Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 11 MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Bj. Haf- þóri Guðmundssyni, bæjarstjóra Austur-Héraðs: „Í umfjöllun í Morgunblaðinu 30. maí 2002 (bls. 12) um fjárframlög til framboða vegna kosninga til sveit- arstjórna er vitnað í undirritaðan og sagt efnislega að Austur-Hérað hafi ekki styrkt framboð þar fyrir nýaf- staðnar kosningar. Er það í sam- ræmi við það, sem ég tjáði blaða- manni skömmu áður, þegar leitað var upplýsinga um, hvort svo hefði verið gert. Í leiðara blaðsins degi síðar kveð- ur við annan tón. Þar er því haldið fram að nokkur sveitarfélög, þ.á m. Austur-Hérað, hafi styrkt framboð við nýafstaðnar kosningar. Þetta er beinlínis rangt, hvað varðar Austur- Hérað og alls ekki í samræmi við til- vitnaða umfjöllun um málið. Til að taka af öll tvímæli sam- þykkti nýkjörin bæjarstjórn Austur- Héraðs svohljóðandi bókun á fyrsta fundi sínum 11. júní 2002: „Í leiðara Morgunblaðsins 31. maí sl. er fullyrt, að Austur-Hérað sé eitt af fáum sveitarfélögum, sem hafi styrkt framboð til sveitarstjórna með fjár- framlögum á bilinu 75 til 200 þúsund kr. Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að koma á framfæri leiðréttingu á þess- ari rangfærslu, enda er bæjarstjórn mótfallin því að sveitarfélagið veiti slíka styrki“.“ Aths. ritstj. Morgunblaðið biður bæjarstjóra Austur-Héraðs afsökunar á þessu ranghermi í forystugrein blaðsins 31. maí sl. Hafa skal það sem sannara reynist KVENNADAGURINN var í gær, 19. júní, og stóðu konur fyrir ýms- um uppákomum í tilefni dagsins. Kvennasögusafn Íslands kynnti til sögunnar nýja gönguleið í Reykjavík, sem gengur undir nafninu Kvennasöguslóðir í Kvos- inni. Fyrsta gangan var í gær og hófst hún í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Þar kynnti Auður Styrkársdóttir, forstöðumaður Kvennasögusafnsins, gönguleið- ina og Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir, borgarstjóri, hélt ávarp. Guð- jón Friðriksson, sagnfræðingur, gekk síðan fremstur í flokki og fræddi göngumenn um sögu leið- arinnar. Þá var vefrit hægrisinnaðra kvenna, Tikin.is - vefrit um póli- tík, einstaklingsfrelsi og jafnrétti, formlega opnað. Ritstjórn- arfulltrúar opnuðu ritið og Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir, al- þingismaður, ávarpaði gesti. Að Tikin.is standa ungar konur með skoðanir og segjast þær ekki vera hræddar við að lýsa þeim yfir, rökræða þær og gagnrýna. Á síð- unni eru daglegir pistlar jafnt sem lengri greinar, þar sem fjallað er um þjóðfélagsmál frá öllum sjónarhornum. Um kvöldið var að venju messa á vegum Kvennakirkjunnar við Þvottalaugarnar í Laugardal. Messan er haldin árlega og er í samvinnu við Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélagasamband Ís- lands. Séra Auður Eir Vilhjálms- dóttir prédikaði og Anna Sigríður Helgadóttir söng einsöng, auk þess sem kór Kvennakirkjunnar söng við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Að messu lokinni var kaffisamsæti í Café Flórunni í Grasagarðinum. Þá er 51. árgangur 19. júní, árs- rits Kvenréttindafélags Íslands, komið út og er ritstjóri þess að þessu sinni Arna Schram, blaða- maður. Meðal efnis í blaðinu eru greinar um hlutskipti kvenna í fangelsum, lífshættulegar afleið- ingar vændis og konur í heit- trúarsöfnuðum á Íslandi. Þess ber að geta að Kvenréttindafélag Ís- lands hélt upp á 95 ára afmæli sitt hinn 27. janúar síðastliðinn og hefur félagið fagnað þeim tíma- mótum með ýmsum hætti í ár. Kvennadagurinn haldinn hátíðlegur í gær með ýmsum uppákomum Messa við Þvottalaugarnar og gönguferð um kvennasöguslóðir