Morgunblaðið - 04.06.2002, Síða 45

Morgunblaðið - 04.06.2002, Síða 45
Hæst ber árangur Gígju frá Aust- vaðsholti sem fremst stóð í A-flokki hjá Fáki á dögunum. Hlaut hún 9,05 fyrir hæfileika og þar af 9,5 fyrir skeið, vilja og geðslag og 9,0 fyrir tölt og fegurð í reið og 8,5 fyrir brokk, stökk og 8,0 fyrir fet. Fyrir sköpulag hlaut hún 8,02 og 8,64 fyrir hæfileika. Möguleikar Gígju á landsmóti eru miklir, hún gæti allt eins vermt sig- ursætið í A-flokki en þó virðist staða hennar ekki síðri í kynbótadómum. Sóldögg frá Hvoli stóð henni lítt að baki einnig með 9,05 fyrir hæfileika, fékk þrisvar 9,5 fyrir brokk, skeið og vilja og geðslag og 9,0 fyrir tölt, 8,5 fyrir fegurð í reið, 8,0 fyrir stökk og 7,5 fyrir fet. Þessar hryssur eru alveg í sérflokki hvað hæfileikum viðkemur en Sóldögg fékk aðeins 7,49 fyrir sköpulag. Á milli þeirra með 8,59 er kunn hryssa, Þoka frá Hólum, en hún hlýtur 8,64 fyrir sköpulag og 8,56 fyr- ir hæfileika. Þessi hryssa hefur verið allnokkuð milli tanna manna en nú ætti hún að vera endanlega búinn að hrista af sér slyðruorðið. Hæst hlýtur hún 9,5 fyrir háls og herðar og 9,0 fyr- ir fótagerð og brokk. Orri fer vel við Laugarvatn En þetta er ekki hæsta sköpulags- einkunnin sem gefin var í Hafnarfirði því Gári frá Auðsholtshjáleigu hlaut hvorki meira né minna en 8,87 sem er eftir því sem næst verður komist hæsta sköpulagseinkunn sem gefin hefur verið til þessa. Gári er aðeins fjögurra vetra og að því er virðist gæti hann orðið enn ein stjarnan úr Auðsholtshjáleiguræktuninni en til þess að standa undir stjörnunafnbót- inni þarf hann að fara hátt fyrir hæfi- leika. En lítum fyrst á sköpulagið, þar fær hann 9,5 fyrir hófa og prúðleika og 9,0 fyrir háls, samræmi og fóta- gerð og 8,0 fyrir höfuð, bak og lend og réttleika. Ekki þarf heldur að fara með veggjum þegar kemur að hæfi- leikunum, þar hlýtur hann 7,97, hæst 9,0 fyrir stökk, 8,5 fyrir fegurð í reið og fet, 8,0 fyrir tölt, brokk og vilja og geðslag. Þá hlýtur hann 6,5 fyrir skeið. Með þessari sköpulagseinkunn veltir Gári Seifi frá Efra-Apavatni úr sessi sem hæst metni stóðhesturinn fyrir sköpulag. Ættarsamsetning Gára er athygliverð, faðirinn er Orri frá Þúfu en móðirin er Limra frá Laugarvatni sem er undan Anga og Glímu frá Laugarvatni. Nú er spurn- ing hvort ekki sé orðið tímabært fyrir þá Laugvetninga Bjarna Þorkelsson og co. að fara huga alvarlega að því að nýta sér Orra frá Þúfu eftir þessa vel heppnuðu blöndu Gunnars Arnarson- ar. Ekki má skilja svo við Hafnarfjörð- inn án þess að geta frammistöðu Töfra frá Selfossi sem hlaut 9,0 fyrir öll atriði hæfileikanna nema skeið 5,0. Er það út af fyrir sig einstæður ár- angur. Glampi góður á Króknum Fyrir norðan hafa hross einnig ver- ið að fá háar tölur og ber þar hæst hin síðbúna kynbótasýning Glampa frá Vatnsleysu sem nú kemur fyrst fram þrettán vetra. Hlaut hann 8,68 fyrir hæfileika og þar á meðal 8,0 fyrir skeið sjálfur „klárhesturinn“. Glampi fékk 9,0 fyrir þrjú atriði, brokk, feg- urð í reið og vilja. 8,5 hlaut hann fyrir tölt, stökk og fegurð í reið. Stígandi frá Leysingjastöðum kom næstur á eftir Glampa og hlaut hann 8,0 fyrir sköpulag og 8,38 fyrir hæfi- leika sem er aldeilis frábært hjá skeiðlausum hesti. Mest munaði þar um 9,5 fyrir tölt en auk þess fékk hann þrisvar 9,0 fyrir brokk, stökk og fegurð í reið, 8,5 fyrir vilja og geðslag og 7,5 fyrir fet. Það er nokkuð um liðið síðan flaggað var tíunni fyrir tölt í kynbótadómi og spurning hver verð- ur fyrstur eða fyrst til að hreyfa við henni. Stígandi gæti þar átt góða möguleika. Lydía dóttir Glampa gaf föður sín- um lítið eftir en hún hlaut 8,54, þrjár níur eins og faðirinn, fyrir brokk, vilja, geðslag og fegurð í reið. Fleiri hross mætti nefna hér því af mörgu er að taka og svo sannarlega vel þess virði að bregða sér á kyn- bótasýningar þessa dagana. Hrossa- ræktin á Íslandi stendur með miklum blóma í dag og ekki annað að sjá en fjöldi glæstra gripa muni skreyta landsmótið á Vindheimamelum. Hinn ungi Freyðir frá Hafsteinsstöðum fer vel hjá Höskuldi Þráinssyni. HESTAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 45 Sól og sumar sumarfatna›ur í miklu úrvali ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S RU N 18 00 7 06 /2 00 2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.