Morgunblaðið - 04.06.2002, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 04.06.2002, Qupperneq 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 18 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Ráðstefna miðvikudaginn 5. júní 2002, kl. 13.00, í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs Háskóli Íslands Vi›skipta- og hagfræ›ideild www.mba.is N O N N I O G M A N N I Y D D A • s ia .is N M 06 53 3 Varanlegt samkeppnisforskot Er stefnumiðað árangursmat (balanced scorecard) rétta verkfærið? Ráðstefnustjóri: Hrönn Pétursdóttir, stjórnunarráðgjafi og MBA nemi. Stjórnandi pallborðs: Snjólfur Ólafsson, prófessor. Boðið verður upp á veitingar. Skráning fer fram í síma 525 4444 eða með tölvupósti, asmaa@hi.is Þátttökugjald er kr. 5000. LEIKFÉLAG Íslands hefur verið lýst gjaldþrota. Páll Arnór Pálsson hrl. hefur verið settur skiptastjóri en frestur til að lýsa kröfum í búið er til 24. júlí næstkomandi. Páll Arnór segir of snemmt að segja til um hverjar heildarskuldir félagsins eru þar sem stutt er liðið á kröfulýsingarfrestinn. Hallur Helgason, stjórnarformað- ur Leikfélags Íslands, segist heldur ekki geta sagt til um það á þessu stigi hver skuldastaða þrotabúsins sé. Hins vegar segir hann ljóst að um 60 milljónir króna muni falla á 16 af 18 hluthöfum félagsins sem gengist hafi í ábyrgð fyrir það. Hallur segir að ástæðan fyrir erf- iðleikum Leikfélagsins sé fjölþætt. Í hnotskurn megi lýsa vandanum þannig að samhliða því að ákveðið hafi verið að auka hlutafé félagsins í ársbyrjun 2000 hafi verið óskað eftir þríhliða samningi félagsins, ríkisins og Reykjavíkurborgar. Borgin hafi fallist á slíkan samning en mennta- málaráðuneytið ekki. Á svipuðum tíma hafi hlutabréfamarkaðurinn hrunið. Hið aukna hlutafé hafi því ekki skilað sér auk þess sem opin- berir aðilar hafi ekki styrkt félagið. „Leikfélag Íslands hefur sett upp mikinn fjölda leiksýninga sem hefur verið vel tekið og fengið góða gagn- rýni,“ segir Hallur. „Þetta hefur ver- ið gert fyrir lítinn opinberan stuðn- ing. Mörg ársverk tapast við þetta því Leikfélag Íslands hefur veitt fjölda manns atvinnu. Mér finnst því mikill skaði fyrir leiklistina í heild að missa þetta leikhús út af markaðin- um.“ Saga Leikfélags Íslands nær aftur til ársins 1994 er söngleikurinn Hár- ið var settur upp í Íslensku óperunni. Félagið rak leikhús í Iðnó og Loft- kastalanum en auk leikhúsrekstrar hafði það umsjón með tal- og hljóð- setningu og framleiddi sjónvarps- efni. Á þeim tíma sem Leikfélag Ís- lands starfaði setti félagið sjálft upp yfir fjörutíu leiksýningar. Leikfélag Ís- lands í gjaldþrot RÁÐGJAFARNEFND Alþjóðahaf- rannsóknaráðsins, ICES, leggur til að dregið verði verulega úr þorsk- veiðum í Barentshafi á næsta ári. Í fréttatilkynningu frá ráðinu kemur fram að nefndin leggi til að heild- arkvótinn á árinu 2003 verði 305 þús- und tonn. Kvótinn á yfirstandandi ári er 395 þúsund tonn. Verði farið að tillögum ráðgjafarnefndarinnar fá Íslendingar ekki kvóta í Barentshafi á næsta ári því hann miðast við að heildarkvótinn á þessu svæði sé yfir 350 þúsund tonn. Kvóti Íslendinga í Barentshafi á yfirstandandi ári er tæplega 6 þúsund tonn. ICES hefur undanfarin ár lagt til að dregið verði verulega úr þorsk- veiðum í Barentshafi en við því hefur ekki verið orðið. Hefur kvótinn, sem Norðmenn og Rússar ákveða, verið óbreyttur síðustu ár. Ráðgjafarnefndin leggur til að há- marksafli úr fiskstofnum við Ísland verði hinn sami og Hafrannsókna- stofnun hefur lagt til, og greint var frá í skýrslu stofnunarinnar sem birt var síðastliðinn laugardag, nema varðandi karfa og ufsa. Nefndin leggur til að veiði á gullkarfa verði 4 þúsund tonnum minni en Hafrann- sóknastofnun leggur til en munurinn er 10 þúsund tonn í ufsa, einnig þannig að nefndin leggur til minni veiði. Fram kemur í tilkynningu Al- þjóðahafrannsóknaráðsins