Morgunblaðið - 20.06.2002, Side 44
DAGBÓK
44 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
er Kiel væntanlegt og
út fara Explorer, Goða-
foss, Flemenco og
Tjaldur SH.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag eru væntanleg
Markus J, Viking,
Kleifaberg og Prizv-
anie og út fara Fornax,
Polar Princess og
Ocean Tiger.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9 og
kl. 13 vinnustofa, bað.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, opin
handavinnustofan, bók-
band og öskjugerð, kl. 9
leikfimi, almenn, kl.
9.45–10 helgistund, kl.
11 boccia, kl. 13–16.30
opin smíðastofa og
handavinnustofa. Kl.
13.30 gönguhópur,
lengri ganga. Kl. 10–16
púttvöllurinn opinn alla
daga. Allar upplýsingar
í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 14–15
dans.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 9–13 handa-
vinnustofan opin, kl.
14.30 söngstund.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 11 leikfimi,
kl. 13 föndur og handa-
vinna.
Félagsstarf aldraðra í
Mosfellsbæ, Kjalarnesi
og Kjós. Jónsmessuferð
á Þingvöll, Selfoss og
Stokkseyri, mánudaginn
24. júní. Lagt af stað kl.
15 frá Damos. Uppl. og
skráning hjá Svanhildi í
síma 586 8014 e.h.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Sundleikfimin
hjá Lovísu í Sundlaug
Garðabæjar byrjar 25.
júní kl. 16 og verður á
þriðjud. og fimmtud. í 3
vikur. Allir velkomnir.
Golfnámskeiðið hjá
Sturlu verður á þriðjud.
og miðvikud. kl. 13
næstu 3 vikur í GKG í
Vetrarmýrinni. Fótaað-
gerðarstofan, tímapant-
anir eftir samkomulagi,
s. 899 4223
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Í dag er
félagsvist kl. 13.30. Á
morgun, föstudag, kl.
13.30 frjáls spila-
mennska. Pútt á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi.
Fimmtudagur: Brids kl.
13. Söguferð í Dali 25.
júní, dagsferð, Eiríks-
staðir, Höskuldsstaðir,
Hjarðarholt, Búð-
ardalur, Laugar,
Hvammur. Léttur há-
degisverður að Laugum
í Sælingsdal. Kaffihlað-
borð í Munaðarnesi
Leiðsögumaður Sig-
urður Kristinsson. Vin-
samlegast sækið far-
miðann fyrir helgi.
Þórsmörk – Langidalur
4. júlí, Kaffihlaðborð á
Hvolsvelli. Leiðsögn
Þórunn Lárusdóttir.
Hálendisferð 8.–14. júlí,
ekið norður Sprengi-
sand og til baka um
Kjöl, eigum örfá sæti
laus.
Silfurlínan er opin á
mánu- og mið-
vikudögum frá kl. 10–12
í s. 588 2111. Skrifstofa
félagsins er flutt í
Faxafen 12, sama síma-
númer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa m.a.
glerskurður, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 9–16
böðun, kl. 10 leikfimi,
kl. 14 myndlistarsýning.
26. júní nk.: Eyrarbakki
– Stokkseyri, ekið með
ströndinni austur að
Þjórsá og þaðan ekið í
Skálholt og borðað þar.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 10.30 helgistund.
Umsjón Lilja G. Hall-
grímsdóttir, djákni. Frá
hádegi spilasalur og
vinnustofur opin. Fim.
27. júní verður ferðalag
um Suðurnes. M.a. er
ekið um Hafnarfjörð og
Kapellu í Kapellu-
hrauni, Vatnsleysu-
strönd í Voga, Grímshól
á Vogastapa. Ekið um
Njarðvíkur og Keflavík,
út í Leiru þar sem
verður kaffihlaðborð í
Golfskálanum. Farið út
á Garðskaga, Miðnes og
Stafnes. Skráning hafin.
Allar uppl. á staðnum
og í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin.
Vorvaka eldra fólks í
Kópavogi verður í Gjá-
bakka, Fannborg 8
sunnudagskvöldið 23.
júní. Á dagskránni sem
hefst kl. 22 verður m.a.
spiluð félagsvist, harm-
onikkuleikur, sam-
söngur undir slætti
Guðrúnar á gít-
arstrengi. Einnig verð-
ur lesið úr óútkominni
ljóðabók. Kaffiveitingar
á vægu verði. Dag-
skrárlok óákveðn. Allir
eru boðnir velkomnir og
skemmti- og fræðslu-
efni er vel þegið. Kl.
