sjúkrahúss í Fossvogi tók í notkun þrjú ný tæki á föstudag, en að auki er lokið fyrsta áfanga í endurbótum á húsnæði deildar- innar. Í fyrsta lagi er um að ræða gegnumlýs- ingartæki, sem m.a. er ætlað til rannsókna á meltingarfærum og stoðkerfi. Andvirði þess er 48 milljónir króna og er keypt af Einari Farestveit hf. Í öðru lagi var vígð hefðbundin röntgenstofa, ætluð fyrir beina- og lungnamyndatökur. Tækið kostar um 5 milljónir króna og er keypt af Heklu hf. Tækin vígð við hátíðlega athöfn á Landspítala. Landspítali – háskólasjúkrahús Morgunblaðið/Billi Þrjú ný tæki á rönt- gendeild í Fossvogi LESTRARMIÐSTÖÐ Kennarahá- skóla Íslands hefur verið lokað og rekstri hennar hætt, en miðstöðin hefur meðal annars aðstoðað nem- endur með lesblindu og veitt for- eldrum og skólafólki ráðgjöf um úrræði. Heimili og skóli er í for- svari fyrir Íslenska dyslexíufélagið og segir Ingibjörg Ingadóttir, verkefnisstjóri hjá Heimili og skóla, að samtökin muni ekki grípa til neinna sérstakra ráðstafana. Að hennar sögn eiga sérkenn- arar í skólum að sjá um greiningu og önnur úrræði núna, en hún seg- ir bæði áhugann mismikinn og úr- ræðin misjöfn hjá skólum. „Við fáum mjög margar hringingar hingað þar sem börn, sem jafnvel eru með greiningu, fá ekki þau úr- ræði sem þeim ber. Í sumum skól- um er mjög vel að þessum málum staðið. En í öðrum skólum eru ekki einu sinni lesskimunarpróf,“ bendir hún á. Hún óttast að ef ekki verði grip- ið til neinna ráðstafana eigi þekk- ingin, sem sé fyrir hendi í Lestr- armiðstöðinni, eftir að fara for- görðum. Hún telur að biðlistarnir eftir úrræðum muni lengjast, auk þess sem það sé dýrt að leita til sérfræðinga, en ýmsir sérfræðing- ar bjóða upp á greiningu og með- höndlun á lesblindu. Talsverð óánægja með lokunina Eins og fram kom í Morgun- blaðinu á föstudag vísar mennta- málaráðuneytið til þess að rekstur grunnskólans sé nú í höndum sveitarfélaga og því eigi þau að bera ábyrgð á greiningu á grunn- skólanemendum. Kristinn Krist- jánsson, starfsmaður Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, segir að þetta mál hafi komið inn á borð til þeirra, en hefur ekki fengið neina umfjöllun ennþá. Hann á því erfitt með að segja til um hvaða afstaða verði tekin til þess meðal sveitarfé- laga. „Ég veit þó að það er víða talsverð óánægja með það að mið- stöðinni skuli hafa verið lokað og ýmsir aðilar hafa látið í ljós skoðun sína á því, til dæmis Öryrkja- bandalagið, en það hefur opinber- lega ekkert verið um þetta fjallað hér,“ segir hann. Kristinn treystir sér ekki til að svara fyrir hvort einhverjar samræmdar aðgerðir verði viðhafðar. Greining á að liggja fyrir þegar nemendur byrja í framhaldsskóla Í blaðinu í gær kemur einnig fram að enginn virðist bera ábyrgð á þjónustu við framhaldsskólanem- endur með dyslexíu, en framhalds- skólarnir heyra undir menntamála- ráðuneytið. Stefán Baldursson, skrifstofustjóri í ráðuneytinu, segir aðspurður hvað verði um fram- haldsskólanema sem þurfa á þess- ari þjónustu að halda að skólarnir sjálfir bjóði upp á heilmikla þjón- ustu, sem þeir hafa verið að byggja upp á undanförnum árum. „Grein- ing á að liggja fyrir þegar nem- endur koma í framhaldsskóla en auðvitað er stundum misbrestur á því. Þá veit ég til þess að skólarnir hafa verið að hjálpa nemendum með greiningu, að einhverju leyti sjálfir og að einhverju leyti með