Morgunblaðið - 20.06.2002, Side 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær
ríkissjóð til að greiða manni
200.000 krónur í bætur þar sem
hann fékk ekki þá læknisþjónustu
og lyfjagjöf sem honum bar þegar
hann sat í gæsluvarðhaldi. Taldi
geðlæknir hans að þetta, ásamt
innilokun og tilhugsun um dóm,
hafi ýtt undir geðsjúkdóm hans.
Hæstarétti þótti ekki rétt að
dæma manninum bætur þó að
ákvörðun ríkissaksóknara um að
fella niður mál á hendur honum
hefði dregist nokkuð. Maðurinn
sat í gæsluvarðhaldi í átta daga á
árinu 1998 vegna gruns um ítrek-
aðar íkveikjur á Vatnsstíg 11 í
Reykjavík.
Skýrði frá slæmri
líðan sinni
Í dómi Hæstaréttar segir að
ekki liggi fyrir að maðurinn hafi
kvartað yfir hjartsláttartruflunum
eða óskað sérstaklega eftir lækn-
ishjálp meðan hann sat í fangelsi,
eins og hann hélt fram. Hins vegar
verði ekki horft fram hjá því að
hann hafði lýst því yfir við yfir-
heyrslur hjá lögreglu að hann ætti
við geðræn vandamál að stríða og
skýrt frá slæmri líðan sinni þar
sem hann hefði ekki fengið lyf,
sem honum væri nauðsynlegt að
taka. Rannsóknarlögreglumaður
sem fylgdi honum í fangelsið sagði
að tekið hefði verið fram við kom-
una í fangelsið að gera þyrfti ráð-
stafanir af þessum sökum og hafa
samband við lækni hans. Fangels-
islæknir hefði á hinn bóginn aldrei
vitjað mannsins og ráðleggingar
hans um lyfjatöku daginn eftir að
maðurinn kom í fangelsið tóku
ekki til lyfja sem maðurinn hafði
notað reglulega, auk þess sem ekki
væri skráð í dagbók fangelsisins
að eftir þessum ráðleggingum hafi
verið farið. Ekki liggur fyrir hvort
hann fékk nauðsynleg lyf fyrr en á
þriðja degi gæsluvarðhaldsins.
Hæstaréttardómararnir Hrafn
Bragason, Haraldur Henrysson
og Pétur Kr. Hafstein kváðu upp
dóminn. Kristján Stefánsson hrl.
flutti málið fyrir hönd mannsins en
Einar Karl Hallvarðsson hrl. var
til varnar fyrir ríkið.
Ríkissjóður greiði bætur
Fékk ekki þá
læknisþjónustu
sem honum bar
VINNUSLYS varð við Svertings-
staði í Eyjafjarðarsveit þegar maður
datt fram af vinnupalli. Hann var
fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri en var ekki talinn alvarlega
slasaður, að sögn lögreglunnar á Ak-
ureyri.
Vinnuslys í
Eyjafjarðarsveit
HÉRÐAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær konu í fimm mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir skjala-
fals en hún falsaði nafn móður sinn-
ar á sjálfskuldarábyrgð að fjárhæð
1.000.000 króna. Móðir hennar sá sig
knúna til að kæra verknaðinn til að
komast hjá fjárnámi.
Hið falsaða skjal er sjálfskuldar-
ábyrgð á tryggingu fyrir vöruúttekt
fyrir verslun sem ákærða rak. Kon-
an játaði skýlaust brotið og sagðist
hafa talið sig geta staðið í skilum, en
hafi síðan ekki haft greiðslugetu til
þess. Hún hafði ekki áður gerst
brotleg við lög og taldi dómurinn
refsinguna hæfilega fimm mánaða
fangelsi, skilorðsbundið til tveggja
ára.
Hjördís Hákonardóttir héraðs-
dómari kvað upp dóminn.
Falsaði nafn
móður sinnar
á sjálfskuldar-
ábyrgð
LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTIÐ hefur út-
hlutað 16 fyrirtækjum tollkvóta vegna innflutn-
ings á nautgripa-, alifugla- og hreindýrakjöti,
ostum og unnum kjötvörum sem leyft verður að
flytja til landsins á lægri gjöldum.
Kvótarnir gilda til eins árs frá 1. júlí næstkom-
andi og samkvæmt úthlutun ráðuneytisins verð-
ur fimm fyrirtækjum leyft að flytja inn 59 tonn
af alifuglum, 12 tonn af öðru frystu kjöti, 70,5
tonn af nautgripakjöti, 20,5 tonn af svínakjöti,
119 tonn af ostum og 86 tonn af unnum kjötvör-
um.
Úthlutaðir kvótar eru um 367 tonn en tilboð
bárust í alls 691,6 tonn. Kemur stærstur hluti í
hlut Baugs eða 89,5 tonn, Dreifingar eða 72,5
tonn, Osta- og smjörsölunnar eða 40 tonn og 31,6
tonn í hlut GV Heildverslunar.
