Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 39
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 39
FYRIR stuttu voru skólaslit
grunnskólans í Búðardal haldin
hátíðleg í Dalabúð. Voru margir
gestir enda ekki við öðru að búast
því mæting hér er oftast mjög
góð. Annar atburður var einnig á
dagskránni en það var að Þrúður
Kristjánsdóttir kvaddi sem skóla-
stjóri, Guðrún Halldórsdóttir hef-
ur verið ráðin skólastjóri og tekur
hún við af Þrúði í haust. Þrúður
hefur starfað hátt í 40 ár við skól-
ann hér, fyrst sem kennari en síð-
ar sem skólastjóri. Það verður erf-
itt að sjá af henni sem skólastjóra
en fólk vonast til að hún verði nú
eitthvað viðloðandi skólann þótt
hún hætti sem skólastjóri.
Söngur á heimsmælikvarða
Eftir að Þrúður talaði og veitti
verðlaun þeim nemendum sem
staðið hafa sig best í vetur gaf
hún gestum kveðjugjöf. Gjöfin var
söngur á heimsmælikvarða. Það
var dóttir Þrúðar, Hanna Dóra
Sturludóttir, sem söng sig inn í
hug og hjarta gesta. Hanna Dóra
býr í Þýskalandi og starfar þar
við söng enda löngu orðin þekkt
söngkona þar sem annars staðar.
Eftir athöfnina í Dalabúð var
haldið í grunnskólann og þar var
sýning á verkum nemenda og
kaffi og meðlæti fyrir fullorðna
fólkið en einnig sá foreldrafélagið
um að grilla pylsur ofan í smá-
fólkið.
Skólaslit
grunn-
skólans
Morgunblaðið/Guðrún Kristinsdóttir
Hanna Dóra Sturludóttir syngur fyrir móður sína og aðra gesti.
Margt var um manninn í grillinu enda lék veðrið við gesti.
Búðardalur
KIRKJUSTARF
Í MESSU klukkan ellefu, sunnu-
daginn 23. júní, fær Háteigskirkja
góða gesti.
Hér er um 60
manna hóp frá
Normandale
Lutheran-kirkju
í Edina, Minn-
esota, að ræða,
sem skiptist í
stóran kór,
bjöllusveit og
lúðrakvintett.
Það er sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir, prest-
ur í Háteigskirkju, sem stýrir þess-
ari messu. Messan verður hefð-
bundin og á íslensku.
Þessi stóri kór mun taka þátt í
messu og sálmasöng – kórmeðlimir
læra nú þessa dagana nokkra
sálma á íslensku til þess að geta
sungið með. Auk kórsöngsins mun
lúðrakvintettinn blása í hljóðfærin
á undan og eftir messu og
bjöllukór Normandale-kirkjunnar
mun spila. Messugestir mega því
eiga von á öðruvísi tónlist heldur
en þeir eiga að venjast í hefð-
bundnum messum í Háteigskirkju.
Þessi messa er eins og aðrar
messur í Háteigskirkju öllum opn-
ar. Rétt er að vekja athygli á því að
í anddyri kirkjunnar liggja frammi
messuskrár á enskri og þýskri
tungu. Þessar messuskrár eru sér-
staklega skrifaðar fyrir Háteigs-
kirkju og auðvelda því ensku- og
þýskumælandi gestum mjög að
fylgjast með framgangi mess-
unnar.
Guests from
Minnesota
THE regular Sunday morning
service 23rd June, at 11 a.m. in Há-
teigskirkja, will be unusually fest-
ive – because we are expecting a
large party of visitors from
Minnesota! This will be the choir,
handbell choir and brass quintet
from Normandale Lutheran
Church in Edina, Minnesota. They
will all take part in our worship,
singing and playing under the dir-
ection of their musical director,
David Clarke.
The service, with communion,
will be in Icelandic as usual, but we
offer a translation of the order of
service and other information for
our English-speaking visitors. We
welcome you!
Kór frá
Minnesota í
Háteigskirkju
Háteigskirkja
Háteigskirkja. Foreldramorgunn kl. 10.
Íhugun kl. 19. Taizé-messa kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í Gerðu-
bergi kl. 10.30.
Kópavogskirkja. Starf með eldri borgurum
í dag kl. 14.30–16.30 í safnaðarheimilinu
Borgum.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl.
22. Ath. breyttan tíma. Gott er að ljúka
deginum í kyrrð kirkjunnar og bera þar
fram áhyggjur sínar og gleði. Bænarefnum
má koma til presta kirkjunnar og djákna.
Hressing í safnaðarheimilinu eftir stund-
ina.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið
hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu
Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund kl. 13–15.
Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi for-
eldra með ung börn að koma saman og
eiga skemmtilega samveru í safnaðar-
heimili kirkjunnar.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl.