Morgunblaðið/Þorkell Kvennakirkjan stóð fyrir hefð- bundinni messu við Þvottalaug- arnar í Laugardal í samvinnu við Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélagasamband Íslands. Það var séra Auður Eir Vil- hjálmsdóttir sem prédikaði. Morgunblaðið/Þorkell Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra ávarpaði hátíðarfund sem haldinn var í tilefni af kvennadeginum sem haldinn var hátíðlegur í gær. Fundurinn var haldinn á Hallveigarstöðum, þar sem Kvenrétt- indafélag Íslands er til húsa, og hófst hann að lokinni kvennagöngu sem Kvennasögusafn Íslands og Kvenréttindafélagið stóðu sameiginlega að. JÓHANNA Sigurðardóttir alþingis- maður hefur tilkynnt að hún sækist eftir fyrsta sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Reykjavíkur- kjördæmi syðra í næstu alþingis- kosningum og mikilvægt sé að flokk- urinn standi þannig að málum að sem flestir liðsmenn Samfylkingar- innar fái tækifæri til þess að velja á framboðslista. Þetta kemur fram á heimasíðu Jóhönnu, þar sem Sam- fylkingarfólk er einnig hvatt til mik- illar varfærni í Evrópumálum. „Sóknarfæri Samfylkingarinnar eru mörg í komandi alþingiskosning- um. Flokkurinn hefur alla burði til að halda stöðu sinni sem næst- stærsta stjórnmálaaflið í landinu og forystuafl í næstu ríkisstjórn. Undir forystu Össurar Skarphéðinssonar hefur Samfylkingin styrkst sem flokkur vinstra megin við miðju í ís- lenskum stjórnmálum. Flokkurinn hefur skýra framtíðarsýn sem bygg- ir á jöfnuði, lýðræði og ábyrgð. Und- irstöður þess eru traust velferðar- kerfi og afkomutrygging, sanngjarnt skattkerfi, kröftug menntastefna og framsýn og ábyrg atvinnu- og efna- hagsstefna,“ segir meðal annars á heimasíðunni, þar sem ákvörðun hennar er tilkynnt. Gallarnir fleiri en kostirnir Í umræðu um Evrópumálin á heimasíðunni segir Jóhanna að þó margir kostir séu við aðild að ESB séu gallarnir fleiri að hennar mati eins og staðan sé nú. „Skynsamleg- ast hefði verið að bíða með ákvörðun um hvort rétt sé að sækja um aðild að ESB m.a. þar til séð verður hvert þær viðræður munu leiða sem nú standa yfir um stækkun ESB til austurs. Þeim samningaviðræðum gæti lyktað með róttækum breyting- um á sambandinu, m.a. á styrkja- kerfi þess. Hlutur smáþjóða í ákvarðanatöku innan ESB gæti líka breyst, auk þess sem Íslendingar geta aldrei gengist inn á sjávarút- vegsstefnu sambandsins. Mjög mis- vísandi skilaboð eru um hvort líklegt sé að Evrópusambandið geti fallist á að viðurkenna sérstöðu Íslands og þar með yfirráðarétti Íslendinga yfir fiskimiðunum. Að mörgu leyti eru aðstæður aðrar hér á landi en í ESB- löndunum og áhrif aðildar á efna- hags- og peningamál eða atvinnustig því mjög óljósar, a.m.k. enn sem komið er,“ segir meðal annars á heimasíðunni. Hvatt til mikillar varfærni í Evrópu- málum Jóhanna Sigurðardóttir sækist eftir 1. sæti í Reykjavíkurkjör- dæmi syðra SEXTÁN ungmenni frá Kanada og Bandaríkjunum komu á mánudag til landsins á vegum Snorraverkefnisins. Snorraverkefnið er samstarfsverk- efni Norræna félagsins og Þjóðrækn- isfélags Íslendinga og gerir ungum Vestur-Íslendingum kleift að finna rætur sínar á Íslandi. Verkefnið er kennt við Snorra Þorfinnsson, son Þorfinns Karlsefnis og Guðríðar Þor- bjarnardóttur sem fæddist í Vestur- heimi fyrir réttum þúsund árum. Þetta er í fjórða sinn sem hópur kem- ur hingað til lands á vegum verkefn- isins og hafa allir þeir sem þátt hafa tekið verið einstaklega ánægðir og því hefur boðskapurinn borist hratt og örugglega um Norður-Ameríku. „Næstu sex vikurnar munu ung- mennin taka þátt í fjölbreyttri dag- skrá sem hefur það að markmiði að tengja