Morgunblaðið - 20.06.2002, Page 45
1. d4 d5 2. Bg5 c6 3. Rf3 Bf5
4. e3 Db6 5. Dc1 Rd7 6.
Rbd2 e6 7. c4 Be7 8. c5 Dc7
9. Bf4 Dc8 10. b4 Rgf6 11. h3
h6 12. a4 Re4 13. Rxe4 Bxe4
14. Rd2 Bg6 15. b5 O-O 16.
Rb3 f6 17. Dc3 e5 18. Bg3
He8 19. Kd2 Bd8 20. a5 a6
21. b6 Be7 22. Bd3 exd4 23.
exd4 Bxd3 24. Dxd3 f5 25.
Kc2 Rf6 26. f3 Rh5 27. Bc7
Bg5 28. Hhe1 Dd7 29. g3 f4
30. g4 Rf6 31. He5 Df7 32.
Hae1 Bh4
33. H1e2
Bg3 34.
Bd6 Hxe5
35. dxe5
Rh7 36.
e6 Df6 37.
Df5
Dxf5+
38. gxf5
Bh4 39.
Rd4 Hc8
Staðan
kom upp
á Stiga-
móti
Hellis
sem lauk
fyrir
skömmu.
Björn Þor-
finnsson (2315) hafði hvítt
gegn Sævari Bjarnasyni
(2237). 40. Rxc6! Hxc6
40...bxc6 var einnig slæmt
vegna 41. b7. Einnig eftir
textaleikinn stendur hvítur
með pálmann í höndunum.
41. e7 Rf6 42. e8=D+ Rxe8
43. Hxe8+ Kh7 44. Hb8 Bf2
45. Hxb7 Bxc5 46. Hc7
Hxd6 47. Hxc5 Hd8 48. b7
Hb8 49. Hc7 og svartur
gafst upp. Þetta reyndist
eina tapskák Sævars í
mótinu en hann vann það
ásamt Sigurði Daða Sigfús-
syni.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 45
DAGBÓK
Filtteppi
Parket
Grasteppi
Sumartilboð
990 kr. m
2
2
2
á gólfefnum
395 kr. m
frá 2.990 kr. m
FIMMTUDAGSTILBOÐ
Á HERRASKÓM
Suðurlandsbraut
Sími 533 3109
Opið
mán.-fös. kl. 12-18
laugardaga kl. 10-16
Verð nú 2.995
Herraskór m. reimum
Teg. EURS93
Litur: Svartur
Stærðir: 40-46
Verð áður: 4.995
Herramokkasínur
Teg. SAB6045
Litur: Svartur
Stærðir: 40-46
Verð áður: 4.995
Verð nú 2.995
Árnað heilla
90 ára afmæli. Á morg-un, föstudaginn 21.
júní, verður níræður Jósafat
J. Líndal, fv. sparisjóðs-
stjóri SPK, Sunnubraut 34,
Kópavogi. Af því tilefni tek-
ur Jósafat á móti gestum á
afmælisdaginn milli kl. 16.30
og 18.30 í samkomusal
Hjúkrunarheimilisins
Sunnuhlíðar við Kópavogs-
braut í Kópavogi.
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 20.
júní, er fimmtug Kolbrún
Sigurðardóttir. Hún og eig-
inmaður hennar, Benedikt
Steingrímsson, eru erlendis
um þessar mundir.
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 20.
júní, er sjötugur Ólafur W.
Stefánsson, skrifstofustjóri
í dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu, Hrefnugötu 10,
Reykjavík. Hann tekur á
móti gestum á afmælisdag-
inn á Kjarvalsstöðum milli
kl. 18 og 21.
DEMANTSBRÚÐKAUP. Í dag, fimmtudaginn 20. júní, eiga
60 ára hjúskaparafmæli hjónin Valgerður Jónasdóttir hús-
móðir og Kristján Stefánsson, fyrrverandi yfirverkstjóri,
Einholti 6c, Akureyri. Valgerður er nú á Dvalarheimilinu
Hlíð, Akureyri.