20–21 gömlu dansarnir,
kl. 21–22 línudans.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið frá kl. 9–17,
hádegismatur alla virka
daga, heitt á könnunni
og heimabakað meðlæti.
Handavinnustofan er
opin kl. 9.15–16 á
þriðjudögum og mið-
vikudögum kl. 13–16 og
fimmtudögum kl. 9.15–
16.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin vinnustofa, búta-
saumur, kortagerð og
perlusaumur, kl. 9.45
boccia, kl. 11 leikfimi,
kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, kl. 10 boccia, kl.
13 handavinna, kl. 14
félagsvist. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Norðurbrún 1. Kl. 9
tréskurður og opin
vinnustofa, kl. 10–11
ganga, kl. 10–15
leirmunanámskeið. Allir
velkomnir.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við böðun, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 10
boccia.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
kl. 9.30 morgunstund og
handmennt, kl. 10 leik-
fimi, kl. 10.45 boccia, kl.
13 brids.
Reykjavíkurdeild SÍBS
fer í sína árlegu Jóns-
messuferð sunnudaginn
23. júní. Farið verður
um sögustaði Njálu í
Rangárþingi og leið-
sögumaður verður Jón
Böðvarsson. Skráning í
ferðina fer fram í síma
SÍBS, 552 2150 á skrif-
stofutíma.
Ellimálaráð Reykjavík-
urprófastsdæma. Boðið
er upp á orlofsdvöl í
Skálholti í sumar. Í boði
er dvöl 1.–5. júlí. Skrán-
ing á skrifstofu f.h.
virka daga í síma
557 1666.
Félag eldri borgara,
Selfossi. Dagsferð á
Njáluslóðir. Farið verð-
ur á söguslóðir Njálu
þri. 25. júní. Leið-
sögumaður verður Ósk-
ar H. Ólafsson. Lagt af
stað frá Mörkinni
(Grænumörk 5) kl. 10
og komið við í Horninu.
Ferðaáætlun: Sögusetr-
ið á Hvolsvelli skoðað,
farið að Bergþórshvoli
og síðan að Vík í Mýr-
dal en þar verður léttur
hádegisverður. Síðan
farið í Kerlingadal og til
baka upp Mark-
arfljótsaura í leit að
Gunnarshólma. (Sumir
segja að Rangæingar
séu búnir að týna hon-
um.) Þaðan er farið að
Hlíðarenda. Kaffiveit-
ingar í Langbrók. Leið-
in liggur framhjá Þrí-
hyrningi að Keldum og
svo heim um Rang-
árvelli. Heimkoma áætl-
uð um kl. 18. Kostnaður
kr. 3.000–3.500 á mann.
Farpantanir og upplýs-
ingar í síma 482 4117
(Óskar) eða 482 2938
(Böðvar). Gjörið svo vel
að panta far ekki síðar
en á sunnudagskvöld.
Allir velkomnir.
Minningarkort
Slysavarnafélagið
Landsbjörg, Stangarhyl
1, 110 Reykjavík. S. 570
5900. Fax: 570 5901.
Netfang: slysavarna-
felagid@landsbjorg.is
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld í
sölubúðum Kvenna-
deildar RRKÍ á sjúkra-
húsum og á skrifstofu
Reykjavíkurdeildar,
Fákafeni 11, s.
568 8188.
Í dag er fimmtudagur
20. júní, 171. dagur ársins 2002.
Orð dagsins: En sá sem iðkar
sannleikann, kemur til ljóssins
svo að augljóst verði, að verk
hans eru í Guði gjörð.
(Jóh. 3,21.)
LÁRÉTT:
1 drambsfull, 8 þrífa, 9
varkár, 10 mergð, 11
veslast upp, 13 fífl, 15
reifur, 18 vel verki far-
inn, 21 skjól, 22 vinna, 23
amboðin, 24 ógallaður.
LÓÐRÉTT:
2 skurðurinn, 3 kvarta
undan, 4 gera fegurra, 5
dáin, 6 taflmann, 7 vend-
ir, 12 tangi, 14 eyða, 15
ræma, 16 ráfa, 17 slark,
18 kuldaskjálfta, 19
gæfu, 20 romsa.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 baksa, 4 tölta, 7 tældi, 8 pútan, 9 net, 11 raus,
13 hrár, 14 ólmar, 15 spöl, 17 ólag, 20 gró, 22 gónir, 23
sjúga, 24 lemur, 25 litla.
