Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 27 u Péturs n hefur stu skipta nn skilar sé hug- betri en fi af hug- átti ég tal mfríði Sig- pp á Sól- af hægri samtalinu skoðunar æmi ein- r mína til á Sól- og upp- ar mikla hennar,“ ostlegt af- rs Svein- eina væri heimum í ir. Móðir að mað- n gerði en gði né því g því ætti skoða það og lesti, en verkin Sesselja á Brúsa- stórri og elst átta einssonar Kristínar brosmild, usöm við akt sam- dýranna á ás á eftir álengdar. r líka ein- ngu fyrir fir. Þegar Rudolfs un, safn- ur næðist ma þegar maði það in tilfinn- átti segja eilbrigðis- skólamál- undvallar n lagar að og eigin ð aldrei skilningi einhverj- um. Þess r mark á um, hvort estar eða ráðherrar ef hún taldi sig vita bet- ur. Og þegar fram liðu stundir sannaði reynslan að hún hafði á réttu að standa. Sesselja Sigmundsdóttir var ekki ung og óraunsæ draumóramann- eskja þegar hún stofnaði Sólheima 1930, heldur sjálfstæð kona með umtalsverða reynslu í farangrinum. Hugmyndin að stofnun barnaheim- ilis fyrir umkomulaus börn bærði fyrst á sér þegar hún fór með Þórði Thoroddsen lækni um bæinn í spönsku veikinni 1918 sextán ára gömul og líknaði og liðsinnti eftir föngum á heimilum þar sem skap- ast hafði neyðarástand vegna veik- inda og dauðsfalla. Á þessum vikum rann upp fyrir henni að fjöldi barna bjó við óbærilegar aðstæður og fátt um opinber úrræði. Árið eftir fékk hún starf sem matráðskona í danska sendiráðinu á Íslandi og sinnti því með þeim ágætum að sendiráðsritarinn bauð henni starf í Kaupmannahöfn þegar hann var fluttur til í starfi. Hún þáði það og líkaði vel í Höfn, hikaði þegar henni var boðið að flytjast með hjónunum til Bern í Sviss, en lét slag standa og vann þar í tvö ár. Vinnuveitendur hennar sýndu henni mikla velvild og vináttu, hún eignaðist góða vini í öðrum sendi- ráðum í Bern og öðlaðist innsýn í umgengnisvenjur og starfshætti fólks í utanríkisþjónustu. Þegar hún sneri heim frá Sviss hafði hún gert upp við sig hvernig hún vildi verja lífi sínu. Foreldrar hennar heyrðu nú fyrst um þann ásetning hennar að setja á stofn heimili fyrir umkomulaus börn. Bað hún föður sinn að vera sér innan handar við að finna jörð en það yrði að vera hverjörð. Taldi að bærinn myndi hugsanlega veita henni styrk í þessu augnamiði því að það þjónaði líka hagsmunum bæjarins að setja á stofn slíkt heimili. Hún hugsar sér að reka þar myndarlegt bú og einnig margskonar fram- leiðslu til að afla tekna. Í minnisbók hennar frá þessum tíma er langur minnislisti tengdur þessum áform- um og þar stendur meðal annars þessi setning: „Fyrir jólin – Hafa alltaf miklar útstillingar, basar, bögglauppboð. Hafa alltaf miklar auglýsingar þegar útlendingar koma. Tungumál. Verð, má til.“ Þessi orð endurspegla vel hvað þessi hugsjónakona var jarðbundin og hagsýn. Næstu árin var Sesselja við nám og störf í Danmörku og Þýskalandi. Hún kynnti sér uppeldismál, hjúkr- un barna, garðrækt, vefnað og margs konar smávöruframleiðslu. Eftir að hún varð fyrir tilviljun vitni að ótvíræðum árangri kennsluað- ferða Rudolfs Steiners ákvað hún að kynna sér þær, fyrst í Þýska- landi og síðan í Dornach í Sviss. Þar kynntist hún þjálfun þroskaheftra barna og viðhorfum til þeirra sem þá voru óþekkt á Íslandi. Hún kynntist einnig og vann með há- menntuðum læknum, tónlistarfólki og kennurum. Naut þess mjög að umgangast þetta fólk og eignaðist þarna ævivini. Fór alltaf öðru hvoru til Dornach í áranna rás og var þar í