Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
TVEIR piltar, báðir fæddir árið 1983,
voru í gær dæmdir í fangelsi fyrir að
nauðga stúlku sem var þá tæplega
sautján ára gömul. Elvar Þór Sturlu-
son var dæmdur í tveggja ára fang-
elsi en Gunnar Jóhann Gunnarsson í
22 mánaða fangelsi. Mismunur á
refsiþyngd skýrist af því að eldri
refsidómar voru felldir inn í dóminn
fyrir nauðgunina.
Í dómi Héraðsdóms Reykjaness
segir að háttsemi þeirra hafi verið
svívirðileg og einkar niðurlægjandi
en á tímabili nauðguðu þeir stúlkunni
báðir á sama tíma.
Báðir neituðu að hafa nauðgað
stúlkunni. Gunnar Jóhann bar fyrir
sig algjöru minnisleysi um atburði
sökum ofneyslu áfengis og fékk sá
framburður nokkra stoð í framburði
Elvars Þórs. Taldi dómurinn að virða
bæri neitun hans í því ljósi.
Fram kemur í dómnum að stúlkan
hitti piltana aðfaranótt 29. júlí 2000
og þáði ásamt vinkonu sinni heimboð
til annars þeirra. Inni í svefnherbergi
færðu piltarnir kynlíf í tal en við það
rauk vinkona hennar á dyr. Stúlkan
kvaðst hafa ætlað að ná í dót sem hún
átti í herberginu og síðan fylgja henni
eftir en þá hefðu piltarnir komið í veg
fyrir að hún kæmist út.
Óljós og reikull framburður
Elvar Þór og stúlkan eru ein til frá-
sagnar um það sem gerðist inni í her-
berginu og bar mikið á milli í frásögn-
um þeirra. Sagði Elvar að þeir hefðu
átt í kynferðisathöfnum með stúlk-
unni en með hennar samþykki. Þótti
dómnum framburður Elvars óljós,
reikull og stundum með ólíkindum og
bera merki þess að hann greindi á
köflum frá því sem hann teldi sér vera
í hag en leyndi öðrum atriðum sem
gætu verið honum og Gunnari Jó-
hanni í óhag. Stúlkan hefði á hinn
bóginn lýst atburðum í herberginu í
megindráttum á sama veg við
skýrslugjöf hjá lögreglu og fyrir
dómi.
Sú lýsing væri auk þess í samræmi
við frásögn sem læknir á Neyðarmót-
töku skráði eftir henni sama dag og
atburðirnir urðu. Þá hefði læknirinn
lýst því að hún hefði verið döpur,
hnípin og stressuð þegar hún greindi
frá atburðum auk þess sem áverkar
hefðu fundist við kynfæri og enda-
þarmsop og sæðisfrumur voru í leg-
hálsi stúlkunnar. Þá lægi fyrir vitn-
isburður átta vitna sem ýmist hittu
stúlkuna umræddan dag eða ræddu
við hana í síma. Benti vitnisburður
þeirra eindregið til þess að stúlkan
hefði orðið fyrir alvarlegu áfalli. Þeg-
ar framangreind atriði væru öll virt
heildstætt væri það álit dómsins að
þrátt fyrir eindregna neitun Elvars á
sakargiftum og framburð hans um
þátt Gunnars mætti leggja til grund-
vallar framburð stúlkunnar um atvik
inni í herberginu, enda hefði ekkert
komið fram sem veikti vitnisburð
stúlkunnar eða drægi úr trúverðug-
leika hennar. Því væri sannað að pilt-
arnir hefðu með ofbeldi þröngvað
henni til samræðis og annarra kyn-
ferðismaka. Við ákvörðun refsingar
var litið til þess að brotið væri alvar-
legt og þeir hefðu framið það í sam-
einingu. Þeir ættu sér engar máls-
bætur. Þar sem þeir voru aðeins 17
ára þegar brotið var framið var það
metið til refsilækkunar. Í dómnum
kemur fram að ekki leikur vafi á því
að stúlkan hafi orðið fyrir alvarlegu
og tilfinningalegu áfalli sem mun há
henni um ófyrirséða framtíð. Miska-
bætur þóttu því hæfilegar 500.000
krónur. Elvar Þór var í fyrra dæmd-
ur í fjögurra mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir líkamsárásir og Gunnar
Jóhann í 30 daga skilorðsbundið
fangelsi fyrir ýmiskonar þjófnað.