Lóðrétt: 1 bítur, 2 kólgu, 3 alin, 4 tæpt, 5 lítur, 6 agnar,
10 eimur, 12 sól, 13 hró, 15 segul, 16 önnum, 18 ljúft, 19
grana, 20 grær, 21 ósæl.
Áskorun til
borgaryfirvalda
VIÐ Sléttuveg 7 er yndis-
legur garður sem vel er
hugsað um og fyrir neðan
er SEM-blokkin, en þar er
einnig vel hugsað um um-
hverfið. En á milli þessara
blokka er svæði sem borgin
á og er það í órækt og ekk-
ert hugsað um það og er
það mikið lýti á umhverf-
inu. Er ég búin að búa hér
síðan blokkin var byggð og
hef aldrei orðið vör við að
hirt væri um þetta svæði
borgarinnar.
Vil ég skora á borgaryf-
irvöld að gera eitthvað til
að fegra þetta svæði.
Sjöfn.
Wet ’n’ Wild
Í Velvakanda fyrir stuttu
var fyrirspurn um hvar
Wet ’n’ Wild-snyrtivörurn-
ar væru fáanlegar. Vil ég
koma því á framfæri að
þessar snyrtivörur fást í
Samkaupum, Hafnarfirði.
Lesandi.
Gott apótek
ÉG vil benda fólki sem þarf
að fara í apótek á að fara út
á Seltjarnarnes í Nesapó-
tek, því það er ódýrasta
apótekið á landinu. Vil ég
þakka fyrir frábæra þjón-
ustu þar.
Grétar.
Þakkir
fyrir lóðaþrif
KÆRAR þakkir fyrir lóða-
þrif í Bústaðahverfi. Ung-
lingar undir stjórn Jó-
hönnu Ásgeirsdóttur eiga
þar hlut að máli. Sérstök
vinnubrögð, prúðmennska
og afburðaþrif. Aldrei verið
betra. Kærar þakkir.
Eldri borgarar
í Hólmgarði.
Tapað/fundið
Prostyle-
hjól týndist
PROSTYLE hjól, rautt og
blátt með dempurum fram-
an og aftan og með svartri
hjólatösku á stýri, týndist
frá Gnoðarvogi aðfaranótt
sl. laugardags. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
864 1282.
Reiðhjól
týndist
MONGOOSE grátt með
bögglabera týndist frá Ból-
staðarhlíð 68. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
553 2343. Fundarlaun.
Dýrahald
Gulbröndóttur
högni týndur
GULBRÖNDÓTTUR og
hvítur högni týndist frá
Bræðraborgarstíg. Hann
er eyrnamerktur, geltur og
með ól. Ef einhver hefur
séð hann endilega látið vita
í síma: 892 4504
Dimma er týnd
ÞETTA er Dimma, eins árs
læða, en hún hvarf að heim-
an frá Garðhúsum 14 í
Húsahverfi í Grafarvogi að-
faranótt fimmtud. 30. maí.
Hún var með rauða ól um
hálsin og gulllitaða tunnu
með nafni hennar í. Þeir
sem hafa séð hana vinsam-
legast hafi samband í síma
557 9224 eða 847 0794.
Fundarlaun.
Kisi er týndur
KISI er 5 ára svartur og
hvítur fress. Hann er með
gula ól með símanúmeri og
er eyrnamerktur. Hann
týndist frá Básenda 1 í
Reykjavík 11. júní. Þeir
sem vita um Kisa vinsam-
lega hafið samband í síma
588 6889 eða 659 6889.
Kettlingar
fást gefins
TVEIR 8 vikna kassavanir
kettlingar fást gefins. Upp-
lýsingar í síma 552 5886
eftir kl. 17.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
ÉG vil koma á framfæri
ánægju minni með góða
þjónustu hjá BT í Skeif-
unni. Ég kom þar með
bilaða myndavél í við-
gerð en það var u.þ.b. ár
síðan vélin var keypt.
Var ég búin að týna nót-
unni fyrir kaupunum en
ábyrgðin átti að renna
út eftir 1 ár. Á verk-
stæðinu var yndislegur
maður, Gunnar, sem
eyddi heilmiklum tíma í
tölvunni við að finna út
hvenær myndavélin var
keypt og fann hann út
að 1 dagur var eftir af
ábyrgðinni og fékk ég
þar af leiðandi viðgerð-
ina frítt.
Vil ég þakka honum
fyrir að hafa gefið sér
tíma að finna út úr
þessu og fyrir yndislega
framkomu.
