Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 20.06.2002, Blaðsíða 25
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 25 STJÓRNVÖLD á Kúbu segjast hafa unnið fullan pólitískan sigur í ljósi þess að næstum 99% kúbverskra kjósenda hafi skrifað undir bæna- skjal þar sem farið er fram á að ekki verði gerðar breytingar á sósíalísk- um stjórnarháttum á eyjunni. Fjöldahreyfingar á Kúbu sem eru í nánum tengslum við stjórnvöld söfn- uðu undirskriftunum á þremur sól- arhringum frá síðasta laugardegi og fram á þriðjudag, og benda fyrstu niðurstöður til þess að 8,1 af 8,2 milljónum skráðra kjósenda á Kúbu hafi skrifað undir skjalið. Undirritun þess fól í sér stuðning við stjórnar- skrárbreytingu þess efnis að efna- hagslegt, pólitískt og félagslegt kerfi Kúbu verði gert „ósnertanlegt“. Fidel Castro, leiðtogi Kúbu, segir bænaskjalið vera svar við stefnu- ræðu George W. Bush Bandaríkja- forseta í málefnum Kúbu er hann hélt 20. maí sl. Þar sagði Bush að hann hefði ekki í hyggju að aflétta viðskipta- og ferðabanni á Kúbu nema þar yrðu teknir upp lýðræð- islegir stjórnarhættir. Stjórnarandstæðingar á Kúbu segja aftur á móti að undirskrifta- söfnun stjórnvalda nú sé svar við undirskriftasöfnun þeirra í síðasta mánuði en meira en 11.000 manns fór þá fram á þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem kjósendur yrðu spurðir að því hvort þeir væru meðmæltir borg- aralegum réttindum á borð við mál- og fundafrelsi, rétti til að reka fyr- irtæki, kosningaumbótum og sakar- uppgjöf fyrir pólitíska fanga. Vilja viðhalda sósíal- ískum stjórnarháttum Havana. AP. NÝR forsætisráðherra Ungverja- lands, Peter Medgyessy, viður- kenndi í gær að hann hefði starfað við gagnnjósnir í fjármálaráðu- neyti landsins á árunum 1977–82 þegar kommún- istar voru við völd. Medgyessy, sem er leiðtogi Sósíalistaflokks- ins, sagði í ræðu á þinginu að gagn- njósnirnar hefðu tengst störfum hans í alþjóðadeild fjármálaráðu- neytisins, sem átti á þessum tíma í leynilegum viðræðum um að Ung- verjaland fengi aðild að Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum. „Ég aðstoðaði við að koma í veg fyrir að erlendar leyniþjónustur kæmust yfir ríkis- leyndarmál,“ sagði hann. Leiðtogar samstarfsflokks sósíal- ista í stjórninni, Bandalags frjálsra demókrata, íhuguðu að krefjast þess að Medgyessy léti af embætti en til- kynntu að þeir hefðu hætt við það til að afstýra stjórnarkreppu. Leiðtogar ungverskra hægri- flokka sögðu hins vegar að Med- gyessy væri ekki lengur stætt á því að gegna embættinu. Í ræðunni lagði forsætisráð- herrann til að lögum yrði breytt til að hægt yrði að birta leynilega lista yfir alla þá sem voru á mála hjá leyniþjónustu kommúnista. „Ef stjórnarandstaðan hefur ekkert að fela getur hún líka greitt atkvæði með þessu,“ sagði hann. Forsætisráðherrann viðurkenndi gagnnjósnirnar eftir að íhaldssamt dagblað birti skjöl sem það sagði sanna að hann hefði starfað fyrir leyniþjónustu kommúnista. Med- gyessy kvaðst ætla að höfða meið- yrðamál gegn blaðinu því lengi hefði verið vitað að skjölin væru fölsuð. Ungverski for- sætisráðherrann var gagnnjósnari Búdapest. AFP. Peter Medgyessy alltaf á föstudögum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.