því að senda þá til sérfræðinga,“ segir hann og bendir á að skólarnir séu í vaxandi mæli að sinna þess- um nemendum með sértækum að- gerðum. Að sögn Stefáns eru forsend- urnar í dag allt aðrar en þegar Lestrarmiðstöðin tók til starfa. Hann segir að ýmis sveitarfélög séu orðin mjög sjálfbjarga í þess- um málum, fleiri sérfræðingar séu komnir inn á þetta svið, auk fjölg- unar prófa og annarra atriða, sem hjálpa til við greiningu. „Við erum að vona að þó að Kennaraháskólinn leggi þessa stofnun niður þá komi það ekki að sök. Við munum auð- vitað verða mjög vakandi yfir ábendingum frá framhaldsskólum og öðrum um hvort það stefni í ein- hvern vanda.“ Hann segir að það verði metið á næstunni hvort þörf sé á miðlægri ráðgjafarþjónustu eða hvort fram- haldsskólarnir geti séð um þetta sjálfir. Hins vegar hefur engin beiðni borist frá framhaldsskólun- um um slíka þjónustu en samt sem áður sé verið að skoða það mál. „Við erum að ræða það við aðila innan skólakerfisins hvernig aðstoð við þessa nemendur verði best við komið,“ segir Stefán. Rekstri Lestrarmiðstöðvar Kennaraháskóla Íslands hætt Skólarnir sjái um greiningu á lesblindu LAUN æðstu embættismanna þjóð- arinnar hækka um 3% í dag, 1. júní, samkvæmt ákvörðun Kjaradóms, til að bæta þeim upp ýmsar aðrar hækkanir en prósentuhækkanir. Umrædd laun hækkuðu síðast um 3% um áramótin í takt við það sem almennt gerðist, eins og segir í úr- skurði Kjaradóms. Garðar Garðars- son, formaður Kjaradóms, segir að í kjarasamningum hafi ekki aðeins verið samið um beinar launahækk- anir í prósentum heldur líka ýmsa aðra þætti eins og tilfærslur á milli launaflokka, vinnustaðasamninga og svo framvegis, sem hafi leitt til launaskriðs. Þessar ákvarðanir hafi aðrir tekið, en Kjaradómur hafi skoðað þær og reynt að vega og meta. Launahækkun æðstu embættismanna þjóðarinnar Bætir upp aðrar hækkanir Póstsendum Laugavegi 4, sími 551 4473 Fegurðin kemur innan frá Gallajakkar Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. Sumar og sól! Pils, stuttbuxur, bolir                Bankastræti 14, sími 552 1555 Njóttu þess að líta vel út Úrval tilboða Kringlunni - sími 581 2300 Í MIKLU ÚRVALI STÆRÐIR 34 - 48 SUMARFATNAÐUR Þýskur og danskur gallafatnaður Laugavegi 84, sími 551 0756 Matseðill www.graennkostur.is mán 03.06: Kúss kúss & grænmeti m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti. þri 04.06: Spínatlasagna & ferskt eplasalat m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti. mið 05.06: Kartöfluboltar í góðum félagsskap m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti. fim 06.06: Austurlenskur pottréttur & brokkol- í- salat m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti. fös 07.06: S-evrópskur grænmetis- pottréttur m/ofnbökuðu /fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti. helgin 08.-09.06: Indónesískar kræsingar m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti mán 03.06: Grænmetisgratin m/hvítlauks- brauði /fersku salati hrísgrjónum & meðlæti. Blússujakkar, síðpils og buxur - 3 litir Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið mán. - fös. 10-18, laugardag 10-14 – sérverslun – Fataprýði Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, sími 553 2347 Sérhönnun st. 42-56 Sumarveisla 20% afsláttur af öllum fatnaði aðeins þessa viku

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.