20.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
Safnaðarstarf
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
1. 100 fm gott skrifstofuhúsnæði í mið-
borginni.
2. 60 fm skrifstofuhúsnæði í góðu húsi í
hjarta borgarinnar.
3. 400 fm glæsilegt skrifstofuhúsnæði í
virðulegu húsi. Mikil lofthæð. Lyfta.
4. 1.500 fm vel staðsett skrifstofu/þjón-
ustuhúsnæði neðst í Borgartúni. Fal-
legt útsýni til sjávar.
5. 900 fm gott skrifstofu- og lagerhús-
næði við Garðatorg í Garðabæ (Hag-
kaupshúsið). Næg bílastæði. Góð
gámaaðstaða.
Eignarhaldsfélagið Kirkjuhvoll ehf.
Upplýsingar gefur Karl í síma
892 0160, fax 562 3585.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Aðalfundur Jarðefnaiðnaðar ehf. verður
haldinn þriðjudaginn 2. júlí 2002 kl. 10.00 á
skrifstofu félagsins á Nesbraut 1, Þorlákshöfn.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykkt-
um félagsins.
Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofu
þess.
Stjórn Jarðefnaiðnaðar ehf.
Aðalfundur
Aðalfundur KR-Sports hf. verður haldinn
fimmtudaginn 27. júní 2002 í Kornhlöðunni,
Bankastræti, og hefst fundurinn kl. 15.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykktum
félagsins.
2. Önnur mál löglega borin upp.
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Íbúð óskast til kaups
Óska eftir að kaupa íbúð eða íbúðarhúsnæði
sem þarfnast standsetningar eða mikilla endur-
bóta. Upplýsingar í síma 849 7520.
Staðgreiðsla í boði.
TILKYNNINGAR
s.s. skrautmuni, bækur, myndir,
málverk, silfur, jólaskeiðar, gömul
póstkort og ýmislegt fleira.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Gvendur dúllari ehf.
UPPBOÐ
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hörðuvöllum
1, Selfossi, þriðjudaginn 25. júní 2002 kl. 10.00 á eftirfarandi
eignum:
Borgarheiði 19H, Hveragerði. Fastanr. 220-9938, þingl. eig. Hans
Christiansen, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Breiðanes, Gnúpverjahreppi. Landnr. 166542, þingl. eig. Kristjana
Bjarnadóttir, gerðarbeiðandi Glitnir hf.
Heiðmörk 42, Hveragerði. Fastanr. 221-0438, þingl. eig. Steindór
Gestsson, gerðarbeiðendur Hveragerðisbær og Sindra-Stál hf.
Lágengi 21, Selfossi. Fastanr. 218-6572, þingl. eig. Jórunn Elsa Ingi-
mundardóttir, gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf., Keflavík.
Litla-Fljót 1, Biskupstungnahreppi. Landnr. 167148, þingl. eig. Þórður
J. Halldórsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Selfossi.
Lóð úr landi Ingólfshvols, Ölfusi, matshl. 010107 (hús A), og matshl.
010108 (hús C), ásamt 15% hlutdeild í borholu í landi Sandhóls, þingl.
eig. Gerpla ehf., gerðarbeiðandi Búnaðarbanki Íslands hf.
Smiðjustígur 1, Hrunamannahreppi. Fastanr. 224-3688, þingl. eig.
Björn H. Einarsson, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki Íslands hf. og
Kreditkort hf.
Trausti ÁR-080, skipaskrárnr. 0133, þingl. eig. Spillir ehf., gerðarbeið-
andi Byggðastofnun.
Þórisstaðir, lóð nr. 10, Grímsness- og Grafningshreppi. Fastanr.
220-8455, þingl. eig. Skúli Óskarsson og Rós Jóhannesdóttir, gerðar-
beiðandi Landsbanki Íslands hf., Grindavík.
Öndverðarnes 2, Grímsness- og Grafningshreppi. Fastanr. 220-8648,
þingl. eig. Vilhjálmur Knudsen, gerðarbeiðendur Grímsness- og
Grafningshreppur og Tollstjóraembættið.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
19. júní 2002.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Lofgjörðarsamkoma í kvöld
kl. 20. Hilmar Símonarson og
Pálína Imsland stjórna. Kafteinn
Miriam Óskarsdóttir talar.
Allir hjartanlega velkomninir.
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20.00.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Ræðumaður Valdimar Júlíusson
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is .
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Bænastund kl. 20.30.
Samkoma kl. 20:30. Högni Vals-
son predikar. Lofgjörð, fyrirbæn-
ir og samfélag. Allir velkomnir.
Starf fyrir börn á aldrinum 4 til
10 ára. Ath. að unglingasam-
koman fellur niður á morgun
vegna útilegu í Húsafelli. Minn-
um á opið hús kl. 20:00 á sunnu-
dag. Farið verður í Efesusbréfið.
Allir velkomnir.