Morgunblaðið - 04.06.2002, Page 52
DAGBÓK
52 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Goðafoss, Arnarfell og
Thetis koma í dag Ak-
ureyrin fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss kom í gær,
Gemini og Andvari
koma í dag. Rán fór í
gær.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun í dag
kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa kl. 9 og kl. 13,
dans kl. 11, bað kl. 9.15.
Farið verður í Grens-
áskirkju miðvikudaginn
5. júní kl. 13.30. Prestur
sr. Ólafur Jóhannsson.
Sönghópur leiðir söng
undir stjórn Árna Ar-
inbjarnarsonar org-
anista. Kaffiveitingar í
boði sóknarnefndar,
miðvikudaginn 5. júní
verður farið í Hagkaup
í Skeifunni kl. 10. Kaffi-
veitingar í boði Hag-
kaupa. Ferð á Lang-
jökul: Miðvikud. 10. júlí
verður ekið um Kalda-
dal upp á Geitlands-
jökul á Langjökli þar
sem snæddur verður
hádegisverður, á heim-
leið verður ekið um
Húsafell, Skorradal,
Svínadal og Hvalfjörð.
Skráning í ferðir í af-
greiðslu s. 562 2571.
Árskógar 4. Kl. 9 bók-
band og öskjugerð, kl.
13 opin smíðastofa.
Bingó er 2. og 4. hvern
föstudag í mánuði.
Dans hjá Sigvalda byrj-
ar í júní. Púttvöllurinn
er opin alla daga. Allar
upplýsingar í s.
535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 14. dans. Ekið
um borgina þriðjudag-
inn 11. júní og nýju
hverfin skoðuð.
Kaffi drukkið í Golf-
skála Reykjavíkur í
Grafarholti. Lagt af
stað kl. 13. Skráning í
s. 568 5052 fyrir kl. 12,
mánudaginn 10. júní.
Allir velkomnir.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 10 samverustund, kl.
14 félagsvist.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Miðv. 5. júní
Ferð í Bláalónið. Farið
frá Kirkjuhvoli kl. 13.
Golfnámskeiðið byrjar
10. júní kl. 13.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
10 hársnyrting, kl. 13
föndur og handavinna.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Brids kl.
13.30, pútt á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16. Á
morgurn línudans kl.
11, pílukast kl 13.30.
Dagsferð að Skógum
miðvikud. 19. júní, lagt
af stað frá Hraunseli kl.
10, súpa og brauð á
Hvolseli, ekið að Skóg-
um og umhverfið skoð-
að. Kaffi drukkið í
Fossbúanum. Ekið til
baka um Fljótshlíð og
merkir staðir skoðaðir.
Upplýsingar í Hraun-
seli, s. 555 0142. Vest-
manneyjaferð 2. til 4.
júlí, greiða skal farmið-
ana í ferðina 10., 11.
eða 12. júní kl. 13 í
Hraunseli.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Mið-
vikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í göngu frá
Ásgarði, Glæsibæ, kl.
10. Línudanskennsla kl.
19.15. Dagsferð í Krísu-
vík, Þorlákshöfn, Eyr-
arbakka, Stokkseyri 6.
júní, hádegisverður Við
fjöruborðið, leiðsögn
Pálína Jónsdóttir. Þeir
sem eiga pantað far
þurfa að ganga frá far-
seðlum í dag. Vest-
mannaeyjar 11.–13.
júní, eigum nokkur sæti
laus vegna forfalla.
Söguferð í Dali 25. júní
dagsferð, leið-
sögumaður Sigurður
Kristinsson, skráning
hafin. Silfurlínan er op-
in á mánu- og mið-
vikudögum frá kl. 10–
12. í s. 588 2111. Skrif-
stofa félagsins er flutt í
Faxafen 12, sama síma-
númer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, tréskurður,
kl. 9–13 hárgreiðsla, kl.
10 leikfimi, kl. 12.40
Bónusferð, kl. 13.15
bókabíll. Opið sunnu-
daga frá kl. 14–16 blöð-
in og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
mennska, kl. 13 boccia.
Sumardagskráin er
komin. Veitingar í Kaffi
Bergi. Upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í s. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10 handavinna, kl.
14 þriðjudagsganga.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið frá kl. 9–17 há-
degismatur alla virka
daga, heitt á könnunni
og heimabakað meðlæti.
