Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 21
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 21 Öll verðbréfin á einum stað V E R Ð B R É FA Þ J Ó N U S TA S P R O N Varðveittu öll verðbréfin þín á einum stað, bæði rafræn bréf og verðbréf á pappírsformi Með verðbréfaþjónustunni getur þú … • fengið afslátt af kaup- og söluþóknunum vegna hlutabréfaviðskipta. • keypt og selt með einu símtali. • keypt og selt á heimasíðu okkar www.spron.is. • skoðað tilboð og viðskipti dagsins á Verðbréfaþingi Íslands á www.spron.is. • fengið ráðgjöf varðandi fjárfestingar hjá sérfræðingum okkar. Tryggðu þér öll þau þægindi sem bjóðast í verðbréfaviðskiptum og komdu verðbréfunum fyrir á einum stað. A B X / S ÍA KRABBAMEINSFÉLAG Akraness og nágrennis hefur opnað þjónustu- skrifstofu á Akranesi sem er til húsa að Kirkjubraut 40 efstu hæð. Akra- nesbær studdi við bakið á félaginu með því að útvega skrifstofuhúsnæð- ið, en skrifstofan er samnýtt með Fé- lagi eldri borgara í bænum. Í tilefni af opnuninni færði Síminn hf. félaginu fjárstyrk til kaupa á fartölvu og prentara. Bókabúðin Penninn á Akra- nesi studdi sömuleiðis félagið með af- slætti af skrifstofuvörum. Krabbameinsfélag Akraness og ná- grennis var stofnað 9. febrúar 1969 og hefur starfað nær óslitið síðan. Fé- lagsmenn eru nú um 270 talsins. Starfsemi félagsins byggist á ýms- um stuðningi við krabbameinssjúk- linga og aðstandendur, auk fræðslu og forvarnarstarfs um krabbamein og forvarnir tengdar heilbrigðu líferni. Einnig hefur félagið gefið stofnunum eins og Sjúkrahúsi Akraness hluti sem hafa nýst krabbameinssjúkling- um og fleirum. Hlutverk félagsins er líka að styðja við krabbameinsrannsóknir og stuðla að aukinni menntun heilbrigðisstétta í greiningu, meðferð og aðhlynningu krabbameinssjúklinga. Fjáröflunar- leiðir félagsins eru árleg merkjasala, sala minningarkorta, félagsgjöld og persónulegar gjafir einstaklinga og fyrirtækja. Í framhaldi af Landssöfn- uninni 2001 var ákveðið að hluti af söfnunarfénu færi í það að styrkja að- ildarfélögin, meðal annars með því að greiða niður launakostnað. Samstarf aðildarfélaganna og Krabbameins- félag Íslands og á milli aðildarfélag- anna innbyrðis var aukið. Skrifstofur hafa verið til margra ára fyrir aðild- arfélögin í Reykjavík og á Akureyri og nú einnig í Hafnarfirði, Selfossi auk Akraness. Fleiri skrifstofur munu verða opnaðar á næstu mán- uðum, meðal annars á Austurlandi. Markmiðið með þessari nýju starf- semi er að auðvelda aðgengi sem fé- lagið hefur upp á að bjóða og þjónusta um leið bæjarbúa og nærsveitar- menn. Þessi nýja starfsemi félagsins er til reynslu í eitt ár, en vonandi verða móttökur bæjarbúa það góðar að starfseminni verði haldið áfram og hún efld enn frekar. Félagið hefur ráðið Sigurlínu Guðmundsdóttir sem starfsmann í hlutastarf. Starf hennar er fólgið í upplýsingaráðgjöf og að vísa fólki áfram á rétta aðila. Þá verð- ur hægt að nálgast á skrifstofunni ýmiss konar fræðsluefni um krabba- mein, forvarnir, tryggingarmál, and- lega líðan og fleira. Krabbameins- félagið mun sinna áfram fræðslu og forvarnarstarfsemi ýmiss konar. Stefnt verður að því að bjóða upp á námskeið og sjálfshjálparhópa. Starfsmaðurinn mun sinna forvarnar- starfi tengdu reykingavörnum Stefnt verður að því að fljótlega verði komið á fót á Akranesi stuðningshópi krabbameinssjúklinga sem yrði undir verndarvæng félagsins. Einstakling- ar og fyrirtæki geta gerst félagsmenn á skrifstofunni, með árlegu