miklum metum. Þessi sterka og kærleiksríka kona var því býsna veraldarvön þegar hún stofnaði Sólheima og þarf engan að undra að hún kiknaði ekkert í hnjánum þó að háskólalærðir kontóristar á Íslandi byrstu sig við hana. IV Árið 1932, tveimur árum eftir stofnun Sólheima, voru sett lög um barnavernd á Alþingi. Sesselja fagnaði mjög þeirri réttarbót sem hún taldi þessi lög vera fyrir íslensk börn en fljótlega kom í ljós að þeir sem kjörnir voru til að fylgja þeim eftir höfðu aðrar hugmyndir en hún um hvernig reka ætti heimilið og fóru nú að segja henni fyrir verkum á ýmsum sviðum. Næstu tvo áratugina skarst oft í odda og stundum mjög alvarlega. Helsti ásteytingarsteinninn var fæði barnanna en ótækt þótti með öllu að uppistaðan í því væri græn- meti. Í engu var litið til heilsufars barnanna sem var óvenju gott og alls kyns kvilla sem hurfu eftir að börnin höfðu verið á Sólheimum um tíma. Annað helsta ágreiningsefnið var sú ósvinna að fósturbörn heim- ilisins þyrftu að hafa fyrir augum þroskaheft fólk. Steininn tók úr þegar unglingsdrengir á heimilinu voru látnir aðstoða við umönnun þroskaheftra þegar mannekla var á staðnum. Um þetta sagði Sesselja í svari sínu við einni af fjölmörgum skýrslum og ákærum sem hún þurfti að sóa tíma sínum í að svara á þessum árum: „Vanþroska börn hafa fullan rétt á að umgangast algefin börn í dag- legu lífi manna, og það gerir þeim síðarnefndu engan skaða. Að heil- brigðu börnin geti orðið fyrir þeim áhrifum frá örvitum sem valdið geti þeim hræðslu, forðast heimilið vit- anlega stranglega.“ Fósturbörn Sesselju voru alin upp við að hinir þroskaheftu jafn- aldrar þeirra væru fallegar sálir í erfiðum líkama en ekki fatlað fólk í þeim skilningi sem ríkjandi viðhorf gerði kröfu til. Þessi barátta stóð í mörg ár og allt tínt til í aðförinni að Sesselju. Kennari sem kom til starfa á Sól- heimum var yfirmáta alúðlegur við annað starfsfólk og nágranna heim- ilisins. Sagði í einkasamtölum að ýmislegt mætti betur fara hjá Sess- elju, ráðamenn í Reykjavík væru ekki hrifnir og teldu nauðsynlegt að losna við hana af staðnum. Hefðu hvatt sig til að setja sig inn í mál með það fyrir augum að taka við, ef svo mætti verða. Sesselja vissi ekki af þessum undirróðri fyrr en síðar en lét þennan mann fara þegar hann braut alvarlega af sér. Kenn- arinn kærði hana til barnaverndar- ráðs, sem nú hafði plagg í mörgum liðum frá þessum umbótasinnaða starfsmanni í höndum og nú var lát- ið til skarar skríða. Formaðurinn hélt rakleitt á fund Sesselju og sagði að nú lægi fyrir kæra frá góð- menninu og ekki um annað að ræða fyrir hana en hætta, annars gengi málið lengra. Hann væri þegar bú- inn að ræða við yfirvöld um það sem nú til dags kallast starfslokasamn- ingur. Henni þótti þetta naumast svaravert. Næstu mánuði heldur stríðið áfram og þegar upp er staðið hefur barnaverndarráð formlega svift hana réttindum til að stjórna heim- ilinu og fengið menntamálaráð- herra til að taka Sólheima leigu- námi því að öðruvísi var ekki hægt að reka hana af staðnum. Það var gert með bráðabirgðalögum nokkr- um dögum áður en þing kom saman haustið 1946 og því bersýnilegt að mikið lá á. Áður en lögin eru sam- þykkt segir ríkisstjórnin af sér, frumvarp um leigunám Sólheima var ekki tekið aftur á dagskrá og bráðabirgðalögin því úr gildi fallin. Tveimur árum síðar, þann 19. apríl 1948, ógilti síðan hæstiréttur úr- skurðinn um sviptingu leyfis Sess- elju til forstöðu barnaheimilisins. Meðan