Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ „ÞETTA er vissulega mikið áfall en það sem mestu máli skiptir er að áhöfnin er heil og allir hafa staðið sig með einstakri prýði, bæði þeir sem við höfum unnið með hér úti að björg- uninni og áhöfnin.“ Þetta segir Ás- björn Helgi Árnason, framkvæmda- stjóri útgerðarfélagsins Festi hf. sem er eigandi fjölveiðiskipsins Guðrúnar Gísladóttur KE-15 sem sökk við strendur Lofoten í Norður-Noregi í fyrrinótt. Skipið steytti á skeri á þriðjudags- morgun og stóð til að reyna að koma því á flot og draga skipið til hafnar á háflóði kl. 6 að íslenskum tíma í gær- morgun, en skipið losnaði frá skerinu þegar flæddi tveimum tímum áður og sökk. Ásbjörn segir að ekki sé hægt að segja að mistök hafi verið gerð. „Menn unnu þarna af miklum krafti, tóku málin föstum tökum og unnu vel og skipulega.“ Hann segir að lekinn að skipinu hafi greinilega aukist skyndilega með þeim afleiðingum að skipið sökk. Ekkert hafi verið hreyft við skipinu þegar það sökk. Öll áhöfnin að skipstjóra, yfirvél- stjóra, yfirstýrimanni og 1. vélstjóra undanskildum er komin heim til Ís- lands. Þeir sem enn eru í Noregi verða viðstaddir sjópróf vegna skip- skaðans sem fram fara í Svolvær á Lofoten á föstudag. Staðurinn þar sem skipið strandaði er utan siglinga- leiðarinnar til Lekness, en í Morgun- blaðinu í gær var haft eftir Helga Bjarnasyni háseta að skerin hefðu ekki verið á sjókortum skipsins og að norska strandgæslan hefði staðfest það. Við strandið kom stór rifa á skrokk skipsins að framanverðu og má sjá skemmdirnar að nokkru leyti á myndinni hér fyrir ofan. Sökk á innan við tíu mínútum Nokkru áður en Guðrún Gísladóttir sökk við strendur Lofoten í Norður- Noregi í fyrrinótt hafði skipstjóri skipsins farið um borð ásamt öðrum skipverja og tryggt að allir hlerar og vatnsþéttar hurðir væru lokaðar. Þá hafði skipið ekki tekið neitt vatn inn í skutulinn, að sögn Lars Drols- hammer, vakstjóra hjá Mengunar- vörnum norska ríkisins (SFT) sem hafa yfirumsjón með aðgerðum. Hann segir að enginn hafi gert sér grein fyrir því að vatn hefði lekið inn í afturhluta skipsins fyrr en skipið byrjaði að hreyfast, en eftir það var atburðarásin mjög hröð. Enginn var um borð í skipinu þegar þetta gerðist. Þegar flæddi að um morguninn losn- aði skipið frá skerinu og kom þá í ljós að flætt hafði inn í aftanvert skipið. Drolshammer segir að innan við tíu mínútur hafi liðið frá því skipið losn- aði frá skerinu og þar til það sökk. Skipið liggur nú á um 40 metra dýpi. Ekki hefur verið talið öruggt að kafa niður að skipinu en það stendur til að gera það, að sögn Drolshamm- ers. Net skipsins liggur á sjónum en það er enn fast við skipið sjálft. Mikið brak losnaði frá skipinu þegar það sökk og var unnið að því að hreinsa það upp í gær. 300 tonn af dieselolíu, 2 tonn af smurolíu og 870 tonn af frystri síld var um borð í skipinu þegar það sökk, en það var á leið inn til löndunar í Leknesi á Lofoten þegar það steytti á skeri. Norsk yfirvöld óttast mjög að olía leki frá skipinu og vaktar skip frá SFT sem búið er dælubúnaði svæðið. Þá eru tveir aðrir bátar með dælu- búnaði til taks í nágrenninu gerist þess þörf. Engin olía hefur lekið frá skipinu og segist Drolshammer bjart- sýnn á að svo verði ekki. Dieselolíu- geymarnir hafi verið óskemmdir þeg- ar skipið sökk. Samkvæmt norskum lögum skulu útgerðir þeirra skipa sem sökkva við strendur Noregs standa straum af kostnaði sem til fellur vegna aðgerða sem grípa þarf