Voru dómarnir teknir upp og þeim
gerð refsing í einu lagi.
Héraðsdómararnir Ólöf Péturs-
dóttir, Gunnar Aðalsteinsson og Jón-
as Jóhannsson kváðu upp dóminn.
Sigurður Kári Kristjánsson hdl. var
skipaður verjandi Elvars Þórs en
Lárentsínus Kristjánsson hdl. var
skipaður verjandi Gunnars Jóhanns.
Tveir piltar dæmdir
fyrir að nauðga stúlku
EVRÓPUMÁLIN, stækkunarferli
Atlantshafsbandalagsins og sam-
starfið við Rússland var meðal þess
sem rætt var á fundi Halldórs Ás-
grímssonar utanríkisráðherra og
Jans Petersens, utanríkisráðherra
Noregs, í Osló í gær. Halldór segir
nýja stöðu blasa við þjóðunum tveim-
ur gagnvart Evrópusambandinu
vegna nýrra áherslna og stækkunar
sambandsins.
Fundur Halldórs og Petersens
hófst síðdegis í gær og stóð fram eftir
kvöldi en Halldór mun funda í dag
með Kjell Magne Bondevik, forsætis-
ráðherra Noregs.
Í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Halldór að Evrópumálin hefðu
verið ofarlega á baugi á fundi hans og
Petersens. „Við ræddum Evrópumál-
in og þau vandamál sem eru uppi í
sambandi við samninginn um Evr-
ópska efnahagssvæðið. Þar á meðal
eru tollar, sem verið er að leggja á
stálafurðir, en Evrópusambandið
virtist gleyma því að við værum hluti
af innri markaðinum. Við teljum það
vera grundvallaratriði að það sé litið
á okkur sömu augum og aðra aðila á
innri markaðinum.“
Halldór sagði þá einnig hafa rætt
um hvernig hægt væri að semja um
áframhaldandi tollfrelsi í þeim níu
löndum sem eru að ganga inn í Evr-
ópusambandið. „Við munum reyna að
hafa sem mest sameiginlegar
áherslur í þeim málum þó að hags-
munir fari ekki alveg saman,“ sagði
hann.
Þá sagði Halldór að Evrópumálin
almennt hefðu einnig verið til um-
ræðu og sú nýja staða sem þjóðirnar
tvær standa frammi fyrir vegna
nýrra áherslna og stækkunar Evr-
ópusambandsins. „Það liggur hins
vegar ljóst fyrir að stefna ríkisstjórna
Noregs og Íslands er að byggja á
samningnum um Evrópska efnahags-
svæðið, að minnsta kosti þar til aðrar
ákvarðanir verða teknar af ríkis-
stjórnum landanna. Þannig að við
höfum sameiginlega hagsmuni í því.“
Þá ræddu ráðherrarnir einnig
samstarfið innan Atlantshafsbanda-
lagsins og stækkun þess, auk sam-
starfsins við Rússland, að sögn Hall-
dórs.
Fundur utanríkisráðherra Íslands og Noregs í gær
Evrópumálin
ofarlega á baugi
Scanpix
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og hinn norski starfsbróðir hans,
Jan Petersen, ræða við fréttamenn á blaðamannafundi í Ósló í gær.
ÞESSIR spekingslegu hrafnsungar
fylgdust forvitnir með ljósmyndara
Morgunblaðsins athafna sig.