á öllu þessu stóð var daglegt líf á Sólheimum eins og ekkert hefði í skorist þó að eflaust hafi forstöðu- konan oft legið andvaka um nætur. Á öllum stigum málsins, allt fram að setningu bráðabirgðalaganna, hefði málið getað gengið til baka ef Sesselja hefði gengið að skilmálum barnaverndarráðs. En rauði þráð- urinn í allri hennar baráttu var sá, að þó að hún væri reiðubúin til að ræða mál og eiga gott samstarf við þetta fólk eins og annað þá sætti hún sig aldrei við að opinberir að- ilar né aðrir hefðu íhlutunarrétt um innra starf Sólheima. Fólk sem vildi ekki skilja hvað hún var að gera. Með þeirri sannfæringu var hún reiðubúin til að standa eða falla. V Sesselja giftist Þjóðverjanum Rudolf Noah 17. mars 1949. Hann var þá nýkominn til landsins eftir níu ára aðskilnað þeirra, en hann var sóttur af breskum hermönnum til Sólheima á afmælisdegi Sesselju 5. júlí 1940 og fluttur í fangabúðir í Bretlandi. Noah, sem kom fyrst til Sólheima árið 1935, var fínlegur listamaður, menntaður í hljóðfæraleik, söng- fræðum og uppeldisfræði. Hann hafði einlægan áhuga á börnum, lagði sig mjög fram um að glæða hjá þeim fegurðarskyn og listsköp- un og náði undraverðum árangri með þroskaheftu börnin. Hann varð smám saman hægri hönd Sesselju, hún naut bersýnilega samvista við hann og engum duldist hvaða hug hann bar til hennar. Enginn sá henni þó bregða þegar hann var sóttur þennan sólskinsdag í júlí og þau kvöddust með handa- bandi í allra viðurvist. Daginn sem hann sneri aftur fór hún til Reykja- víkur til að taka á móti honum og þegar þau komu til Sólheima voru þau búin að gifta sig. Það var bjart yfir Sólheimum þetta vor en bæði Sesselja og Noah voru um margt ólík fólkinu sem kvaddist níu árum áður. Hún hafði gengið gegnum þrengingar sem gerðu hana enn sjálfstæðari og sterkari en áður, en jafnframt tekið toll af heilsu henn- ar. Áður voru þau samstarfsaðilar, nú er hún ein stjórnandi enda er hann kennari og listamaður og fer aldrei í útiverk. Starfsemin á Sól- heimum var orðin meira lituð af fjármálum og ýmsum umsvifum sem kom að vonum niður á listræn- um og andlegum viðfangsefnum. Noah vill að þau fari saman til út- landa og starfi þar við tryggari af- komu og skilning á því sem þau eru að gera. Hún undrast að honum skuli koma í hug að hún geti gengið frá lífsstarfi sínu. Hann vill fá ung börn til Sólheima, hafa þau í nokkur ár og koma þeim til nokkurs þroska en senda þau annað þegar þau hafa lært það sem hægt er að kenna þeim. Hann lítur á Sólheima sem uppeldisstofnun og skóla en hún lít- ur á staðinn sem heimili og íbúana sem börnin sín. Í mars 1953, réttum fjórum árum eftir að þau gifta sig, fer Rudolf Noah frá Sólheimum fyrir fullt og allt. Hún tekur það mjög nærri sér en lætur hann fara. Er hvorki tilbúin til að gera Sól- heima að stofnun né fara með Noah út í heim. Þau sjást aldrei aftur en skrifast á þar til hann fellur frá árið 1967. VI Hvað sem líður því sem hér hefur verið rakið um baráttu Sesselju fyr- ir því sem hún trúði á og skilnings- leysi og hörku ráðamanna, þá er al- veg ljóst að þetta voru allt vandaðir menn með einlægan áhuga á vel- ferð þeirra barna sem uxu úr grasi á þessum afskekkta stað, bæði þeirra sem voru þroskaheft og hinna. Hins vegar voru þeir auðvit- að varðmenn ríkjandi viðhorfa og treystu að vonum áliti lærðra lækna og sálfræðinga. Þess utan hafa menn yfirleitt beyg af því sem er framandi og ótrú á því sem þeir skilja ekki. En það kemur ekki í veg