Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 1
142. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 20. JÚNÍ 2002 SJÖ manns týndu lífi auk hryðju- verkamanns, sem sprengdi sig upp á strætisvagnabiðstöð í Jerúsalem í gær. Um 40 manns særðust. Er þetta annað hryðjuverkið í Ísrael á tveimur dögum og hafa þau kostað 28 manns lífið. Vegna þessara at- burða hefur George W. Bush, for- seti Bandaríkjanna, hætt við að leggja fram að sinni nýjar tillögur um frið milli Ísraela og Palestínu- manna. Ísraelar réðust í gær inn á Vesturbakkann, meðal annars inn í Ramallah, og hóta að leggja hann allan undir verði ekki lát á hryðju- verkum. Hryðjuverkið var framið í gyð- ingahverfi í Austur-Jerúsalem, sem er annars að mestu byggt aröbum. Stökk hryðjuverkamaðurinn út úr bíl og hljóp að biðstöðinni þar sem hann sprengdi sig upp. Auk hans létust sjö manns en líðan átta þeirra sem slösuðust er mjög alvar- leg. Í fyrradag týndu 20 manns lífi og 50 særðust í hryðjuverki í suður- hluta borgarinnar. Hersveitir Al-Aqsa-fórnarlamb- anna, hreyfingar sem tengist Fatah-hreyfingu Yassers Arafats, leiðtoga Palestínumanna, lýstu í gær yfir ábyrgð sinni á hryðjuverk- inu. Ari Fleischer, talsmaður Hvíta hússins, sagði í gær að Bush væri staðráðinn í að leggja sitt af mörk- um til að leysa deilurnar í Miðaust- urlöndum en vegna þessara atburða myndi hann bíða með að kynna nýj- ar tillögur. Fleischer sagði að þess yrði þó ekki langt að bíða að þær yrðu lagðar fram. Fleischer hafði eftir Bush að „Ísraelar hefðu rétt til að verja hendur sínar“ en þeir skyldu þó huga vel að afleiðingum aðgerða sinna. Haft er eftir ráðgjöfum Bush að í tillögunum verði gert ráð fyrir pal- estínsku bráðabirgðaríki, en þó ekki fyrr en eftir eitt ár, og síðan muni það taka þrjú ár að semja um landamæri milli Ísraels og Palest- ínu. Skorað á Palestínumenn Arafat skoraði í gær á landsmenn sína að hætta árásum á óbreytta borgara í Ísrael og það gerðu einn- ig 50 kunnir Palestínumenn í heil- síðuauglýsingu í dagblaðinu Al Quids. Hvöttu þeir alla Palestínu- menn til að sameinast gegn hryðju- verkunum, sem hefðu ekki annan tilgang en spilla málstað þeirra sjálfra. Ísraelar hertóku í gær bæina Jenin og Qalqilya og haft var eftir vitnum seint í gærkvöld, að þeir væru að leggja undir sig Ramallah en þar eru höfuðstöðvar heima- stjórnarinnar. Átta manns týndu lífi í öðru hryðjuverkinu í Ísrael á tveimur dögum Bush frestar að leggja fram nýjar friðartillögur Washington, Jerúsalem. AP, AFP. Reuters Komið með ísraelska konu, sem særðist í sjálfsmorðsárásinni, á sjúkra- hús í Jerúsalem. Auk hryðjuverkamannsins týndu sjö manns lífi og líðan átta þeirra 40, sem slösuðust, var alvarleg. Ísraelskur her kominn aftur inn í Ramallah  Hyggst hernema/24 GEORGE W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, hét í gær að verja hálfum milljarði dollara, um 45 milljörðum ísl. kr., til baráttunnar gegn alnæmi í Afríku og Karíbahafsríkjunum. Bush sagði, er hann hvatti önnur iðnríki til að leggja sitt af mörkum, að þjáningarnar og eyðileggingin af völdum sjúkdómsins væru skelfi- legri en orð fengju lýst en féð á ekki síst að nota til þess að koma í veg fyr- ir, að smit berist á milli móður og barns. Vonast er til, að unnt verði að ná til milljón kvenna og draga úr smiti um 40%. „Læknavísindin gera okkur kleift að bjarga mörgum þessara barna og samviskan krefst þess, að við gerum það,“ sagði Bush. Bush minnti á, að í sumum Afr- íkuríkjum væri allt að þriðjungur fullorðinna smitaður og ljóst, að 10% skólabarna eða meira myndu deyja úr