að ráð- gjafarnefndin leggur til að dregið verði úr veiðum úr norsk-íslenska síldarstofninum úr 850 þúsund tonn- um í ár í 710 þúsund tonn á næsta ári. Þá leggur nefndin einnig til að dregið verði úr veiðum á þorski og ýsu við Færeyjar um 35%. Lagt er til að dregið verði úr þorskveiðum í Barentshafi á næsta ári. Tillögur ráðgjafarnefndar Alþjóðahafrannsóknaráðsins Dregið verði úr þorskveiðum í Barentshafi DAGBLAÐIÐ The Wall Street Journal fjallaði um stöðu Banda- ríkjadals í gær og sagði að nú virtist sem lækkun hans væri hafin, en hennar hefði lengi verið beðið. Þetta kynni að halda hlutabréfaverði niðri og þrýsta vöxtum upp. Blaðið segir að lækkun dalsins gagnvart evru, jeni og öðrum stórum gjaldmiðlum þýði að dregið hafi úr miklum áhuga fjárfesta, en hann hafi varað í sjö ár. Æ fleiri hafi fengið aukinn áhuga á öðrum hlutum heimsins á kostnað Bandaríkjanna og þar með kunni sú fjárhæð að lækka sem streymir til Bandaríkj- anna, en útlendingar hafi fjárfest einn milljarð dala í Bandaríkjunum á síðustu árum, eða sem svarar til rúmlega 90 milljarða króna á dag. Blaðið telur að lækkun dalsins geti haft alvarlegri afleiðingar fyrir Bandaríkin nú en oft áður, vegna þess að þau séu orðin háðari erlendu fjármagni en áður hafi verið. Fyrir utan minna fjárstreymi til landsins segir The Wall Street Journal að afleiðingarnar yrðu þær að hækka verðbólgu, bæði beint vegna hærra innflutningsverðs og óbeint vegna þess að hærra innflutn- ingsverð auðveldi innlendum fram- leiðendum verðhækkun. Hins vegar kunni lækkun Bandaríkjadals einnig að auka útflutning, sem yrði til að auka hagvöxt. Haft er eftir formanni Landssamtaka framleiðenda að lækkun dalsins séu góð tíðindi og að hann þyrfti að lækka um 15–20% á þessu ári, en hingað til hafi hann lækkað um 3% gagnvart körfu gjald- miðla. Ef marka má tvo hagfræð- inga sem blaðið ræðir við verður þessi þó ekki raunin. Annar þeirra spáir því að Bandaríkjadalur lækki um 6% til viðbótar út næsta ár, og hinn segist búast við að dalurinn lækki um 10% fram á miðjan þennan áratug. Alan Greenspan, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, hefur einnig spáð því að á endanum muni linna miklu flæði fjármagns inn í Bandaríkin og stöðugri hækkun dalsins. „En ég hef verið að spá þessu í fimm ár,“ er haft eftir honum. Blaðið segir að áframhaldandi lækkun Bandaríkjadals kunni að marka endalok tímabils sem hafi hafist um miðjan síðasta áratug. Aukið flæði erlends fjármagns inn í landið hafi gert bandarískum fyrir- tækjum kleift að fjárfesta í hátækni og það hafi stuðlað að aukinni fram- leiðni, sem hafi aukið hagvöxt, hagn- að fyrirtækja og hlutabréfaverð. Þetta hafi svo aftur orðið til að gera Bandaríkin spennandi í augum fjár- festa, sérstaklega þar sem dalurinn hélt áfram að hækka sem jók verð- mæti fjárfestinganna í Bandaríkjun- um mælt í öðrum gjaldmiðlum. Bandaríska hagkerfið er þrátt fyrir þetta afar sterkt að mati The Wall Street Journal. Blaðið tekur sem dæmi að síðastliðinn föstudag hafi komið fram tölur sem sýni að framleiðni á vinnustund hafi aukist um 8,4% á milli fyrsta ársfjórðungs í fyrra og í ár, sem sé mesta aukning frá 1983. Bandaríkjadalur veikist FORSVARSMENN Ísafoldarprent- smiðju hf. fóru fram á það við Hér- aðsdóm Reykjaness síðastliðinn föstudag að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Héraðsdómur varð við þeirri beiðni og skipaði Jóhann Nielsson hrl. skiptastjóra í gær. Ólafur H. Magnússon, fram- kvæmdastjóri Ísafoldarprentsmiðju og einn af núverandi eigendum fé- lagsins, segir að með kaupum á hlutabréfum Frjálsrar fjölmiðlunar í prentsmiðjunni fyrir um mánuði hafi ætlunin verið að freista þess að leita nauðasamninga við lánardrottna til að geta haldið starfseminni gang- andi. Stærsti kröfuhafinn, Lands- banki Íslands, hafi hins vegar neitað öllum samningum. Því hafi ekki ver- ið