til vegna mengunar- hættu og hreinsunar á strandstað. SFT sendi útgerðarfélagi skipsins bréf í gær þar sem því var gefinn frestur til kl. 14 að íslenskum tíma í gær til að gefa út aðgerðaáætlun um hvernig það hyggðist standa að því að hreinsa olíuna úr skipinu. Fresturinn var síðar framlengdur til kl. 12 á há- degi í dag. Ásbjörn Helgi segir að nokkur norsk björgunarfyrirtæki vinni nú að því að meta aðstæður á strandstað til að bjóða í verkið. Hann segir að ekki sé búið að taka ákvörðun um hvort skipinu verði lyft af hafsbotni eða ol- íunni verði dælt úr skipinu. „Það er m.a. háð tryggingafélaginu og útgerð- inni og því hvernig aðstæður á strand- stað eru.“ Ásbjörn getur ekki sagt til um hver kostnaðurinn af því að lyfta skipinu upp gæti verið. Nú sé verið að skoða alla möguleika hvað það varðar. Útgerðin hafi ekki langan tíma til að skoða málið en margir vinni að því að meta aðstæður og það taki sinn tíma. Drolshammer segir að skipum hafi oft verið lyft af hafsbotni í sambæri- legum tilfellum. Guðrún Gísladóttir sé nýtt og vel búið skip og því sé það áhugaverður kostur fyrir útgerðina að geta náð skipinu upp af hafsbotni. Einnig komi til greina að dæla olíunni úr skipinu. Samkvæmt norskum lögum gerir SFT athugasemdir ef stofnunin er ekki nógu ánægð með þær aðgerðir sem útgerðin hyggst grípa til og sé ekki farið að tilmælum SFT getur stofnunin tekið við aðgerðunum á kostnað útgerðarinnar. „Lögin gefa okkur þennan möguleika en við von- um að til þess þurfi ekki að koma. Við vonum að útgerðin axli sína ábyrgð sem hún hefur gert og vinni gott starf,“ segir Drolshammer. Sjöunda stórtjón Trygginga- miðstöðvarinnar síðustu 3 ár Guðrún Gísladóttir KE-15 var tryggð hjá Tryggingamiðstöðinni hf. Húftrygging skipsins hljóðar upp á rúma tvo milljarða króna, en auk þess voru veiðarfæri og aflinn tryggður. Ágúst Ögmundsson, aðstoðarforstjóri TM, segir að tryggingafélagið beri um 100 milljónir af þeim kostnaði, kostnaður umfram það falli á endur- tryggjendur í Evrópu. Festi sé tryggt fyrir um 30-35 millj- ónum króna hvað varðar kostnað vegna aðgerða á strandstað, t.d. vegna mengunar. Það sem er umfram þetta falli á útgerðina sjálfa. Hann segir þetta þó óstaðfestar tölur, það eigi eftir að bera saman íslenskt og norskt lagaumhverfi og það þurfi að ganga úr skugga um ýmis atriði áður en það liggur ljóst fyrir. Tryggingamiðstöðin sendi tilkynn- ingu á Verðbréfaþing Íslands í gær um tjónið. Ágúst segir að þetta sé sjö- unda stóra tjónið sem falli á félagið síðustu 3 ár. TM hefur á þeim tíma þurft að bæta fimm stórbruna, í Ís- félaginu, Lýsi hf., Strýtu landvinnslu Samherja á Akureyri, Íslenskum matvælum og togaranum Hannover. Þá tryggði félagið einnig togarann Ögmund sem sökk undan ströndum Íslands í fyrra. „Sem betur fer erum við vel endurtryggðir og traust félag,“ segir Ágúst. Hann segir að hagnaður félagsins verði minni á næsta ári vegna þessa atburðar, einnig megi ætla að endurtryggingakjör félagsins verði lakari í framtíðinni. Sjópróf vegna strands Guðrúnar Gísladóttur KE-15 fara fram á föstudag Mikið áfall en mestu skipt- ir að áhöfnin er heil á húfi Ljósmynd/Skomvær III Guðrún Gísladóttir KE-15 sökk klukkan 3:45 að íslenskum tíma í fyrri- nótt. Hér má sjá skemmdirnar sem komu á skut skipsins við strand þess. Stálskip smíðað í Huangpua í Kína árið 2001. Nóta- og togskip. Eigandi: Útgerðarfélagið Festi hf. Grindavík. Smíðaflokkun: Det Norske Veritas. Brúttórúmlestir: 1301. Brúttótonn: 2626. Nettótonn: 