Þótt þeir séu ekki háir í loftinu
núna eiga þeir eftir að stækka mik-
ið, hrafnar geta orðið allt að 66 cm
að lengd og eru með stærstu spör-
fuglum. Hrafninn er vinsælt yrk-
isefni í þjóðsögum og kvæðum, hon-
um er stundum lýst sem illvígum og
grimmum en oftast sem vitrum og
gæfum fugli.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Málin rædd
á hrafnaþingi
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isBjarki kom, sá og sigraði á Akra-
nesi eftir sjö ára fjarveru / B5
Valsstúlkur lögðu Blika að Hlíð-
arenda og komust á toppinn / B5
8 SÍÐUR12 SÍÐUR
Sérblöð í dag
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í
SEINKA varð áætlunarflugi Flug-
leiða milli Parísar og Keflavíkur í gær
vegna verkfalls flugumferðarstjóra í
París. Vélin átti að halda af stað frá
Keflavík kl. 7.45 í gærmorgun en gat
ekki farið af stað fyrr en kl. 17.50.
Verkfallinu átti að ljúka kl. 23 í
gærkvöldi og var áætlað að Flug-
leiðavélin lenti í París um það leyti.
Sneri hún síðan heim og var lending í
Keflavík áætluð kl. 1.30 í nótt. Með
vélinni voru m.a. um 70 Bandaríkja-
menn sem áttu bókað far áfram til
Bandaríkjanna. Urðu þeir að gista á
hótelum í nótt og á að reyna að koma
þeim áfram til áfangastaða í dag.
Höfðu starfsmenn Flugleiða einnig
reynt að koma farþegum sínum til
Bandaríkjanna með öðrum flugfélög-
um beint frá París. Gekk það treglega
þar sem flug margra flugfélaga frá
París var meira og minna úr skorð-
um.
Flugleiðir gerðu í gær ráð fyrir að
Parísarflugið yrði með eðlilegu móti í
dag.
Seinkanir
á Parísar-
flugi
HELGI Hallgrímsson vegamála-
stjóri segir að Vegagerðin muni
kynna sér hvort og hvað hugsanlega
þurfi að lagfæra á vegarkafla á Kjal-
vegi við Blöndulón, þar sem fjórir
fórust í bílslysi sl. mánudag þegar
bíll sem þau voru farþegar í kast-
aðist í Blöndulón. Hann segir að-
stæður einnig verða kannaðar í
Finnafirði þar sem kona beið bana
sama dag þegar bíll sem hún var far-
þegi í fór í ána.
Vegamálastjóri segir rannsóknar-
nefnd umferðarslysa jafnan benda á
atriði sem lagfæra megi, sé ástæða
til þess, í kjölfar rannsókna sinna á
banaslysum en fulltrúi Vegagerðar-
innar situr í nefndinni. Helgi segir
gagna verða aflað um slysið og í
framhaldi af því metið hvort og þá
hvað hugsanlega megi gera til að
draga úr hættu. Vegamálastjóri seg-
ir frágang á brúnni yfir Finnafjörð
vera staðlaðan miðað við einbreiðar
brýr og vegrið þar í réttri hæð. Hann
segir Vegagerðina jafnan skoða að-
stæður í kjölfar slysa sem þessara.
Kannað
hvað þarf
að bæta
Vegagerðin
BROTIST var inn í pönnuverksmiðj-
una Alpan á Eyrarbakka í gærnótt
og þaðan stolið tveimur tölvum, ör-
bylgjuofni og öðru smálegu.
Innbrotið uppgötvaðist í gær-
morgun þegar starfsmenn komu til
vinnu. Höfðu innbrotsþjófarnir brot-
ið rúðu í opnanlegu fagi og spennt
upp stormjárn til að komast inn í
verksmiðjuna. Engar skemmdir aðr-
ar voru unnar í verksmiðjunni. Að
sögn lögreglunnar á Selfossi er ekki
vitað hver eða hverjir voru þarna að
verki en málið er í rannsókn.
Innbrot í Alpan
♦ ♦ ♦
Skipulag rúllustiga í Kringlunni . . . / C1
Verðbólga mest á Íslandi . . . / C2
Laun kvenna ráðast af starfsstétt . . . / C4
Engin stökkbreyting . . . / C6
Leggja til hlutafélagavæðingu . . . / C12