sjúkdómnum innan fimm ára. Lagði hann áherslu á, að fjárfram- lagið myndi ekki bitna á fyrri fyr- irheitum um framlag til baráttunnar gegn þessum sjúkdómi og öðrum. Boðar átak gegn alnæmi Washington. AFP. ÍTALSKA knattspyrnufélagið Perugia hefur sagt upp samningi sínum við suður-kóreska leik- manninn Ahn Jung-Hwan en það var hann sem skoraði markið sem sendi ítalska landsliðið heim úr heimsmeistarakeppninni. „Þessi maður kemur hér aldrei framar,“ sagði Luciano Gaucci, formaður félagsins, í viðtali við dagblaðið La Gazzetta dello Sport, en Ítalir eru í miklu upp- námi yfir ósigrinum fyrir Suður- Kóreu og saka dómarann og FIFA, Alþjóðaknattspyrnusam- bandið, um að hafa sammælst fyrirfram um úrslitin. Í Suður-Kóreu er Ahn þjóð- hetja en ekki í Perugia þar sem frammistaða hans á knattspyrnu- vellinum hefur ekki þótt nógu góð. „Hann var ekki neitt merki- legur fyrr en hann lék gegn okk- ur Ítölum. Ég er þjóðernissinni og svona framkoma er ekki að- eins móðgun við ítalskt þjóðar- stolt, heldur líka móðgun við landið, sem bauð hann velkominn fyrir tveimur árum,“ sagði Gaucci. „Ég ætla sko ekki að fara að borga þeim manni laun, sem hef- ur eyðilagt ítalska knattspyrnu.“ Gaucci sagði að Ahn hefði ekki átt bót fyrir rassinn á sér þegar hann hefði komið til Perugia en orðið ríkur á því að gera lítið sem ekkert. Nú geti hann bara leikið í sínu landi fyrir innan við 5.000 kall á mánuði. Ahn kom til Perugia sem láns- maður og hefur skorað fimm mörk í 29 leikjum. Talsmaður Perugia sagði í gær að fyrir heimsmeistarakeppnina hefði verið búið að ákveða að segja upp samningnum við Ahn. Ahn segir sjálfur, að gullmark- ið sé að þakka veru sinni á Ítalíu. Þótt hann hafi ekki fengið að leika mikið með Perugia þá hafi hann lært þar þeim mun meira um knattspyrnuna. Ítalir æfareiðir vegna ósigursins fyrir Suður-Kóreu Rekinn fyrir að skora gullmarkið Luciano Gaucci Ahn Jung-Hwan  Ítölum finnst/B 1 HAMID Karzai sór í gær embætt- iseið sem forseti Afganistans en þá hafði afganska þjóðarráðið, Loya Jirga, lagt blessun sína yfir skipan nýrrar ríkisstjórnar. Endurspeglar hún betur en áður þær ólíku þjóðir, sem landið byggja. Karzai sleit fundi þjóðarráðsins með ræðu og sagði þá, að án sterkr- ar ríkisstjórnar yrði ekki um neinar framfarir að ræða í landinu. Þá hafði ráðið, 1.650 manna þing, sam- þykkt skipan 14 ráðherra, þriggja aðstoðarforseta og forseta hæsta- réttar. Þykir Karzai hafa tekist vel til við valið en þrjú valdamestu embættin í bráðabirgðastjórninni voru öll í höndum tadsíka, sem voru áhrifamestir í Norðurbandalaginu. Mohammed Fahim verður áfram varnarmálaráðherra og Abdullah Abdullah áfram utanríkisráðherra en báðir eru þeir tadsíkar. Við emb- ætti innanríkisráðherra tekur hins vegar Taj Mohammed Wardak en hann er pashtúni eins og Karzai. Þá verður Ashraf Ghani, helsti ráðgjafi Karzais, fjármálaráðherra. Úsbek- ar og Hazarar fengu sinn manninn hvorir í stjórn. Pashtúnar eru stærsta þjóðar- brotið í Afganistan, hugsanlega um 65% landsmanna, og viðbrögð þeirra við nýju stjórninni voru al- mennt jákvæð í gær. Hún á að sitja í hálft annað ár eða fram að kosn- ingum. Karzai nýr forseti Afganistans Ánægja með nýja stjórn Kabúl. AP, AFP. JÜRGEN Leberecht heitir hann, sem vinnur hér við að raka saman seðlunum, hundruðum milljóna í austur-þýskum mörkum. Eftir sameiningu þýsku ríkjanna var þessum verðlausa gjaldmiðli komið fyrir í göngum skammt frá Halber- stadt en nú er komið að því að gera hann endanlega að reyk og ösku. AP Milljóna- haugur ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.