gjaldi. Skrifstofan verður opin 2 daga í viku, á mánudögum milli 10 og16 og á mið- vikudögum milli 16 og 18. Netfang er: kakron@simnet.is Heimasíða félags- ins er: www.krabb.is/akranes Krabbameinsfélagið opnar skrifstofu Akranes Morgunblaðið/Jón Á. Gunnlaugsson Anton Harðarson, starfsmaður Símans hf., og Rannveig Björk Gylfadótt- ir, formaður Krabbameinsfélags Akraness og nágrennis, við opnun skrif- stofunnar á Akranesi. Anton afhenti félaginu gjafir frá fyrirtæki sínu. HVALAMIÐSTÖÐIN á Húsavík var opnuð formlega í nýju húsnæði nýverið að viðstöddum fjölmörgum gestum, þar á meðal forseta Alþing- is, ráðherrum, sendi- herrum erlendra ríkja og þingmönnum. Ás- björn Björgvinsson, for- stöðumaður safnsins, ávarpaði gesti og sagði stuttlega frá uppbygg- ingu þess í þessu hús- næði. Þar kom m.a. fram að reynt var að gera hlutina á sem hagkvæm- astan hátt, nýta allt það efni sem fyrir var í hús- inu væri það mögulega hægt. Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra tók einnig til máls og sagði m.a. að hér hefði verið unnið þrekvirki við uppbyggingu safnsins, hið opinbera gæti lært ýmislegt af þessu, t.d. hvað hægt væri að gera mikið þrátt fyrir takmörkuð fjár- ráð. Þá sagði hann að Húsavík væri komin í fremstu röð, ef ekki fremst bæjarfélaga á landinu, hvað safn- amál snerti og minnti á að stutt væri síðan glæsilegt sjóminjasafn var opnað hér við byggðasafnið. Einnig tóku til máls þeir Pétur Rafnsson, formaður Ferðamála- samtaka Íslands, og Masao Kawai, sendiherra Japans á Íslandi. Það var síðan forseti Alþingis, Halldór Blöndal, sem opnaði safnið formlega. Til að skera á borðann notaði Halldór flensihníf sem hann notaði á sínum yngri árum við hvalskurð í Hvalfirði. Þessum hníf, sem er með fangamarki Halldórs, H. Bl., hafði Ásbjörn uppá og fékk að láni og hangir hann nú uppi á vegg við hlið ljósmyndar af Hall- dóri sem tekin var í hvalstöðinni á sínum tíma. Safnið var síðan opið almenningi fram á kvöld og nýttu fjölmargir sér tækifærið til að skoða það. Hvalamiðstöðin opnuð formlega í nýju húsnæði Húsavík Halldór Blöndal með flensihnífinn góða ásamt Ásbirni Björgvinssyni sem aðstoðaði Halldór við að skera á borðann. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson TEKIN var fyrsta skóflustungan að nýrri leikskólabyggingu á Flúðum síðastliðinn föstudag að viðstöddu fjölmenni. Börnin Ás- laug Guðný Unnsteinsdóttir og Rúnar Guðjónsson sátu í stórri vélskóflu sem Þórarinn Ingi Harð- arson frá verktakafyrirtækinu Gröfutækni ehf. stjórnaði við verkið. Hinn nýi leikskóli verður 460 fermetrar að flatarmáli á einni hæð, byggður úr steinsteypu. Það er teiknistofa Arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga sem sá um að teikna þetta nýja mannvirki sem er rétt austan við Flúðaskóla. Verkið var boðið út og var tekið lægsta tilboði sem var frá Eld- verktökum ehf. í Reykjavík. Verk- takar skila húsinu og lóð fullfrá- gengnu 1. október 2003. Heildarkostnaður er áætlaður 80 til 90 milljónir króna. Í vetur voru 54 börn í leikskólanum sem er kallaður Undraland, þeim mun fara fjölgandi á næstu árum. Nýi leikskólinn verður þriggja deilda leikskóli, 24 börn verða í hverri deild. Núverandi húsnæði leikskól- ans, sem er í bráðabirgðahúsnæði á annarri hæð í íþróttahúsinu, er löngu of lítið og ófullnægjandi. SJÁ EINNIG LANDIÐ BLS. 38. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Skóflustunga að nýjum leikskóla Hrunamannahreppur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.