Handuvinnustofan er
opin kl. 9.15–16 á
þriðjudögum og mið-
vikudögum kl. 13–16 og
fimmtudögum kl. 9.15–
16.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, kl. 9.45 banka-
þjónusta, kl. 13 handa-
vinna, kl. 13.30 helgi-
stund. Fótaaðgerð, hár-
snyrting. Allir
velkomnir.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun, kl. 9
glerskuður og trémálun,
kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 12.15 versl-
unarferð í Bónus, kl. 13
myndlist, kl. 13–17 hár-
greiðsla. Á morgun kl.
13.15 verður farið í
Grensáskirkju skráning
á skrifstofu sími 587-
2888.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, á morgun,
miðvikudag, samvera,
fyrirbænastund í kirkj-
unni kl. 11, súpa í Setr-
inu kl. 12, spil kl. 13.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 tréskurður og op-
in vinnustofa, kl. 10
boccia, kl. 9–17 hár-
greiðsla. Allir velkomn-
ir.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–16 al-
menn handavinna, kl.
13 spilamennska.
Vitatorg. Kl. 9 smíði,
kl. 9.30 morgunstund og
handmennt, kl. 10 leik-
fimi, kl. 14 félagsvist.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Bláa saln-
um.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svar-
að í s. 552 6644 á fund-
artíma.
Orlofsnefnd húsmæðra
í Reykjavík. Nokkur
pláss laus í eftirtaldar
ferðir. Laugar í Sæ-
lingsdal 4.–9. júní,
Stóru Tjarnir í Þingeyj-
arsýslu 20.–23. júní, og
til Ruhpolding í Þýska-
landi 5.–11. júlí. Uppl. í
s. 864-2617 og 897-6608
og á skrifstofunni
Hverfisgötu 69 mánu-
til fimmtudaga kl 17–19,
s. 5512617.
Ellimálaráð Reykjavík-
urprófastsdæma. Boðið
er upp á orlofsdvöl í
Skálholti í sumar. Í boði
eru þrír hópar sem rað-
ast þannig: 10.–14. júní,
18–21. júní og 1.–5. júlí.
Skráning á skrifstofu
f.h. virka daga í síma
557 1666.
Púttklúbbur Ness.
Púttað verður á Raf-
stöðvarvelli þriðjudag-
inn 4. júní kl. 13.
Minningarkort
Barnaspítali Hringsins.
Upplýsingar um minn-
ingarkort Barnaspítala-
sjóðs Hringsins fást hjá
Kvenfélagi Hringsins í
síma 551-4080. Kortin
fást í flestum apótekum
á höfuðborgarsvæðinu.
Bergmál, líknar og
vinafélag. Minningar-
kort til stuðnings or-
lofsvikum fyrir krabba-
meinssjúka og lang-
veika fást í síma
587-5566, alla daga fyrir
hádegi.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningarspjöld
Kristniboðssambands-
ins fást á skrifstofunni,
Holtavegi 28 (hús
KFUM og K gegnt
Langholtsskóla), sími
588-8899.
Í dag er þriðjudagur 4. júní, 155.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Blessið þá, er ofsækja yður, blessið
þá, en bölvið þeim ekki. Fagnið með
fagnendum, grátið með grátendum.
(Rómv. 12, 14.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 skyggnist, 4 veiru, 7
munnum, 8 efast um, 9
skýra frá, 11 sefar, 13
klína, 14 góla, 15 jarðaði,
17 ímynd, 20 bókstafur,
22 ölvun, 23 deilur, 24
sjúga, 25 seint.
LÓÐRÉTT:
1 blautar, 2 hitasvækja, 3
vítt, 4 listi, 5 þekkja, 6
skilja eftir, 10 konungur,
12 slít, 13 fæði, 15 skrölt,
16 ekki mögulegt, 18 fík-
in, 19 gabba, 20 láta í
friði, 21 dýrbíts.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 hringekja, 8 skráð, 9 illur, 10 iðn, 11 múruð, 13
nunna, 15 sadda, 18 hirta, 21 nær, 22 glögg, 23 eitur, 24
afþakkaði.
