Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 15 Trjáplöntu- dagar Reykjavík sími 580 0500 • Selfossi sími 480 0800 www.blomaval.is Seljum mikið af trjáplöntum og runnum á stórlækkuðu verði Gróðurmold 10 ltr 199 kr. 50 ltr 799 kr. Tilboð Birkikvistur 399 kr. Allar fjölærar plöntur 20% afsláttur Gljámispill 299 kr. Hansarós 499 kr. Birki/Embla 50-70 sm 299 kr. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S B LO 1 81 14 06 /2 00 2 Petúnia 299 kr. Hengilóbelia 399 kr. BÆJARRÁÐ Mosfellsbæjar hefur samþykkt að veita Jesse L. Byock, prófessor í fornnorrænum fræðum og fornleifafræði við Kaliforníuhá- skóla, leyfi til að stunda fornleifa- uppgröft við Leiruvog næsta sumar. Byock hefur undanfarin ár farið fyr- ir hópi fræðimanna sem stundað hafa fornleifarannsóknir í Mos- fellsbæ, meðal annars í landi Hrísbrúar í Mosfellsdal. Í bréfi frá Byock sem stílað er á bæjarráð segir að Leiruvogur hafi verið þekkt skipalægi fyrr á öldum og ætlunin sé að finna ummerki þar um með uppgreftri. Annars vegar sé um að ræða uppgröft við Skiphól en þar munu hafa verið skipshróf, sem eytt var á síðustu öld. Hins vegar sé um að ræða rannsóknir á bökkum Varmár niður við Leiruvog til að reyna að finna ummerki um hafnar- aðstöðu eða skipalægi frá fyrri öld- um. Segir í bréfi Byocks að skipa- ferðir um Leiruvog hafi verið mikilvægur þáttur í samfélagsmynd Mosfellsbæjar á fyrri tíð. Til að fylla upp í þá mynd sé nauðsynlegt að rannsaka Leiruvog sérstaklega. Tekið er fram að allt jarðrask verði lagfært að uppgreftri loknum. Leyfið veitt að tilskildu leyfi Náttúru- og Fornleifaverndar Í umfjöllun bæjarráðs segir að bæjarráð geri ekki athugasemdir við ráðgerðan fornleifauppgröft sem sé í eignarlandi bæjarins. Bent er hins vegar á að tryggt verði að leyfi Forn- leifaverndar og Náttúruverndar rík- isins liggi fyrir áður en hafist verður handa og að gert verði kort af því svæði sem uppgröftur fer fram á. Leyfi veitt til fornleifauppgraftar í Leiruvogi Morgunblaðið/Sigurður Jökull Hópur erlendra fræðimanna undir stjórn dr. Jesse Byocks stóð í fyrra að uppgreftri við Hrísbrú í Mosfellsdal og kom þá meðal annars niður á þessa fornu beinagrind. Rannsaka rústir þekkts skipalægis Mosfellsbær BORGARRÁÐ hefur samþykkt til- lögu Innkaupastofnunar varðandi heimild til að ganga til samninga við Hlaðbæ Colas hf. um malbiksyfir- lagnir að upphæð allt að 30 milljónir króna. Lagt er til að tilboði Hlaðbæs Col- as sé tekið á grundvelli annars til- boðs frá 16. maí sl. þar sem þeir áttu næstlægsta boð, nær samhljóða til- boði Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf., sem fékk verkið. Bent er á með samningnum dreifist verkefni betur en fyrirtækið hefur ekki fengið nein slitlagsverkefni hjá Reykjavíkur- borg í ár en Höfði þrjú af fjórum malbiksverkefnum ársins. Í bréfi sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins ritar borgarlög- manni vegna málsins er lagst gegn því að brugðið sé út af boðaðri út- boðsstefnu Reykjavíkurborgar. Bent er á að eðlilegra sé auka verk- efnaframboð í malbikunarvinnu. Malbikstilboði Hlaðbæjar Colas tekið SI segja brugðið út af boðaðri útboðsstefnu Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.