fyrir að þeir hafi háværar skoðanir á því. Þó að Sesselja Sigmundsdóttir hafi verið óvenjulega heilsteypt og sterk kona var hún ekki hafin yfir gagnrýni. Stjórnarformaður Sól- heima er ekki heldur yfir gagnrýni hafinn, ekki ráðherra, ekki formað- ur Sólheimasamtakanna og ekki við hin. Það er bara ekki þessi gagn- rýni eða tilefni hennar sem skiptir máli, heldur framgangur málsins sem hér er til umfjöllunar: arfur Sesselju Sigmundsdóttur og fram- tíð Sólheima í Grímsnesi. Það er al- veg ljóst að umfjöllun um staðinn, dylgjur um óreiðu, skætingur í garð stjórnarformannsins og hástemmd- ar yfirlýsingar koma að Sólheimum á þessum tímamótum eins og leiftur frá liðnum tíma. Gleðin sem um mann streymir yfir því að hafa átt svona konu sem stækkaði umhverfi sitt og var sannkallaður þjóðarsómi ætti að vera ríkjandi á hennar heið- ursdegi en ekki minningar um göm- ul ónot sem hafa verið dubbuð upp í nýjan búning. Á Sólheimum er risið lítið þorp sem á sér naumast hliðstæðu og er talið elsti staður sinnar tegundar í heiminum. Í einu virtasta tímariti samtímans um umhverfismál, The Ecologist, eru talin fjögur slík í Evrópu og þar eru Sólheimar efstir á blaði. Þetta er mikil viðurkenning fyrir fyrsta íslenska umhverfissinn- ann, Sesselju Sigmundsdóttur, en einnig Pétur Sveinbjarnarson, sem hefur fylgt eftir hugsjón og hug- myndum frumherjans af dæma- fárri trúmennsku. Í þessu litla dal- verpi ólust venjuleg börn og þroskaheft upp saman, fermdust saman og unnu saman. Þroskaheft- um sem öðrum var kennt að njóta tónlistar, leiklistar og skapandi vinnu. Það er því sérstaklega við hæfi að þarna skuli vera kominn höggmyndagarður, listaverk sem í daglegu lífi blasa við augum þeirra sem virkilega kunna að gleðjast yfir formi og fegurð. Þarna er rekin skógræktarstöð, starfað við garðyrkju, kertagerð og hvers kyns handmennt, færð upp leikrit og söngleikir og þarna er vagga lífrænnar ræktunar á Ís- landi, ef ekki á Norðurlöndum. Í samskiptum við fatlaða íbúa stað- arins er sjálfsvirðing þeirra í brennidepli en ekki fötlun þeirra. Það er þessi heildarmynd og saga staðarins, en ekki einhver einn þáttur, sem gerir þenna blett svo einstakan á Íslandi að ráðamenn ættu að leiða þangað erlenda gesti sína með meira stolti en á aðra staði, að Þingvöllum einum undan- skildum. Ég er þess ekki umkomin að leggja mat á skýringar sem nefndar hafa verið til sögunnar á umrótinu kringum Sólheima upp á síðkastið en það sem ber í milli virðist vera matsatriði. Með hliðsjón af sögu Sólheima og því einstæða starfi sem þar fer fram, finnst mér ekki ósanngjarnt að ætlast til þess að þetta mál sé leyst með siðuðum hætti við fundaborð en ekki í fjöl- miðlum. Loks má velta fyrir sér, í fram- haldi af þessu tiltekna máli, hvort ekki sé tilefni til að skilgreina Sól- heima með formlegum hætti sem sérstakt þorp með ákveðnar vel út- listaðar kvaðir, þar á meðal þjón- ustu við fatlaða, og setja það á fjár- lög sem slíkt. Enginn þarf að láta sér til hugar koma að allir yrðu ánægðir og sáttir við það frekar en annað sem er einstakt og framandi en þá verða þeir að höggva á hnút- inn sem eru meira fyrir að leysa vandamál en búa þau til. Þeir sem þora. Sesselja Sigmundsdóttir á góðri stund með börnum á Sólheimum. Höfundur er rithöfundur. Í tilefni aldarafmælis Sesselju Hreindísar Sigmundsdóttur, forstöðu- konu og stofnanda Sólheima, gaf Íslandspóstur út frímerki 16. maí sl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.