Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Festi hf. hefur frest þar til á hádegi í dag til að skila tillögum um til hvaða aðgerða verði gripið til að koma í veg fyrir mengunarslys eftir að Guðrún Gísla- dóttir KE-15 sökk við Lofoten í fyrrinótt með 300 tonn af olíu og 870 tonn af frystri síld innanborðs. Norsk björgunarfyrirtæki hafa boð- ist til að skoða aðstæður á slysstað og gera tilboð í að hífa skipið af hafs- botni. Einnig kemur til greina að dæla olíunni úr skipinu. Sjópróf fara fram á föstudag í Svolvær á Lofoten og eru fjórir úr áhöfninni enn á staðnum, en hinir skipverjarnir komu til landsins í gær. Samkvæmt norskum lögum bera eigendur skipa sem sökkva við strendur Noregs allan kostnað af slíkum framkvæmdum. Skipið var húftryggt hjá Tryggingamiðstöðinni hf. fyrir rúma tvo milljarða króna, auk þess sem afli og veiðarfæri eru tryggð hjá félaginu. Gera má ráð fyr- ir að Tryggingamiðstöðin beri um 100 milljónir af kostnaðinum og end- urtryggjendur það sem umfram fell- ur. Þetta er sjöunda stórtjónið sem fellur á félagið síðustu 3 ár, að sögn Ágústs Ögmundssonar, aðstoðarfor- stjóra Tryggingamiðstöðvarinnar. Mengunarvarnir norska ríkisins (SFT) gáfu Festi hf. frest til klukkan 14 að íslenskum tíma í gær til að skila aðgerðaáætlun en eftir viðræð- ur við útgerðina samþykktu Norð- mennirnir að framlengja frestinn til hádegis í dag. Lögum samkvæmt getur SFT krafist frekari aðgerða verði stofnunin ekki ánægð með til- lögur útgerðarinnar og loks getur hún yfirtekið aðgerðirnar á kostnað íslensku útgerðarinnar. „Lögin gefa okkur þennan möguleika en við von- um að til þess þurfi ekki að koma. Við vonum að útgerðin axli sína ábyrgð, sem hún hefur gert og vinni gott starf,“ segir Lars Drolshamm- er, vaktstjóri hjá SFT. Óttast enn olíumengun Guðrún Gísladóttir liggur á um 40 metra dýpi, en skipið sökk öllum að óvörum rétt fyrir klukkan 4 í gær- nótt að íslenskum tíma. Enginn var um borð þegar skipið sökk. Þegar flæddi að um morguninn rann skipið af skerinu sem það strandaði á og kom þá í ljós að vatn hafði runnið inn í skut skipsins, en gat kom á stafn þess þegar það steytti á skeri á þriðjudagsmorgun. Skipið sökk á innan við tíu mínútum, að sögn Drolshammers. Hann segir að skip- stjóri skipsins hafi farið ásamt yf- irvélstjóra um borð fyrr um nóttina og lokað öllum vatnsþéttum dyrum og hlerum. Þá hafi ekkert vatn flætt inn í aftari hluta skipsins. Norsk yfirvöld óttast enn olíu- mengun frá skipinu en Drolshamm- er segist bjartsýnn á að svo verði ekki. Útgerðarfélagið Festi hf. hefur frest til hádegis til að skila aðgerðaáætlun Útgerðin ber allan kostn- að af framkvæmdum Ljósmynd/Skomvær III Guðrún Gísladóttir KE-15 sökk á innan við 10 mínútum klukkan 3.45 í fyrrinótt að íslenskum tíma við strendur Lofoten í Norður-Noregi. Sjópróf vegna strandsins fara fram á Lofoten á morgun, föstudag.  Mikið áfall/6 Í FORNLEIFAUPPGREFTRI í Skálholti í gær kom í ljós búnaður sem líklegt er talið að geti hafa verið miðstöðv- arkynding. Kyndingin er í skólahúsi sem notað var á 18. öld, en húsið hrundi í Suðurlandsskjálftanum 1784. Búnaðurinn sam- anstendur af hallandi stokk og holum hellukassa sem stendur neðst í hallanum. Að sögn dr. Orra Vésteinssonar fornleifafræðings, eins af verkefnisstjórum uppgraft- arins í Skálholti, er líklegt að á hellukassann hafi verið settur ofn sem hitaði helluna og þar með loftið undir henni, og þaðan hafi það verið leitt gegnum stokkinn undir trégólf hússins. Ekki er vitað til þess að útbún- aður af þessu tagi og frá þessum tíma hafi áður verið grafinn upp á Íslandi. Fornleifafundur í Skálholti Miðstöðvarkynding