Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 41
OPINN fundur í Evrópukynningu Samfylkingarinnar verður á Akra- nesi í kvöld, fimmtudaginn 20. júní. Fundurinn er á Barbró og hefst kl. 20.30 Framsögumenn: Ágúst Ólafur Ágústsson, sjávarútvegsmál; Svan- fríður I. Jónasdóttir, byggðamál; Bryndís Hlöðversdóttir, fullveldis- og sjálfstæðismál. Fyrirspyrjendur: Gísli Gíslason bæjarstjóri, Björn Lárusson fréttamaður, Hjördís Hjartardóttir kennari. Fundarstjóri: Björgvin G. Sigurðsson. „Kynningarferli Samfylkingarinn- ar um Evrópumál heldur nú áfram með þessum fundi og lýkur í október með atkvæðagreiðslu félagsmanna Samfylkingarinnar um það hvort flokkurinn setur aðildarumsókn að ESB á stefnuskrá sína. Fram að þeim tíma fer fram viða- mikið kynningarferli á kostum og göllum hugsanlegrar aðildarum- sóknar Íslands að Evrópusamband- inu. Til grundvallar umræðunni ligg- ur Evrópuúttekt Samfylkingarinnar sem kom út í bókinni Ísland í Evr- ópu. Bókin verður til sölu á fundun- um," segir m.a. í fréttatilkynningu. Evrópukynning Samfylking- arinnar FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 41 Útsölumarkaður GK REYKJAVÍK Opið mánudaga til föstudaga kl. 12:00 - 18:00 og laugardaga kl. 12:00 - 16:00 Verðdæmi: allar buxur nú 2.000 kr. • allar skyrtur nú 1.500 kr. allir jakkar nú 4.000 kr. • allar peysur nú 2.000 kr. allar yfirhafnir nú 5.000 kr. Síðumúla 6 Síðasta vikan - Höfum bætt við nýjum vörum ÁRLEG sýning Hundaræktar- félags Íslands verður haldin í reiðhöll Gusts í Kópavogi um næstu helgi, 22. og 23. júní. Byrjar hún kl. 11 báða dagana og er gert ráð fyrir að úrslit liggi fyrir um kl. 16.30 á sunnudag. Sýndir verða yfir 200 hundar af 43 tegundum og fjöldi barna og unglinga tekur þátt í keppni ungra sýnenda. Dómarar eru Kari Järvinen frá Finnlandi og Ander Ced- ersetröm frá Svíþjóð, sam- kvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu. Hundasýning um helgina varðveittar minjar en fornleifafræð- ingar áttu von á. Sérstaklega hafa minjar í svonefndri Biskupabúð komið skemmtilega á óvart. Þar hafa verið grafnir nokkrir könnunar- skurðir sem sýna að þar er ekki um að ræða eina stóra búðartóft heldur margar búðir. Gengið verður um þinghelgina og rýnt í þær leifar sem nú sjást á yf- irborðinu, en einnig verður skoðað í könnunarskurðina sem fornleifa- fræðingar hafa nú grafið. Gangan hefst við útsýnisskífuna á Hakinu klukkan 20 og endar við Biskupabúð fyrir framan Þingvallakirkju. ADOLF Friðriksson fornleifafræð- ingur fjallar um fornleifarannsóknir þær sem nú eru nýhafnar og standa fram til ársins 2006 í fimmtudags- göngu í dag, 20. júní, kl. 20. Adolf Friðriksson er forstöðumað- ur Fornleifastofnunar Íslands og stýrir rannsóknunum ásamt Sigurði Líndal prófessor. Rannsóknirnar ná til Þingvalla og nokkurra annarra fornra þingstaða. Markmið þeirra er að leita svara við nokkrum grund- vallarspurningum varðandi þinghald til forna. Frumrannsókn á Þingvöllum hef- ur þegar leitt í ljós fleiri og betur Fornleifarannsóknir kynntar í fimmtudagsgöngu FYRIRLESTUR um stefnumótun finnska þjóðþingsins á sviði vísinda, tækni og