Ánægður
viðskiptavinur.
Góð þjónusta
K r o s s g á t a 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI veit fátt skemmti-legra en að ganga um fjöll og
firnindi, hvort sem er að sumri eða
vetri, vori eða hausti. Fyrir Vík-
verja er Ísland líkt og sniðið að hans
kröfum um gott gönguland. Hér á
landi eru nefnilega engar verulega
stórar pöddur en allt frá því Vík-
verji var polli hefur honum verið
meinilla við flest skordýr. Ekki þó
húsaflugur og mýflugur (svo lengi
sem þær bíta ekki) og auðvitað eru
járnsmiðir og köngulær sáramein-
laus kvikindi. Í huga Víkverja gegn-
ir á hinn bóginn öðru máli um
hrossaflugur og býflugur svo ekki
sé minnst á hina stórhættulegu og
geðstirðu geitunga, sem Víkverja
finnst að hefði aldrei átt að hleypa
inn í landið. Sem betur fer er frekar
lítið af þessum kvikindum hér en
þeim virðist því miður fjölga þegar
sumur eru hlý og veturnir mildir,
eins og verið hefur síðustu árin. Í út-
löndum þrífast hins vegar alls kyns
skelfilega ljót og varasöm skorkvik-
indi sem Víkverji hefur engan
áhuga á að komast í tæri við. Það er
ekki þar með sagt að Víkverji fari
aldrei til útlanda en helst vill hann
vera þar á veturna þegar fáar pödd-
ur eru á stjái. Skíðaferðir eru þess
vegna ofarlega á vinsældalistanum.
Nóg um það í bili. Víkverji ætlaði
hér að fjalla um sitt helsta áhuga-
mál, fjöll og firnindi. Um liðna helgi
fór Víkverji í gönguferð með tveim-
ur góðkunningjum sínum. Leiðin var
ákveðin daginn sem lagt var af stað
og var stefnan sett á Strútslaug.
Víkverji vissi lítið um þetta svæði en
þar sem það er í V-Skaftafellssýslu
gerði hann einfaldlega ráð fyrir að
þar væri margt fallegt að sjá og kom
það líka á daginn.
x x x
GENGIÐ var frá Hólaskjóli viðNyrðri-Fjallabaksleið yfir að
Álftavötnum og síðan sem leið lá
vestur að Strútslaug. Þetta er hin
skemmtilegasta leið, margt að sjá og
kyrrðin var aðeins rofin með fugla-
söng og masinu í göngumönnum.
Strútslaugin er talsvert vatnsmik-
il og vatnið býsna heitt. Með lagni er
þó hægt að stýra vatnrennslinu
þannig að hitinn verði bærilegur og
eins og flestir göngumenn vita er
fátt betra en að láta þreytuna líða úr
sér í heitri laug eftir langa dagleið.
Þarna er líka hið besta tjaldstæði og
er staðurinn því kjörinn áfangastað-
ur. Víkverji var sem sagt hæst-
ánægður með ferðalagið en eitt varð
þó til þess að draga úr ánægju hans.
Á leiðinni frá Álftavatni að Strúts-
laug eru sums staðar ljót sár eftir
jeppahjólbarða. Greinilega hefur
einhver jeppamaðurinn ekki haft
jafn mikinn áhuga og Víkverji á
gönguferðum og því ákveðið að
keyra, jafnvel þó enginn væri veg-
urinn. Síðan hafa aðrir fylgt í kjöl-
farið og á einstaka stað má sjá mörg
hjólför hlið við hlið. Jafnvel þó jepp-
arnir hafi ekki skilið eftir sig ýkja
djúp för þegar þeir fóru yfir þá hafa
förin eftir dekkin opnað leiðina fyrir
vatn sem ryður burtu jarðveginum.
Mátti sums staðar sjá nokkurra
metra djúpa skurði sem einhvern
tíma voru tiltölulega grunn hjólför.
Jarðvegurinn úr hjólförunum berst
síðan yfir gróður og veldur þannig
enn meiri skemmdum.
Nú getur vel verið að áratugir séu
liðnir frá því þarna var ekið og
jeppamenn nútímans beri enga
ábyrgð á þessum skemmdarverkum.
Víkverji þykist vita að næstum allir
jeppamenn séu löghlýðnir og vilji
fyrir alla muni ganga vel um náttúr-
una. Engu að síður vill Víkverji
minna þá á að aka á vegum enda
feikinóg af þeim út um allt land.