TROMPÚTSPIL eru að-
eins rétt þegar þau eru
rétt. Segir Lew Mathe og
Mike Lawrence túlkar
þessa tuggu sem tilmæli til
makkers um að hugsa áð-
ur en framkvæmt er. Sem
er alltaf góð latína:
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ 2
♥ K2
♦ ÁG876
♣K10764
Vestur Austur
♠ ÁKG54 ♠ 107
♥ Á65 ♥ G1043
♦ D93 ♦ K1054
♣98 ♣DG5
Suður
♠ D9863
♥ D987
♦ 2
♣Á32
Vestur Norður Austur Suður
1 spaði 2 grönd Pass 3 lauf
Pass Pass Pass
Norður sýnir láglitina
með tveimur gröndum og
suður velur laufið.
Undir venjulegum
kringumstæðum væri
spaðaásinn rakið útspil til
að „kíkja á blindan“. En
aðstæður eru engan veg-
inn venjulegar. Blindur á
minnst 10 spil í láglitunum
og suður er skárri í laufi en
tígli. Vörnin fær í mesta
lagi þrjá slagi á hálitina
(sem ekkert geta farið) og
það ætti að vera forgangs-
verkefni að koma í veg fyr-
ir tígultrompanir. Þetta er
staða sem hrópar á útspil í
trompi – það er rétt af því
það er rétt!
Sjáum hvað gerist ef
vestur leggur niður spaða-
ás og skiptir svo yfir í
tromp. Suður tekur með ás
heima, spilar tígli á ás og
trompar tígul. Trompar
spaða í borði og annan tíg-
ul heima. Þar með fær
vörnin aðeins fjóra slagi,
eða einn á hvern lit.
Með trompi út strax
næst sagnhafi ekki að
stinga nema einn tígul og
spilið fer einn niður.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
LJÓÐABROT
VORVÍSUR
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn.
Allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.
Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur.
Eins mig fýsir alltaf þó
aftur að fara í göngur.
Jónas Hallgrímsson
Þetta er örugg vinna.
Þú byrjar neðst og
heldur þig þar.
KARÍBAHAF - 12 d.
hálfvirði = 2 fyrir 1
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA
Malasia - BALI - Singapúr
Algjört heimsklassa - Tækifæri
Sími 56 20 400
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMASTJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir mikill orku og
hefur brennandi áhuga á að
kynnast öðrum sjónar-
miðum í heiminum. Þú ferð
vel með peninga og tekur
skynsamlegar ákvarðanir í
fjármálum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þess er krafist að þú sinnir
málefnum sem tengjast fjöl-
skyldunni. Sýndu þolinmæði
og láttu ekki skapið hlaupa
með þig í gönur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sýndu ættingjum þínum þol-
inmæði. Þú munt einhvern
tíma átta þig á því að fjöl-
skyldan er til staðar þegar þú
þarft á stuðningi að halda.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þig langar til þess að kaupa
eitthvað sérstakt handa sjálf-
um þér. Veltu þessum hlutum
fyrir þér í einhvern tíma.
Farðu svo og veldu nákvæm-
lega það sem þig langar í.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Sólin hefur haldið innreið
sína í þitt merki. Mikilvægt er
að þú getir safnað orku næstu
fjórar vikurnar; andlega, lík-
amlega og tilfinningalega.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ekki hörfa undan sviðsljósinu
sem beinist að þér. Þú þarft
ekki að gera neitt sérstakt til
þess að verðskulda þá viður-
kenningu sem þér hlotnast.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú þarft að leggja harðar að
þér til þess að ná betri ár-
angri, hvort sem það er í
starfi eða í einkalífi. Þú hefur
mikla þörf fyrir að víkka sjón-
deildarhringinn og læra nýja
hluti.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Nýttu tímann til þess að fara
yfir fjármál þín, en trygging-
ar, reikningar og skattamál
eru í ólestri. Þér finnst verk-
efni sem þetta eflaust leiðin-
legt en það borgar sig ekki að
vanrækja slíka hluti.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Náinn vinur eða félagi leitar
eftir hvatningu og samúð frá
þér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú skalt kaupa þá hluti sem
geta aðstoðað þig við að koma
skipulagi á hlutina í starfi og í
vinnu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Daður á vinnustað vekur hjá
þér nýjar kenndir. Þér finnst
það ánægjulegt að vita af því
að fólk dáir þig á vinnustaðn-
um.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur haft mikið að gera í
skemmtanalífinu að undan-
förnu. Notaðu þann tíma sem
er framundan fyrir sjálfan
þig til þess að endurheimta
þá orku sem þú hefur eytt.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Líklegt er að þú eignist nýjan
vin í dag. Það getur borgað
sig að vera opin/n fyrir þeim
sem þú kynnist.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.