um annað að ræða en að óska eftir gjaldþrotaskiptum á félaginu. Að sögn Ólafs eru heildarskuldir prentsmiðjunnar í kringum 450 milljónir króna og eignir um 100–150 milljónir, þótt erfitt sé að segja til um þær. Hann segir að samhliða kaupunum á hlutabréfum Frjálsrar fjölmiðlunar í Ísafoldarprentsmiðj- unni hafi verið gerður samningur um sölu á prentvél prentsmiðjunnar sem Fréttablaðið er prentað í. Hugsan- lega geti skiptastjóri rift þeirri sölu en Ólafur segist aldrei hefðu sam- þykkt söluna nema vegna þess að hún var að hans mati fyrir hærra verð en upplausnarvirði vélarinnar. Um fimmtíu manns starfa hjá Ísa- foldarprentsmiðjunni. Ísafoldarprentsmiðja í gjaldþrot Ekki fallist á beiðni um nauðasamninga ● GÚMMÍVINNSLAN hf. á Akureyri var rekin með 9 milljóna króna hagn- aði á árinu 2001 og er það heldur lakari afkoma en árið á undan, þegar hagnaðurinn var 11 milljónir króna. Tap var á rekstrinum á fyrri hluta árs- ins en aftur á móti mjög góð afkoma á seinni hluta árs. Rekstrartekjur í fyrra voru rúmar 162 milljónir króna, sem er nánast sama upphæð og árið áður, en á sama tíma hækkuðu rekstrargjöld og afskriftir um 6 milljónir og urðu ríf- lega 153 milljónir. Rekstrarhagnaður fyrir skatta og fjármagnsliði á árinu 2001 nam 8,8 milljónum en árið á undan nam hann 14,1 milljón. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 2,9 milljónir, reiknaðir skattar nema 3,8 milljónum og hagnaður af reglu- legri starfsemi er því 7,9 milljónir. Veltufé frá rekstri jókst um 49% frá fyrra ári og varð 26 milljónir króna. Veltufjárhlutfall hækkaði á milli ár- anna 2000 og 2001 úr 4,33 í 4,43. Eignir í árslok 2001 námu rúmum 182 milljónum, skuldir 47 milljónum og eigið fé var því rúmar 135 millj- ónir. Eiginfjárhlutfall félagsins er þannig um 74%. Gúmmívinnslan annast framleiðslu og sölu gúmmí- varnings úr endurunnu gúmmíi, sóln- ingu hjólbarða, innflutning og sölu á hjólbörðum, rekstur hjólbarðaverk- stæða svo og framleiðslu stálbobb- inga og fleiri vara fyrir sjávarútveg. Ennfremur er rekið verkstæði með púst- og bremsuviðgerðir og smur- þjónustu auk smærri bílaviðgerða. Hluthafar í Gúmmívinnslunni eru 35 en stærsti eigandinn er Fimman ehf. með 37,49% eignarhlut. Aðrir hluthafar eiga innan við 10% hlut hver um sig. Gúmmívinnslan með 9 milljónir í hagnað STUTTFRÉTTIR ● EIMSKIP Norge AS og Wilhelmsen Agencies AS hafa samið um stofnun umboðsfyrirtækis í Álasundi, sem verður að hálfu í eigu hvors aðila og hefur starfsemi 1. september nk. Nýja fyrirtækið mun heita „Åle- sund Shipping Agencies AS“ og verð- ur það umboðsmaður fyrir Hamburg Süd á Álasundssvæðinu. Með stofn- un fyrirtækisins verður hægt að mæta auknum kröfum um þjónustu og samkeppnishæfni á þessum mik- ilvæga markaði ásamt því að bjóða upp á fleiri tegundir flutningaþjón- ustu en hingað til, að því er segir í fréttatilkynningu. Eimskip Norge AS, sem er í eigu Hf. Eimskipafélags Íslands og Wil- helmsen Agencies AS, er hluti af Barwil-samstæðunni, sem er alþjóð- legt umboðsmannanet í eigu Wilh. Wilhelmsen-samstæðunnar í Noregi. Eimskip stofnar nýtt fyrirtæki í Noregi NÝSKÖPUNARSJÓÐUR atvinnu- lífsins og Klak ehf., dótturfyrirtæki Nýherja hf., hafa gert með sér sam- starfssamning með það fyrir augum að styrkja starf í uppbyggingu og þróun sprotafyrirtækja á sviði upp- lýsinga- og hátækni. Felur þessi samningur í sér að Klak verður helsti samstarfsaðili Nýsköpunar- sjóðs í ráðgjöf um mat á fjárfesting- artækifærum, rekstrarþjónustu og ráðgjöf til sprotafyrirtækja sem Ný- sköpunarsjóður hefur nú þegar fjár- fest í og til sprotafyrirtækja sem Ný- sköpunarsjóður mun fjárfesta í á komandi misserum. Jafnframt munu Nýsköpunarsjóð- ur og Klak starfa saman að gagn- kvæmri kynningu á starfsemi og þjónustu hvors aðila. Samstarf um styrkingu sprotafyrirtækja

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.