frá 18. öld fannst Gamla skólahúsið í Skálholti. Framar- lega fyrir miðju má sjá hellukassann, en frá honum lá „hitaveitustokkur“ upp hallandi gólfið. Á veggnum til hægri eru leifar óns, en vinstra megin má sjá göng inn í svefnskála Skálholtspilta. Eina skýringin / 31 Morgunblaðið/Halldór Kolbeins DÆMI er um 631% verðmun á vörum í níu heilsuvöruverslunum í Kaupmannahöfn og Reykjavík, sam- kvæmt verðkönnun ASÍ og Morgun- blaðsins. Könnunin var gerð föstu- daginn 1. júní sl. Mesti hlutfallslegi verðmunurinn, 631%, á við hæsta verð á kílói af gulrótum, sem var 876 krónur kílóið í Lífsins lind í Hag- kaupum og lægst 120 krónur í stór- versluninni ISO í Kaupmannahöfn. Hlutfallslegur munur á hæsta og lægsta verði á sojamjólk var 35–64%, 59% á lífrænni nýmjólk, 277% á eggjum varphæna í lausagöngu og 98–122% á hrísgrjónamjólk. Lægsta verðið á sojamjólk var í Fjarðar- kaupum og á lífrænni nýmjólk, eggj- um og hrísgrjónamjólk í Kaup- mannahöfn. Þá mældist 267% munur á hæsta og lægsta verði á spelti milli heilsuvöruverslana Kaupmanna- hafnar og Reykjavíkur og 368% munur á hæsta og lægsta verði á haframjöli. Verðmunur á lífrænum agúrkum var mestur 258% og reyndust þær dýrastar í versluninni ISO í Kaup- mannahöfn. Hæsta kílóverð á lífrænt ræktuðum eplum var 215% hærra í Reykjavík en lægsta verð í Kaup- mannahöfn og á lífrænum appelsín- um reyndist hæsta verð 241% hærra hér heima en lægsta verð ytra. Þá kostaði 500 ml flaska af ólífuolíu 1.131 krónu í Reykjavík og 555 krón- ur í Kaupmannahöfn, sem er 104% munur. Þess má geta að Heilsuhúsið var 14 sinnum með hæsta verðið, Lífsins lind í Hagkaupum 12 sinnum og Blómaval 10 sinnum. Verðkönnun í Reykja- vík og Kaupmannahöfn Dæmi um 631% verð- mun í heilsuvöru- verslunum  277% verðmunur/22 LAGT verður til á fundi stofn- fjáreigenda Sparisjóðs Reykja- víkur og nágrennis, SPRON, föstudaginn 28. júní nk., að til- lögu stjórnar sparisjóðsins um hlutafjárvæðingu hans verði hafnað. Tveir stofnfjáreigendur, Benedikt Jóhannesson og Ingi- mar Jóhannsson, hafa sent stjórn sparisjóðsins erindi þessa efnis og er ástæðan sú að þeir telja að með formbreytingu sparisjóðsins í hlutafélag muni stofnfjáreigendur bera skarðan hlut frá borði. Til vara gera Benedikt og Ingimar tillögu um að sjálfs- eignarstofnun, sem stjórn sjóðs- ins leggur til að fara muni með 90% af atkvæðum hlutafélags- ins, muni þess í stað fara með 5% atkvæðamagnsins eftir formbreytinguna. Ekki samstaða um hluta- fjárvæðingu SPRON  Leggja til/C12 FIMM piltar voru í gær dæmdir til að greiða sektir fyrir að hafa ásamt fleirum stolið þremur golfbílum úr geymslu Golfklúbbs Reykjavíkur á Korpúlfsstöðum og síðan ekið þeim þaðan, um Korpúlfsstaðaveg og það- an á göngustíg að Geldinganesi. Piltarnir játuðu allir brot sitt og kváðust iðrast þess en enginn þeirra hafði áður komist í kast við lögin. Þá voru þeir allir ungir að árum þegar brotið var framið og aðeins einn þeirra hafði náð 18 ára aldri. Til þessa var litið við ákvörðun refsing- ar. Var þeim gert að borga sektir, frá 25.000 til 55.000 króna. Sá sem hlaut hæstu sektina var einnig dæmdur fyrir hylmingu með því að aka tilgreindum mönnum og flytja í sömu ferð sex kassa af bjór sem hann vissi að þeir höfðu stolið. Að launum hlaut hann eina kippu. Bótakröfum Sjóvár-Almennra og Golfklúbbs Reykjavíkur var vísað frá dómi, en í dómnum segir að skaðabótakrafa skuli ekki tefja með- ferð sakamála. Hjördís Hákonar- dóttir héraðsdómari kvað upp dóm- inn. Hjalti Pálmason sótti málið fyrir hönd lögreglustjórans í Reykjavík. Sektaðir fyrir að stela golfbílum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.