Morgunblaðið - 04.06.2002, Page 50

Morgunblaðið - 04.06.2002, Page 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÞAÐ var mikið um að vera í Vest- urbæ Reykjavíkur, þegar ráðs- menn hernaðarbandalagsins NATO heiðruðu Ísland með ráð- stefnu um hernaðarbrölt framtíð- arinnar og vopnaðan frið. Íslensk stjórnvöld vildu veita þeim vernd og kepptust við að víggirða aðsetur þeirra, hótel, fundarhús, skólahús og jafnvel kirkju og vígbúa lög- reglumenn gegn almennum borg- urum og börnum og kenna þeim þannig hvernig illt skuli út rekið með illu samkvæmt uppskrift NATO og Bush forseta, þ.e.a.s. með vopnum. Þetta siðalögmál vopnanna af- námu Íslendingar með lögum fyrir sjö til átta hundruð árum, fyrstir og líklega einir þjóða og hafa lengst af virt þann gjörning vel. Stjórnvöld Íslands hafa nú brotið á honum vegna sefasýki Bandaríkja- forseta, er smitað hefur allan heim- inn illu heilli. Ef ekki mátti veita NATO-ráðherrum viðtöku án víg- búnaðar átti að sleppa því. Í annan stað: Það hefði verið ósvikinn og ómældur heiður að því fyrir íslensk stjórnvöld að hýsa ráðstefnuna án víggirðinga og vopnabúnaðar og sýna þannig hvers vopnlaus þjóð er megnug. Það hefði verið sýnilegur friðargjörningur og meiri og frið- vænlegri frétt fyrir heimsbyggðina en orðaglamrið, er frá ráðstefnunni barst. Hernaðarbandalög geta ekki flaggað friðarljósi eða gerst frið- arboðar. Þau eru háð vopnafram- leiðslu og vopnum. Albert Einstein mælti þessi viskunnar orð um þau: „Vopn krefjast þess að vera notuð.“ Verum minnug þessara orða. ÁSGERÐUR JÓNSDÓTTIR, Hringbraut 47, Reykjavík. Eftirmæli NATO-fundar Frá Ásgerði Jónsdóttur: UNDANFARNA daga hafa ýmsir spekingar leitað ástæðna fyrir tapi D-listans í Reykjavík sem varð þrátt fyrir skotheldan framboðslista, pott- þétta kosningabaráttu og rétta stefnumörkun að eigin sögn. Það er sjálfsagt að velta þessu fyr- ir sér og eflaust eru skýringar marg- ar en menn verða þó aðeins að hafa taumhald á tungu sinni svo þeir telj- ist vera marktækir í almennri um- ræðu. Úrillur gervispekingur var til dæmis alveg forviða á meirihluta- fylgi R-listans í Málinu á Skjá einum á miðvikudagskvöldið. Hann ruddi úr sér þvílíkum lýsingum á fram- bjóðendum mótherja sinna að ókunnur maður hefði getað haldið að á Reykjavíkurlistanum væru ekkert nema glæpamenn og heimskingjar sem ekki höfðuðu til nokkurs manns, en svo hefði Ingibjörg Sólrún bara keypt sér nýja dragt og meira þyrfti ekki til að blekkja rúmlega helming borgarbúa. Nú þurfa menn að fara að gá að hvað þeir láta út úr sér. Það er ljóst að til að vinna næstu kosningar þarf D-listinn að ná umtalsverðu fylgi af R-listanum og leiðin til þess er tæp- lega sú að lýsa alla kjósendur hans illa upplýsta einfeldninga. Það er móðgun við heilbrigða skynsemi almennra kjósenda (sem hafa reyndar oft vit fyrir atvinnu- stjórnmálamönnum) að líkja þeim við óupplýstan múg sem fúlmenni geti blekkt með fagurgala korteri fyrir kosningar. Þannig hroki og sjálfbirgingsháttur dæmir sig sjálf- an og verður að lokum þeim dýr- keyptastur sem brynjar sig með honum. MATTHÍAS KRISTIANSEN, Bólstaðarhlíð 42, Reykjavík. Orð og innihald Frá Matthíasi Kristiansen: ÁGÆTI bæjarstjóri, Ellert Eiríks- son. Ég var að fara í gegnum nýlega fengin skjöl varðandi húseign okkar hjóna Hafnargötu 18, Reykjanesbæ. Við skoðun þeirra kem ég auga á af- sal dags. 18. feb. 1992, (þingl. sk.747 þ. 28. feb. sama ár), með undirskrift þinni. Á afsali þessu ert þú að kaupa, f.h. bæjarsjóðs Keflavíkur, kvaðalausa bílgeymslu og tilheyr- andi 33 fm lóðarpart frá lóðinni Hafnargötu 18 í Keflavík. Fyrir þessa fasteign greiðir þú sanngjarnt verð eða kr. 650.000,- á þávirði. Þetta er tiltölulega mjög sanngjarnt verð fyrir roskna bílgeymslu. Það sem ég hef áhyggjur af – og sé að þú hefur ekki komið auga á við kaupin – er að umræddur bílskúr/ geymsla hafði brunnið til kaldra kola, tveimur árum fyrir kaup þín á honum. Þetta vildi ég benda þér á og þykir miður að vegna 10 ára fyrningarreglunnar getur þú víst lít- ið gert til að rétta hlut þinn í mál- inu. Ég vil benda þér á heimasíðu mína sem er á slóðinni: http:// www.netverslun.com/hafnargata Þar eru afrit af þessum gjörningi ef þú vilt glöggva þig frekar á klúðr- inu. GUNNAR GEIR KRISTJÁNSSON, Hafnargötu 18, 230 Keflavík – Klapparbraut 8 – 250 Garður. Nýi bílskúr bæjarstjórans Frá Gunnari Geir Kristjánssyni:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.