Morgunblaðið - 20.06.2002, Síða 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 23
ÞÝSKIR hægrimenn hófu kosn-
ingabaráttu sína á þriðjudag með
hörðum árásum á Gerhard Schröd-
er kanslara og stefnu stjórnar
hans. Kanslaraefni hægrimanna,
Edmund Stoiber, sagði á flokks-
þingi kristilegra demókrata (CDU)
að létta þyrfti þá „byrði“, sem inn-
flytjendur væru þýsku þjóðinni og
hét því jafnframt að nýju lífi yrði
hleypt í þetta stærsta hagkerfi
Evrópu.
Fundarmenn fögnuðu ummælum
Stoibers ákaflega en fréttaskýr-
endur telja þetta mikilvægustu
ræðu, sem hann hefur flutt á
stjórnmálaferli sínum. Með henni
var baráttan hafin fyrir þingkosn-
ingarnar, sem fram fara í Þýska-
landi 22. september.
Svikin loforð og úrræðaleysi
Stoiber æpti og ýmist barði
hnefanum í ræðupúltið eða hóf
hann á loft þegar hann klifaði á því
að efnahagur Þýskalands hefði
versnað mjög á þeim fjórum árum,
sem jafnaðarmenn og græningjar
hafa farið með völdin í landinu.
Gerhard Schröder væri „kanslari
hinna sviknu loforða“ og efnahags-
ástandið í Þýskalandi væri slíkt að
landið væri nú á botninum í Evr-
ópu í þeim efnum. Þjóðverjar væru
aðeins í efsta sæti að einu leyti og
þar ræddi um fjölda gjaldþrota.
„Schröder hefur fengið sitt tæki-
færi. Hann nýtti það ekki. Þjóð-
verjar mega ekki við því að Schrö-
der fái annað tækifæri. Þýskaland
getur gert betur,“ sagði Stoiber
m.a. í ræðu sinni en hún stóð yfir í
eina og hálfa klukkustund. Kansl-
araefnið sagði valið einfalt; kosið
yrði á milli stöðnunar og hagvaxt-
ar. „Tími aðgerða er runninn upp.“
Þjóðarstolt
Stoiber lagði ríka áherslu á það
grundvallarsjónarmið sitt að end-
urreisa þurfi þýskt þjóðarstolt og
hvatti flokksmenn til að boða
sjálfstraust og „nýtt upphaf“.
Hann hét því að skattar yrðu
lækkaðir kæmust hægrimenn til
valda, ríkiskerfið yrði skorið niður,
útgjöld til menntamála yrðu aukin
og dagvistarrýmum barna fjölgað
til muna til að auðvelda útivinn-
andi foreldrum lífsbaráttuna. Jafn-
framt boðaði Stoiber sérstaka
efnahagsaðstoð við austurhluta
Þýskalands.
Stoiber, sem er sextugur, sagði
það efla baráttuandann að hægri-
flokkum hefði að undanförnu
gengið vel í kosningum í Vestur-
Evrópu. Hann vék að málefnum
innflytjenda, sem verið hafa of-
arlega á baugi í kosningum í álf-
unni vestanverðri, og sagði aðlög-
un innflytjenda að þýsku samfélagi
fela í sér „miklar byrðar“ fyrir al-
menning í landinu og menntakerf-
ið. Sett yrðu ný lög, sem takmarka
myndu straum innflytjenda til
Þýskalands en Stoiber hefur áður
sagt að honum hugnist lítt „menn-
ingarblöndun“ í Þýskalandi.
Stoiber fór hörðum orðum um
frammistöðu Schröders kanslara
og stjórnar hans á vettvangi efna-
hagsmála. Samdráttur varð í hag-
kerfinu á liðnu ári en kanslarinn
skýrði hann með tilvísun til efna-
hagsörðugleika víða um heim.
Stoiber vék einnig að atvinnu-
leysinu sem er um 10%. „Schröder
og lið hans geta ekki fengið kerfið
til að virka,“ æpti hann undir lok
ræðu sinnar. „Við getum gert bet-
ur. Ég hlakka til að stjórna land-
inu. Gangi ykkur vel og guð blessi
Þýskaland.“
Hægrimenn í sókn
Um 1.000 manns sóttu samkund-
una, sem haldin var í kæfandi hita
í Frankfurt. Fögnuðu fundarmenn
ræðu leiðtogans með því að rísa úr
sætum og klappa í tíu mínútur.
Flokkur kristilegra demókrata
hefur sótt í sig veðrið að und-
anförnu í Þýskalandi eftir að hafa
átt við mikla erfiðleika að glíma
vegna fjármálahneykslis er tengd-
ist Helmut Kohl, fyrrum kanslara.
Fylgi við kristilega demókrata hef-
ur aukist í réttu hlutfalli við efna-
hagsvandann, sem þjakað hefur
stjórn Schröders kanslara.
Stoiber var útnefndur kanslara-
efni hægrimanna en hann kemur
úr CSU, systurflokki kristilegra
demókrata í Bæjaralandi. Von
hægrimanna er sú að með því móti
verði tryggð hæfileg fjarlægð frá
fjármálahneykslinu og Helmut
Kohl auk þess sem CSU getur
státað af mjög öflugu efnahagslífi í
Bæjaralandi.
AP
Edmund Stoiber ávarpar flokksþing Kristilegra demókrata í Frankfurt.
„Tímabært að hefjast handa“ segir á skiltinu að baki kanslaraefninu.
Boða efnahags-
bata og færri
innflytjendur
Þýskir hægrimenn hefja kosninga-
baráttuna með heiftarlegri árás á
Gerhard Schröder kanslara
Frankfurt. Associated Press.
’ Ég hlakka til aðstjórna landinu ‘