1052. Mesta lengd: 71,48 m. Skráð lengd: 64,30 m. Breidd: 14 m. Dýpt: 9,65 m. Vél: Bergen Diesel 5299 kW (7200 hö). Aflvísir: 27337. Guðrún Gísladóttir KE-15 var eitt stærsta og öflugasta skip ís- lenska flotans. Það kom til heima- hafnar í Keflavík í september síð- asta haust frá Kína. Um borð í skipinu eru fjórar flökunarvélar fyrir síld, hver þeirra annaði 25 tonnum á sólarhring miðað við fulla keyrslu. Frystitækin um borð eru gefin upp fyrir 180 tonna frystigetu á sólarhring. Í skipinu er 1.500 rúmmetra frystilest og að auki rými fyrir hráefni í tönkum sem taka 700–800 tonn. Guðrún Gísladóttir KE-15 Morgunblaðið/Jón Páll Segir að koma hefði mátt í veg fyrir að báturinn sykki SKIPSTJÓRINN á dráttarbátnum Nordbever staðhæfir að bjarga hefði mátt íslenska togaranum Guðrúnu Gísladóttur ef fyrr hefði verið hafist handa við að draga hann af strand- stað. Skipstjórinn segir að skipstjóri íslenska togarans og aðrir stjórnend- ur á strandstað hafi komið í veg fyrir að hann hæfist handa fyrr. Þetta kemur fram á netútgáfu norska dagblaðsins Lofotposten í gær. Í samtali við blaðið segir Arnt Enebakk, skipstjóri dráttarbátsins, að hann hafi óskað eftir því að byrja að draga skipið af strandstaðnum strax um sjöleytið á þriðjudagskvöld. „Það var háflóð um 45 mínútum síð- ar. Ef ég hefði fengið að hefjast handa hefði togaranum verið bjarg- að. Áður en skipstjórinn stöðvaði mig tókst mér að flytja togarann svo mik- ið að aðeins einn þriðji hluti hans var á skerinu og hann lá vel í sjónum,“ segir Enebakk í samtali við blaðið. Lokuðu ekki lúgum eftir dælingu Þegar svo var komið var ákveðið að bíða með að draga skipið lengra en í staðinn var sjó dælt úr skipinu. Seg- ir í blaðinu að við það hafi skipið misst stöðugleikann og smám saman hallast meira eftir því sem leið á kvöldið. Eins undarlegt og það virð- ist hafi þeir sem tæmdu skipstank- ana, skipstjórar Guðrúnar Gísladótt- ur og landhelgisgæsluskipsins Sjøveien, ekki lokað lúgum togarans að lokinni dælingu. Um klukkan fjögur hafi Enebakk loks fengið leyfi frá skipstjóra Guð- rúnar Gísladóttur til að halda áfram dráttaraðgerðunum en þá hafi það verið um seinan. „Ég dró skipið af skerinu en á leiðinni á áfangastað sökk það. Ég hefði getað sagt þeim að það myndi gerast um leið og sjón- um var dælt úr skipinu og það missti stöðugleikann,“ segir Enebakk. Í blaðinu er hann spurður að því hver beri höfuðábyrgð á að togaran- um varð ekki bjargað. „Það hlýtur að vera skipstjórinn sem meinaði mér að byrja að draga meðan enn var tími til þess. Það voru of margir stjórn- endur og enginn tók af skarið. Það var alveg óþarft að láta skipið sökkva,“ segir Enebakk í samtali við Lofotposten. Skipstjórinn á drátt- arbátnum Nordbever vildi hefja aðgerðir fyrr NEYÐARNEFND bæjarfélagsins Vestervågøy, sem strandstaður frystitogarans Guðrúnar Gísla- dóttur tilheyrir, hélt fund í gær til að ræða þá mengunarhættu sem stafar af skipinu. Að sögn Lars Antonsen hjá norska dagblaðinu Avisa Nordland stýrir nefndin neyðaráætlun sveit- arfélagsins þegar slíkar aðstæður skapast. Hann segir að á fundinum hafi verið rætt um aðgerðir vegna mengunarhættu frá skipinu og nefndin vilji tryggja að fjármagn verði fyrir hendi til að grípa til við- eigandi aðgerða ef svo ber undir. Á fundinum var ákveðið að vera í stöðugu sambandi við Meng- unarvarnir norska ríkisins (SFT) að sögn Antonsens. Neyðarfundur í bæjar- félaginu Vestervågøy

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.