Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 16
AKUREYRI 16 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ www. .is ÍBÚÐIR TIL SÖLU • ÍBÚÐIR TIL LEIGU • TÆKJALEIGA • ÚTBOÐ KÍKTU Á NETIÐ Laus lóð - Kiðagil 1 Umhverfisráð Akureyrar hefur lagt til að breytt verði landnotkun lóðarinnar Kiðagil 1 úr verslunar- og þjónustulóð í íbúðalóð. Lóðin er auglýst laus til umsóknar og er umsóknarfrestur til og með 5. júlí nk. Lóðin verður veitt með fyrirvara um að aðal- og deiliskipulagsbreytingar nái fram að ganga og skal væntanlegur lóðarhafi annast allar deiliskipulagsbreytingar á sinn kostnað. Skipulags- og byggingarfulltrúi. STÚDENTAR, 99 að tölu, voru brautskráðir frá Menntaskólanum á Akureyri á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, og var skólanum jafnframt slit- ið í 122. sinn. Athöfnin fór fram í Íþróttahöllinni og var Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra heið- ursgestur. Tryggvi Gíslason skóla- meistari sæmdi Tómas Inga æðsta heiðursmerki skólans, gulluglu með keðju. „Tómas Ingi setti sterkan svip á Menntaskólann á Akureyri, bæði sem nemandi og kennari, og hann þjónaði skólanum vel,“ sagði Tryggvi við athöfnina. Tómas Ingi lauk stúdentsprófi frá skólanum ár- ið 1963 og starfaði við skólann á ár- unum 1970 til 1991 sem kennari og aðstoðarskólameistari var hann um 10 ára skeið. Hann var sæmdur silf- uruglu skólans þegar hann lét af störfum og gerðist þingmaður.Sagði hann við athöfnina að skólameistari hefði þá látið þess getið að gullugl- una fengi hann ekki fyrr en hann yrði menntamálaráðherra! Einn allra besti námsárangur á stúdentsprófi á landinu Sigurður Örn Stefánsson frá Ak- ureyri hlaut hæstu einkunn á stúd- entsprófi, 9,58, og Eva Guðjónsdótt- ir frá Akureyri hlaut 9,55. Einkunnir eru gefnar í heilum töl- um eingöngu og hver einasta ein- kunn sem nemandi hlýtur á fjög- urra ára ferli sínum er reiknuð. Samkvæmt eldri reglum sem víða tíðkast við sambærilega skóla hefði Stefán Örn fengið 9,93 og Eva 9,79 í lokaeinkunn. Tryggvi sagði ljóst að þetta væri með allra besta náms- árangri á stúdentsprófi á landinu frá upphafi. „Kjarni ungs fólks er því ekki síður hæfileikaríkur og dugandi en áður, fólki fer því ekki aftur,“ sagði Tryggvi. Hann fór nokkrum orðum um skólastarfið á liðnum vetri, sem gekk vel og áfallalaust. Stúlkur voru 344 í hópi nemenda eða 55% og pilt- ar 282. Nemendur frá Akureyri voru 340 eða 54% en nemendur ann- ars staðar frá voru 286 talsins. Þá nefndi skólameistari að nýir nem- endagarðar sem nú eru í smíðum yrðu til hagsbóta fyrir báða fram- haldsskólana á Akureyri, héraðið í heild og landið allt, „því með nýjum nemendagörðum verður unnt að bjóða fólki af höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu að stunda nám í hollu skólaumhverfi í skólabænum Akureyri og er samvinna skólanna tveggja byggð á því að laða fleiri nemendur til Akureyrar.“ Gildi skólanna ekki í hávegum höfð í samfélaginu Skólameistari gerði markaðslög- mál og auðhyggju að umtalsefni í ræðu sinni, en ástæðu þess kvað hann vera andstæðurnar sem virt- ust vera að aukast í þjóðfélagi okk- ar, sem og þjóðfélögum Vestur- landa, „andstæðurnar milli þess sem best er og hins sem er verst.“ Taldi Tryggvi vert að menn íhugi einnig andstæðurnar milli þess sem reynt er að ástunda í skólum og hins sem ástundað er í samfélaginu. Hlutverk framhaldsskóla væri að stuðla að alhliða þroska allra nem- enda svo þeir verði sem best búnir undir að taka virkan þátt í lýðræð- isþjóðfélagi í sífelldri þróun. Hann leitaðist við að efla ábyrgðarkennd, víðsýni, frumkvæði, sjálfstraust og umburðarlyndi nemenda, að þjálfa þá í öguðum og sjálfstæðum vinnu- brögðum og gagnrýnni hugsun. . „Úti í þjóðfélaginu eru þessi gildi ekki í hávegum höfð,“ sagði Tryggvi, þar treysti enginn öðrum, allt væri dregið í efa, jafnvel dómar Hæstaréttar og virðingarleysi fyrir skoðunum annarra einkenndu sam- ræður manna. „Úti í samfélaginu gilda lögmál markaðarins – lögmál frumskógarins, lögmál hins pen- ingasterka.