Lægsta tilboð vegna alifugla
ein króna á kílóið
Lægsta tilboð í tollkvóta vegna innflutnings á
alifuglum var upp á eina krónu kílóið og lægsta
boð í innflutning á ostum var 10 krónur fyrir
kílóið. Meðalverð sex tilboða í alifuglakvóta var
74 krónur kílóið en tekið var tilboðum fimm fyr-
irtækja á meðalverðinu 122 krónur kílóið.
Meðalverð fjögurra tilboða í kvóta fyrir annað
kjöt var 96 krónur kílóið en tekið tilboðum
tveggja fyrirtækja á meðalverðinu 156 krónur.
Meðalverð átta tilboða í kvóta á ostum var 193
krónur kílóið en tekið tilboðum sjö aðila á með-
alverðinu 219 krónur kílóið. Meðalverð 13 tilboða
í tollkvóta fyrir unnar kjötvörur var 271 króna
en tilboðum tekið frá 10 á meðalverðinu 323
krónur.
Ekki kom til útboðs á tollkvóta vegna innflutn-
ings á nautgripa- og svínakjöti þar sem umsókn-
ir voru minni en það magn sem í boði var. Af
nautgripakjöti voru til úthlutunar 95 tonn en út-
hlutað var til sjö fyrirtækja samtals 70,5 tonnum.
Til úthlutunar á svínakjöti voru 64 tonn en út-
hlutað til fimm fyrirtækja 20,5 tonnum.
16 fyrirtæki fá að flytja inn nautgripa-, alifugla- og hreindýrakjöt
Innflutningskvóta vegna
landbúnaðarafurða úthlutað
DEILDARFUNDUR við heim-
spekideild Háskóla Íslands sam-
þykkti í gær að mæla með dr. Orra
Vésteinssyni í stöðu lektors í forn-
leifafræði við deildina. 23 sam-
þykktu að mæla með Orra en 17 sátu
hjá.
Umsækjendur um stöðuna voru
fornleifafræðingarnar dr. Bjarni F.
Einarsson, dr. Margrét Hermanns-
Auðardóttir, dr. Orri Vésteinsson og
Steinunn Kristjánsdóttir. Dómnefnd
taldi að Orri og Margrét væru hæf
til að gegna stöðunni en stöðunefnd
sem fjallaði um álit dómnefndar
komst fyrir skömmu að þeirri nið-
urstöðu að ýmsir annmarkar væru á
áliti dómnefndar og meirihluti á
fundi kennara við sagnfræðiskor
heimspekideildar í seinustu viku
vildi að áliti dómnefndar yrði hafnað
og staðan auglýst að nýju.
Deildarfundur heimspekideildar HÍ
Mælt með Orra Vésteins-
syni í stöðu lektors
VEGURINN inn Vesturárdal við
Vopnafjörð fór í sundur í gær á
nokkrum stöðum vegna vatnavaxta
og einangruðust átta bæir í dalnum
af þeim sökum. Unnið var að við-
gerðum á veginum í gær og var
hann orðinn jeppafær upp úr
miðjum degi. Þá féllu aurskriður á
veginn við Sandvík sunnan við
Vopnafjörð í fyrrakvöld en búið var
að opna veginn á ný í gærmorgun.
Vegurinn inn Vesturárdal fór
meðal annars í sundur við svonefnt
Klif og við Skóga vegna rigning-
arvatns sem safnast hafði upp við
veginn en óvenjumikil úrkoma hef-
ur verið á Austfjörðum undanfarna
daga. Að sögn Sveins Karlssonar,
flokksstjóra hjá Vegagerðinni á
Vopnafirði, var unnið að viðgerðum
á veginum í gær og var hann orðinn
jeppafær upp úr klukkan fjögur.
Aurskriðum sem féllu á veginn
við Sandvík á þriðjudagskvöld var-
rudd burt þá strax um kvöldið en í
gærdag var ekki fært um Hellis-
heiði eystri vegna snjóa. Segir
Sveinn ekki hafa verið hægt að ráð-
ast í að ryðja heiðina þar sem brúin
í Jökulsárhlíðinni hefði einnig bilað
í vatnavöxtunum. „Það er ekkert
hægt að fara austur og því gátum
við ekki lagt áherslu á hana.“ Sagði
Sveinn hugsanlegt að hugað yrði að
Hellisheiði í dag.
Ljósmynd/Jón Sigurðarson
Vegurinn inn Vesturárdalinn fór m.a. í sundur fyrir neðan svonefnt Klif vegna vatnavaxta undanfarna daga.
Vegir í
sundur í
Vestur-
árdal
Ljósmynd/Jón Sigurðarson
Tvær aurskriður féllu á veginn við Sandvík í fyrrinótt en þá þegar var
vegurinn ruddur og var hann orðinn fær morguninn eftir.
♦ ♦ ♦