Lóðrétt: 2 rýrar, 3 næðið, 4 efinn, 5 jólin, 6 æsum, 7 fráa,
12 und, 14 uxi, 15 sögn, 16 djörf, 17 angra, 18 hrekk, 19
rætið, 20 arra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Halo er hætt
ÞAÐ hefur ekki farið hátt
en ókeypis veðurspárþjón-
ustu Halo ehf. hefur verið
hætt. Þetta er synd vegna
þess að þessar upplýsing-
ar sem komu frá Halo og
voru birtar á Internetinu
voru mjög aðgengilegar
og furðunákvæmar, og
mjög gott að nota þær
upplýsingar eða bæta upp
veðurupplýsingar frá Veð-
urstofu Íslands. Ég veit til
þess að veðurupplýsingar
frá Halo voru mjög mikið
notaðar á Grænlandi til að
fólk gæti bætt upp og gert
sér betur myndræna
grein fyrir veðrinu og
hverju mætti búast við í
nánustu framtíð. Þessar
veðurupplýsingar voru
t.d. mun betri en það sem
kom frá dönsku veðurstof-
unni, DMI.
Eftir að hafa rætt við
einn starfsmann fyrirtæk-
isins skilst mér að þjón-
ustunni hafi verið hætt
vegna erfiðleika við að út-
vega fjármagn til að
standa undir rekstrinum.
Þetta er miður vegna þess
að aðferðin sem var notuð
til að koma upplýsingun-
um til skila á Netinu var
til fyrirmyndar og leik-
menn jafnt sem sérfræð-
ingar notuðu þetta til við-
bótar eða eingöngu við
aðra veðurspáþjónustu,
ekki bara á Íslandi heldur
einnig erlendis. Fólk sem
ég sá nota þetta var oft
mjög hissa þegar ég sagði
þeim að þetta væri frá ís-
lensku fyrirtæki.
Það hefði nú örugglega
ekki kostað ríkið stórt
brot af því sem það kostar
að reka Veðurstofu Ís-
lands að styrkja þessa
þjónustu að einhverju
leyti og hvað sem hver
segir þá var þessi sam-
keppni af hinu góða fyrir
alla.
Lesandi.
Svar við fyrirspurn
Í VELVAKANDA fyrir
stuttu kom fram fyrir-
spurn um ljóðlínu úr ljóði
Stefáns G. Stefánssonar.
Gísli hafði samband og
sagðist hann halda að
réttara væri að segja:
Þótt þú langförull legðir...
Segir hann að Stefán G.
hafi ekki verið svo lélegur
íslenskumaður að hann
hefði ort: Þó þú langförull
legðir...
Ábending
SIGURÐUR vildi koma
því á framfæri að blað-
burðarfólk stytti sér ekki
leið yfir blómabeð þegar
blöðin eru borin út í hús.
Hvers vegna
fylgisaukning?
HVERS vegna varð
skyndileg fylgisaukning
hjá F-listanum? Árið 2000
lokaði R-listinn sem þá
var við völd afdrepi aldr-
aðra reykingamanna á fé-
lagsheimilum Reykjavík-
urborgar. Ég held að
þessi kúgaði minnihluta-
hópur (gamalt reykinga-
fólk) hafi kosið F-listann.
Veit að margir eldri borg-
arar hættu að koma á fé-
lagsheimilin vegna reyk-
ingabannsins.
Einar.
Tapað/fundið
Sólgleraugu
í óskilum
SÓLGLERAUGU með
styrk og í vönduðu hulstri
fundust í miðbæ Reykja-
víkur. Upplýsingar hjá
Rúnu í síma 551 1396.
Nokia í loðnu
hulstri týndist
NOKIA 3310 bleikur og
blár í loðnu hundahulstri
týndist í Sundlaug Kópa-
vogs föstudaginn 24. maí
milli kl. 17 og 18.30. Skil-
vís finnandi hafi samband
við Birnu í síma 865 3346.
Dýrahald
Kettlingar
fást gefins
KETTLINGAR fást gef-
ins. Tilbúnir að fara að
heiman. Upplýsingar í
síma 565 1551.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
EKKI fyrir alls löngu barst Vík-verja bréf frá lögreglunni þar
sem fram kemur að hann er kominn
með níu refsipunkta vegna þriggja
umferðarlagabrota, og í bréfinu
kom fram að þegar punktarnir
væru orðnir tólf hefði það í för með
sér missi ökuleyfisins. Hér verður
ekki lagt mat á hvort þessar reglur
séu réttlátar eða ranglátar, en það
sem vakti umhugsun Víkverja var
hvernig matið var á þeim brotum
sem hann hafði gerst sekur um.