þekkingarstjórnunar verð- ur í hádeginu í dag, fimmtudag, í Borgartúni 6. Fyrirlesarinn er Markku Markkula, þingmaður og formaður nefndar finnska þjóðþings- ins um þekkingarþjóðfélagið og for- maður Finnska verkfræðingafélags- ins. Tvær nefndir finnska þjóðþingsins fjalla um málefni vísinda- og tækniþróunar og áhrif þeirra á þjóð- félagsþróun í Finnlandi. Finnski lýð- veldissjóðurinn, SITRA, heldur m.a. námsskeið fyrir nýbakaða þingmenn og hefur haft forgöngu um framtaks- fjárfestingu í sprotafyrirtækjum á sviði hátækni. Hádegisfundurinn í dag er öllum opinn. Hádegisfundur á vegum RANN- ÍS og VFÍ/TFÍ Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði í Glæsibæ mánud. 10. júní 2002. 15 pör. Meðalskor 168 stig. Árangur N-S: Albert Þorsteinsson - Bragi Björnsson 198 Sæmundur Björnss. - Oliver Kristóferss. 187 Ólafur Ingvarsson - Halldór Magnússon 174 Árangur A-V: Björn E. Péturss. - Alfreð Kristjánss. 196 Magnús Oddsson - Magnús Halldórsson 190 Þórarinn Árnas. - Sigtryggur Ellertss. 175 Tvímenningskeppni spiluð fimm- tud. 13. júní. 14 pör. Meðalskor 168 stig. Árangur N-S: Magnús Oddsson - Magnús Halldórsson 203 Sigtr. Ellertsson - Þórarinn Árnason 180 Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss. 172 Árangur A-V: Sæmundur Björnss. - Oliver Kristóferss. 190 Elín Jónsdóttir - Soffía Theódórsdóttir 176 Hjálmar Gíslas. - Haukur Guðmundss. 171 Viggó Nordquist - Eysteinn Einarsson 171 Alheimstvímenningur Spilað var í Alheimstvímenningi á Akureyri eins og á Ísafirði og í Reykjavík og í yfir 40 löndum um all- an heim. 10 pör mættu og var staðan á Akureyri þessi: H.V. Reisenhus - Frímann Stefánss. 64,81 Herm. Huijbens - Steinarr B. Guðm. 58,80 Pétur Guðjónsson - Una Sveinsdóttir 58,33 Staðan breyttist svo heldur betur þegar borið var saman á heimsvísu: 1. Pétur - Una 58,92% 2. Hans Viggó - Frímann 57,72% 3. Hermann - Steinarr 56,82% Þriðjudaginn 11. júní var svo að sjálfsögðu spilað í Sumarbridge og þar urðu hlutskörpust af 12 pörum: 1. Pétur - Una 167 2. Gissur - Raghnhildur 165 3. Jónas - Anton 153 Spilað er á þriðjudögum í sumar í Hamri, félagsheimili Þórs kl. 19:30. Allir velkomnir. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson FERÐAMÁLASKÓLINN í Kópavogi útskrifaði 14 nemendur af ferða- fræðibraut nýverið. Nemendur voru ýmist á ferða- fræðisviði eða hótelsviði og einn nemandi lauk prófi af báðum braut- um. Námið er starfstengt og hver nemandi hefur lokið þriggja mánaða starfsþjálfun í fyrirtæki. Kennt hefur verið í Ferðamála- skólanum síðastliðin 15 ár og hefur námið sífellt verið lagað að þróun og breytingum í þeirri ört vaxandi at- vinnugrein sem ferðaþjónustan er. Ferðamálaskólinn brautskráir 14 nemendur Í TILEFNI af Jónsmessu- og mið- sumarshátíð á Eyrarbakka hefur Rauða húsið á Eyrarbakka fengið þekktan matreiðslumann frá Norð- ur-Spáni, Emilio Gonzales Soto, til sín. Emilio hefur gefið út fjórar mat- reiðslubækur og er þekktur fyrir matreiðslu á saltfiski og sjávarfangi. Emilio Gonzales Soto verður gesta- matreiðslumaður Rauða hússins dagana 22.-24. júní. Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.