þau fastari böndum við gamla landið. Fjölbreytt náms- og menning- ardagskrá verður haldin í Reykjavík með áherslu á námskeið í íslensku, sögu Vesturfaranna og sögu og menningu Íslands. Meðal þeirra sem bjóða þátttakendum verkefnisins í heimsókn eru forseti Íslands, utanrík- isráðherra, forsætisráðherra og sendiherra Kanada á Íslandi. SPRON styrkir þennan hluta dagskrárinnar. Eftir dvölina í Reykjavík fara þau út á land og dvelja þá hjá ættingjum sínum sem þau flest hafa ekki hitt áð- ur. Í þær þrjár vikur sem þau eru á landsbyggðinni taka þau þátt í starfs- þjálfun og koma ýmis fyrirtæki og sveitarfélög þar að. Að lokum fara þau í viku ævintýraferð um landið. Canadian National TV hefur hug á að gera heimildarmynd um verkefnið þetta árið. Frá upphafi hafa alls 60 ungir Vest- ur-Íslendingar tekið þátt í Snorra- verkefninu og hafa þátttakendur stofnað með sér nemendasamband (Snorri Alumni Association) sem hef- ur að markmiði að styrkja tengslin enn frekar, sem er enn einn liður í því að viðhalda þessum merkilega menn- ingararfi. Þann 28. júní nk. fer svo í annað skiptið hópur ungra Íslendinga til þess að taka þátt í 6 vikna dagskrá í Manitoba, Kanada, eða Snorra West verkefninu. Snorraverkefnið stefnir að því að bjóða fólki 35 ára og eldra að taka þátt í 2–3ja vikna dagskrá og einnig að bjóða afkomendum íslensku Brasilíufaranna að taka þátt á næsta ári,“ segir í fréttatilkynningu. Ungir Vestur-Íslending- ar í heimsókn hér á landi FÉLAG Íslendinga á Norðurlöndum hefur verið lagt niður og starfa því engin regnhlífarsamtök fyrir Íslend- ingafélögin á Norðurlöndum. Alex- ander Guðbjartsson, síðasti formað- ur félagsins, segir ástæðuna vera að grundvöllur félagsins hafi ekki verið fyrir hendi lengur. Hann segir að félagið hafi verið stofnað árið 1976 til að fá hagstæð kjör á farmiðum til Íslands fyrir Ís- lendinga búsetta á Norðurlöndun- um. Með tilkomu Netsins og mikillla breytinga á ferðamarkaði hafi verið erfiðara en áður að ná hagstæðu verði og afsláttarkjörum fyrir þenn- an hóp. Hann segir að félagið hafi einnig starfrækt menningarsjóð sem veittir voru styrkir úr til Íslendinga- félaganna til að halda uppi menning- arstarfi af ýmsum toga. Sjóðurinn hafi þó legið niðri síðustu fimm ár. Félagið hét áður Samband Íslend- ingafélaga og námsmannafélaga í Danmörku og Suður-Svíþjóð (SÍDS). Allir félagsmenn Íslend- ingafélaganna á Norðurlöndunum voru sjálfkrafa í félaginu og segir Al- exander að félagsmenn hafi verið 10–12 þúsund þegar mest var á ár- unum eftir 1990 og velta félagsins um 15 milljónir danskra króna. Frá 1995 hafi félögum fækkað ört, aðal- lega vegna þess að þá missti félagið fastan samning sem það hafði við Flugleiðir um afslátt fyrir fé- lagsmenn sína. Hann segir að fé- lögum í Svíþjóð hafi fækkað um helming á árunum 1995–2000. Félag Íslend- inga á Norð- urlöndum lagt niður ♦ ♦ ♦ NOKKURT tjón varð á dúkyfir- breiðslum hjá grænmetisbændum á Suðurlandi í rokinu á þriðjudag, en dúkurinn er notaður til þess að flýta fyrir sprettu útiræktaðra grænmet- istegunda. Helgi Jóhannesson, formaður Sambands garðyrkjubænda, sagði í samtali við Morgunblaðið að nokkuð hefði verið um það að dúkar hefðu fokið ofan af plöntum og rifnað og skemmst í rokinu. Tjónið hefði ekki verið tekið saman, en það hefði verið talsvert af dúk sem hefði eyðilagst. Síðan væri ekki vitað hvað yrði um plöntunar sem hefðu verið undir dúknum, en hann teldi að ekki hefði mikið af plöntum skemmst. Helgi sagði að bændur væru ekki tryggðir fyrir tjóni af þessu tagi. Skemmdir hjá grænmetis- bændum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.