Eitt var vegna hraðaksturs og tvö
voru vegna þess að ekið hafði verið
yfir gatnamót á rauðu ljósi. Víkverji
vissi svo sannarlega upp á sig sök-
ina í öðru þeirra tilfella, enda náðist
mynd af brotinu og ekkert við því
að segja. Í hinu tilfellinu var Vík-
verji að beygja til austurs Miklu-
brautina af Kringlumýrarbrautinni
og lenti þar á eftir hægfara öku-
manni á flutningabíl sem skyggði á
umferðarljósin. Þegar flutningabíll-
inn svo loksins áræddi að halda
leiðar sinnar kom í ljós að rautt ljós
blasti við Víkverja og ekkert annað
fyrir hann að gera en að hraða sér
sína leið yfir gatnamótin og inn á
Miklubrautina. Skyndilega birtist í
baksýnisspeglinum lögreglubíll
með blikkandi ljós og síðan leið ekki
á löngu þar til Víkverja var gert að
greiða sekt fyrir brotið. Þriðja
brotið var eins og fyrr segir fyrir of
hraðan akstur, en þá lenti Víkverji í
því að vera tekinn út úr bílalest
austan við Hvolsvöll og kom í ljós
að hann ók á 116 kílómetra hraða.
Skýrsla var tekin, greiðsluseðillinn
barst og sektin var borguð. Fyrir
hraðaksturinn fékk Víkverji eitt
refsistig, en samtals átta stig fyrir
að hafa farið tvisvar yfir á rauðu
ljósi. Í ljósi þess að í annað skiptið
orkaði það að mati Víkverja mjög
tvímælis hvort hann hafi í raun
gerst brotlegur þótti honum þetta
punktaflóð sem hann hafði skyndi-
lega fengið alls ekki vera í neinu
innra samræmi. Eflaust leynast
samt einhverjar skýringar á því
hvernig umferðalagabrot eru metin
til refsipunkta og forvitnilegt væri
að vita hverjar þær eru.
x x x
Á DÖGUNUM tók Víkverji sigtil og þreif bílinn sinn hátt og
lágt og fór um hálfur dagur í verkið.
Á meðan hann var að dekra þetta
við bílinn sinn sá hann að á báðar
framhurðirnar voru komnar nokkr-
ar smádældir, sem greinilega höfðu
leynst undir vetrarskáninni og ekki
vakið athygli eigandans áður. Eftir
nokkrar vangaveltur um hvernig á
þessum skemmdum gæti staðið
varð það niðurstaðan að þær hlytu
að hafa átt sér stað þegar bíllinn
var skilinn eftir á bílastæði. Stað-
reyndin er nefnilega sú að merkt
bílastæði þar sem ætlast er til að
bílum sé lagt hlið við hlið eru að
mati Víkverja allt of þröng. Eftir að
Víkverji varð skemmdanna á sínum
bíl var fór hann að veita öðrum bíl-
um athygli með þetta í huga og sá
þá að hann er langt frá því að vera
einn um að hafa orðið fyrir tjóni af
þessu tagi. Sjálfsagt gilda einhverj-
ar reglur um hve breið bílastæði
eiga að vera, en Víkverja þykir ljóst
að í þeim er gengið of langt, að
minnsta kosti miðað við það virð-
ingarleysi sem landinn virðist sýna
eigum annarra. Með því að breikka
bílastæðin myndi að vísu stæðunum
fækka örlítið, en það hlýtur engu að
síður að vera ávinningur ef það
kæmi í veg fyrir það tjón sem
þrengslin virðast leiða af sér.
ÉG hef mikla samúð með
Rósu Maríu Salomons-
dóttur og dóttur hennar.
Það er hart að fá ekki
rétt sinn hjá dómstólum.
Nú veit ég ekkert um
málið en eitt þykir mér
skipta miklu máli: Það er
með öllu útilokað að
dómsmálaráðumeytið
geti á einhvern hátt haft
áhrif á Hæstarétt í þessu
máli eða öðrum.
Það er ein mikilvæg-
asta stoð lýðræðis að
valdinu er skipt í þrennt,
löggjafarvald, fram-
kvæmdavald og dóms-
vald. Það væri óhæfa ef
fulltrúar framkvæmda-
valds færu að skipta sér
af ákvörðunum dóms-
valdsins.
Því hafa starfsmenn
dómsmálaráðuneytisins
einfaldlega gert skyldu
sína þegar þeir neituðu
að skrifa bréf til Hæsta-
réttar.
Reynir Vilhjálmsson.
Gerðu skyldu sína