“ Varpaði Tryggvi fram þeirri spurningu hvort áfram væri hægt að látast sem við kenndum börnum okkar guðsótta og góða siði þegar sterkustu öfl þjóðfélagsins köstuðu þessum kenningum fyrir róða. Skólameistari MA fjallaði um markaðslögmál og auðhyggju við brautskráningu stúdenta Andstæðurnar milli þess sem best er og verst sífellt að aukast Sigurður Örn Stefánsson hlaut hæstu einkunn á stúdentsprófi. Morgunblaðið/Kristján Tryggvi Gíslason, skólameistari MA, sæmir Tómas Inga Olrich mennta- málaráðherra gulluglunni, sem er æðsta heiðursmerki skólans. Menntamálaráð- herra sæmdur æðsta heiðurs- merki skólans UM 120 þúsund manns heimsækja Kjarnaskóg á hverju ári sam- kvæmt umferðartalningu sem þar fór fram á liðnu ári. Hallgrímur Indriðason, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga, sagði á aðalfundi félagsins nýlega að könnunin gæfi góða vísbend- ingu um vinsældir svæðisins. Nefndi hann sem dæmi þar um að eina af fyrstu helgunum í júlí í fyrra, dagana 6. og 7., hefðu komið 1.180 gestir í skóginn hvorn dag. Einnig var í fyrra- sumar gerð könnun meðal gesta en tilgangur hennar var að bæta þjónustuna. Hann sagði útivistarsvæðið í Kjarna hafa um árabil verið fyr- irmynd sveitarfélaga varðandi útivistaraðstöðu. Samkvæmt samningi við Akureyrarbæ væri félaginu ætlað að móta tillögur um þróun og uppbyggingu svæð- isins til framtíðar. Tengsl félags- ins við nefndir og ráð á vegum Akureyrarbæjar væru hins vegar lítil og því erfitt að koma skoð- unum og hugmyndum um upp- byggingu á framfæri. „Á þessu verður að ráða bót ef Kjarna- skógur á að halda forustu- hlutverki sínu í framtíðinni,“ sagði Hallgrímur. Þá nefndi hann að fjárveitingar bæjarins til nýframkvæda hefðu heldur rýrnað að verðgildi á liðn- um árum. Um tveimur milljónum króna var varið til skógræktar og uppbyggingar á útivistarsvæðinu á síðasta ári, en helsta nýfram- kvæmdin í skóginum var fyrsti áfangi að smíði steinbogabrúar yfir Brunná, sem leysa mun trébrú af hólmi. Plantað í 45 ha svæði á liðnu ári Hallgrímur sagði gróðursetn- ingar á vegum félagsins nú fara vaxandi eftir nokkurra ára stöðn- un og mörg verkefni framundan á þeim vettvangi. Nærri léti að starfsmenn félagsins hefðu tekið þátt í gróðursetningu á um 137 þúsund plöntum á svæðinu og hefðu aldrei áður verið gróð- ursettar svo margar plöntur á vegum þess. Miðað við 3 þúsund plöntur á ha væri um að ræða nær 45 ha svæði alls. Um 11 árs- verk við skógrækt voru á liðnu ári unnin á vegum Skógrækt- arfélags Eyfirðinga. Morgunblaðið/Kristján Ungir gestir í Kjarnaskógi hvíla lúin bein og gæða sér á nestinu sínu. Um 120 þúsund gestir árlega Kjarnaskógur nýtur vaxandi vinsælda ÉG er mjög ánægður með þessa niðurstöðu og í sjö- unda himni satt best að segja,“ sagði Franz Árna- son framkvæmdastjóri Norðurorku á Akureyri en fyrstu niðurstöður sýna að borholan sem fyr- irtækið lét bora í Arnar- neshreppi, gefi um 50 sek- úndulítra af 85 gráðu heitu vatni. Sleipnir, bor Jarðborana hf., kom niður á mikið magn af heitu vatni á rúmlega 1.160 metra dýpi í landi Arnar- holts norðan Hjalteyrar fyrr í þessum mánuði. Fyrstu niðurstöður benda til þess að vatns- magnið myndi duga til að hita upp Naustahverfið fullbyggt en þar er gert ráð fyrir 6.000 manna íbúðabyggð. Franz sagði að gerðar yrðu frekari tilraunir með holuna á næstunni og ef fram heldur sem horfir, verður lögð hitaveita á Hjalteyri í haust og holan tengd inn á lögnina frá Þelamörk til Akureyrar. Borun er lokið, holan er um 1.450 metra djúp en aðalæðar hennar eru á 1.160-1.200 metra dýpi. Magnús Finnsson deild- arstjóri tæknideildar Norðurorku sagði að frek- ari vinnsluprófanir á hol- unni tækju 6-8 mánuði og lyki næsta vor. „Væntanlega verðum við þá búnir að gera okkur einhverjar hugmyndir um lagna- stærð til Akureyrar. Það er ljóst að Þelamerkurlögnin ber ekki allt þetta vatnsmagn. Hún er gerð fyrir um 30 lítra á sekúndu en þaðan erum við nú að dæla 15-20 lítrum á sekúndu, þannig að það er ekki mikill afgang- ur í þeirri lögn. Tengipunkturinn á lögninni frá Þelamörk til bæjarins ber ekki meira og því þurfum við að finna annan tengipunkt til bæjar- ins.“ Þessir 50 sekúndulítrar eru sjálf- rennandi úr holunni og sagði Magn- ús að það sparaði mikinn tíma í mats- ferlinu, þar sem aðeins þyrfti að koma fyrir mæli en ekki dælu og öðr- um búnaði. Hann sagði jafnframt að þessi jákvæða niðurstaða gæfi mönnum góðan umhugsunarfrest fyrir næstu árin. Borholan í landi Arnarholts norðan Hjalteyrar lofar mjög góðu en hún er talin gefa um 50 sekúndulítra af 85 gráðu heitu vatni. Borholan í Arnarneshreppi lofar mjög góðu Dugar til að hita upp fullbyggt Naustahverfi Morgunblaðið/Kristján

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.